Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S IC E 26 21 5 10 /2 00 4 *Innifalið: Flug, flugvallarskattar og eldsneytisgjald Verð frá 36.900 Netsmellur til USA Bandaríkjaferðir á frábæru verði Bókaðu á www.icelandair.is „ÞAÐ ganga væntanlega allir með opinn huga til fundarins,“ segir Ás- mundur Stefánsson ríkissáttasemj- ara, sem boðað hefur fulltrúa deil- enda í kjaradeilu kennara og sveitarfélaga á sinn fund kl. 15 og 17 í dag. „Ég er ekki með neina ein- falda lausn í farteskinu. Ég held það verði allir að skoða sinn hug og sjá hvað þeir geti haft fram að færa.“ Fundirnir í dag eru haldnir að ósk Halldórs Ásgrímssonar for- sætisráðherra, sem hitti fulltrúa kennara, skólastjórnenda og sveit- arfélaga í stjórnarráðinu fyrir há- degi í gær. Þar voru einnig Þor- gerður K. Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra og Geir H. Haarde fjármálaráðherra. Eftir fundina var Ásmundur Stefánsson boðaður í stjórnarráðið með skömmum fyrir- vara. Sáttasemjari sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld að hann teldi eðlilegt að halda fund með deil- endum dag í ljósi þess að þeir hefðu fundað með ráðherrum í gær. Það yrði hins vegar að koma í ljós hvort það leiddi til nýrrar niðurstöðu í deilunni. Halldór Ásgrímsson sagði eftir fundina með aðilum deilunnar í gær, þar sem farið var yfir stöðuna, að ljóst væri að deilan væri í mjög erf- iðum hnút. Það yrði að leysa hana. „Það er ekki frambærilegt að halda ekki fund í deilunni fyrr en eftir tæpan hálfan mánuð. Það hafa allir orðið sammála um það.“ Halldór sagði ennfremur að það lægi ljóst fyrir að sveitarfélögin bæru hina fjárhagslegu ábyrgð á málinu „og þau telja sig hafa gengið mjög langt til móts við kennarana,“ sagði hann. Það hlyti þó að vera hægt að finna lausn á deilunni. Hann sagði jafnframt að niðurstaða fundanna í gær hlyti að vekja bjart- sýni á nýjan leik. Dæmd til að falla í atkvæðagreiðslu Samninganefnd kennara hitti sitt bakland kl. eitt í gær. Lauk þeim fundi á sjötta tímanum. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasam- bands Íslands, sagði að þar hefði m.a. verið rætt um tillögu ríkisátta- semjara, sem lögð var fram fyrir helgi. Niðurstaða fundarins hefði verið sú að samninganefnd kennara hefði gert rétt með því að hafna til- lögunni. „Það er algjörlega ljóst að kennarar eru ekki tilbúnir til að semja á þessum nótum. Þau skila- boð sem við fengum frá þessum stóra hópi, sem við hittum í dag [í gær], eru þau að þessi hugmynd hefði verið dæmd til að falla í at- kvæðagreiðslu.“ Samninganefnd kennara ætlar að hittast kl. tíu í dag, til að búa sig undir fundina hjá ríkissáttasemjara síðdegis. Á fyrri fundinn með sáttasemjara í dag hafa verið boðaðir tveir fulltrúar kennara og tveir fulltrúar sveitarfélaga. Á seinni fundinn hafa verið boðaðar samninganefndir kennara, skólastjórnenda og sveit- arfélaga. Ásmundur Stefánsson boðar til nýs sáttafundar í kjaradeilu kennara í dag „Ég er ekki með neina ein- falda lausn í farteskinu“ ELÍN Thorarensen, framkvæmda- stjóri Heimilis og skóla, segir að þol- inmæði foreldra og barna vegna verkfalls grunnskólakennara sé brostin. Hún ásamt formanni stjórn- ar Heimilis og skóla, Maríu Kristínu Gylfadóttur, ræddu stöðu mála við Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra á um hálftíma löngum fundi í stjórnarráðinu síðdegis í gær. „Við lýstum þar yfir áhyggjum af stöðu mála,“ upplýsir Elín. „Verkfallið er farið að bitna mikið á börnunum og það þarf að leysa.“ Hún segir að þær hafi á fundinum einnig þakkað Halldóri fyrir að kalla deilendur á sinn fund, fyrr um dag- inn, og beita sér á þann hátt í kjara- deilunni. „Við vonumst til þess að hann haldi áfram að þrýsta á þá, þannig að þeir haldi sér við efnið.“ Kveðst hún vonast til þess að það muni draga til tíðinda í deilunni í þessari viku. Spyrja hvort þau geti hætt námi Elín segir að foreldrar barna í 10. bekk hafi miklar áhyggjur af sam- ræmdu prófunum í vor. „Við erum mikið spurð hvernig fari með sam- ræmdu prófin,“ segir hún. „Þó mörg- um finnist langt til samræmdu próf- anna þá er ljóst að allur veturinn hefur venjulega verið notaður til undirbúnings undir prófin.