Morgunblaðið - 01.12.2004, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
*
*
*
* *
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
* *
*
*
*
*
*
**
* * *Miðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
J U L I A N N E M O O R E
HVAÐ EF ALLT SEM ÞÚ HEFUR
UPPLIFAÐ...VÆRI EKKI RAUNVERULEGT?
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12 ára.
Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON
PIERCE BROSNAN SALMA HAYEK
WOODY HARRELSON DON CHEADLE
Sýnd kl. 8 og 10.15.
Ein besta spennu- og grínmynd ársins
Frá leikstjóra RUSH HOUR
og RED DRAGON
PIERCE BROSNAN
SALMA HAYEK
WOODY HARRELSON
DON CHEADLE
Sýnd kl. 6. Ísl. tal.
Kolsvört
jólagrínmynd
með Billy Bob
Thornton
... þú missir þig af
hlári
l
j l í
ill
... i i i
l i
*
***
* * *
*
*
*
*
*
*
*
***
* **
*
*
*
*
Kr. 500
www.borgarbio.is
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 14 ára.Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 10.
Kvikmyndir.com
PoppTíví
Kolsvört jólagrínmynd
með Billy Bob Thornton
... þú missir þig af hlári
BILLY BOB THORTON BERNIE MAC LAUREN GRAHAM Billy Bob Thorton Bernie Mac Lauren Graham Billy Bob Thorton Bernie Mac Lauren Graham
Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára.
*
*
K
vikm
yn
dir.com
PoppTíví
Mbl
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 4 og 6.
VINCE VAUGHN
Ó.Ö.H. DV
BEN STILLER
DodgeBall
S.V. Mbl.
Kapteinn skögultönntei s lt
Ó
m
ar
í
Q
u
ar
as
h
i
/ D
V
Ó
m
ar
í
Q
u
ar
as
h
i
/ D
V
Mbl
Jólaklúður Kranks
Jólamynd fjölskyldunnar TIM ALLEN JAMIE LEE CURTIS
kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15
Jólaklúður KranksJólaklúður Kranks
Jólamynd fjölskyldunnar
EINN ástsælasti sjónvarpsmaður
þjóðarinnar fyrr og síðar, Hermann
Gunnarsson eða Hemmi Gunn, snýr
aftur á æði kunnuglegar slóðir er
hann sest á ný í sæti skemmtiþátta-
stjórnandans sunnudaginn 12. des-
ember og stýrir jólaskemmtiþætti á
Stöð 2.
Þátturinn heitir Jólaboð Hemma
Gunn en þar mun Hemmi taka á
móti nokkrum af vinsælustu lista-
mönnum og skemmtikröftum lands-
ins um þessar mundir, sem allir eiga
það sameiginlegt að gefa út plötur
fyrir jólin. Meðal gesta í Jólaboði
Hemma Gunn verða Ragnheiður
Gröndal, Ellen Kristjánsdóttir, Páll
Rósinkranz, Þórunn og Ingibjörg
Lárusdætur, Birgitta Haukdal,
Ragnar Bjarnason og Í svörtum föt-
um.
Hermann hefur stýrt vinsælum
útvarpsþætti á Bylgjunni í vetur,
auk þess sem hann hefur verið
reglulegur viðmælandi í íþróttaþátt-
um á Sýn og í morgunþætti Stöðvar
2, Ísland í bítið. Þessi skemmtiþátt-
ur á Stöð 2 vekur hins vegar spurn-
ingar um hvort hann sé vísir að ein-
hverju meira, hvort Hermann sé að
undirbúa endurkomu sem sjón-
varpsstjarna, en hann stýrði um ára-
Vonandi get ég svo klesst ein-
hverjum niður í sófa og rætt við þá á
notalegum nótum.“ Þá útilokar Her-
mann ekki að gamlir kunningjar
komi við í heimsókn: „Maður losnar
ekki svo glatt við þá. Þeir fylgja mér
eins og gamlir draugar.“
Hermann segist ekki hafa hug-
mynd um hvað gerist næst hjá hon-
um, en viðurkennir að það sé vissu-
lega farið að kitla mjög að gera
eitthvað meira í sjónvarpi, þar hafi
honum alltaf liðið mjög vel.
