Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Bergljót Arnfríð-ur Gunnarsdóttir
fæddist í Akurseli í
Öxarfirði 28. júní
1924. Hún lést á St.
Jósefsspítala í Hafn-
arfirði 18. október
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru
Gunnar Jónsson,
bóndi í Akurseli í Öx-
arfirði, f. 8. júní 1895,
d. 11. maí 1943, og
Guðríður Einarsdótt-
ir, f. 16. mars 1895, d.
3. ágúst 1953. Systir
Bergljótar, sam-
mæðra er Halldóra Lára Ólafs-
dóttir, f. 26. september 1912. Al-
systkini Bergljótar eru Rósa
Gunnarsdóttir, f. 25. desember
1918, Einar Guðbjörn Gunnars-
son, f. 20. júlí 1922,
d. 31. mars 2002, og
Jón Hörður Gunn-
arsson, f. 26. júlí
1928, d. 17. mars
1993.
Bergljót giftist
Eyþóri Júlíussyni
málarameistara 20.
apríl 1974. Foreldr-
ar hans voru Júlíus
Þorkelsson málara-
meistari, f. 30. júlí
1895, d. 9. febrúar
1964, og Margrét
Ólafsdóttir, f. 18.
apríl 1904, d. 6. jan-
úar 1993. Bergljót starfaði lengst
af við afgreiðslustörf.
Útför Bergljótar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Það er margs að minnast þegar
kona eins og Begga fellur frá því
alla tíð hafa þau hjónin verið mér
sem amma og afi. Eftir að við
systkinin uxum úr grasi og eign-
uðumst okkar fjölskyldur hafa
ferðir í Fjörðinn verið ófáar og
ávallt haft sinn sjarma. Begga var
alltaf hlýjan og umhyggjan upp-
máluð og ósjaldan laumaðist hönd í
lófa.
Á áttræðisafmælinu hennar síð-
astliðið sumar fengum við góða
kvöldstund með þeim hjónum og
borðuðum góðan mat með fallegu
útsýni út á hafið. Begga var glöð
BERGLJÓT
GUNNARSDÓTTIR
Elsku besti afi, Gunn-
ar afi, eins og við skell-
urnar vorum vanar að
kalla þig, nú ertu farinn
frá okkur. Síðustu dag-
ar þínir á þessari jörð voru ekki auð-
veldir og við vitum að þér líður betur
þar sem að þú ert núna.
Þegar við vorum yngri þá fórum við
Laugaveginn oft og hvenær sem að
maður kom, biðu okkur opnir armar
ykkar ömmu og ekki vantaði knúsin
hjá ykkur, það var alltaf nóg af þeim.
Við vitum líka að þú átt eftir að sakna
matarins hjá ömmu.
Aldrei var langt í hlátur og hrekki
hjá þér, enda jólaboðin á Laugaveg-
inum og í Grafarvoginum ekki þekkt
fyrir það að vera róleg og lágvær.
Þegar Salka kom til þín tókst henni
GUNNAR HAUKUR
EIRÍKSSON
✝ Gunnar HaukurEiríksson fædd-
ist á Seltjarnarnesi
25. mars 1923. Hann
lést á Landspítalan-
um við Hringbraut
aðfaranótt 13. októ-
ber síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Grafarvogs-
kirkju 21. október.
alltaf að snúa þér og fá
að horfa á Tomma og
Jenna þótt þú værir að
horfa á boltann. Við
skiljum ekki ennþá
hvernig var hægt að
snúa þér þannig, en hún
gerði það.
Ég man að þú sagðir
við mig, hvernig geta
tvær systur verið svona
ólíkar, en samt líkar?
Erna fór í snyrtifræði
og ég í flugvirkjun,
þetta fannst þér alveg
með ólíkindum, en samt
getum við verið líkar.
Þú komst til Madríd í vor með
pabba og Ragnari frænda, við skellt-
um okkur á góðan fótboltaleik og það
var gaman að sjá andlitið á þér ljóma,
þú gast ekki hætt að brosa. Þú varst
kominn til Mekka, eins og þú orðaðir
það sjálfur, og varst sáttur. Daginn
eftir fórum við tvö í ísbíltúrinn okkar
og náðum að tala um allt og ekki neitt
og auðvitað fékk ég margar sögur hjá
þér, enda varstu mikill sögukarl.
Ég man eftir þegar ég bauð þér
fyrst í mat til mín í Bakkaselinu, og
við amma biðum spenntar eftir því
hvað þú myndir segja, en þú hafðir
svo gaman af því að borða fondúið,
salatið og talaðir allan tímann um það
hvað það væri gott að fá salat og hafð-
ir virkilega gaman að prófa fondú.
