Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 15 ERLENT ARIEL Sharon, forsætisráðherra Ísraels, lýsti yfir því í gær að áætlun hans um brottflutning landtökumana frá Gaza-svæðinu myndi styrkja Ísr- ael. Lét forsætisráðherrann þessi orð falla skömmu eftir að fréttir höfðu borist um að 14 Palestínumenn, hið minnsta, hefðu týnt lífi í gær og á sunnudag í umfangsmiklum aðgerð- um Ísraelshers á Gaza-ströndinni. Ellefu ára gamall drengur var á með- al þeirra sem drepnir voru. Palestínumennirnir voru ýmist drepnir í loftárásum eða árásum skriðdreka og stórskotaliðs í og við Khan Yunis-flóttamannabúðirnar á sunnanverðu Gaza-svæðinu. Aðgerð- ir þessar hófu Ísraelar seint á sunnu- dag en Gaza er eitt þéttbýlasta svæði í heimi hér. Var því óttast að tala lát- inna ætti eftir að hækka. Palestínu- menn segja að 70 menn hið minnsta hafi særst í átökum þessum. Talsmaður Ísraelshers sagði að „umsvif“ liðsaflans við Khan Yunis hefðu verið aukin í kjölfar þess að sprengjukúlum hefði verið skotið á byggðir landtökumanna þar nærri á undanliðnum dögum. Ísraelar beittu m.a. fjarstýrðri flugvél sem skaut eigi færri en fjórum eldflaugum. Ein hæfði varðstöð Palestínumanna og varð tveimur mönnum að bana. Óbreyttir borgarar voru sagðir hafa týnt lífi í átökum ísraelskra her- manna og skæruliða við Khan Yunis auk þess sem fullyrt var að eldflaug- ar Ísraela hefðu hæft íbúðarhús í flóttamannabúðunum. Atkvæði greidd um áætlun Sharons Árásirnar voru gerðar fáeinum klukkustundum eftir að ríkisstjórn Ísraels samþykkti að greiða bæri landtökumönnum á Gaza og fjöl- skyldum þeirra bætur vegna þeirrar ákvörðunar Ariels Sharons forsætis- ráðherra að leggja byggðir þeirra niður og kalla heraflann heim frá Gaza. Þing Ísraels, Knesset, greiðir í dag atkvæði um þá áætlun Sharons. Þykir líklegt að hún verði samþykkt jafnvel þótt allt að 18 af 40 þing- mönnum Likud, flokks Sharons, greiði trúlega atkvæði gegn áætlun- inni. Þingmenn tveggja vinstri flokka, Verkamannaflokksins og Yahad, hyggjast styðja Sharon og því er spáð að flokkur hans kunni að klofna eftir atkvæðagreiðsluna í dag. Sharon ver áætlun um brottflutning Áætlun Sharons felur í sér að 8.000 landtökumenn á Gaza-svæðinu munu þurfa að yfirgefa byggðir sínar sem og nokkur hundruð þeirra til viðbót- ar sem tekið hafa sér land á Vest- urbakkanum. Alls eru landtökumenn gyðinga um 240.000 talsins þannig að hér ræðir aðeins um rúm þrjú pró- sent þeirra. Umræða um áætlun Sharons hófst á þingi í gær og sagði forsætisráð- herrann að brottflutningur frá Gaza myndi „styrkja Ísrael“. Hann lýsti og yfir því að brottflutningnum væri ekki ætlað að koma í stað viðræðna við Palestínumenn og myndi því ekki reynast fallinn til „að frysta“ ferli það sem gangsett hefur verið í því augna- miði að stilla til friðar með Ísraelum og Palestínumönnum. Sagði for- sætisráðherrann að með þessu móti myndu Ísraelar „þokast fram veginn í átt til friðarsamnings við nágranna okkar, Palestínumenn“. Hét hann því að fylgja áætluninni eftir og víaði á bug ásökunum um að hann hefði blekkt kjósendur og almenning í Ísr- ael. „Ég sagði hreint út að ég væri fylgjandi palestínsku ríki,“ sagði Sharon. Áætlun Sharons hefur orðið til þess að auka vopnaskakið á Gaza. Segja fréttamenn á staðnum að pal- estínskir skæruliðar hafi hert árásir sínar í því augnamiði að láta líta út sem Ísraelar hafi afráðið að hörfa þaðan. Ísraelsher sakar Palestínu- menn um að hafa hert árásir sínar á byggðir landtökumanna. 4.500 manns liggja í valnum Tala fallinna fer enda sífellt hækk- andi. Réttir tíu dagar eru nú liðnir frá síðustu meiriháttar aðgerð her- afla Ísraela á norðanverðu Gaza- svæðinu sem kostaði ekki færri en 107 Palestínumenn og fimm Ísraela lífið. Alls hafa nú 4.528 manns týnt lífi frá því að seinni uppreisn eða intifada Palestínumanna hófst í sept- embermánuði árið 2000. Af þeim sem fallið hafa eru 3.498 Palestínumenn og 956 Ísraelar. AP Ísraelskir landtökumenn mótmæltu fyrirhuguðum brottflutningi frá Gaza úti fyrir ísraelska þinginu í gær. Sharon segir brott- flutning styrkja Ísrael Fjórtán Palestínumenn, hið minnsta, drepnir í aðdrag- anda atkvæðagreiðslu um brottflutning frá Gaza Gazaborg. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.