Morgunblaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Áskriftarsími 881 2060 Í FORMI LIFANDI VÍSINDI Áskriftarsími 881 4060 VERK eftir Erró, portrettmynd af lista- manninum Julian Levy, máluð í akrýl 1968, var seld á sexföldu matsverði eða á 68.600 evrur á uppboði hjá Tajan í París 5.–7. októ- ber sl. Kom þetta fram í grein Braga Ás- geirssonar í Morgunblaðinu í gær. Svarar upphæðin til um tæplega sex milljóna ís- lenskra króna. Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Lista- safns Reykjavíkur, staðfestir þetta í samtali við Morgunblaðið. Verkið var í eigu fjöl- skyldu Julians Levys. Kaupandinn er óþekktur. „Það er alltaf góðs viti þegar verk selst á hærra verði á uppboði heldur en matsverðið er fyrir uppboð,“ segir hann. „Hver veit nema þetta viti á það að verk Errós fari á hærra verði á uppboðum í ná- inni framtíð. Verður athyglisvert að fylgjast með því.“ Hann segir að Erró hafi gengið vel upp á síðkastið. Meðal annars hafi hann verið með sýningar á Kúbu og í Frakklandi. Verk eftir Erró Seldist á sex- földu matsverði HÚSIÐ við Áshlíð 11 er jafnan hið fyrsta á Akureyri til að skrýðast jólabúningi. Á því er engin undantekning í ár. Hjónin Ragnar Sverrisson og Guðný Jónsdóttir hófu nú um helgina að skreyta híbýli sín, en þar er mikið verk að vinna þannig að þau njóta aðstoðar eykst umferð um þessa annars fáförnu götu til mikilla muna eftir að þau hafa verið tendruð. Á myndinni eru bræðurnir Jón M. og Ragnar Þór Ragnarssynir í körfu að hengja jólaljósin í eitt grenitrjánna í garð- inum. sona sinna við verkefnið. Ragnar hefur á síðastliðnum árum orðið æ stórtækari þegar kemur að jólaskreytingum, en um 2.000 jólaljósaperum er komið fyrir í og við húsið og garðinn umhverfis það. Jóla- ljósin snemmkomnu vekja jafnan athygli og Morgunblaðið/Kristján Þegar farið að hengja upp jólaljósin SAMNINGANEFND Félags leikskólakennara hittist í kvöld til að ákveða hvort vísa eigi launa- deilu þeirra við sveitarfélögin til ríkissáttasemj- ara, og í framhaldi af því verður tekin ákvörðun um hvort leita eigi eftir samþykki félagsmanna til boðunar verkfalls. „Við höfum verið að ræðast við frá því í ágúst og höfum haldið fimmtán samningafundi. Við höfum lagt fram ýmsar hugmyndir og útfærslur og báðir aðilar hafa verið að safna upplýsingum. Þessu hefur miðað hægt,“ segir Björg Bjarna- dóttir, formaður Félags leikskólakennara, og formaður samninganefndar félagsins. Samning- ar leikskólakennara voru lausir 31. ágúst sl. Ef sú ákvörðun verður tekin á fundi samn- inganefndarinnar í kvöld að leita eftir samþykki félagsmanna til að boða verkfall, munu að lág- marki líða 5–6 vikur þar til verkfall hefst, að mati Bjargar, enda þarf að fara fram atkvæða- greiðsla meðal allra félagsmanna áður en verk- fall er boðað. Vilja sambærileg laun og aðrir kennarar Björg segir deilu leikskólakennara óneitan- lega flækjast vegna þeirrar stöðu sem upp er komin í deilu grunnskólakennara og sveitarfé- laganna, enda sé það grunnkrafa leikskólakenn- ara í sinni launadeilu að kennarar með sambæri- lega menntun eigi að hafa sambærileg laun sama hvort þeir kenna leikskólabörnum, grunn- skólabörnum eða framhaldsskólanemum. Leikskólakennarar ræða boðun verkfalls í kvöld Viðræðum hefur mið- að hægt BLÁSKÓGABYGGÐ hyggst áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur um að fimm manna fjölskylda fái að skrá lögheimili í sumarhúsabyggð og segir odd- viti Bláskógabyggðar sveitar- félög engan veginn hafa fjár- hagslegt bolmagn til að veita lögbundna þjónustu í sumar- húsahverfum. „Við leggjumst almennt ekki gegn því að fólk fái að flytja til okkar lögheimili, en öll sveitar- félög á landinu hafa unnið eftir skipulags- og