Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 25 UMRÆÐAN NOKKUR umræða hefur orðið í fjölmiðlum og á www.msspjallid- .com um málefni MS-félags Ís- lands. Það muna eflaust margir eft- ir heitum einræðum nokkurra skjólstæðinga dagvistar á vegum MS-félagsins fyrir rúmu ári. Einræðum sem leiddu m.a. til svo- kallaðrar hallarbylt- ingar hjá MS-félaginu. Ég sem formaður á þeim tíma gerði mér grein fyrir því að stað- an sem MS-félagið var komin í var nákvæm- lega sú sem ég hef áð- ur varað við. Þ.e. þeg- ar starfsmenn á vegum félagasamtaka beita skjólstæðingum sínum fyrir hagsmuni sína er ekki á góðu von. Þetta hefur því miður ítrekað gerst hjá sjúklinga- félögum og þarf ekki að minna á einstök dæmi í því sambandi. MS-félag Íslands var stofnað af MS-sjúklingum og aðstandendum þeirra, ásamt áhugafólki um mál- efni MS-sjúklinga. MS-félag Íslands var um tíma stýrt af taugalækni sem var for- maður þess um skeið (Sverri Berg- man) en sökum annríkis átti ekki auðvelt með að sinna því jafnmikið og sjúklingarnir þurftu og vildu. Því hvatti hann sjúklinga sjálfa til að taka málin í sínar hendur og tók Gréta Morthens við starfi for- manns af honum. Síðan þá hafa MS-sjúklingar stýrt MS-félaginu að mestu sjálfir með aðstoð að- standenda. Nokkru áður en opnuð var skrif- stofa og síðan sjúkradagvist á veg- um MS-félagsins gekk John E.G. Bendikz taugalæknir til liðs við Grétu og MS-félagið. Hann gerðist ábyrgur fyrir starfsemi dagvist- arinnar og gerði félaginu kleift að opna hana og reka. Öll hans vinna var sjálfboðavinna fyrir MS- félagið. Alhliða þjónusta Það var ekki fyrr en MS-félagið stofnaði sjálfseignarstofnun um rekstur dagvistarinnar árið 2000 sem John fór að fá greitt fyrir sín störf. Eftir að MS-félagið lét byggja eigið húsnæði sem reist var 1995 og síðan byggja göngudeild við það sem vígð var árið 2000 fóru í gang samningaumleitanir við ríkið til að tryggja alla þjónustu MS-félagsins. Það kom fram gífurleg þörf á þjón- ustu við nýgreinda og aðra sem ekki áttu er- indi inn á sjúkra- dagvist, eins og fólk af landsbyggðinni og að- standendur. Þessu sinnti MS-félagið með aðstoð fagaðila m.a. af dagvistinni. Þegar fagfólk dagvistar fór fram á aukagreiðslur frá MS-félaginu fyrir að sinna þeim störfum var ljóst að auka þyrfti umsvif heild- arþjónustunnar og fá greitt fyrir frá þeim sem ber skylda til að greiða fyrir þjónustuna þ.e. ríkinu. Skipst var á skoðunum um það hvort dagvistin ætti að ganga í þá samninga eða hvort MS-félagið ætti að gera það. Niðurstaðan eftir nokkrar þreifingar var að MS- félagið gerði það. Í viðræðum MS- félagsins við heilbrigðisráðuneytið kom fram vilji frá ráðuneytinu um að gera þjónustusamning um heild- arstarfsemi á vegum MS-félags Ís- lands þar sem við höfðum sýnt fram á að sparnaður gæti orðið af samrekstri þessarar þjónustu og þar með væri það beinn hagur fyrir ríkið að við sinntum henni og að sama skapi hagur fyrir félagsmenn að þessu yrði betur sinnt. Hagsmunagæsla einstaklinga Flókin hagsmunagæsla sem of langt mál yrði að fara í gegn um í blaðagrein fór af stað og leiddi til hallarbyltingar hjá MS-félaginu. Öllum áætlunum um aukin umsvif á vegum MS-félagsins var ýtt til hlið- ar af heilbrigðisyfirvöldum. Í framhaldi af stjórnarskiptunum var skipt um stjórn hjá dagvistinni og John E.G. Bendikz sagt upp störfum og hefur hann horfið frá MS-félaginu með sína þekkingu. Maríu Ríkarðsdóttur var og sagt upp en Þuríður R. Sigurðardóttir var ráðin aftur til starfa fyrir dag- vistina einnig eftir að skipt hafði verið um stjórn hjá dagvistinni og virðist sem endurráðning Þuríðar hafi verið gulrótin sem leiddi til hallarbyltingar hjá MS-félaginu. Þuríður hafði sagt upp störfum hjá dagvistinni áður vegna þess að hún sætti sig ekki við ákvarðanir stjórnar, sem þó hafði hana með í ráðum varðandi þær. Það að starfs- fólk á vegum sjúklingafélags komi fram með þeim hætti sem Þuríður gerði er algerlega óþolandi og ein- ungis til þess fallið að veikja félag- ið. Veljum Val Smára Veljum nýja