“ Elín segir marga tíunda bekkinga vera við það að gefast upp á verkfall- inu og að samtökin Heimili og skóli hafi jafnvel fengið fyrirspurnir um það hvort þau geti hætt námi. Það geti þau þó ekki vegna skólaskyld- unnar. Elín segir að Heimili og skóli séu að skipuleggja mótmælafund á morgun, miðvikudag, kl. 16 á Aust- urvelli. Forsvarsmenn Heimilis og skóla Þolin- mæði brostin Ræddu við forsætisráðherra um verkfallið GUNNAR Rafn Sigurbjörnsson, formaður Launanefndar sveitarfé- laga, segir að það komi ekki til greina að fara með kjaradeilu kennara og sveitarfélaga í gerð- ardóm. „Við teljum það slæmt allra hluta vegna – fyrir sveitarfélögin og fyrir viðsemjendur okkar – að sett verði lög á þessa deilu,“ sagði hann aðspurður eftir fund með for- sætisráðherra, menntamálaráð- herra og fjármálaráðherra í stjórn- arráðinu í gær. Gunnar Rafn sagði auk þess að það yrði erfitt að semja um það sem þyrfti að leggja til grundvallar gerðardómi. „Ef við kæmumst svo langt,“ sagði hann, „þá værum við sennilega búin að semja.“ Gátum fallist á tillögu sáttasemjara Er hann var inntur eftir því hvort staðan í kjaradeilunni væri stál í stál, sagði hann svo vera. „Ég held ég verði að svara því játandi,“ sagði hann. „Það hefur lengi verið stál í stál. En ég ítreka að sú hugmynd sem sáttasemjari kynnti [fyrir helgi] var þess eðlis að við gátum fallist á hana. Hún gekk að vísu mjög langt; hún var erfið fyrir sveitarfélögin, hún var erfið fyrir okkur, en við ákváðum samt, vegna þess hve ástandið er alvarlegt í þjóðfélaginu, að fallast á þá til- lögu.“ Sagði hann að vonbrigðin hefðu verið geysilega mikil þegar samninganefnd kennara hafnaði tillögunni. Tillagan fól í sér 26% kostnaðarauka fyrir sveitarfélögin á samningstímanum. Gunnar Rafn sagðist þó telja að hægt yrði að finna lausn á deilunni. „Við munum að sjálfsögðu setjast niður og ræða við okkar viðsemj- endur,“ sagði hann. „Við höfum í sjálfu sér ekki gefist upp. Við telj- um að það sé hægt að finna leiðir til að leysa þessa alvarlegu deilu.“ Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, formaður Launanefndar sveitarfélaga Gerðardómur kemur ekki til greina Morgunblaðið/Golli Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, formaður Launanefndar sveitarfélaganna, ræddi við blaðamenn eftir fundinn með forsætisráðherra. Til vinstri við hann er Birgir Björn Sigurjónsson og til hægri er Karl Björnsson. NEYÐARKALL barst frá netabátn- um Ósk KE-5 kl. 19.25 í gærköldi en eldur hafði komið upp í stýrishúsi. Kallið barst í gegnum gervitungl og var báturinn þá staddur um 12 sjó- mílur vestur af Garðskaga. Land- helgisgæslan gat staðsett neyðar- kallið og hafði samband við öll skip á svæðinu. Skipstjóri Óskar KE tjáði gæslunni að lítil hætta væri á ferðum og var ekki óskað eftir frekari aðstoð Gæslunnar. Ósk KE er 14 metra langur, 25 tonna plastbátur sem sjó- settur var í febrúar sl. Þrír menn voru um borð og sakaði þá ekki. Happadís, sem einnig var á veið- um á svæðinu, tók Ósk í tog en ekki vildi betur til en svo að Happadís bil- aði og varð að senda annan bát, Kefl- víking, eftir henni. Björgunarsveitin Suðurnes var einnig kölluð á vett- vang og sótti hún Ósk og dró hana síðasta spölinn til hafnar í Keflavík. Þangað voru bátarnir komnir um kl. 22 í gærkvöldi. Töluvert tjón Í gær var ekki vitað út frá hverju eldurinn kviknaði en tæki í stýris- húsinu bráðnuðu og eyðilögðust í eldinum. „Skipverjarnir brugðust hárrétt við,“ sagði Einar Þ. Magn- ússon sem gerir Ósk KE út, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi um viðbrögð áhafnarinnar. „Þeir opnuðu ekki dyrnar að stýrishúsinu, heldur höfðu þær lokaðar alla leiðina í land. Þá komst ekki súrefni inn og kafnaði eldurinn á leiðinni til hafnar.“ Við eldinn drapst á vélunum en bátsverjarnir komu þeim að sögn Einars aftur í gang. Það kom hins vegar að litlu gagni þar sem ekki var hægt að stýra bátnum. Einar telur að tæki og vélar í stýrishúsinu séu ónýt og tjónið því umtalsvert. „En það er fyrir öllu að allir sluppu.“ En hann sagði svekkjandi að lenda í þessu tjóni. Það var Bátasmiðjan Seigla ehf. sem sjósetti Ósk KE í febrúar sl. en báturinn var smíðaður fyrir útgerð- arfélagið Ósk ehf. í Keflavík. Um er að ræða stærsta hraðfiskibát sem smíðaður og sjósettur hefur verið á Íslandi. Eldur í netabát í gær vestur af Garðskaga Víkurfréttir/Jóhannes Slökkviliðsmenn fullvissuðu sig um að eldurinn hefði verið slökktur. Þrír um borð en engan sakaði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.