Morgunblaðið - 23.11.2004, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Opnunartími:
11-18:30 mán-fös
10-18 lau / 13-17 sun.
Skútuvogi 2, sími 522 9000 • www.expert.is
Í vélinni er nýi Intel Prescott
örgjörvinn ásamt Kingston
vinnsluminni með eilífðarábyrgð,
hljóðlátur harður diskur, netkort,
geislaskrifari, XP Pro
og margt fleira.
verð 89.900.-
Skrifstofuvélin sem uppfyllir
ítrustu kröfur nútímans.
ÆFINGABOLTAR
FRÁ
polafsson.is
Trönuhrauni 6 // 220 Hafnarfjörður // Sími: 565 1533
Væri Peter Carl Fabregénú á lífi, sá sem bjó tilhin frægu gullskreyttupáskaegg fyrir síðustu
rússnesku keisarahjónin, mætti
hann bara fara að vara sig, hugsaði
ég þegar ég horfði á hin glæsilegu
skrautegg sem Hildur Ársælsdóttir
hefur búið til á síðustu mánuðum í
litlu herbergi í íbúð sinni uppi í
Grafarvogi.
Þau eru af mismun-
andi stærðum, allt
frá hænueggjum
upp í strútsegg. En
eins og gefur að
skilja hafa þau geng-
ið í gegnum talsverða
umbreytingu til þess að
verða að þeim skraut-
gripum sem þau
nú eru. En það
er einmitt
kúnstin – að
umbreyta
venjulegum
hænu- eða gæs-
areggjum í
skrautgripi. Hvern-
ig skyldi standa á að
Hildur hófst handa við
þessar aðgerðir?
„Ég datt inn í þetta á Net-
inu,“ svarar Hildur.
„Ég sá þar jólaegg með
myndum af Maríu og Jesú-
barninu og datt í hug að
kannski væri hægt að setja
aðrar myndir á eggin.
Það eru tvö ár síðan
ég rakst á þetta á
Netinu en framan af
var ég bara að
velta þessu fyrir
mér.“
Hildur starfar á sambýli og eyðir
nú nánast öllum frístundum sínum í
eggjagerðina og skortir greinilega
ekki handlagnina.
Fékk það sem til þurfti frá
Ástralíu og Ameríku
„Ég byrjaði á að kaupa egg og
blása þau. Ég kunni að blása
egg frá því í gamla daga
þegar ég var að búa til mál-
uð páskaegg. Svo fór ég að
lesa mér meira til og loks
komst ég í samband við
konu í Ástralíu sem sendi
mér allt það sem ég
þurfti á að halda til að
geta skreytt eggin. Hún
hefur raunar taugar til Ís-
lands, systir hennar kynnt-
ist manninum sínum í Vík í
Mýrdal fyrir 20 árum.“
En hvað skyldi það vera
sem gerir eggin svona gljá-
andi eins og úr postulíni
séu?
„Ég lakka þau tólf sinnum
og læt þau þorna á milli um-
ferða, sem og þarf ég að pússa
þau fyrir hverja lakkumferð.
Ég hef brotið fjölda eggja í
þessum tilraunum og einnig vildi
áletrunin á eggjunum leka til, ég
hef verið í tæpt ár að þreifa mig
áfram en hef nú komist upp á lagið
með réttu aðferðina.“
Strútseggin afar
spennandi
Ég hef notað hænuegg
og íslensk gæsaegg.
Kunningjakona mín í Ástr-
alíu sendi mér þarlend
gæsaegg og strútsegg.
Þau síðarnefndu eru
með 2 millimetra skurni, mér finnst
þau mjög spennandi efniviður. Einn
vinur okkar hjóna hefur útbúið fyr-
ir mig sérstaka loftdælu til þess að
blása með eggin, svo ég nota ekki
lengur gömlu munnaðferðina.