byggingalögum, og þeim lögum sem Hagstofan hefur unnið eftir. Það eru ekki skráð lögheimili í sumarhúsum, það þekkist bara ekki. Þannig að þetta er mjög stefnumarkandi dómur að því leytinu til,“ segir Sveinn A. Sæland, oddviti Blá- skógabyggðar. Hann segir að ef Hæstiréttur staðfesti þennan dóm héraðs- dóms sé ljóst að mjög mikill kostnaður muni falla á sveitar- félög þar sem fjölskyldur taka upp búsetu í sumarhúsabyggð- um, enda sveitarfélögin skyldug til að veita ýmiskonar þjónustu. „Gatnakerfi eru náttúrulega í mörgum tilvikum í molum, og ég sé ekki annað fyrir mér en það þyrfti að fara að leggja á gatna- gerðargjöld í sumarhúsahverf- um til að byggja upp gatnakerfið þannig að hægt væri að sinna lögbundinni þjónustu,“ segir Sveinn. Ef byggðin í sumarhúsa- hverfinu flokkast undir þéttbýli, heimili í hinum ýmsu sumarhúsabyggðum, en undir Bláskógabyggð heyra m.a. Þing- vellir, Laugardalur og Biskups- tungur þar sem tæplega 2.000 sumarhús eru í fjölmörgum hverfum. „Ef það koma einhverjir íbúar inn í öllum þessum hverfum, að einhverju leyti, sem ég veit að er áhugi fyrir, þá sjáum við sæng okkar upp reidda varðandi þann kostnað sem leggst á okkur. Auðvitað koma útsvarstekjur á móti, en þær duga ekki til að byggja upp gatnakerfi og frá- rennsliskerfi í svona hverfum eins og okkur ber skylda til að gera,“ segir Sveinn. sem Sveinn telur víst að yrði, þá þarf sveitarfélagið að leggja kalt vatn, sinna snjómokstri, sinna heimilis- og öldrunarþjónustu, sjá um aðgengi fyrir póstþjón- ustu, koma fráveitumálum í gott lag, og sjá um skólaakstur. Einnig þarf að bæta úr bruna- vörnum og aðgengi sjúkrabíla, sérstaklega yfir vetrartímann. Tæplega 2.000 sumarhús Sveinn segir málið ekki snú- ast um hvort húsin séu heilsárs- hús eða ekki, og mörg sumarhús séu vissulega heilsárshús sem uppfylli öll skilyrði um íbúðar- hús. Málið snúist frekar um af- leiðingar þess ef fleiri skrái lög- Dómsmál um lögheimili í sumarhúsabyggð heldur áfram Kostnaður sveit- arfélaga of mikill Morgunblaðið/Ómar Um 2.000 sumarhús heyra undir Bláskógabyggð, t.d. við Laug- arvatn, Þingvelli og í Biskupstungum. MIKIL hálka var á vegum víða um land, helst norðan- og vestantil, í gær og er fjöldi umferðaróhappa rakinn til þess að ökumönnum hafi orðið hált á svellinu. Í Staðarsveit sluppu fimm þýsk ungmenni þegar bílaleigubíll þeirra valt. Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum í hálku með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af, valt og hafnaði loks á hjólunum. Við Húnsstaði í Austur-Húnavatns- sýslu fór bíll út af og annar í Langadal. Akureyrarlögreglan fékk í gær til- kynningar um sjö umferðaróhöpp sem öll eru rakin til hálkunnar, bílar runnu m.a. út af í beygjum eða aftan á aðra bíla. Alvarlegasta slysið varð austan- megin í Víkurskarði þar sem jeppi valt út af veginum. Karlmaður og kona voru flutt á slysadeild lítið slösuð. Mörgum varð hált á svellinu NÁNAST allir fangaverðir hafa nú sótt námskeið á vegum Fangelsismála- stofnunar um einelti í fangelsum, eðli þess, afleiðingar og hvernig megi taka á því. Námskeiðin eru haldin í kjölfar bréfs sem Valtýr Sigurðsson fangels- ismálastjóri skrifaði til fanga þar sem hann kvaðst líta einelti alvarlegum augum og hvatti fanga til að láta af því. Anna Kristín Newton, sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun, segir að samkvæmt skoskri rannsókn hafi 76% fanga orðið vitni að einelti og um fjórð- ungur flokkist sem þolendur. Það geti verið erfitt að berjast gegn einelti enda séu fangelsi lítil samfélög þar sem margt sé falið fyrir fangavörðum. Fangaverðir sækja námskeið um einelti  Lítil/8 ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.