Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 29 og kát það kvöld og þannig man ég hana. Elsku Eyþór, við fjölskyldan sendum þér okkar innilegustu samúðarkveðjur. Björg Hjartardóttir og fjölskylda, Hollandi. Elsku Begga. Ég horfði í gegnum gluggann á grafhljóðri vetraróttu, og leit eina litla stjörnu þar lengst úti í blárri nóttu Hún skein með svo blíðum bjarma, sem bros frá liðnum árum. Hún titraði gegnum gluggann, sem geisli í sorgartárum. Og ef til vill sér þar einhver, sem einn í þögninni syrgir, móðurstjörnuna mína, sem miðnæturdökkvinn byrgir. Ef til vill sér hana einhver á andvökustundum sárum titra í gegnum gluggann, sem geislar í sorgartárum. (Magnús Ásg.) Minningu þína munum við ávallt geyma vel í hjörtum okkar. Takk fyrir allt. Rósa, Eva, Garðar Örn og Andri. kom að baráttu fyrir bættum kjörum sjómanna. En Gunnar átti einnig sín- ar mjúku hliðar og barngóður var hann með afbrigðum og hændust öll börn að honum. Hann hafði fyrir stóru heimili að sjá og sem sjómaður var hann oft langdvölum fjarri fjöl- skyldu sinni að draga björg í bú en hafði mikinn metnað fyrir hönd barna sinna og síðar barnabarna og vildi veg þeirra sem mestan. Þær voru ófáar sumarbústaðaferð- irnar sem við fjölskyldan fórum í ásamt Gillu og Gunnari og þá naut hann þess að ferðast um landið eða dvelja í rólegheitum í sveitinni. Einn- ig voru þau hjón ómissandi í fjöl- skylduútilegurnar sem voru árviss viðburður í mörg ár þar sem „stór- fjölskyldan“ kom saman og skemmti sér við leiki og glens og eitt er víst að fjölskylduboðin verða ekki þau sömu þegar Gunnar vantar, hann var alltaf hrókur alls fagnaðar.Síðustu árin var það fótboltinn sem átti huga hans all- an og mátti hann helst ekki missa af leik hvort sem það var íslenski boltinn eða sá enski og aðeins nokkrum dög- um fyrir andlátið gat hann fylgst með uppáhaldsliðinu sínu leika í sjónvarp- inu þá orðinn fársjúkur. Elsku Gunnar – missir okkar er mikill en þó mestur tengdamóður minnar, sem sér á eftir lífsförunaut sínum eftir margra áratuga farsælt hjónaband. Við geymum áfram minn- inguna um þig. Takk fyrir allt. Guðríður. TVEGGJA skáka einvígi alþjóð- lega meistarans Jóns Viktors Gunn- arssonar og Dags Arngrímssonar um meistaratitil Taflfélags Reykja- víkur lauk í síðustu viku. Fyrirfram hefði mátt búast við spennandi ein- vígi þar eð keppendur gerðu jafntefli innbyrðis í mótinu sjálfu og frammi- stöðu Dags að undanförnu bendir til að hann hefur tekið miklum fram- förum. Leikar fóru hinsvegar svo að meistarinn alþjóðlegi gaf andstæð- ingi sínum engin grið og vann báðar skákirnar á sannfærandi máta. Grunnurinn að þessum örugga sigri var vönduð taflmennska Jóns í fyrri skákinni: Hvítt: Dagur Arngrímsson Svart: Jón Viktor Gunnarsson 1. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5 4. d4 g6!? 5. dxc5 Dxc5 6. Be3 Dc7 7. Ra3 a6 8. Rf3 Bg7 9. Dd2 Rd7!? Þó að svartur sé aðeins á eftir í lið- skipan er ekki að sjá að hvítur geti notfært sér það með góðu móti. Upp- stilling svarts á mönnum sínum er rökrétt enda þarf riddarinn á d7 að gæta lykilreita eins b6, c5 og e5. Jafnframt gefur hann kost á því að skálínan a8-h1 verði opin biskup hans. Með hliðsjón af þessu má draga í efa að næstu leikir hvíts séu heppilegir enda ber framhaldið með sér að hlutverk riddarans á a3 verð- ur lítið annað en að vera áhorfandi. 