Morgunblaðið - 15.11.2004, Síða 29

Morgunblaðið - 15.11.2004, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 29 DAGBÓK nammi, namm... | auglýsingasíminn er 569 1111 Jól 2004 kemur laugardaginn 27. nóvember HREINLÆTISVÖRURNAR FRÁ Ráðstefna Hollvina hins gullna jafnvægis„Heima og heiman: Samræming vinnuog einkalífs í fjölmenningarsamfélagi“verður haldin á Nordica hóteli á mið- vikudag kl. 13. Á dagskrá ráðstefnunnar eru erindi einkum ætluð þeim sem starfs síns vegna geta stuðlað að bættu starfsumhverfi, auknum sveigj- anleika og samræmingu vinnu og einkalífs meðal starfsmanna, s.s. starfsmannastjórum, jafnrétt- isráðgjöfum og stjórnendum með mannaforráð. Hildur Jónsdóttir, jafnréttisráðgjafi Reykjavík- urborgar, segir alþjóðavæðinguna hafa haft marg- vísleg áhrif á íslensk fyrirtæki. „Annars vegar höf- um við æ fleiri dæmi um fyrirtæki sem reka hluta starfsemi sinnar erlendis og senda þangað Íslend- inga til starfa. Hins vegar hafa líka æ fleiri íslensk fyrirtæki og stofnanir hérlendis starfsmenn af er- lendum uppruna,“ segir Hildur. „Íslendingar sem fyrir eru og starfsmenn sem hafa mótast af annars konar fyrirtækjamenningu en þeirri íslensku þurfa þá að aðlagast hverjir öðrum og stjórnendur að koma fræðslu um menningu, þjónustuhætti og til dæmis samskiptahætti til nýrra starfsmanna. Ís- lenskum fyrirtækjum ber samkvæmt lögum að stuðla að samræmingu starfs og einkalífs hjá starfsmönnum sínum en þarfir og væntingar starfsmanna af ólíkum uppruna geta verið ólíkar. Við þessar aðstæður reynir með nýjum hætti á starfsmannastjórn í fyrirtækjum.“ Hvernig er hægt að bregðast við þeim vanda- málum sem við blasa? „Ég held að fagleg starfsmannastjórnun feli þann skilning í sér að auka þurfi læsi á aðstæður, þarfir og markmið fyrirtækisins og um leið að- stæður, þarfir, hæfni og ólíka eiginleika starfs- fólksins. Á fjölmenningarlegum vinnustöðum get- ur þetta orðið flóknara, en um leið er árangurinn af því að stilla saman starfsfólk með ólíkan bakgrunn mikill og þekkingarspönn fyrirtækisins getur auk- ist til mikilla muna.“ Hvernig er hægt að stuðla að bættu jafnvægi vinnu og einkalífs hjá starfsmönnum? „Vinnuveitendur geta komið til móts við þarfir starfsmanna og aðstæður t.d. með því að gera þeim kleift að draga úr starfshlutfallinu, minnka yf- irvinnu, stytta vinnuvikuna, leyfa starfsfólki (innan ákveðinna marka) að ákveða hvenær dagsins það hefur störf og lýkur störfum eða með því að veita starfsfólki leyfi t.d. þegar um páska-, jóla- og sum- arleyfi er að ræða í grunnskóla barnanna. Á fjöl- menningarlegum vinnustöðum þarf að hafa í huga að menningarbundnir eða trúarlegir þættir geta haft áhrif á það hvers konar úrræða er þörf. Betri skipulagning og skipting verkefna, svo og mögu- leikinn á að vinna heima fyrir eru ennfremur kostir sem oft eru skoðaðir í þessu sambandi.“ Mannauður | Ráðstefna um samræmingu vinnu og einkalífs í fjölmenningarsamfélagi Auka þarf læsi á aðstæður og þarfir  Hildur Jónsdóttir er fædd árið 1955 í Reykjavík. Hún lauk B.A. prófi í fjölmiðlafræði frá Danmarks Journ- alisthøjskole 1988. Hildur hefur starfað við auglýsingagerð og almannatengsl auk blaðamennsku. Þá hefur hún verið jafn- réttisráðgjafi Reykjavíkurborgar frá 1996. Hildur á 3 börn og maki hennar er Hjörtur O. Aðalsteinsson héraðsdómari. Glæpamenn á mótorhjólum MARGIR sem ég hef talað við eru mjög ánægðir með aðgerðir lögregl- unnar á Keflavíkurflugvelli gegn glæpamönnunum í mótorhjólaklík- unum. Þær eru mjög ákveðnar og senda þessu hyski skilaboð um að því sé hollast að halda sig fjarri. En menn þurfa að halda vöku sinni. Ég hef tekið eftir því á spjallþráðum á netinu að þar eru útsendarar á þeirra vegum að mæla þessum klík- um bót. Mér sýnist meira að segja DV vera fallið fyrir skrúðmælgi þessara manna. Þar vísa ég í viðtal við einn klíkumeðliminn í Hrolli sem er sakleysið uppmálað og heldur því fram að þeir séu ósköp venjulegir fjölskyldumenn. Það eru þeir í mafí- unni líka! Ég trúi ekki einu orði af því viðtali. Við þurfum að skilgreina í lögum þessa glæpahópa á þann veg að dómari geti úrskurðað eigur þeirra upptækar. Við þurfum að gera allt til að koma í veg fyrir að þeir festi sig meir í sessi og að við fáum „Norðurlanda“ ástand hér á Íslandi. Helgi Helgason, Þinghólsbraut 23, Kóp. Olíufélögin borgi fyrir menntun grunnskólanema ÞAÐ FER hryllingur um mig að vita til þess að menningarþjóð geti látið börn sín vera án kennslu vikum sam- an meðan bruðlað er með fjármagn almennings af nokkrum olíufélögum. Ég legg til að settur verði skattur á olíufélögin og þær tekjur notaðar til að greiða kennurum launamismun þann sem upp á vantar til að samn- ingar takist. Birkir Baldvinsson, Espigerði 2, Rvík. