Morgunblaðið - 15.11.2004, Side 26

Morgunblaðið - 15.11.2004, Side 26
26 MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ATVINNU- AUGLÝSINGAR Rennismiður Okkur vantar rennismið í fast starf. Tölvukunnátta æskileg. Okkur vantar einnig mann í rafsuðu o.fl. Frábær vinnuaðstaða. Upplýsingar á staðnum og í síma 544 8500 á milli kl. 16 og 18. Style International ehf. Miðhrauni 12, 210 Garðabæ R A Ð A U G L Ý S I N G A R Information meeting MBA/MSc Date: Tuesday, November 16 Time: 18.00 - 19.30: MBA (Executive MBA) 19.30 - 20.15: Master of Science (BScB) Venue: Radison SAS Hotel Saga BI Norwegian School of Management, one of the leading private business schools in Europe, will be holding an information meeting in Iceland to present its graduate programs: MSc and MBA. Icelandic BI alumni will be present to answer your questions. For those interested, information about the international full-time Bachelor of Science in Business(BScB) and part-time Executive MBA program will also be available. The “Business School of the Future”, BI's new campus in Oslo, will open August 15, 2005. MBA – 11 MONTHS FULL TIME General management MBA with a focus on Strategic Leadership and Team Dynamics MASTER OF SCIENCE – TWO YEARS FULL TIME MSc in Management, Financial Economics, International Marketing & Management, Organizational Psychology, Business & Economic History More information: www.bi.edu study@bi.no + 47 22 98 50 50  MÍMIR 6004111519 II  HEKLA 6004111519 IV/V  GIMLI 6004111519 III I.O.O.F. 19  18511158  0* I.O.O.F. 10  18511158  mbl.is ATVINNA Auglýsingasími: 569-1111 - Netfang: augl@mbl.is bílar ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUMÁ FIMMTUDAGINNALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM ✝ Hákon Pálssonfæddist á Akur- eyri 19. júní 1910. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Hlíð hinn 7. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hans voru Hansína Berg- vinsdóttir húsmóðir, f. 31. desember 1880 í Klömbum í Aðaldal, og Páll Jónsson bakari á Akureyri og síðar á Húsavík, f. 29. des- ember 1883 í Fagra- nesi í Öxnadal. Systkini Hákonar, sem öll eru látin, voru Karl, El- ínborg, Bergþóra og Hannes. Há- kon missti móður sína níu ára gamall og flutti þá að Miðhvammi í Aðaldal og ólst þar upp. Hann lærði trésmíði og síðar 2) Svala Hrönn Haraldsdóttir, sambýlismaður Sigurður Ingvi Hrafnsson og eiga þau saman tvo drengi, Hákon Arnar og Atla Hrafn. 3) Fannar Víðir Haralds- son. Börn Hákonar með Helgu Gunnarsdóttur, Akureyri, f. 1921, eru Hákon, f. 1945, og Sig- urbjörg Svanhvít, f. 1949, d. 1980. Börn Hákonar Hákonarsonar og konu hans Úlfhildar Rögn- valdsdóttur eru Hákon Gunnar Hákonarson, sambýliskona Petra Halldórsdóttir og eiga þau tvö börn, Álfhildi Rögn og Hákon Birki. Helga Hlín Hákonardóttir, sambýlismaður Unnar Sveinn Helgason, Helga Hlín á dótturina Aðalborgu Birtu Sigurðardóttur. Hákon lét af störfum sem raf- veitustjóri á Sauðárkróki árið 1976 vegna aldurs. Hann flutti til Akureyrar árið 1986, fyrst á Dvalarheimilið Skjaldarvík og síðar að Kjarnalundi. Útför Hákonar verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. vélsmíði á Húsavík og vann þar einnig sem bílstjóri og við sjó- mennsku. Hann vann sem vélgæslumaður við Laxárvirkjun þar til fjölskyldan fluttist til Sauðárkróks 1949 er Hákon varð raf- veitustjóri þar. Hákon kvæntist 19. júní 1934 Hallfríði Gísladóttur sem fædd var 31. janúar 1910 á Egg í Hegranesi og ólst upp á Bessastöð- um í Sæmundarhlíð. Hallfríður lést árið 1982. Kjör- sonur þeirra var Haraldur Hann- es Hákonarson, f. 1946, d. 2002. Börn Haraldar og konu hans Svanborgar Magnúsdóttur eru: 1) Magnús Þór Haraldsson, sam- býliskona Inga S. Kristinsdóttir. Nú ríkir kyrrð í djúpum dal þótt duni foss í gljúfrasal, í hreiðrum fuglar hvíla rótt, þeir hafa boðið góða nótt. Nú saman leggja blómin blöð, er breiddu faðm mót sólu glöð, í