Maðurinn minn sér um að
hreinsa eggin. Ég sé um að mála
og prenta út það sem ég set á egg-
in. Það þarf að prenta myndirnar á
sérstakan pappír sem ég fæ frá
Ameríku, ég hef þurft að leita víða
fanga við þetta.“
Eins og fyrr sagði eru egg Hild-
ar mörg hver afar skrautleg –
skyldu egg sjálfs Fabregé vera fyr-
irmynd þeirra?
„Já eiginlega er það svo, skreyt-
ingarnar eru þaðan ættaðar sumar
en auðvitað nota ég hvorki gull né
gimsteina. Ég hef hins vegar séð
egg á Netinu sem eru skreytt með
gulli og eðalsteinum og seljast fyrir
stórfé, jafnvel milljónir króna.
Þessi eggjalist á sér margra alda
sögu í Evrópu að mér skilst, þó
ekki á Norðurlöndum að því ég
best veit. Hér á Íslandi veit ég ekki
um neinn sem er í þessu nema
sjálfa mig.“
Hvað með sölu á fram-
leiðslunni?
„Ég byrjaði að
kynna þessa eggja-
gerð í sumar en
núna fyrir jólin
verð ég með
framleiðsluna í
Jólaþorpinu í
Hafnarfirði. Fólk
hefur í ríkari
mæli pantað hjá
mér egg að und-
anförnu, einkum
egg með mynd-
um. Þau eru
keypt í skírnar-,
brúðkaups- og af-
mælisgjafir. Göm-
ul kona sá svona
egg og var ösku-
reið þegar henni
var sagt hvernig
þau væru búin
til.
„Öllu má nú ljúga í mann,“ sagði
hún og fór án þess að næðist að út-
skýra betur fyrir henni hvernig að
væri farið.“
Lampafætur og skálar úr eggjum
Eru svona handgerð egg ekki
dýr?
„Auðvitað eru svona handgerðir
hlutir dýrari en verksmiðjufram-
leiðsla en ég fæ samt ekki mikið
tímakaup, ég hef bara gaman af
þessu, annars væri ég ekki við
þetta. Ég er bara í þessu með
manninum mínum, ég vil byrja
smátt og sjá hvernig gengur.“
En er hægt að búa til
margt úr eggjunum? „Já,
mjög margt, ég hef séð á
Netinu bæði lampafætur,
skálar og margt fleira. Ég
hef lesið það sem ég hef
komist í um eggjagerðina,
það er forvitnilegt að sjá
hvaða aðferðir aðrir nota.
Ég hef t.d. komist í sam-
band við konu í Argentínu
sem bæði er í eggjagerð
en er einnig með svokallað
kalt postulín. Ég hef hug á
að fá hana til að gera fyrir
mig postulínstré sem ég
gæti svo búið til egg á, t.d.
kríuegg. Þannig mætti búa
til glæsilegt ættartré
með myndum og áletr-
unum á eggjunum fyrir
hvern einstakling.“
Eins og fram hefur komið er
hægt að kynna sér skraut-
eggjaframleiðslu Hildar um helgar
í Jólaþorpinu í Hafnarfirði. Þar
kvaðst hún geta skrifað á tilbúin
egg á staðnum en það tekur um
viku að fá myndir settar á eggin.
Einnig verða egg með perlum og
gyllingu til sölu og þau stærri má
nota t.d. sem skartgripaskrín.
HANDVERK | Fékk hugmyndina á Netinu
Hænueggin verða að
handgerðum skrautgripum
Hildur Ársælsdóttir býr til falleg skrautegg.
Guðrún Guðlaugsdóttir fór til hennar og fékk að
sjá þessi stórfallegu og óvenjulegu egg sem vart
eiga sína líka á Íslandi.
Morgunblaðið/Jim Smart
Egg Hildar eru með ýmsum hætti.
Hildur Ársælsdóttir með eitt
skrauteggja sinna.
Með sérstökum aðferðum
eru myndir prentaðar
á eggin.
Eins og sjá má eru þessi
egg Hildar verulega falleg.
Áhugasamir geta sent póst á
egglist@internet.is.