10. Bc4 Rgf6 11. Bh6 O-O 12. O-O b5 13. Bxg7 Kxg7 14. Bb3 Bb7 15. Rd4 Taflmennska hvíts hefur verið yf- irborðskennd og nær nú svartur frumkvæðinu. (Sjá stöðumynd 1) 15... e5! 16. Re2 Rc5 17. Rg3 Rxb3 18. axb3 Rd5! 19. f3 Ill nauðsyn en eitthvað varð að gera til að stoppa upp í biskup svarts. 19...Had8 20. Df2 Rf4 21. Had1 Hxd1 22. Hxd1 Hd8 23. Hf1? Hd3! 24. Rb1? Hvítur hefur gefið mikið eftir og er þá ekki sökum að spyrja að flétta er á næstu grösum. (Sjá stöðumynd 2) 24... Bxf3! 25. Dc2 Hvítur hefði tapað drottningunni eftir 25. gxf3 Rh3+. Staða hvíts er nú gjörtöpuð. 25... Dc5+ 25... Bb7 hefði verið ónákvæmt vegna 26. Hxf4. 26. Df2 Dd6 27. Dxf3 Hxf3 28. gxf3 Dd3 og hvítur gafst upp. Sigurganga Jóns á innanfélags- mótum TR er mikil en hann varð al- þjóðlegur meistari árið 1997. Í júlí 1998 var hann með yfir 2440 elo skákstig en hefur nú 2375 stig. Þetta vekur upp spurningar um hversu hollt það er sterkum skákmönnum að taka þátt í mótum þar sem and- stæðingarnir eru töluvert lakari. Þetta hnígur hugann að því að á síð- ustu árum hafa margir íslenskir skákmenn náð tign alþjóðlegs meist- ara en enginn hefur náð áfanga að stórmeistaratitli í tæp tíu ár. Veg- urinn frá því að vera alþjóðlegur meistari til þess að verða stórmeist- ari er þyrnum stráður. Það er hins- vegar staðreynd að nauðsynlegt skref í þá átt er að tefla mikið á al- þjóðlegum mótum og taka skákstúd- eringum föstum tökum. Reyndar er þetta samofið þar sem erfitt er að finna ástæðu til að bæta sig þegar það dugar að nota alltaf svipuð brögð til að vinna sömu andstæðinga. Þessi vandi er sameiginlegur öllum ungum íslenskum alþjóðlegum meisturum. Í hnotskurn má segja að til að verða stórmeistari þurfa kappar þessir að velja og hafna – á að leggja allt undir eða ekki? Nærtæk leið til að ná markmiðinu er að flytja búferlum til útlanda enda eru hægari heimatökin þaðan að fara á alþjóðleg mót. Slíkt hefur sína galla og kosti en hvað gera menn ekki til að láta drauma sína rætast? Baráttan harðnar á Ólympíuskákmótinu Mikill fjöldi þátttakenda er á Ólympíuskákmótinu sem fram fer þessa dagana í Calviu á Mallorca. Sumir eru að taka þátt í keppninni í fyrsta skipti en sumir hafa tekið þátt ótal sinnum. Einn þeirra sem falla í síðarnefnda hópinn er Viktor grimmi Korsnoj en hann fer senn að nálgast áttræðisaldurinn. Hann teflir á fyrsta borði fyrir Sviss og berst af kappi eins og venjulega. Þegar lið hans mætti Rússum virtist sem ein- hver elliglöp væru farin að hrjá öld- unginn snjalla þegar hann tefldi við ofurstórmeistarann Alexander Mor- ozevich. Hvítt: Alexander Morozevich Svart: Viktor Korsnoj 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. d3 b5 6. Bb3 Bc5 7. Rc3 d6 8. Rd5 Rg4 9. O-O Ra5 10. Bg5 f6 11. Bd2 Rxb3 12. axb3 Upp er komin óvenjuleg staða í spænska leiknum þar sem hvítur stendur betur að vígi. Næsti leikur svarts er hinsvegar með ólíkindum og sjaldan sem Viktor hefur leikið svona illa af sér svo snemma tafls. (Sjá stöðumynd 3) 12... c6?? 