„En núna er ég á fullu í útvarpinu
og alltaf eitthvað skemmtilegt að
gerast þar. Um síðustu helgi stóð ég
t.d. fyrir sögulegum viðburði þegar
ég leiddi saman Hljóma og Kristján
Jóhannsson sem sungu með mér og
djömmuðu. Kristján söng t.d. bak-
raddir með mér í „Fallerí, fallera“.
Eftir það get ég sest í helgan stein. “
bil Á tali hjá Hemma Gunn, vinsæl-
asta íslenska sjónvarpsþætti fyrr og
síðar:
„Ég hef verið viðloðandi á Bylgj-
unni, Sýn og Stöð 2 í einhvern tíma
og gert hitt og þetta sem ég hef ver-
ið beðin um þar.“
Hermann neitar því ekki að hann
sé enn með sjónvarpsbakteríuna.
„Það eru bakteríur sem maður
fær á unga aldri, og maður losnar
ekki svo auðveldlega við þær. Það
gladdi því mitt litla hjarta að þeir
skyldu biðja mig um að stjórna þess-
um skemmtiþætti, þessu jólaboði.“
Hann segist nú þegar vera kom-
inn í gamla gírinn og hafa orðið var
við afar jákvæða strauma. Allir vilji
t.d. vera með í þættinum. „Strax og
þetta fór að spyrjast út þá varð ég
var við að allir vildu vera með. Vand-
inn er að þurfa að velja úr þessu úr-
valsliði listamanna sem við eigum.“
Aðeins er um þennan eina þátt að
ræða og segir Hermann að hann
verði með „Jólahemmasniði“.
„Jólatónlistin verður allsráðandi.
Sjónvarp | Hemmi Gunn í jólaskapi
Býður til jólaboðs
á Stöð 2
Ljósmynd/Rafn Hafnfjörð
Það er nóg að gerast hjá Hemma
Gunn og hann undirbýr nú sinn
fyrsta skemmtiþátt í sjónvarpi síð-
an hann var Á tali í Sjónvarpinu.
Jólaboð Hemma Gunn verður á
Stöð 2 12. desember kl. 20.10.
Margir fremstu tónlistar-menn og hjómsveitirlandsins koma fram áplötunni Frjálsri Palest-
ínu en tónleikar í tilefni útgáfunnar
verða haldnir í kvöld. Allir sem
koma fram gefa vinnu sína en allur
ágóði rennur til styrktar æskulýðs-
starfi í Balata-flóttamannabúðunum,
þeim fjölmennustu á Vesturbakka
hertekinnar Palestínu.
Eva Einarsdóttir stendur fyrir út-
gáfunni en hún starfaði sem sjálf-
boðaliði í Palestínu um mánaðar-
skeið í janúar og febrúar í fyrra.
Hún hefur lengi verið félagi í Ís-
landi-Palestínu og fór út í tengslum
við nám í samfélags- og tóm-
stundafræði, sem hún stundaði í
Gautaborg. „Við áttum að fara í
starfsnám að vinna með ungu fólki.
Ég ákvað að nota þann tíma sem ég
hafði frí til að komast í burtu. Ég
hafði mikið unnið með ungu fólki og
vildi fá að vinna með ungu fólki
þarna,“ segir Eva.
„Í fyrsta lagi veit maður ekkert
hverju maður á von á. Það er óraun-
verulegt að koma þarna og sjá það
sem maður er búinn að sjá í sjón-
varpinu,“ segir hún um dvölina.
„Það var strax tekið vel á móti
mér og ég vissi að ég væri í góðum
höndum. Ég var að vinna fyrir
UPMRC, læknasamtök, sem reka
félagsmiðstöð í Ramallah á Vest-
urbakkanum. Þar starfaði ég við að
kenna palestínskum sjálfboðaliðum
ensku til að þeir geti átt betri sam-
skipti við erlenda sjálfboðaliða,“ seg-
ir Eva, sem fékk að búa hjá einu
ungmennanna. „Í félagsmiðstöðinni
voru líka ungir krakkar að læra
skyndihjálp. Þetta var ungt fólk nið-
ur í fimmtán til sextán ára. Þarna
var líka tölvuaðstaða og ég hjálpaði
einnig til við hana.“
Fjarlæg til augnanna
„Ég fór að ferðast með þeim út
um allan Vesturbakkann. Út frá því
fór ég og gisti í Balata-flótta-
mannabúðum,“ segir hún. „Ég fann
sérstaklega á þessum stað að mér
fannst börnin rosalega fjarlæg til
augnanna og illa farin. Ég hef unnið
mikið með börnum og þetta sló mig.
