Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. ÍSLENSKU friðargæsluliðarnir sem meiddust í sprengjuárás í Kabúl á laugardag eru vænt- anlegir til landsins nk. föstudag. Þeir óskuðu sjálfir eftir að fá sjúkraleyfi og var það fúslega veitt. „Ég skil það mjög vel og er ánægður með að menn vilji fara heim og hitta sínar fjöl- skyldur. Þetta er áfall fyrir alla. Menn þurfa að knúsa eiginkonurnar sínar og þær þurfa að sjá að þeir eru við góða heilsu,“ segir Hallgrímur Sigurðsson, yfirmaður flugvallarins í Kabúl. Þeir Sverrir Haukur Grönli og Steinar Arn- ar Magnússon voru fluttir á Kabúl-flugvöll í gær. Stefán Gunnarsson dvelur enn á þýsku hersjúkrahúsi í útjaðri Bagdad og er gert ráð fyrir að hann útskrifist þaðan á morgun. Að sögn Hallgríms fékk Stefán um 25–30 sprengjubrot í fætur, eitt í kinn og tvö í eyrna- snepil. Stefán gengur við hækju en þegar Hall- grímur heimsótti hann á sjúkrahúsið var svo mikil ferð á honum að Hallgrímur segir að hann hafi þurft að hafa sig allan við að ganga Stefán uppi. Hallgrímur segir að fjarvera þre- menninganna muni ekki hafa mikil áhrif á rekstur flugvallarins, aðrir muni einfaldlega leggja á sig meiri vinnu og enginn telji það eft- ir sér. Þá muni þeir Sverrir og Steinar líklega snúa aftur fljótlega. Gríðarlegt rykský og reykur Hallgrímur var ásamt tveimur íslenskum friðargæsluliðum inni í verslun þegar árásin var gerð en þrír stóðu við bifreið fyrir utan. Hann segir að friðargæsluliðarnir hafi staðið sig frábærlega vel. „Þetta gerist allt á innan við 20 sekúndum. Hann kastar tveimur sprengjum áður en hann kemur að þeim og um leið og þær springa þá þyrlast upp gríðarlegt rykský og reykur. Það verður allt svart. Hann hleypur trúlega áfram inn í reykskýið og alveg inn að þeim og sprengir þá sjálfan sig. Þetta gerist allt á örfáum sekúndum,“ segir hann. Viðbrögð friðargæsluliðanna í kjölfarið hafi verið hárrétt, þeir hafi komið sér af vettvangi eins fljótt og mögulegt var en hefði brottförin tafist í 2–3 mínútur hefðu þeir að öllum lík- indum ekki komist af staðnum í 2–3 klukku- stundir vegna öngþveitis sem myndaðist í kjöl- far árásarinnar. Þá hafi áfram verið hætta á ferðum þar sem enn voru ósprungnar sprengj- ur á vettvangi. Íslensku friðargæsluliðarnir voru í einkaer- indum þegar árásin var gerð. Aðspurður segir Hallgrímur að líklega verði starfsmönnum flugvallarins bannað að fara um götuna og næsta nágrenni og að allar ferðir Íslendinga þangað hafi þegar verið bannaðar. Þá hafi ver- ið hert á öðrum reglum, m.a. þurfa nú fleiri að ferðast saman en áður. Friðargæsluliðarnir sem særðust eru væntanlegir til landsins á föstudag „Menn þurfa að knúsa eiginkonurnar sínar“ Fékk 25–30 sprengjubrot í fætur ÞÓTT fremur kalt hafi verið í veðri hafa hinir svölu, stilltu og björtu dagar hentað vel til útivistar, að því gefnu að menn klæði sig eftir aðstæðum líkt og þessi maður sem var á gangi við Tjörnina í Reykjavík í nokkrum strekkingi á dögunum. Reikna má með stilltu veðri í dag en gert er ráð fyrir hlýnandi veðri og vætu undir helgi. Morgunblaðið/Kristinn Froststillur í upphafi vetrar Á BILINU 60–70 fötluð börn fengu vistun með stuðningsfulltrúum í húsnæði Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur í gær. „Það eru stuðningsfulltrúarnir sem sjá um þetta. Það var hringt í foreldra allra þessara barna í dag [í gær] og þetta gekk vandræðalaust fyrir sig og verkfallsverðir gerðu ekki athugasemdir við þetta. Við er- um ánægð með það. Þetta eru allt fötluð börn en við vorum búin að leysa vanda ein- hverfra barna og nú bætast þessi börn við, “ segir Stefán Jón Hafstein, formaður Fræðsluráðs Reykjavíkurborgar. 