Svo sátum við öll inn í litlu stofunni,
hlustuðum á góða músík og töluðum
saman frameftir. Þetta kvöld varst þú
ekkert að flýta þér heim og slappaðir
af með fjölskyldunni og við áttum
bestu kvöldstund sem ég hugsa oft til.
Elsku afi, hvíldu vel
Erna María, Hrönn og Salka Ósk.
Tengdafaðir minn, Gunnar H Ei-
ríksson, er látinn eftir stutta en erfiða
sjúkrahúslegu. Það var erfitt að fylgj-
ast með síðustu baráttu hans, manns
sem ekki var vanur að gefa eftir og
stóð brattur í lífsins ólgusjó á hverju
sem gekk. En þessi slagur gat aðeins
farið á einn veg og varð hann að játa
sig sigraðan fyrir þeim vágesti sem
krabbameinið er.
Ég man þegar ég kom fyrst á heim-
ili tengdaforeldra minna við Lauga-
veg, það var að hausti árið 1974 svo
kynni mín af tengdaföður mínum ná
yfir 30 ára tímabil. En ekki leið á
löngu áður en mér varð ljóst hvílíkur
öndvegismaður var þar á ferð.
Og það var engin lognmolla í kring-
um hann tengdapabba. Hann lá ekki á
skoðunum sínum og fylgdist vel með
þjóðmálum og hef ég grun um að
stundum hafi gustað hressilega á
fundum hjá sjómannafélaginu en þar
lét hann sig helst aldrei vanta og var
hann jafnan fremstur í flokki þegar
Í PERLUNNI
Erfidrykkjur
Upplýsingar og pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.250 kr. á mann.
www.englasteinar.is
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, sonur og afi,
GUNNAR MOGENSEN,
Markarvegi 3,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtu-
daginn 28. október kl. 13:30.
Hulda G. Mogensen,
Elsa Mogensen, Páll Guðmundsson,
Mogens Gunnar Mogensen, Margrét Líndal Steinþórsdóttir,
Guðrún Þóra Mogensen, Árni Sigurjónsson,
Petra Björk Mogensen, Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
Petra Mogensen
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HELGA SVEINSDÓTTIR,
Mýragötu 18,
Neskaupstað,
áður Mánagötu 25,
Reyðarfirði,
lést aðfaranótt sunnudagsins 24. október á
Fjórðungssjúkrahúsi Neskaupstaðar.
Anna Þ. Sigurðardóttir, Jóhannes Bjarmarsson,
Hulda Sigurðardóttir, Guðmundur Ágúst Pétursson,
Arndís Sigurðardóttir, Vilberg Einarsson,
Guttormur Sigurðsson, Andrea Vieira,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÁN BJÖRN GUÐMUNDSSON
frá Ísafirði,
áður Grandavegi 47,
Reykjavík,
lést á Vífilsstöðum sunnudaginn 24. október.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ólafur G. Kristjánsson, Svanborg Eyþórsdóttir,
Sigurbjörn E. Kristjánsson, Erla Kjartansdóttir,
Rolf Kristjánsson,
Ellý A. Kristjánsdóttir,
Kristjana Kristjánsdóttir, Snorri Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÁRNI BJÖRNSSON
læknir,
Blátúni 4,
Álftanesi,
lést á Landspítalanum Hringbraut aðfaranótt
sunnudagsins 24. október sl.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 3. nóvember
kl. 13.30.
Guðný Theódórsdóttir Bjarnar,
Vilborg Sigríður Árnadóttir,
Kristín Árnadóttir, Ásgeir Ólafsson,
Björn Theódór Árnason, Sigurlín Einarsdóttir Scheving,
Einar Sveinn Árnason, Margrét Þorvarðardóttir,
Árni Árnason,
Vilhjálmur Jens Árnason,Hanna Birna Kristjánsdóttir,
barnabörn og langafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
AUÐUR EIRÍKSDÓTTIR,
Langholtsvegi 122,
Reykjavík,
lést á sjúkrahúsi í Alanya í Tyrklandi laugar-
daginn 23. október.
Útförin verður auglýst síðar.
Kornelíus Sigmundsson, Anna Soffía Hauksdóttir,
Þórdís Eiríksdóttir, Magnús Andrésson,
Loftur Atli Eiríksson, Sigrún Hauksdóttir
og barnabörn.
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
HALLDÓRA JÚLÍUSDÓTTIR,
Gnoðarvogi 68,
lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn
23. október sl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Magnús Finnbogason,
Hafliði Magnússon, Svanhildur Agnarsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir til ykkar allra, sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við fráfall og útför
GUÐMUNDAR SVEINBJÖRNSSONAR
frá Sölvanesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofn-
unar Sauðárkróks.
Guð blessi ykkur öll.
Aðstandendur.
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta