Morgunblaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 1
The Fall í
feiknaformi
Leiðtoginn og goðsögnin Mark E.
Smith í viðtali við Arnar Eggert | 33
Íþróttir og Fasteignir í dag
Íþróttir | Hrefna Huld skorar grimmt Íslenska kvennalands-
liðið sparkaði frá sér Fasteignir | Norðurbakkinn í Hafnarfirði
– sælureitur mót suðriKomið við í Kolaportinu
STOFNAÐ 1913 312. TBL. 92. ÁRG. MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
TALSMENN Bandaríkjahers segjast hafa náð
næstum allri borginni Fallujah í Írak á sitt vald en
vika er síðan hafin var stórsókn gegn uppreisn-
armönnum, sem sagðir voru hafa hreiðrað um sig í
Fallujah. Íraskir embættismenn viðurkenndu hins
vegar að eftirlýstustu uppreisnarmennirnir, þ. á m.
Jórdaninn Abu Mussab al-Zarqawi, hefðu sloppið.
Hörð átök hafa verið á nokkrum öðrum stöðum í
Írak undanfarna daga, einkum í borginni Mosul í
norðurhluta landsins, og segja fréttaskýrendur að
uppreisnarmenn hafi fært sér í nyt þar að Banda-
ríkjamenn voru jafnuppteknir í Fallujah og raun
bar vitni.
Fundu illa farið lík vestrænnar konu
Bandaríkjamenn segja 38 bandaríska hermenn
og sex íraska hafa fallið í aðgerðunum í Fallujah og
þeir áætla að 1.200 uppreisnarmenn hafi verið
drepnir. Þær tölur er ekki hægt að sannreyna og
ekki er vitað hversu margir óbreyttir borgarar
hafa fallið í bardögum í Fallujah. Fréttamaður
AFP í Fallujah segir borgina eins og draugabæ,
flestir íbúarnir séu flúnir og margar byggingar séu
sundurskotnar og gjörónýtar.
Bandarískir landgönguliðar fundu lík vestrænn-
ar konu í Fallujah og var það mjög illa farið. Vitað
er um tvær vestrænar konur, sem rænt hefur verið
í Írak á síðustu vikum, og er talið hugsanlegt að um
lík annarrar hvorrar sé þarna að ræða.
Segjast hafa
náð Fallujah
á sitt vald
Skemmdir sagðar gífurlegar,
íbúarnir á bak og burt
Fallujah. AP, AFP.
STJÓRNVÖLD í Íran tilkynntu Alþjóðakjarn-
orkumálastofnuninni skriflega í gær að þau hygð-
ust verða við óskum um að hætta auðgun úrans og
vilja þau með því eyða grunsemdum um að þau séu
að reyna að koma sér upp kjarnorkuvopnum.
Hassan Rowhani, samningamaður stjórnvalda í
Teheran, sagði fyrr í gær að Íranar hefðu sam-
þykkt að hætta „næstum öllum“ aðgerðum sínum
er miðuðu að því að auðga úran; í samræmi við
samkomulag sem náðst hefði við Breta, Frakka og
Þjóðverja. Þar með þykir hafa dregið úr líkum á
því að samþykkt verði á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna að beita Íran viðskiptaþvingunum vegna
kjarnorkuáætlana þarlendra stjórnvalda.
Íranar hafa sagt að kjarnorkuáætlanir þeirra
miðuðu einungis að því að framleiða orku. Banda-
rísk stjórnvöld hafa hins vegar sakað þá um að vilja
koma sér upp kjarnorkuvopnum.
Samþykkja
að hætta
auðgun úrans
Vín. AFP, AP.
AP
Hassan Rowhani tilkynnir ákvörðun Írana í gær.
BANDARÍSKI verkfræðingurinn
Robert Sarmast fullyrti í gær að
hann hefði fundið leifar hinnar týndu
borgar Atlantis á
botni Miðjarð-
arhafsins, mitt á
milli Kýpur og
Sýrlands. Pavlos
Flourentzos,
helsti fornleifa-
fræðingur Kýpur,
lýsti hins vegar
efasemdum sín-
um í samtali við
Associated Press
og sagði frekari sannana þörf.
Sarmast og samstarfsmenn hans
segjast hafa fundið manngerðar
byggingar um það bil 1,5 km undir
yfirborði sjávar, um 80 km undan
suðausturströnd Kýpur. Niðurstöð-
urnar byggja þeir á hljóðbylgjumæl-
ingum sjávarbotnsins en þeir segjast
hafa fundið uppreista veggi, m.a.
einn sem er allt að 3 km að lengd, og
djúpa skurði. „Það er kraftaverk að
við skulum hafa fundið þessa veggi
því staðsetning þeirra og lengd pass-
ar nákvæmlega við lýsingar á borg-
arvirkinu Atlantis sem [gríski heim-
spekingurinn] Plató gefur í skrifum
sínum,“ sagði Sarmast.
Sarmast er 38 ára gamall verk-
fræðingur frá Los Angeles. Hann
hefur varið síðustu tveimur og hálfa
árinu í leitina að Atlantis, borginni
goðsagnakenndu sem sagan segir að
hafi sokkið í sæinn endur fyrir löngu.
Segir svo frá í grískri goðafræði að
guðirnir hafi reiðst yfir græðgi og
spillingu borgarbúanna og því hafi
þeir lagt borgina í eyði.
Telur sig
hafa fundið
Atlantis
Robert Sarmast
KALDALJÓS fékk fimm viðurkenningar á
Edduverðlaunahátíðinni í gærkvöldi. Myndin
var útnefnd mynd ársins auk þess sem Ingvar E.
