Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 3
Fullveldiskaka íslensku þjóðarinnar er komin í bakaríin okkar
ALLTAF NÝBAKAÐ - ALLTAF FERSKT - ALLTAF LJÚFFENGT
Icelandair er samstarfsaðili
Veljum íslenskt - og allir vinna.
LANDSÁTAKIÐ VELJUM ÍSLENSKT - OG ALLIR VINNA Í BAKARÍUM TIL JÓLA
Til hamingju með daginn
kæru landsmenn!
VERÐUR ÞÚ DREGINN ÚT Í DAG?
RISALUKKUPOTTUR Á ÞORLÁKSMESSU
Við bjóðum landsmönnum að taka þátt í glæsilegum landsleik bakara og lands-
átaksins Veljum íslenskt - og allir vinna í bakaríum okkar um land allt.
Viðskiptavinum, sem velja íslenskt, býðst að skrifa nafn sitt og símanúmer aftan
á kassakvittunina og stinga henni í lukkubox í viðkomandi bakaríi. Glæsilegar
gjafakörfur í vinning í hverju bakaríi á hverjum degi.
BRJÓTUM BRAUÐ UM JÓLIN
Alla daga fram að jólum bjóðum við nýbökuð brauð, smákökur, lagtertur, laufabrauð, ávaxtakökur,
jólabrauð, piparkökuskreytingar og margt fleira. Að auki fá viðskiptavinir óvæntan glaðning í boði
landsátaksins meðan birgðir endast.
Allir þátttakendur í landsleiknum hafna í risalukkupotti þar sem 30 heppnir
Íslendingar hljóta veglega vinninga frá íslenskum framleiðendum, gullsmiðum,
snyrtistofum og fleiri fyrirtækjum innan SI. Að auki hreppa tveir heppnir
Íslendingar veglegan ferðavinning fyrir tvo á áfangastað Icelandair að eigin vali.
Fullveldiskakan fæst aðeins í bakaríum innan Landssambands
bakarameistara. Gættu að merkinu okkar á þínu bakaríi!
FÖGNUM FULLVELDI ÍSLENDINGA 1. DESEMBER
Í tilefni fullveldis Íslendinga 1. desember 1918 bjóðum við landsmönnum nýja
ljúffenga Fullveldisköku frá og með 1. desember. Minnumst þessa einstaka dags
í sögunni, drögum fána að húni um land allt og gerum okkur dagamun með því
að gæða okkur á Fullveldisköku íslensku þjóðarinnar.