stjórn til MS-félags Íslands á komandi aðalfundi. Ung- ur maður Valur Smári Þórðarson hefur gefið kost á sér til starfsins og vona ég fyrir hönd MS-félags Ís- lands að hann og það ágæta fólk sem með honum býður sig fram nái kjöri. Það gerir félaginu auðveld- ara að halda áfram þar sem frá var horfið, fá John aftur til starfa fyrir það og byggja upp traust á ný. Að lokum Látið hefur verið að því liggja að samstarfsörðugleikar við nýja for- manninn Sigurbjörgu Ármanns- dóttur hafi leitt til uppsagnar Johns. Ég segi fyrir mig að ef ég á að velja á milli þekkingar Johns annars vegar og persónu Sig- urbjargar hins vegar, þá tek ég þekkingu Johns á MS-sjúkdóm- inum fram yfir. Það fólk sem tók við eftir hallarbyltinguna lofaði því statt og stöðugt að þau myndu koma með friði. Samt sem áður hefja þau sín störf á að reka frá MS-félaginu lykilmann eins og John. Er það að koma með friði? MS-félag Íslands og málefni þess Vilborg Traustadóttir fjallar um málefni MS-félags Íslands ’… þegar starfsmenn ávegum félagasamtaka beita skjólstæðingum sínum fyrir hagsmuni sína er ekki á góðu von.‘ Vilborg Traustadóttir Höfundur er fyrrverandi formaður MS-félags Íslands og starfandi frkvstj. d&e MS árið 2003. Í 10-fréttum ríkissjónvarpsins 19. október sl. bárust okkur kenn- urum verkfræðideildar, fyrrver- andi og núverandi nemendum kaldar kveðjur frá ráðherra menntamála þegar hún var að fagna sameiningu Há- skólans í Reykjavík og Tækniháskóla Ís- lands. Orðrétt sagði hún: „Við Íslendingar höf- um aðeins verið eft- irbátar annarra þjóða þegar kemur að tæknimenntun og verkfræðimenntun. Ég sé einfaldlega sameiningu þessara háskóla, sem báðir höfðu ætlað í sitt hvoru lagi að byggja upp verkfræðinám, ég sé þetta sem tækifæri til þess að rífa okkur úr meðaltalinu og vera meðal fremstu þjóða í tækni- og verkfræði- málum.“ Tilvitnun lýkur. Ég hef starfað við verk- fræðideild HÍ í 32 ár síðan loka- próf til verkfræðináms hófst. Ég lét af störfum núna í haust. Helstu markmið sem menn settu sér þá voru: Að veita haldgóða grunnmenntun á breiðu sviði verk- fræði. Að nemendur okk- ar gætu farið í fram- haldsnám hvar sem er við erlenda tæknihá- skóla. Þessar kröfur okk- ar frá byrjun hafa haldist í megin- dráttum. Þó hefur margt annað breyst t.d. höfum við tekið upp meistara- og doktorsnám. Nemendum okkar hefur gengið frábærlega í framhaldsnámi er- lendis, bæði vestan og austan Atl- antshafs og hafa margir skólar beðið okkur um að senda þeim fleiri frábæra nemendur. Í Morgunblaðinu 22. október skrifuðu þrír formenn nemanda- félaga verkfræðinema ágætisgrein sem lýsir þeim kröfum sem gerðar eru til námsins og er óþarfi að endurtaka hér. Um leið og ég fagna sameiningu háskólanna tveggja sem áður voru nefndir harma ég ummæli menntamálaráðherra sem vega að núverandi og fyrrverandi nem- endum og okkur kennurunum við verkfræðideild Háskóla Íslands. Ummæli menntamála- ráðherra um verkfræði- menntun á Íslandi Valdimar K. Jónsson fjallar um verkfræðimenntun ’Um leið og ég fagnasameiningu háskólanna tveggja sem áður voru nefndir harma ég um- mæli menntamálaráð- herra …‘ Valdimar K. Jónsson Höfundur er prófessor emeritus. HINN 6. sl. svarar Helgi Laxdal mér hér á síðum Morgunblaðsins og virðist karlinn vera á þokkalegri siglingu þó svo hann steyti stund- um á. Hann er greinilega betri í vél en brú, svona rammvilltur inni í annars fögrum skerjagarði. Hefur hann aðeins dregið úr með að reyna að gera mig tor- tryggilegan og snúið sér meir að málefninu og er það gott. En hann getur ekki alveg haft hemil á sér held- ur staðsetur mig út á sjó og gerir því skóna að ég í skjóli útgerð- arinnar fái upplýs- ingar um dagbók- arfærslur hans í gegnum útgerðina og útgerðin sjái um að koma skrifum mínum hratt og vel í Morg- unblaðið. Helgi minn, ég er einfaldlega staddur heima hjá mér á Spáni og fylgist með í gegnum netið og svargrein mín í Morg- unblaðinu sem birtist um daginn fékk ég birta með því að skipta á grein sem var send þangað miklu fyrr, svo er nú það. Þá fer hann loksins að tala um eitthvað sem skiptir máli og spyr afhverju hafi verið sendir 24 í stað 20 í yf- irstandandi veiðiferð. Svarar hann með annarri spurningu: „Getur það verið að þessi fórnfúsi örláti út- gerðarmaður sé að hefna sín á áhöfninni vegna þess að honum hefur ekki tekist enn að haga kjör- um hennar að vild?