Sunnudagsblaðið - 28.11.1965, Page 10

Sunnudagsblaðið - 28.11.1965, Page 10
198 brauðsneiðar, þar af 1G með skinku, 11 með osti, 28 með súkkulaði og 14 með sykri 891 brauðmoli 13 pappírssneplar 3 bréfpokar 1 hvítur kvenhanzki 1330 sælgætismolar 2 rjómaísar 5 bitar af rjómaísum 811 kéxkökur 17 epli 198 appelsínuflísar 1 hamborgari ! 1 skóreim Almenningur ber yfirleitt ekki skyn á það, hvað óbætt er að gefa hinum ýmsu dýrum og auk þess má búast .við að einhverjir reyni að gefa dýrunum óæti af hrekkjafýsni. Þess eru einnig dæmi, að fólk hafi misst fingur við að gefa dýrum og algengt er að dýrin steli frá þeim ýmsum munum, höttum, gler- augum, skjalatöskum, jafnvel yfirhöfnum, og enn fremur hafa matgjafir almennings sums staðar van- ið dýrin á hvimleitt betl. Fyrir þessar sakir allar hefur nú á síðari árum verið tekið fyrir matgjafir aimennings í flestum dýragörðum. DÝRAGARÐAR eiga að sjálfsögðu afkomu sína og tilveru undir því að aimenningur vilji koma þangað. Um það atriði farast dr. H. Hediger, forstjóra dýra- garðsins i Basel, orð á þessa leið: „Flestir dýra- garðar eru til fyrir almenning, en reynslan hefur kennt okkur að áhörfendur eru um leið mesta hætt- an fyrir dýrin. Skylda umsjónarmanna í dýragörð- um er því ekki aðeins sú að vernda áhorfendur fyrir dýrunum, heldur verður einnig að vernda dýrin fyrir áhorfendum". Hann bætir því við, að langflesta sjúkdóma, sem komi upp í dýragörðum, megi á ein- hvern hátt rekja til gestanna. Þeir bjóða dýrunum oft óholla fæðu og auk þess skaða þeir oft dýri'1 með því að æsa þau upp, erta þau og hræða. Hediger telur, að bilaðir menn og vanþroska sæki mjög dýragarða. Hann skiptir þeim í flokka sem hér segir: AFBROTAMENN: 1. Þeir, sem svindla sér inn. 2. Skemmdarvargar, sem eyðileggja eignir dýragar anna að gamni sínu og gefa dýrumun óæti af ráðn- um hug. 3. Þjófar, en smádýrum alls konar, fuglu® og jafnvel eggjum er oft stolið úr dýragörðum. GEÐSJÚKLINGAR: 1. Kynferðislega bilaðir menn- þar á meðal þeir, sem koma til að horfa á dýr eiga samfarir, og sadistar, sem reyna að meiða dýrin <l einhvern hátt, t. d. stinga úr þeim augun með regn- hlífum eða jafnvel gefa þeim eitui'. 2. Ýmiss konai geðsjúklingar, eins og t. d. þeir, isem koma til leika á !hljóðfæri fyrir einhver 'ákveðin dýr til a® gera þeim lífið bjartara, trú.arofstækismenn, sem reyna að byrla snákunum eiitur í þehn tilgangi útrýma syndinni úr veröldinni, og þeir, sem stöðugt eru að leita að tækifænm til að vinma afrek sér til frægðar. 3. Fávitar, en framkoma þeirra hefur oft haft miiög truflándi éhrif á dýr. 4. morðingíar oig sjáMsmorðskandídatar. Þessir hópar líta að sjálfsögðu á dýrin sem einS konar menn en hið sama gera einnig venjuleg11- borgarar yfirleitt, sem heimsækja dýragarða. Yfú- leitt hafa menn tilhneigingu til að skilja dýrin mann legum skilningi og túlka atferli þeirra á mannlega11 bátt, enda hefur komið í Ijós, eins og fyrr segir, a vinsælustu dýrin eru þau, sem helzt bera sviP a mönnum. MARGIR ERU ÞEIRRAR SKOÐUNAR að megingiW1 dýragarða sé uppeldisgildi þeirra. Rétt notaðir 8e*,a Frh. á bls. 606. 5JJ4 SU.NNUDAGSBLAÐ - ALÞÝÐUBLABIÐ Fíllinn getur stundum tekið til matar síns

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.