Morgunblaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF San Francisco* Minneapolis Boston New York Baltimore Orlando Eins og skot 25 flugferðir í viku frá Bandaríkjunum til Íslands Betri er ein vara í hendi en margar á sjó Innflutningur í flugi frá Bandaríkjunum hefur aukist um 80% milli ára. Ástæðan er sú að gengi dollarans hefur hraðlækkað undanfarin ár og því hafa innflytjendur augastað á Bandaríkjunum til að gera hagstæð kaup. Icelandair býður 25 flugferðir á viku frá Bandaríkjunum til Íslands og þar af fraktflug fyrir stóra og smáa hluti frá New York 5 sinnum í viku. Á sama tíma og það tekur vöruflutningaskip að sækja vörufarm vestur um haf flýgur Icelandair Cargo 90 ferðir milli Íslands og Bandaríkjanna. Hafðu strax samband við Icelandair Cargo við Flugvallarveg í Reykjavík. Sími 5050 400, fax 5050 630, veffang icelandaircargo.is * Reglulegt flug til San Francisco hefst í maí 2005. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I FR 2 62 11 10 /2 00 4 Geymdu það ekki til morguns sem þú getur gert í dag. 410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 2 64 27 11 /2 00 4 Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 2 64 27 11 /2 00 4 Landsbanki Íslands hf. Umsjón me› sölu skuldabréfanna og skráningu í Kauphöll Íslands hefur Ver›bréfami›lun Landsbanka Íslands, Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík. Skráningarl‡sing og önnur gögn sem vitna› er til í l‡singunni er hægt a› nálgast hjá Landsbanka Íslands. Skráning skuldabréfa í Kauphöll Íslands Bur›arás hf. 6.000.000.000 kr. 1. flokkur 2004 Nafnver› útgáfu: Heildarnafnver› flokksins er 6.000.000.000 kr. Skilmálar skuldabréfa: Skuldabréf 1. flokks 2004 eru gefin út til 6 ára og grei›ist höfu›stóll me› einni afborgun flann 1. nóvember 2010. Vextir grei›ast einu sinni á ári, flann 1. nóvember ár hvert, fyrst 1. nóvember 2005. Útgáfudagur bréfsins er 1. nóvember 2004. Skuldabréfi› ber 4,75% fasta ársvexti. Au›kenni flokksins í Kauphöll Íslands ver›ur BURD 04 1. Skráningardagur: Kauphöll Íslands mun taka bréfin á skrá flann 19. nóvember 2004. MIKIL bjartsýni ríkir meðal for- ráðamanna 400 veltumestu fyrir- tækja landsins, að því er kemur fram í könnun sem IMG Gallup vann fyrir fjármálaráðuneytið og Seðlabanka Íslands í september sl. Í Vefriti fjármálaráðuneytisins segir að forráðamenn fyrirtækjanna telji aðstæður í efnahagslífinu nú vera þær bestu frá því þessar kann- anir hófust árið 2002. Um 86% að- spurðra töldu þær góðar en einungis 2% töldu þær slæmar. Að mati 12% þeirra sem svöruðu eru aðstæður hvorki góðar né slæmar. Þegar horft er fram í tímann töldu tæplega 9% aðstæður í efnahagslífinu verða verri eftir 6 mánuði og um 22% töldu þær verða verri eftir 12 mánuði. Þeir svartsýnustu eru forsvarsmenn í sjávarútvegi. Stjórnendur 31% fyrirtækja töldu að þeir mundu fjölga fólki á næstu 6 mánuðum, 60% sögðu að fjöldinn yrði óbreyttur og 9% að þeir muni fækka fólki. Nokkru fleiri ætluðu að fækka fólki á landsbyggðinni en á höfuð- borgarsvæðinu. Fyrirtæki í öllum at- vinnugreinum ætla að fjölga fólki, en mest í ráðgjöf og þjónustu, eða yfir 40% fyrirtækja. Fyrirtæki í öllum at- vinnugreinum að frátöldum fjármála- og tryggingafyrirtækjum ætla að fækka fólki en flest voru í iðnaði og framleiðslu. Vænta meiri veltu og hagnaðar Í 55% fyrirtækja var talið að hagn- aður yrði meiri í ár en í fyrra en í um fimmtungi að hann yrði minni. Í öll- um atvinnugreinum er gert ráð fyrir meiri hagnaði en minni að frátöldum sjávarútvegi. Það sama á við um veltu, í 42% sjávarútvegsfyrirtækja er gert ráð fyrir minni veltu í ár en í fyrra og einungis í 29% að hún verði meiri. Í langflestum fyrirtækjum í öllum öðrum atvinnugreinum er reiknað með veltuaukningu. Þá er á höfuðborgarsvæðinu gert ráð fyrir meiri hagnaði og meiri veltu en á landsbyggðinni sem tengist væntan- lega staðsetningu