13. Ba5! og svartur gafst upp enda fokið í flest skjól þegar hrókur fer í hafið eftir þrettán leiki. Vassily Ivansjúk hefur teflt frá- bærlega á fyrsta borði fyrir Úkraínu og leiðir sveit hans mótið eftir níu umferðir með 27½ vinning. Rússar koma næstir þremur vinningum minna og í þriðja sæti eru Bandarík- in með 24 vinning. Lokaumferðirnar verða án efa mjög spennandi en ís- lenska liðið í opna flokknum er í 31.– 42. sæti með 20 vinninga. Íslenska kvennaliðið hefur 14 vinninga af 27 mögulegum og er í 34.–44. sæti. Íslandsmót barna og unglinga haldið í Íslandsbanka Samstarf Skáksambands Íslands og Skákfélagsins Hróksins við að halda Íslandsmót barna og unglinga í ár tókst vel upp. Keppnin fór fram í aðalstöðvum Íslandsbanka á Kirkju- sandi og tóku hvorki fleiri né færri 70 krakkar þátt í mótinu. Atli Freyr Kristjánsson sigraði mótið örugg- lega og vann alla andstæðinga sína níu að tölu. Ánægjulegt var að stúlk- an Elsa María Þorfinnsdóttir hreppti annað sætið en hún fékk sjö vinninga eins og Helgi Brynjarsson og Bjarni Jens Kristinsson en við stigaútreikning varð hún hlutskarp- ari en þeir um annað sætið. Mótið hófst laugardaginn 23. október sl. og lauk svo daginn eftir. Fjöldi auka- vinninga var dregin út frá Eddu út- gáfu, Leikbæ, Hróknum og Hróa Hetti. Það hafa því verið ánægð verkfallsbörn sem fóru frá höfuð- stöðvum Íslandsbanka síðasta sunnudagseftirmiðdag. Jón Viktor meistari TR en Atli Freyr Íslandsmeistari SKÁK Reykjavík Október 2004 VIKTOR GRIMMI LÆTUR Í MINNI POKANN Í 13 LEIKJUM Helgi Áss Grétarsson Stöðumynd 1 Stöðumynd 2 Stöðumynd 3 Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ERLU JÓNU HELGADÓTTUR, Álfhóli 1, Húsavík. Kristján Ásgeirsson, Ásgeir Kristjánsson, Anna Ragnarsdóttir, Helgi Kristjánsson, Elín Kristjánsdóttir, Þyri Kristjánsdóttir, Ingvar Hafsteinsson, barnabörn og langömmubörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EIRÍKUR INGI JÓNMUNDSSON bifreiðastjóri, Breiðuvík 65, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 28. október kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Birna Jónsdóttir, Þórdís Ólöf Eiríksdóttir, Jónmundur Þór Eiríksson, Hjördís Guðmundsdóttir og afadrengir. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, stjúpmóður og tengdamóður, BJARNDÍSAR JÓNSDÓTTUR, Skúlagötu 40b, Reykjavík. Kristinn Guðjónsson, Sigurbjört Gunnarsdóttir, Örn Sigurðsson, Unnur Gunnarsdóttir, Jóhannes Gunnarsson, Ásgerður Flosadóttir, Gunnar Gunnarsson, Þorgerður Þráinsdóttir, Helga Gunnarsdóttir, Örn Rósinkransson, Sigrún Kristinsdóttir, Jóhannes Kristinsson, Þorbjörg Jónsdóttir, Elín Kristinsdóttir, Magnús Gíslason. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR KRISTINSSON, Reynimel 80, Reykjavík, sem andaðist á Landspítala Fossvogi fimmtu- daginn 21. október, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 27. október kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið. María Tryggvadóttir, Helgi Gunnarsson, Gunnar K. Gunnarsson, Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Erfidrykkjur Heimalöguð kaffihlaðborð Grand Hótel Reykjavík Sími 514 8000 MINNINGAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.