Sigurðsson og Kristbjörg Kjeld voru valin bestu
leikarar í aðal- og aukahlutverkum. Hilmar
Oddsson, leikstjóri myndarinnar, fékk verðlaun
sem besti leikstjórinn og Sigurður Sverrir Páls-
son fyrir hljóð og mynd.
Á hátíðinni var Páll Steingrímsson kvik-
myndagerðarmaður sæmdur heiðursverðlaun-
um Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademí-
unnar fyrir langan og farsælan feril á sviði
heimildarmynda. Í þakkarræðu sinni tók Páll
fram að hann ætti mörgum að þakka, enda væri
kvikmyndagerð ekki eins manns starf.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Ómar
Ragnarsson veittu Páli heiðursverðlaunin en
skömmu áður hafði Ómar sjálfur tekið við við-
urkenningu sem sjónvarpsmaður ársins. /34
Morgunblaðið/Jim Smart
Friðrik Þór Friðriksson, framleiðandi Kaldaljóss, tekur við Eddunni úr hendi Halldórs Ásgríms-
sonar forsætisráðherra fyrir kvikmynd ársins en Hilmar Oddsson, leikstjóri Kaldaljóss, fylgist með.
Kaldaljós fékk flest verðlaun
Það voru miklir kærleikar með þeim Ómari Ragn-
arssyni, sjónvarpsmanni ársins í almennum kosn-
ingum Edduhátíðarinnar, og Páli Steingrímssyni
þegar Ómar veitti Páli heiðursverðlaun Íslensku
kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar.
SAMNINGANEFNDIR grunn-
skólakennara og sveitarfélaga
undirrituðu seint í gærkvöldi
viljayfirlýsingu um að hefja strax
samningaviðræður með það að
markmiði að ljúka samningsgerð
fyrir 20. nóvember, og fá kennar-
ar 130 þúsund króna eingreiðslu
miðað við fullt starf. Fundað verð-
ur í deilunni kl. 10 í dag.
„Það er ekkert enn þá sem hef-
ur komið fram sem vekur ein-
hverja bjartsýni um það að menn
nái eitthvað frekar saman, en
engu að síður ætla menn að nota
þessa daga,“ sagði Eiríkur Jóns-
son, formaður KÍ, að loknum
fundi hjá ríkissáttasemjara sem
lauk um miðnætti.
Hann sagði að á fundinum í
gærkvöldi hefðu verið ræddar
leiðir til að freista þess að semja
um ákveðið „startgjald“ fyrir
kennara til að skólastarf gæti ver-
ið með eðlilegum hætti þar til
gerðardómur félli og vildu kenn-
arar m.a. fá 5,5% launahækkun
strax og 130 þúsund króna ein-
greiðslu. Sátt náðist um að þeir
fengju eingreiðsluna, en ekki pró-
sentuhækkunina.
Birgir Björn Sigurjónsson, for-
maður samninganefndar launa-
nefndar sveitarfélaganna, sagði
að loknum fundinum í gærkvöldi
að samþykkt eingreiðslunnar
væri til marks um vilja sveitarfé-
laganna til að semja við kennara.
„Ég lýsti því fyrir samninga-
nefndum skólastjórafélagsins og
Félags grunnskólakennara að við
hefðum ekki óskað eftir þessum
lögum eða þessari gerðardóms-
leið. Nú munu samninganefndirn-
ar einbeita sér að samningavið-
ræðum með það að markmiði að
ljúka samningsgerðinni áður en
gerðardómsákvæðið verður virkt
eða fyrir 20. nóvember,“ sagði
Birgir og bætti við að eingreiðslan
yrði afgreidd á næstu dögum.
Birgir segir að kennarar hafi
m.a. sett fram þá kröfu í gær-
kvöldi að launastofninn yrði
hækkaður um 5,5% frá 1. október
eins og miðlunartillagan gerði ráð
fyrir. „Þeir féllu svo frá óskum um
það svo það strandaði ekki á okk-
ur. Ég hefði verið tilbúinn að und-
irrita viljayfirlýsingu um það.“
Birgir vildi ekki tjá sig um
hvort sveitarfélögin væru hugsan-
lega tilbúin að bjóða kennurum
betri samning en þann sem miðl-
unartillagan kvað á um. „Okkur
hjá sveitarfélögunum líst að sjálf-
sögðu illa á að missa samnings-
réttinn og ráðstöfunarréttinn yfir
okkar fjármunum og kennurum
líst líka illa á það. Þetta ætti því að
kalla á að við reyndum enn frekar
að vinna að þessu saman.“
Flestir kennarar og skólastjór-
ar sem Morgunblaðið hafði sam-
band við í gær áttu von á þónokk-
urri röskun á skólastarfi í dag.
Mikið var um óformleg fundahöld
í gær og dæmi um að kennarar
kæmu saman oftar en einu sinni til
þess að skiptast á skoðunum og
velta fyrir sér stöðu mála. Í
Reykjavík hittust trúnaðarmenn
kennara á höfuðborgarsvæðinu og
víðar og ræddu málin. Hljóðið var
þungt í fólki og miklar áhyggjur af
framtíð skólastarfs í landinu.
Heimildarmaður Morgunblaðs-
ins í röðum kennara í Reykjavík
sagði allar líkur á að margir kenn-
arar sætu heima í dag þótt það
væri ákvörðun sem hver og einn
þyrfti að taka fyrir sig. Ekki er
ljóst hvaða áhrif viljayfirlýsingin
hefur á það.
Viljayfirlýsing um
samning fyrir 20. nóv.
Kennaradeilan/4
Kennarar fá 130 þúsund króna
eingreiðslu en ekki grunnhækkun
♦♦♦