sjávarútvegsfyrir- tækja, að því er segir í Vegvísi. IMG Gallup hefur frá hausti 2002 gert athuganir á stöðu og framtíðar- horfum stærstu fyrirtækja landsins og mat stjórnenda þeirra á almenn- um efnahagshorfum fyrir fjármála- ráðuneytið og Seðlabanka Íslands. Kannanirnar eru gerðar tvisvar á ári og er úrtakið 400 veltuhæstu fyrir- tæki landsins. Í könnuninni sem hér um ræðir var svarhlutfallið um 82%. Stjórnendur fyrir- tækja bjartsýnir ● AL Gore, fyrrum varaforseti Bandaríkjanna, hefur ásamt fimm öðrum stofnað hlutabréfasjóð. Stefna sjóðsins, sem ber nafnið Generation Investment Manage- ment, er að fjárfesta í umhverfis- og samfélagsvænum fyrirtækjum, samkvæmt frétt Financial Times á mánudag. Meðal annarra stofnenda sjóðsins eru David Blood, fyrrum framkvæmdastjóri fjármálasviðs Goldman Sachs, og Mark Fergu- son, sonur Sir Alex Fergusons. Gore stofnar hlutabréfasjóð● HARVARD-háskólinn í Bandaríkj- unum er besti háskóli heims sam- kvæmt úttekt breska blaðsins The Times. Aðferðin við að mæla gæði skól- anna felst í viðtölum við námsmenn og vísindamenn í hverjum skóla, telja saman tilvitnanir í fræðimenn, fjölda starfsmanna í hlutfalli við námsmenn og telja fjölda erlendra námsmanna við hvern skóla. Bestu skólar Evrópu samkvæmt úttektinni eru Oxford og Cambridge í Englandi. Harvard bestur                  !! "# $!%  &"#'    $!%  &"#'  () !% %   *+' !% %  ,%  !%  &  !%  -"% !%  .& /0"# ,!! *%1 &# &*! vænta fyrr en í byrjun desember. Á föstudagskvöld var endanlega staðfest að kaup Baugs og Lands- bankans á fataverzlanakeðjunni MK One hefðu gengið í gegn. Ireland On- line segir frá því að í framhaldinu búi stjórnendur fyrirtækisins sig undir mikla útþenslu. Baugur hyggist bæta 50 verzlunum við þær 175, sem þegar eru fyrir hendi, og telji að rými sé fyr- ir allt að 400 búðir á markaðnum. Samkvæmt frétt vefjarins á Baugur 46% í fyrirtækinu, Landsbankinn 36% og hópur nýrra stjórnenda, sem Baugur hefur fengið að fyrirtækinu, á afganginn. Nýr forstjóri MK One er Les Johnston. Haft er eftir honum á IOL að stjórnendur hyggist „færa fyrir- tækið á nýtt stig og gjörnýta hina gíf- urlegu möguleika þess.“ BREZKIR fjölmiðlar greindu frá því um helgina að búast mætti við því að Baugur lækkaði yfirtökutilboð sitt í Big Food Group um 20 pens á hlut, úr 110 í 90, eftir að lélegar afkomutölur fyrirtækisins litu dagsins ljós í síð- ustu viku. Scotland on Sunday hefur eftir heimildarmönnum nákomnum Baugi að Baugsmenn telji sig hafa króað Bill Grimsey, forstjóra BFG, af og hann eigi ekki annarra kosta völ en að samþykkja tilboðið. Sérfræðingar, sem blaðið ræðir við, segja að hætti Baugur við kaupin megi gera ráð fyr- ir að verð hlutabréfa BFG lækki um allt að helmingi. Grimsey telji því lík- lega skárra að taka tilboði Baugs en að einhver af stóru matvörukeðjunum hirði fyrirtækið á mun lægra verði. Scotland on Sunday segir engrar formlegrar tilkynningar um málið að Baugur sagður lækka boð í BFG ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111 ● FRJÁLSI lífeyrissjóðurinn og Sér- eignalífeyrissjóðurinn hafa formlega verið sameinaðir. Við það fluttust eignir 3.866 sjóðfélaga Séreignalíf- eyrissjóðsins, sem námu rúmum 3 milljörðum króna, yfir í Frjálsa lífeyr- issjóðinn. Í tilkynningu segir að sjóð- félögum í tryggingadeild Frjálsa lífeyr- issjóðsins hafi fjölgað um 2.700, sem þýði að dreifing áhættu sé meiri. Í septemberlok voru sjóðfélagar í tryggingadeild sameinaðs sjóðs 18.291 talsins. Heildarstærð sam- einaðs sjóðs var á sama tíma rúmir 34 milljarðar og fjöldi sjóðfélaga var 29.751. Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem rekinn er af KB banka, er nú sjöundi stærsti lífeyrissjóður landsins. Sjóðfélagar eiga nú kost á að sækja um verðtryggð lán til allt að 40 ára á 4,2% vöxtum. Sjöundi stærsti lífeyrissjóðurinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.