Morgunblaðið - 23.11.2004, Qupperneq 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MIKLAR andstæður einkenndu
tónleika Camerarctica í Bústaða-
kirkju á sunnudagskvöldið. Fyrir
hlé gat að heyra glaðlega kvart-
etta bæheimska tónskáldsins
Heinrich Ignaz Franz von Biber,
en í seinni hálfleik var endað á
þrettánda strengjakvartettinum
eftir Shostakovich. Hann minnir
óþægilega á tónlistina úr kvik-
myndinni Psycho.
Biber er ekki mjög þekktur hér
á landi, en hann var uppi á ár-
unum 1644 til 1704 og var heims-
frægur fiðluleik-
ari auk þess að
vera tónskáld.
Kvartettarnir
sem leiknir voru
á sunnudags-
kvöldið eru fal-
legar tónsmíðar,
kannski ekki
mjög rismiklar
en láta vel í eyr-
um, sérstaklega
sem bakgrunnstónlist. Flutningur
Camerarctica var á margan hátt
ágætur; helst mátti finna að dálít-
ið bragðdaufri spilamennsku
Hildigunnar Halldórsdóttur, en
fiðlan hennar var heldur mjóróma
og karakterlaus. Að öðru leyti var
túlkunin lífleg og í anda tón-
skáldsins; hraðaval var sannfær-
andi og laglínurnar yfirleitt rétt
mótaðar af hópnum í heild. Hugs-
anlega hefðu styrkleikabrigði þó
mátt vera ríkulegri til að draga
betur fram spennuna í tónlistinni.
Tveir strengjakvartettar eftir
Shostakovich, sá sjöundi og sá
þrettándi, voru sömuleiðis nokkuð
góðir; krafturinn sem einkennir
flest verk tónskáldsins var til
staðar í þeim fyrri og stemning í
þeim síðari var töluvert dulúðug.
Heildarhljómurinn var þó örlítið
hrár og sumt var ekki alveg
hreint, en þar eð rétta andrúms-
loftið var til staðar gerði það lítið
til.
TÓNLIST
Kammermúsíkklúbburinn
Verk eftir Biber og Shostakovich í flutn-
ingi Camerarctica, sem samanstóð af
Hildigunni Halldórsdóttur, Sigurlaugu Eð-
valdsdóttur, Guðmundi Kristmundssyni (í
Biber), Jónínu Auði Hilmarsdóttur (í
Shostakovich), Sigurði Halldórssyni og
Guðrúnu Óskarsdóttur (í Biber). Sunnu-
dagur 21. nóvember.
Bústaðakirkja
Jónas Sen
Dmitri
Shostakovich
TVÆR ljósmyndasýningar með
trúarlegu ívafi standa nú yfir í
Sverrissal og Apoteki í Hafn-
arborg. Annars vegar er það sýn-
ing Jónu Þorvaldsdóttur, Á mörk-
um veruleikans, og hins vegar
sýning Izabelu Jaroszewsku, De
Profundis.
Er það markmið Jónu að sýna
heim handan hins sjáanlega
heims, þó með því að mynda veru-
leikann. Með tilheyrandi skugga-
spili og þokukennd í svarthvítum
myndum nær hún að skapa næga
dulúð í til að gefa mynd af
óáþreifanlegum veruleika. Jónu er
augljóslega mikið í mun að skapa
rétta stemmningu og fer alveg að
mörkum í dramatík í þeim efnum,
kannski yfir strikið í sumum til-
fellum. Það virðist málið þessa
dagana að hafa „soundtrack“ með
myndum á sýningum í Hafnar-
borg. Hugleiðslumúsik eftir Frið-
rik Karlsson hljómar í hátölurum
svo maður svífur um salinn í léttu
móki. Kyrrlátar myndir, kyrrlát
músik og vissulega notaleg stund.
Sýning pólsku listakonunnar
Izabelu Jaroszewsku í Apoteki er
öllu innihaldsríkari að mínu mati,
enda ber yfirskriftin þess merki,
De Profundis sem lauslega þýðir
dýpt. Leitast hún við að mynda
fólk í tilbeiðslu sem er án efa feg-
ursta ástand mannsins. Hefur
listakonan kosið að mynda Karm-
elíta-systur á Póllandi og Íslandi
og vinnur jafnframt í sumar
myndirnar þannig að ljósgeislar
virðast fylgja systrunum. Mynd-
irnar eru litlar og þykir mér það
vel við hæfi, ýtir undir auðmýkt.