60–70 fötluð börn fá vistun í Reykjavík LEIFUR Halldórsson, eigandi fyrirtækis- ins Klumbu ehf. sem brann til kaldra kola í september, segist stefna að því að byggja upp fyrirtækið aftur í Ólafsvík. Hann segir starfsemina þó ekki verða byggða upp á sama stað í bæjarfélaginu þar sem svæðið hafi verið lýst snjóflóðahættusvæði. Hann segir ýmis tilboð hafa borist sér hvað varði uppbyggingu fyrirtækisins, t.a.m. hafi tilboð borist frá Grundarfirði, og sé það í skoðun. Þó segist hann telja mestar líkur á því að uppbyggingin muni verða í Ólafsvík. Allir starfsmennirnir eru áhuga- samir um að koma aftur til starfa en meiri- hluti þeirra hefur fengið önnur störf í bæn- um að sögn Leifs. Þrír starfsmenn séu á launaskrá hjá Klumbu við uppbyggingar- starfsemina. Leifur segist eiga von á því að fá að vita um sín tryggingamál í þessari viku og þegar það sé orðið ljóst muni hann ákveða næsta skref, annars hafi allt verið í biðstöðu fram að þessu. Klumba ehf. á Ólafsvík Fær ekki að byggja upp á sama stað Hundraða milljóna tjón varð í Ólafsvík þegar fiskvinnsluhús Klumbu brann. BÚIÐ er að mynda all- ar síðurnar í öllum tölublöðum Morg- unblaðsins frá því það kom fyrst út, 2. nóv- ember 1913, fram yfir mitt ár 1964, og hafa allir aðgang að blöð- unum í gegnum Netið. Um er að ræða yfir 50 árganga. Hægt er að fletta gömlum blöð- um eða leita að ákveðnum orðum á síðum blaðsins. Alls er búið að mynda um 16 þúsund tölublöð, um 165 þúsund síður, og verður unnið áfram að þessu verkefni þar til hægt verður að leita í öllum tölublöðum blaðsins frá upphafi. Allar greinar blaðsins eldri en þriggja ára eru öllum aðgengilegar, en greiða þarf fyrir nýrra efni. Þetta aðgengi að gagnasafni Morg- unblaðsins er hluti af landsaðgangi að gagnasöfnum og rafrænum tímaritum sem fá má í gegnum vefinn hvar.is./22 50 árgangar á Netinu SJÓVÍK ehf., sem er að kaupa Iceland Sea- food Corporation, dótturfélag SÍF í Banda- ríkjunum, af SÍF fyrir um 4,8 milljarða króna, er mjög stórt í sniðum í fiskvinnslu og við- skiptum með fisk í Asíu. Sjóvík kaupir og selur um 100.000 tonn af fiski og fiskafurðum á al- þjóðlegum mörkuðum fyrir sjávarfang, mest Alaskaufsa og vinnur úr meiru en 20.000 tonn- um af Kyrrahafsþorski á ári, auk annarra teg- unda, sem flutt eru á markaði í Bandaríkj- unum og Bretlandi. Sjóvík rekur sjö verksmiðjur; fjórar í Kína, tvær í Taílandi og nú eina í Bandaríkjunum. Félagið er einnig með skrifstofur í fimm lönd- um, á Íslandi, í Kína, Taílandi, Suður-Kóreu og Bandaríkjunum. Alls starfa um þrjú þúsund manns á vegum félagsins. Sjóvík er ennfremur í samstarfi við Kóreumenn og Rússa um veiðar í Kyrrahafslögsögu Rússlands. Þar eru var- anlegar aflaheimildir um 3.000 tonn, en með leigu og kaupum aflaheimilda hafa veiðiheim- ildirnar verið auknar upp í um 10.000 tonn. Um 8.000 tonn af þorski, 1.000 tonn af lúðu og ýmis samtíningur að auki. Þessi afli kemur til vinnslu í verksmiðjum Sjóvíkur í Kína og Taí- landi. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, SH, keypti í gær 22,34% hlut SÍF í SH fyrir 3,2 milljarða króna. Salan á bréfunum er liður í fjármögnun SÍF á kaupum félagsins á franska matvælafyr- irtækinu Labeyrie Group. Gunnar Svavarsson forstjóri SH segir að málið hafi borið brátt að. Kaupa til að selja á ný „Félagið kaupir þennan hlut til að byrja með með það að markmiði að losa sig við hann aftur innan ekki langs tíma, hvort heldur er með beinni sölu eða í viðskiptum í öðrum verk- efnum sem kann að bera að borði,“ segir Gunnar en hlutafélögum er ekki heimilt að eiga meira en 10% eigin bréfa til lengri tíma./8/13 Kaupa og selja 100.000 tonn af fiski á ári ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.