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Brúðkaup | Gefin voru saman 8. maí sl. í Keflavíkurkirkju þau Særún Guð- jónsdóttir og Bjarni Stefánsson. Ljósmynd/Oddgeir Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Aflagrandi 40 | Félagsvist kl. 14. í sal leikfimi kl. 9 boccia kl. 10 frjáls spila- mennska, allir velkomnir. Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handa- vinna, kl. 9–16.30, söngstund kl. 10.30, smíði, útskurður kl. 13–16.30, fé- lagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, bútasaumur, samverustund, fótaaðgerð. Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og dagblöð, kl. 10–10.45 leikfimi, kl. 11.15– 12. 15 matur, kl. 13–16.45 brids, kl. 14– 16 samverustund í fjölbreyttu formi, kl. 15–15.45 kaffi. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids í dag kl. 13. Kaffitár með ívafi kl. 13.30. Línudanskennsla fyrir byrjendur kl. 18. Samkvæmisdans, framhald, kl. 19 og byrjendur kl. 20. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Bridsdeild FEBK Gullsmára spilar tví- menning mánu- og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10.05 og 11, bókband kl. 10, ullarþæfing kl. 13, spænska kl. 14. Í Garðabergi er pílu- kast og spilað brids kl. 13. Tölvur í Garðaskóla kl. 17. Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun, keramik, perlusaumur og kortagerð, kl. 10 fótaaðgerð, kl. 12 bænastund. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa kl. 9– 16, jóga kl. 9– 11. frjáls spila- mennska kl. 13–16, böðun virka daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir. Hæðargarður 31 | Opið félagsstarf kl. 9–16. listasmiðja, frjáls, kynning- arfundur kl. 10 í Salnum á nýjum þætti í starfinu: Framsögn og upplestur. Kaffi og nýbökuð vínarbrauð. Soffía Jakobsdóttir leikari. Aðstoð við böð- un. Félagsvist kl. 13.30. Hádegismatur og síðdegiskaffi. Miðar Edith Piaf komnir. S. 568–3132. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun þriðjudag sundleikfimi í Grafarvogs- laug kl. 9.30. Kvenfélagið Keðjan | Fundur verður í Flugvirkjasalnum Borgartúni 22. Mánudaginn 15. nóvember klukkan 20. Gestur fundarins verður Edda Björg- vinsdóttir. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handa- vinna, kl. 9–10 boccia, kl. 11–12 leikfimi, kl. 11.45–12.45 hádegisverður, kl. 13–16 kóræfing, kl. 14.30–15.45 kaffiveitinga. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.45, bókband, myndlist og hár- greiðsla kl. 9, morgunstund og fót- snyrting kl. 9.30, handmennt, gler- bræðsla og frjáls spil kl. 13. Þórðarsveigur 3 | Vídeó kl. 13.30. Kirkjustarf Áskirkja | Hreyfibæn kl. 12–12.45. KFUM og KFUK | Fundir fyrir stelpur 9.–12 ára á Holtavegi 28 kl. 17.15. Bú- um til kort með Tiffanys-stimplum. All- ar stelpur velkomnar. Langholtskirkja | Kirkjuprakkarar, starf fyrir 7–9 ára, kl. 15.30–16.30. At- hugið breyttan tíma. Fjölbreytt starf í umsjón Ólafs Jóhanns og Guðmundar Arnar. Laugarneskirkja | Opinn 12 spora fundur í safnaðarheimilinu kl. 18. Vinir í bata. Kl. 20 Tólf spora hópar koma saman í Laugarneskirkju. Umsjón hafa Guðlaugur Ólafsson og Hafdís M. Ein- arsdóttir. Neskirkja | 6 ára starf kl. 13.40. Sögur, leikir og föndur. Upplýsingar og skrán- ing í síma 511 1560. Umsjón Guðmunda og Elsa. TTT-starf fyrir 10 til 12 ára kl. 16. Leikir, spil, föndur og margt fleira. Umsjón Guðmunda og Auður. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Brúðkaup | Gefin voru saman í Graf- arvogskirkju 17. júlí sl. þau Jakobína Ó. Ólafsdóttir og Þórarinn V. Sigurðsson. Ljósmynd/Oddgeir Brúðkaup | Gefin voru saman í Grindavíkurkirkju 12. júní sl. þau Petra Rós Ólafsdóttir og Unnar Magn- ússon. Ljósmynd/Oddgeir Árnaðheilla dagbók@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.