Ég verð þó að játa að mér finnst
að listakonan hefði mátt kafa
dýpra þegar hún hugaði að fram-
setningunni, dökkt og mikið kart-
on gleypir myndirnar og lokar á
hrynjandi í rýminu. Spurning
hvort rammalausar myndir á
MDF eða frauði hefðu ekki gefið
rýminu meiri fyllingu þótt þær
tækju minna pláss. Fókusinn hefði
þá verið á myndirnar í rýminu en
ekki í römmunum og nærvera
þeirra fengið að njóta sín til fulls.
MYNDLIST
Hafnarborg
Opið alla daga nema þriðjudaga kl. 11–
17. Sýningu lýkur 29. nóvember.
Ljósmyndir – Jóna Þorvaldsdóttir og
Izabela Jaroszewska
Ein af myndum Izabelu Jaroszewsku af Karmelíta-systrum.
Jón B.K. Ransu
JONAS Ohlsson er sænskur lista-
maður sem vinnur allt í senn sem
myndlistarmaður, tónlistarmaður
og DJ, blanda sem er þónokkuð
vinsæl í dag þegar mörkin milli
myndlistar og tónlistar eru stund-
um óljós. Samstarf myndlist-
armanna og tónlistarmanna er
heldur ekki óalgengt, t.d. má
nefna Björk og Gabríelu og af ís-
lenskum myndlistarmönnum má
nefna t.d. Egil Sæbjörnsson. Á út-
skriftarsýningum Listaháskólans
undanfarin ár hefur einnig mátt
sjá tilhneigingu í þessa átt,
kannski er það hópvinnan sem á
sér stað innan hljómsveita sem
heillar og er ábyggilega oft meira
gefandi en einveran á vinnustof-
unni. Aukið samstarf milli mynd-
listarmanna er e.t.v. einnig af
þessum rótum runnið. Ég er ekki
kunnug tónlist Ohlssons en hann
hefur m.a. unnið með Heimi
Björgúlfssyni úr Stilluppsteypu og
sýna þeir nú saman á Ísafirði.
Myndlist sinni finnur hann hins
vegar farveg í gegnum tjáning-
arríkar og tilfinningaríkar teikn-
ingar í plakatastíl, þær sem hann
sýnir í Kling og Bang núna eru
flestar frekar grófar og sýna
ýmsar kynferðislegar athafnir
sem flestum þættu lítt fýsilegar.
Verk Ohlsson einkennast þó
einna helst af ádeilu, eiginlega á
allt milli himins og jarðar. Að
ganga inn í sýningarrýmið er dá-
lítið eins og tímastökk aftur til
sjöunda eða áttunda áratugar síð-
ustu aldar og maður verður eig-
inlega hissa að sjá listmann vinna
á þennan hátt í dag, en um leið
er það líka hressandi. Það er
hægt að nota fleiri tól en tölvur
við gerð myndverka, blýanturinn
stendur alveg fyrir sínu og Jonas
er ágætur teiknari. Sterkust
fundust mér þau verk sem lista-
maðurinn virðist hafa lagt hvað
mest í, litríkar teikningar. Sýn-
ing Jonasar er að hluta til spurn-
ing um stöðu listamannsins í dag,
er eitthvert vit í því að vera með
svona mótmæli og ádeilu innan
öruggra veggja gallerís þar sem
tiltölulega fáir eiga leið um?
Færri en eiga leið um götuna
fyrir utan á ég við. Og eru mót-
mæli áhugafólks sem ekki er
virkt í stjórnmálaflokkum ein-
ungis friðþæging, jafnvel sunnu-
dagaskemmtun? Kröfuganga og
kaffi á eftir og hvað við erum nú
meðvituð og stöndum okkur vel í
baráttunni. Á morgun förum við
aftur á vinnustofuna og í kosn-
ingum skilum við auðu? Á að tak-
marka pólitísk mótmæli við póli-
tíkina? Tæpast, því þá væri listin
að hluta til rænd möguleikum
sínum. Eftir stendur að það er
erfitt að gera list sem tekið er
eftir, sem vekur athygli, sem nær
í raun því markmiði að hafa ein-
hver áhrif – ef það er markmiðið.
Engu að síður getur sýning eins
og sýning Jonas Ohlssons vakið
aðra myndlistarmenn til umhugs-
unar um möguleika myndlistar-
innar, nokkuð sem ætti að vera
sífellt uppi á borðinu.
MYNDLIST
Gallerí Kling & Bang
Sýningu lokið.
Blönduð tækni, Jonas Ohlsson
Ragna Sigurðardóttir
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
Litla stúlkan með eldspýturnar
lau. 27. nóv. kl. 14 – sun. 28. nóv. kl. 14
Hvar ertu Rómeó?
