Morgunblaðið - 01.12.2004, Síða 14
NORSKA fjár-
málaráðuneytið
hefur samþykkt
kaup Íslands-
banka á norska
bankanum Kred-
ittbanken. Um leið
hafa öll skilyrði
fyrir kaupum á
Kredittbanken
verið uppfyllt, að
því er fram kemur
í tilkynningu Ís-
landsbanka.
„Við erum mjög
ánægð með að
kaup okkar á
Kredittbanken skuli hafa verið sam-
þykkt. Við stefnum á að mynda öfluga
norsk-íslenska bankasamstæðu og nú
hefur fyrsti hornsteinninn verið lagð-
ur. Næsta skref eru kaupin á
BNbank, þar sem við höfum gert til-
boð upp á 340 norskar krónur á hlut,“
segir Bjarni Ármannsson, forstjóri
Íslandsbanka, í tilkynningunni.
Með samþykki norska fjármála-
ráðuneytisins eignaðist Íslandsbanki
þá 42.703.717 hluti, sem fengist höfðu
í gegnum samþykktir á formlegu til-
boði í Kredittbanken ASA. Að með-
töldu því hlutafé sem þegar var í eigu
Íslandsbanka á Íslandsbanki saman-
lagt 47.461.257 hluti, sem jafngildir
99,58% hlutafjár í Kredittbanken.
Kaupin og vaxtagreiðslur til hluthafa
vegna samþykktar á tilboðinu verða
gerð upp við hvern hluthafa 1. desem-
ber og mun Kredittbankinn verða
tekinn inn í samstæðureikningsskil
Íslandsbanka frá og með þeim tíma. Í
tilkynningunni segir að Íslandsbanki
muni á næstu dögum í samræmi við
norsk verðbréfalög leggja fram loka-
tilboð á genginu 7,25 til handhafa
0,42% hlutafjár í Kredittbanken sem
enn hafa ekki samþykkt tilboð Ís-
landsbanka. Samhliða mun Íslands-
banki fara fram á innköllun þeirra
hluta sem eftir eru í KredittBanken í
samræmi við lög um hlutafélög í Nor-
egi. Tilboðstímabilið er frá 6. desem-
ber til 3. janúar 2005. Tilboðsverðið
er í samræmi við hæsta verð sem Ís-
landsbanki hefur greitt fyrir hluta-
bréf í KredittBanken undanfarna sex
mánuði.
„Í framhaldi af lokatilboði og inn-
köllun hlutabréfa mun hluthafafund-
ur í KredittBanken taka ákvörðun
um að óska eftir afskráningu hluta-
bréfa félagsins af Kauphöllinni í Ósló.
Stefnt er að því að slík umsókn verði
send fyrir áramót,“ segir í tilkynning-
unni.
Morgunblaðið/Sverrir
Samstæðan stækkar Kredittbanken verður hluti af
samstæðu Íslandsbanka frá og með deginum í dag.
Norsk yfirvöld
samþykkja kaup
á Kredittbanken
14 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
● VIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands í
gær námu tæpum 9 milljörðum
króna. Þar af voru viðskipti með
hlutabréf fyrir 2,5 milljarða.
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar
lækkaði í gær um 0,9%. Þar með
hefur vísitalan lækkað tvo daga í
röð því hún lækkaði um 1,6% í
fyrradag.
Mest viðskipti voru í gær með
hlutabréf í KB banka, eða fyrir 629
milljónir, og lækkaði gengi bréfanna
um 0,9%.
Af félögum í úrvalsvísitölunni
hækkuðu bréf tveggja félaga en
önnur lækkuðu. Þau sem hækkuðu
voru Medcare Flaga, 0,7%, og
Straumur, 0,5%. Bréf Burðaráss og
HB Granda lækkuðu mest í gær af
félögum í úrvalsvísitölunni, eða um
2,4%.
Hlutabréfavísitölur í helstu kaup-
höllum Evrópu lækkuðu víðast hvar
í viðskiptum gærdagsins.
Tvö félög í úrvalsvísi-
tölunni hækkuðu í gær
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● TÉKKNESKA fjarskiptafyrirtækið
Ceske Radiokomunikace (CRa),
sem að stórum hluta er í eigu Íslend-
inga, hefur gert yfirtökutilboð í keppi-
nautinn Aliatel samkvæmt vefsíðu
Interfax fréttastofunnar. Samkvæmt
fréttinni er talið líklegt að fjar-
skiptafyrirtækin Czech On Line og
Contactel, sem áður hafa litið hýru
auga til Aliatel, muni ekki blanda sér
í baráttuna um fyrirtækið.
Aliatel er nú í eigu þýska fyrirtæk-
isins RWE, sem á 39,7% hlut, auk 6
orkudreifingarfyrirtækja, sem hvert
um sig á hlut á bilinu 6,4-12,5%.
