Morgunblaðið - 23.11.2004, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2004 17
ERLENT
TUGÞÚSUNDIR manna söfnuðust í
gær saman á Sjálfstæðistorginu í
Kíev, höfuðborg Úkraínu, og í fleiri
borgum til að mótmæla stjórnvöldum
og meintum kosningasvikum þeirra.
Er búið var að telja meira en 99% at-
kvæða í forsetakosningunum á
sunnudag var Viktor Janúkovítsj for-
sætisráðherra kominn með 49,42%
en keppinautur hans, Viktor Jústsj-
enkó, með 46,69%. „Ég trúi því að ég
hafi sigrað en ríkisstjórnin … stóð
fyrir viðamiklum kosningasvikum á
Donetsk- og Lúgansk-svæðunum,“
sagði Jústsjenkó í ræðu á torginu.
Kjörsókn var sögð hafa verið um
96% í umræddum tveimur héruðum
sem eru í austanverðu landinu.
Meirihluti íbúanna þar er rússnesku-
mælandi og vitað var að stuðningur
væri þar mikill við forsætisráð-
herrann. Á landsvísu var kjörsókn um
78%. Borgarstjórnir í Kíev og annarri
stærstu borg landsins, Lvív, sögðust
neita að taka niðurstöður stjórnvalda
gildar.
Erlendir eftirlitsmenn sögðu kosn-
ingarnar ekki hafa farið fram í sam-
ræmi við vestrænar lýðræðishefðir.
Meðal annars hefði ríkisfjölmiðlum
verið beitt blygðunarlaust í þágu
Janúkóvítsj. „Seinni umferð forseta-
kosninganna fullnægði ekki fjölda
skilyrða sem eru forsenda lýðræðis-
legra kosninga,“ sagði Bruce George,
yfirmaður nefndar Öryggis- og sam-
vinnustofnunar Evrópu, ÖSE, í Kíev.
Rússar studdu ákaft Janúkóvítsj
og Vladímír Pútín Rússlandsforseti
sendi honum skeyti með hamingju-
óskum.
Stjórn Úkraínu sök-
uð um kosningasvik
Reuters
Stuðningsmenn Jústsjenkós á Sjálf-
stæðistorginu í Kíev í gær.
Kíev. AFP, AP.
ENN er ekkert vitað um afdrif einn-
ar milljónar Íraka sem hurfu í
stjórnartíð Saddams Husseins, að
sögn Bakhtiars Amins, ráðherra
mannréttinda í bráðabirgðastjórn
landsins, í gær. Þegar hafa fundist
283 fjöldagrafir en skortur á rétt-
armeinafræðingum gæti valdið því
að 30 ár liðu áður en hægt yrði að
staðfesta hvað varð um hina horfnu.
Aðeins 20 réttarmeinafræðingar
væru í Írak.
„Saddam breytti landinu í glæpa-
safn, land fjöldagrafanna,“ sagði
ráðherrann og sagðist búast við að
enn fleiri grafir ættu eftir að finnast.
Milljón manna
saknað
Sarajevo. AFP.
STJÓRNVÖLD í Íran lýstu yfir því í
gær, að þau ætluðu að frysta alla
starfsemi tengda auðgun úrans og
hefðu þegar hafist handa við það.
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin,
IAEA, fagnaði yfirlýsingunni og taldi
hana draga úr ótta við, að Íranir
hyggist koma sér upp kjarnavopnum.
„Við ætlum að standa við gerða
samninga og í samræmi við það höf-
um við þegar byrjað að frysta þá
starfsemi, sem hafin var við að auðga
úran,“ sagði Abdollah Ramazanz-
adeh, talsmaður Íransstjórnar.
Mohamed ElBaradei, yfirmaður
IAEA, fagnaði yfirlýsingunni og
sagði, að vonandi gætu eftirlitsmenn
stofnunarinnar staðfest það strax á
fimmtudag, að vinna við auðgun úr-
ans hefði verið stöðvuð.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sakaði Írana í síðustu
viku um að vinna að þróun eldflauga,
sem borið gætu kjarnaodda. Kvaðst
hann hafa séð gögn, sem bentu til
þess.
Segjast hættir
að auðga úran
Teheran. AFP.