-aríur og söngvar eftir Gounod, Bellini, Bernstein og Sondheim
Hádeigistónleikar í samvinnu við Tónlistarfélag Reykjanesbæjar
Fimmtudaginn 25. nóv. kl. 12:15 í DUUS húsum, Keflavík
Hulda Björk Garðarsdóttir sópran og Kurt Kopecky píanó
Gestir: Maríus Sverrisson og Hallgrímur Helgason rithöfundur. Miðasala við innganginn
Aldan stigin – ljóð úr heimi ræðara, far – og fiskimanna
- ljóð við lög eftir Schubert
Hádeigistónleikar þriðjudaginn 30. nóv. kl. 12:15
Ágúst Ólafsson baritón og Izumi Kawakatsu píanóleikari
Gjafakort í Óperuna
- upplögð gjöf fyrir músikalska starfsmenn og viðskiptavini
Miðaverð við allra hæfi: Frá kr. 1.000 (hádeigistónleikar) upp í 6.500 – og allt þar á milli
Gjafakort seld í miðasölu
Miðasala á Netinu: www.opera.is
CHICAGO
Missið ekki af vinsælustu sýningu ársins
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Fö 26/11 kl 20, Fö 3/12 kl 20,
Lau 4/12 kl 20
HUGSTOLINN - KAMMERÓPERA
Marta Hrafnsdóttir, Sigurður Halldórsson,
Daníel Þorsteinsson
Mi 24/11 kl 20 - UPPSELT
Fi 25/11 kl 20
AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Fö 26/11 kl 20,
Lau 4/12 kl 20.
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI -
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingar að eigin vali
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins - Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse
Lau 27/11 kl 20
ALLRA SÍÐASTA SÝNING
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 28/11 kl 14,
Su 5/12 kl 14,
Su 2/1 2005 kl 14
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN:
SCREENSAVER eftir Rami Be'er
Su 28/11 kl 20 - AUKASÝNING
SÍÐASTA SÝNING
GEITIN - EÐA HVER ER SYLVÍA?
eftir Edward Albee
Fö 26/11 kl 20,
SÍÐASTA SÝNING
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Su 28/11 kl 20, - UPPSELT
Fi 2/12 kl 20, Fö 3/12 kl 20,
Fö 10/12 kl 20, Su 12/12 kl 20
AÐEINS ÞESSAR SÝNINGA
NÁMSKEIÐ UM VESTURFARANA
Í kvöld kl 20 - Gísli Sigurðsson
☎ 552 3000
EKKI MISSA AF KÓNGINUM!
AÐEINS ÞRJÁR SÝNINGAR EFTIR:
• Fimmtudag 25/11 kl 20 NOKKUR SÆTI
• Sunnudag 12/12 kl 20 AUKASÝNING
• Sunnudag 26/12 kl 20 LOKASÝNING
eftir LEE HALL
Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ midasala@loftkastalinn.is
TVEIR FYRIR EINN á netinu
Kíktu á loftkastalinn.is og tryggðu þér tvo miða á verði eins.
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
Ausa og Stólarnir
Fös 26/11 kl 20 örfá sæti
Lau 27/11 kl 20 örfá sæti
Umræður eftir sýningu
Síðustu sýningar á Akureyri ÓLIVER!
forsala er hafinÓliver!
Þri 28/12 kl 20 UPPSELT
Mið 29/12 kl 20 UPPSELT
Fim 30/12 kl 16 örfá sæti
Fim 30/12 kl 21 UPPSELT
Sun 02/01 kl 14 örfá sæti
Sun 02/01 kl 20 örfá sæti
Fim 06/01 kl 20 örfá sæti
Fös . 26 .11 20 .00 NOKKUR SÆTI
Lau . 27 .11 20 .00 NOKKUR SÆTI
Lau . 04 .12 20 .00 LAUS SÆTI
Lau . 11 .12 20 .00 LAUS SÆTI
F im. 30 .12 20 .00 LAUS SÆTI
Miðasa lan e r op in f rá k l . 14 -18
Lokað á sunnudögum
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
Loftfimleikahóp-
urinn „Trio Aerial
Cube“, sem sam-
anstendur af
Genevieve Ber-
ube, Genevieve
Drolet og Marie-
Pier Trepanier,
er hér á æfingu
fyrir sýningu sína
„Die Gaukler Son-
ate“ í München í
gær. Sýningin
verður frumsýnd
á föstudag og
stefnt er að því að
sýna út árið.
List-
sköp-
un
í lofti
Reuters