brekkum fjalla hvíla hljótt, þau hafa boðið góða nótt. Nú hverfur sól við segulskaut og signir geisli hæð og laut, en aftanskinið hverfur hljótt, það hefur boðið góða nótt. (Magnús Gíslason.) Með nokkrum orðum vil ég minnast tengdaföður míns Há- konar Pálssonar sem lést á Akur- eyri 7. nóvember sl. 94 ára gamall. Hákoni kynntist ég eftir að við sonur hans höfðum ruglað saman reytum, en áður hafði ég heyrt ömmu mína í Mývatnssveit tala um hve hann hefði verið bráðmyndar- legur og mikill hagleiksmaður þeg- ar hann bjó fyrir austan og kom í sveitina vegna starfa sinna hjá Laxárvirkjun. Hagleiksmaður var hann svo sannarlega. Hann var lærður tré- smiður og vélsmiður og þurfti í störfum sínum sem slíkur að smíða bæði tæki og tól og annast við- gerðir. Í tómstundum fékkst hann við silfursmíði og var snillingur í víra- virkisgerð. Hann smíðaði upphlut- ssilfur til margra ára og annaði aldrei eftirspurn á því sviði. Íslenska steina sagaði hann og slípaði í vélum sem hann smíðaði sjálfur. Steinana notaði hann í silf- urskartgripi, aðallega hálsmen sem hann hannaði sjálfur eins og mest af upphlutssilfrinu sem hann smíð- aði, en annað vann hann eftir hefð- bundnum munstrum. Hákon var hraustmenni og hafði yndi af útivist og veiðum, bæði lax– og silungsveiðum, en einnig var hann góð skytta. Hann var mikill ræktunarmaður og kynnti sér skógrækt m.a. í Nor- egi. Þau hjónin gróðursettu fjöl- breytta flóru bæði við rafstöðvar- húsið á Sauðárkróki og sumarbústaðinn og við heimilið í Birkihlíð. Hákon var rausnarlegur í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. HÁKON PÁLSSON Elsku Sæunn, mér finnst svo stutt síðan við sátum hlið við hlið í öllum tímum sem við deildum í MK. Ég var að skoða útskriftarbókina okkar og þar er teiknuð mynd af þér með diet-kók flösku! Ég rak augun strax í það, því síðast þegar við hittumst varstu svo stolt af því að þú hafðir ekki drukkið gos í 14 mánuði eða frá því að Hlynur Freyr fæddist. Ég man þegar þú varst ólétt að Sóleyju Söru og þið bjugguð heima hjá pabba þínum og mömmu. Þið voruð ekkert að flýta ykkur að segja þeim frá kúlubúanum, mig minnir að þau hafi ekki komist að þessu fyrr en þú varst gengin með um 5–6 mánuði! Það sem kom upp um þig var kjóllinn sem þau keyptu úti fyrir einhverja frænkuna í jólagjöf. Þig langaði svo í hann á þitt barn, ef það yrði stelpa og það varð stelpa, yndisleg, Sóley Sara, og að sjálf- sögðu fékkst þú kjólinn! Þarna var sko prakkarinn Sæunn að verki! Þegar dóttir mín kom í heiminn SÆUNN PÁLSDÓTTIR ✝ Sæunn Pálsdótt-ir fæddist í Reykjavík 7. febr- úar 1979. Hún lést á heimili sínu, Hamraborg 38 í Kópavogi, aðfara- nótt mánudagsins 1. nóvember síðastlið- inn, og var útför hennar gerð frá Digraneskirkju 8. nóvember. lánuðuð þið okkur allt sem þið mögulega gát- uð, fötin, bílstólinn, hoppróluna, ömmustól- inn, útigallana og allt tilheyrandi sem fannst. Þitt mottó var svo sannarlega að það væri engin ástæða að liggja á einhverju uppi í skáp þegar maður gæti deilt því með öðr- um. Svona varstu alltaf gagnvart mér og minni fjölskyldu, alltaf boðin og búin að aðstoða með hvað sem var. Ég er svo fegin að við skyldum ákveða að eyða síðasta föstudags- kvöldinu þínu saman, horfa á Idol, borða jarðarber með súkkulaði, grænmetissnakk og kjafta og kjafta. Það var svo gaman að sjá breyt- inguna á þér, öll komin í hollustuna, byrjuð í ræktinni og loksins farin að lifa fyrir þig sjálfa. Við ræddum það á heimleiðinni hvað þú hefðir litið vel út, bjartsýn og brosandi þrátt fyrir erfiðleikana sem þið Maggi voruð að ganga í gegnum og svo full tilhlökkunar til framtíðar- innar. Aðeins eitt líf sem endar fljótt, en kærleiksverkin standa. Elsku Sæunn, þú átt alltaf sér- stakan stað í hjarta mínu og ég kem áfram til með að kjafta við þig þó að það verði ekki í símann eða yfir eldhúsborðið. Þín vinkona Kolbrún Rakel.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.