Þau voru hrædd við mann og héldu
að maður væri að fara að gera þeim
eitthvað illt,“ segir Eva um ástæður
þess að ágóði plötunnar rennur
þangað umfram aðra staði.
„Í það heila eru börnin í Palestínu
rosalega glöð og ánægð að hitta út-
lendinga sem þau vita að ætla að
hjálpa til. Það þarf lítið til að gleðja
þau,“ segir hún. Hún segir að út-
göngubann sé sumstaðar meira og
minna í gildi þannig að börnin séu
mikið heima. „Svo fara þau í skólann
inn á milli jafnvel þó útgöngubann
gildi og skriðdrekar séu á götunum,“
segir Eva og bætir við að menntun
hafi mikið gildi fyrir Palestínumenn.
„Útlendingarnir vinna mikið í því að
ganga með börnunum í skólann. Það
unga fólk, sem ég hitti og var mest
að vinna með mér, var allt í háskóla
eða með gráður.
Gildi menntunar mikið
„Menntun er í hávegum höfð og
þau voru mjög upplýst miðað við
hvað fólk gæti haldið. Ímyndin er að
fólk þarna sé einhverjir villimenn,
með æsing úti á götum en það er alls
ekki þannig.“
Vel gekk að fá tónlistarfólkið til að
leggja málefninu lið og ætla nokkrir
af listamönnunum að stíga á svið á
Gauki á Stöng í kvöld klukkan 21.
KK, Mugison, Bob Justman, Lára &
Delphi, Touch og Ensími koma fram
og er aðgangseyrir 500 krónur og
rennur allur ágóði líkt og með plöt-
una til styrktar æskulýðsstarfi í
Balata.
Platan fæst í 12 Tónum, sem eru
dreifingaraðilar, í Skífunni og öllum
helstu sölustöðum tónlistar. Fast
verð plötunnar er 2.000 krónur og
verður hún einnig til sölu á tónleik-
unum í kvöld.
„Ég vonast til að geta farið út
næsta vor og fylgt þessu eftir, sýnt
fólkinu heima á Íslandi sem kom að
plötunni og fólkinu sem vonandi
kaupir plötuna að það hafi verið gert
eitthvað gott fyrir aurana.“
Lagalisti Frjálsrar
Palestínu
1. KK – Englar himins grétu í dag
2. Vinyl – Lost in my mind
3. Tenderfoot – Waterfall
4. Ske – On the way we lose it
some how
5. Lára og Delphi – Why*
6. Quarashi – Payback
7. Ensimi – Fairground*
8. Ghostigital – Bump*
9. Santiago – Road lines
10. Touch – Justify*
11. múm – Once a shiny morning
puddle
12. XXX Rottweiler ásamt KJ – Pen-
ingar*
13. Leaves – Favour
14. 200.000 naglbítar – Hjartagull
15. Worm is green – Push play*
16. Bob Justman – Christmas day*
17. Gus Gus – Ubeat*
18. Mugison, Ragnar og Rúna
Gúanó Stelpan mín*
*Aðeins fáanleg á safndisknum.
Tónlist | Tónleikar og plata til styrktar ungmennum í Palestínu
Vildi vinna með ungu fólki í Palestínu
Platan Frjáls Palestína er komin út
og kostar 2.000 kr. Útgáfu-
tónleikar á Gauknum í kvöld kl. 21
og er aðgangseyrir 500 kr.
www.palestina.is/frjalspalestina
www.palhope.net
ingarun@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Eva Einarsdóttir stendur fyrir útgáfu á plötunni Frjálsri Palestínu en út-
gáfunni verður fagnað með tónleikum í kvöld.
„Í það heila eru börnin í Palestínu
rosalega glöð og ánægð að hitta út-
lendinga sem þau vita að ætla að
hjálpa til. Það þarf lítið til að gleðja
þau,“ segir Eva m.a. í viðtalinu.