Morgunblaðið - 15.11.2004, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 15.11.2004, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 11 FRÉTTIR Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt í DV, mánudaginn 15. nóvember. Upplýsingar um útdregin húsbréf má finna á heimasíðu Íbúðalánasjóðs: www.ils.is. 1. flokki 1991 – 52. útdráttur 3. flokki 1991 – 49. útdráttur 1. flokki 1992 – 48. útdráttur 2. flokki 1992 – 47. útdráttur 1. flokki 1993 – 43. útdráttur 3. flokki 1993 – 41. útdráttur 1. flokki 1994 – 40. útdráttur 1. flokki 1995 – 37. útdráttur 1. flokki 1996 – 34. útdráttur 3. flokki 1996 – 34. útdráttur Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: Útdráttur húsbréfa Húsbréf Koma þessi bréf til innlausnar 15. janúar 2005. Aukaútdráttur Aukaútdráttur hefur einnig farið fram í ofangreindum húsbréfaflokkum, nema 1. og 3. flokki 96, og koma þau til innlausnar 15. janúar nk. Skv. 22. og 23. gr. laga nr. 44/1998 er Íbúðalánasjóði heimilt að fara í aukaútdrátt til að jafna fjárstreymi sjóðsins. Uppgreiddum fasteigna- veðbréfum er jafnað á móti útistandandi húsbréfum með útdrætti úr gildum húsbréfum úr þeim flokki, er tilheyrir umræddu fasteignabréfi. Ávarp: Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra Stuttar ræður: Steingrímur Hermannsson, fyrrv. forsætisráðherra Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður Ögmundur Jónasson, formaður BSRB Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, prófastur Sveinn Rúnar Hauksson, form. Fél. Ísland-Palestína Fundarstjóri: Katrín Fjeldsted læknir Ljóð og tónlist: Sigrún Hjálmtýsdóttir Steinunn Birna Ragnarsdóttir Vilborg Dagbjartsdóttir KK og Ellen Kristjánsdóttir Félagið Ísland-Palestína Þjóð í þrengingum Samstöðufundur með Palestínu í Borgarleikhúsinu í kvöld mánudag 15. nóv. kl. 20. FJÖLMENNI var í Sjónarhóli – ráðgjafarmiðstöð fyrir fjölskyldur barna með – í opnu húsi í gær. Ákveðið var að bjóða gestum og gangandi að skoða húsakynnin og kynna sér starfsemina í tilefni þess að um þessar mundir er ár liðið frá því að fé til þess að kaupa aðstöðuna safnaðist í landssöfnun. Þorgerður Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri miðstöðvarinnar, segir að vel á þriðja hundrað gestir hafi litið við, og gátu þeir m.a. hlustað á sönghópinn Blikandi stjörn- ur sem flutti fjögur lög við mikinn fögnuð áhorfenda. Kynntu starfsemi Sjónarhóls Morgunblaðið/Jim Smart MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Andrési Sigmundssyni: „Vestmannaeyjalistinn undir for- ystu Lúðvíks Bergvissonar hefur slitið vinstra samstarfinu við Fram- sóknarflokkinn í bæjarstjórn Vest- manneyja með tilvísun til trúnaðar- brests við undirritaðan. Í sjálfu sér er ekki við það að at- huga að stjórnmálamaður á borð við Lúðvík Bergvinsson skipti um skoð- un frá vinstri til hægri, en á hinn bóginn er ólíðandi að það sé gert með upplognum tilefnum og með því að vega að mannorði annarra manna. Staðreyndin er sú að Lúðvík hafði undirbúið vandlega aðförina að und- irrituðum enda var hann þegar sam- dægurs búinn að mynda meirihluta með Sjálfstæðisflokknum, gefa því samstarfi nafn og skipa í nefndir. Það er ekki annað að sjá af þeim at- burðum sem orðið hafa síðustu daga í Eyjum heldur en þeir kumpánar, Lúðvík og leiðtogi Sjálfstæðisflokks- ins, hafi hannað atburðarásina frá upphafi til enda. Það er rangt að ég hafi undirritað viljayfirlýsingu um kaup á svoköll- uðu Fiskiðjuhúsi sem menningar- húsi fyrir 153 milljónir. Viljayfirlýs- ingin sem ég undiritaði felur einungis í sér það sem þar stendur, áhuga viðkomandi að halda áfram viðræðum í byrjun þeirra, og leggja fram hugmyndir til skoðunar og ákvörðunar. Þar er skýrt tekið fram að ,,samkomulag er háð formlegu samþykki Verkefnastjórnar um Menningarhús í Vestmannaeyjum og skráðum eigendum“ Fiskiðju- hússins. Í þessu felst ekki annað en að til- lögur verði lagðar fram til kynningar og ákvörðun tekin hvort þeim verði hafnað eða þær samþykktar. Það er lögfræðilegt mat að engar frekari skuldbindingar hafi falist í þessari viljayfirlýsingu – og því þurfa aðrar