“. Ég spyr á móti: Hvað er verkfall? Er það kannski í huga Helga hefnd- araðgerð, og á hverjum bitnar hún? Hún bitnar á báðum aðilum, raunar á allri þjóðinni. Aðgerð Brims sé ég sem aðgerð í kjarabaráttu sem bitnar á báðum aðilum. Síðan kemur hann að frystiálag- inu sem er meginásteytingarsteinn- inn í þessu máli. Byrjar hann á að leggja mér orð í munn um að Guðmundi Kristjáns- syni þyki 10% frystiálagið ósann- gjarnt við grálúðuveiðar og ætti því að vera sáttur við það í öðrum til- fellum. Er mér fyrirmunað að sjá í grein minni að slíkt komi einhvers staðar fyrir og er það eftir öðrum tilbúningi sem Helgi gefur sér sí og æ. Aftur á móti segi ég það mína skoðun að niðurfelling frystiálags- ins sé í okkar tilfelli ekki ósann- gjörn. Ég leyfi mér líka að hafa þá skoðun að ég sé enga ástæðu til að hafa frystiálag ef ekkert álag er fyrir hendi. Get ég aftur á móti séð fyrir mér að frystiálagið gæti kom- ið inn þegar álag er, eins og þegar þarf að standa miklar aukavaktir. Ég efa ekki að hægt er að útfæra slíkt á sanngjarnarn hátt. Það er einnig margt annað sem laga mætti með sanngirni, eins og í sambandi við olíuhlutdeild. Auðvitað vildi ég að hún hyrfi, en það er eitt sem hlýtur að mega laga, það er að aldrei sé hægt að taka meiri olíu- hlutdeild en sem nemur ákveðnu hlutfalli af olíukostnaði í hverjum túr eða á mánuði. Það kemur jú oft fyrir að hátt aflaverðmæti, sér- staklega á bátaflotanum, gerir það að verkum að áhöfnin greiði með sinni olíuhlutdeild hátt í allan olíukostnaðinn. Það eru svona atriði sem ég tel að megi leysa með sanngirni og verða þá samningsað- ilar að líta hvor í ann- ars garð og ekki verra ef þeir legðu leið sína í þjóðargarðinn í leið- inni. Endar formaðurinn svo með að benda á að hans umbjóðendur hafi samning til áramóta 2005. Já Helgi! samn- ing sem gerður var af þinni hálfu og rauf samstöðu sjómanna- samtakanna og er ein af ástæðum þess að ekki hefur enn samist hjá okkur hinum. Það er alveg rétt. Með skrifum mínum undanfarið hef ég ver- ið að ræða um kjör á því skipi sem ég er á, en einnig, og það er aðalástæða þess að ég lagði lykla- borðið undir fingur, að ég tel upp- byggingu sjómannahreyfingarinnar barn síns tíma og brýna þörf á að brjóta allt það kerfi upp. Fyrr tel ég ekki að árangur náist eins og undanfarinn áratugur hefur sannað. Mín skoðun er að vegna mismun- andi hagsmuna á milli útgerð- arflokka sé nauðsynlegt að stofnuð verði sjómannafélög i hverjum út- gerðarflokki um sig og samnings- rétturinn verði þar. Samböndin geta svo verið sameiginlegur þjón- ustuaðili félaganna. Þannig held ég að betri árangur náist við gerð kjarasamninga þar sem einungis er verið að semja um hagsmuni eins útgerðaflokks. Svo geta félögin unnið sín í milli að sameiginlegum verkefnum og stutt hver önnur í kjarabaráttu. Og enn og aftur Helgi, reyndu að temja þér þann sið að bera virð- ingu fyrir þeim sem þú átt í orða- skiptum við og varast að bera á borð dylgjur og tilbúning. Það eru oftast mörg sjónarhorn á málum og maður sem á að semja, eins og þú, þarf að temja sér það frekar en margur annar. Þá einstrengings- legu afstöðu sem mér finnst koma fram hjá samtökum sjómanna get ég ómögulega skilið og ef ein- strengingshátturinn er eins hjá LÍÚ þá er einfaldlega ekki hægt að semja. Hafðu það svo gott, Helgi Arnljótur Arnarson svarar grein Helga Laxdal Arnljótur Arnarson ’Hann ergreinilega betri í vél en brú, svona ramm- villtur inni í annars fögrum skerjagarði.‘ Höfundur er í áhöfn Guðmundar í Nesi. Jólaskeið Ernu kr. 6.700 Gull- og Silfursmiðjan Erna Skipholti 3 • sími 552 0775 • www.erna.is Landsins mesta úrval Silfurbúnaður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.