hvatir en faglegar að koma til sögu þegar þetta er notað sem tilefni til samstarfsslita. Ég hafði engan skuldbundið – og engan skaðað. Lúðvík Bergvinsson ákvað hins vegar að nota þetta tilefni með lævís- legum hætti til að sverta mannorð mitt og leiða Sjálfstæðisflokkinn enn á ný til valda í Vestmannaeyjabæ. Þar með hefur Lúðvík stöðvað sam- vinnu félagshyggjuaflanna í Vest- mannaeyjum, meirihlutasamstarf sem verið hefur ,,með miklum ágæt- um eins og það er orðað í bókun Lúð- víks. Lúðvík Bergvinsson hefur vissu- lega heimild til að treysta þeim sem honum sýnist, og mynda meirihluta með hægri mönnum, en það er frá- leitt hægt að sætta sig við þær að- ferðir sem hann hefur notað til að slíta vinstra samstarfinu. Hann beitti mig bolabrögðum, hann reyndi að kúga mig til að játa á mig sakir sem ekki voru fyrir hendi, hann beitti ósiðlegum aðferðum – á mörk- um hins löglega – og reyndist ódrengur undir lok samstarfsins.“ Yfirlýsing frá Andrési Sigmundssyni Segist ekki hafa undir- ritað viljayfirlýsingu MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá eiginkon- um fjögurra íslenskra friðargæslu- liða: „Við undirritaðar, unnustur og eiginkonur þeirra Ásgeirs Þórs Ás- geirssonar, Stefáns Gunnarssonar, Steinars Arnar Magnússonar og Sverris Hauks Grönli sem starfa sem friðargæsluliðar á vegum Ís- lensku friðargæslunnar í Kabúl, telj- um okkur tilneyddar að stíga fram þeim til varnar þar sem þeim er snið- inn þröngur stakkur varðandi tján- ingu á hluta atburðarásarinnar. Sú umræða sem fer fram í fjölmiðlum (nú síðast í Fréttablaðinu í morgun [í gær]), bloggsíðum og annars staðar í þjóðfélaginu þar sem dregin er upp mynd af tilfinningalausum hroka- gikkjum sem láta sig mannslífin engu skipta er kominn langt umfram það sem þolanlegt er og hefur djúp áhrif á fjölskyldur okkar. Mennirnir okkar sem eru fjöl- skyldufeður og fyrrverandi eða nú- verandi starfsmenn viðbragðsaðila og þjóðfélagið treystir á er vá ber að höndum unnu það eitt til saka þenn- an örlagaríka dag að gæta öryggis yfirmanns síns sem þurfti í verslun- arferð, en þá átti sá hörmulegi at- burður sér stað að á þá var gerð sjálfsmorðssprengjuárás með þeim afleiðingum að tvær saklausar manneskjur létust, átta særðust, þar af þrír þeirra. Það má hins vegar til sanns vegar færa að rótin að þessu illa umtali sé upplýsingaskortur þ.e. að aldrei hefur komið fram hvernig þessi ógeðfelldi frasi „SHIT HAPP- ENS“ og bolirnir umdeildu tengjast atburðinum og skal hér bætt úr því. Að kvöldi hins örlagaríka dags, þess 23. október, er gert hafði verið að sárum þeirra Stefáns, Steinars og Hauks, var haldinn fundur á alþjóða- flugvellinum í Kabúl með þeim ís- lensku friðargæsluliðum sem ekki voru á vettvangi atburðarins. Hall- grímur Sigurðsson yfirmaður flug- vallarins og frumkvöðull leiðangurs- ins á Chicken Street stýrði fundinum. Þar útskýrði hann af hverju leiðangurinn var farinn þ.e. að hann hefði þurft að kaupa teppi. Þá fór hann yfir afleiðingar ferðar- innar, þ.e. að tveir óbreyttir borg- arar hefðu látið lífið auk tilræðis- mannsins, þrír íslenskir friðargæsluliðar særst auk ein- hverra annarra óbreyttra borgara. Hann lauk síðan máli sínu á þann ósmekklega hátt að afgreiða afleið- ingarnar í tveimur orðum „SHIT HAPPENS“ eins og hann hefði misst af önglinum. Þennan frasa not- aði hann síðan ítrekað næstu daga hvort sem hann ræddi atburðinn á stórum fundum eða í samtali nokk- urra manna. Bolirnir umdeildu með þessari ógeðfelldu áletrun og mennirnir okk- ar klæddust á mynd í Fréttablaðinu og við heimkomuna í Leifsstöð voru gjöf frá vini þeirra sem ofbauð af- greiðsla yfirmannsins á þeim sjálfum og hinum sem annað hvort létust eða særðust þennan dag. Að klæðast bol- unum var þeirra leið til að tjá andúð sína á þessari afgreiðslu.“ Undir yf- irlýsinguna skrifa Eyrún Björns- dóttir, Guðrún Árnadóttir, Rakel Ás- geirsdóttir og Soffía H. Jakobsdóttir. Yfirlýsing frá eiginkonum fjögurra íslenskra friðargæsluliða í Kabúl Tilneyddar til að útskýra notkun á umdeildri áletrun Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.