Velta félagsins er 2,5 milljarðar
tékkneskra króna sem samsvarar
rúmlega 7 milljörðum íslenskra
króna. Á síðasta ári var fyrirtækið
rekið með 2,2 milljarða króna halla.
CRa býður í Aliatel
● ALÞJÓÐLEGA matsfyrirtækið
Fitch Ratings hefur staðfest láns-
hæfiseinkunnir fyrir Íslandsbanka og
Landsbanka Íslands. Fá báðir bank-
arnir einkunnirnar A til langs tíma,
F1 til skamms tíma, C í eigin ein-
kunn og 2 í stuðningseinkunn.
Lánshæfiseinkunn
staðfest
(
)*+ ) *,) ( -., /
+-0 1 " #$%
&
&'#
! "# $
% "&
' ("& )"
* )"
+"& )" ' ("&
,!(
,!&
! (#
-#
- " !
./0!
./ ! "#)$
1
( ) *+,
'&
/ ' ("&
(#(!
%/ "
%() 2 3")$
% 4 $ 52 0 "
6)"
*#"
+7 8" 2 ""
9:0!
.'
.( ;(# .("&
.(/ 0 4 0$
<"#
<4## "#/ "
= "" ( "
5/2 // >.8)!#
-' )
&
.
)
!(& ?4
+"& 7/ ' ("&
<8 8
=4## "# ;(# ' ("&
.7
$!
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
!4 "#
4 $!
> > > > >
>
> > > > > > > >
> >
> >
> >
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
@ >
AB
@ >AB
@ >AB
@ >AB
>
>
@ >AB
@ >AB
@ >AB
@
AB
@ > AB
@ >
AB
@ >AB
@ AB
@ >AB
>
@ > AB
>
@ >AB
>
@ > AB
@ AB
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
%! (&
&# "
< () 7 ( &# C
* .(
$
$ $ $ $ $
$
$ $ $
$ $
$ $ >
$ >
$
>
$ $
>
>
$ >
>
>
$
$
>
>
>
>
>
$
>
>
>
= 7 D3 $ $
<%$ E 0#"( (&
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
● HERDÍS Þorgeirsdóttir dr. jur. hef-
ur verið skipuð í stöðu prófessors við
lagadeild Viðskiptaháskólans á Bif-
röst en þar hefur hún starfað frá
árinu 2003.
Herdís lauk
doktorsprófi í lög-
um frá lagadeild
Lundarháskóla.
Áður lauk hún
meistaragráðu á
sviði alþjóða-
stjórnmála og
þjóðaréttar frá
The Fletcher
School of Law and Diplomacy í Bost-
on. Hún hefur skrifað og birt greinar í
virtum erlendum lagaritum, að því er
segir í tilkynningu frá Viðskiptahá-
skólanumm, og á næstunni kemur
bók hennar um ritstjórnarlegt sjálf-
stæði fjölmiðla á grundvelli tjáning-
arfrelsisákvæðis Mannréttinda-
sáttmála Evrópu út hjá Kluwer Law
International. Hún starfar í hópi sér-
fræðinga að þróun jafnréttis-
löggjafar fyrir framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins.
Herdís skipuð
prófessor á Bifröst
ÁSTÆÐA er til að endurskoða verð-
bólguspá fyrir desember í kjölfar
þess að Alþingi samþykkti í fyrra-
kvöld lagafrumvarp um að áfengis-
gjald á sterku víni hækki um 7% og
tóbaksgjald hækki einnig um 7%.
Þetta er mat greiningardeilda við-
skiptabankanna þriggja.
Í Morgunkorni Greiningar ÍSB í
gær segir að vegna hækkunarinnar á
áfangis- og tóbaksgjaldinu sé útlit
fyrir 0,3% hækkun vísitölu neyslu-
verðs á milli nóvember og desember
í stað 0,2% hækkunar eins og áður
hafði verið spáð. Gerir Greining ÍSB
ráð fyrir að verðbólgan í desember
muni verða 3,7%.
Í hálf fimm fréttum KB banka í
gær segir að deildin hafi ákveðið að
endurskoða verðbólguspá sína fyrir
desember til hækkunar úr 0,1% í
0,3%. Ástæða þessa liggi í hækkun
áfengisgjalds á sterk vín en einnig
spili þar inn í að þróun á bensínverði
hafi verið önnur en spáð hafi verið.
Af þessum sökum hljóðar 12 mánaða
verðbólguspá greiningardeildar KB
banka upp á 3,7% en ekki 3,5% líkt
og áður hafði verið spáð.
Greiningardeild Landsbanka Ís-
lands segir í Vegvísi sínum í gær að
vegna hækkunar á verði áfengis og
tóbaks geri deildin nú ráð fyrir 0,2%
hækkun vísitölu neysluverðs milli
nóvember og desember í stað 0,1%
áður.
Hagstofan mun birta vísitölu
neysluverðs 10. desember næstkom-
andi.
Verðbólguhætta eykst
Í nýútkomnu Markaðsyfirliti
Greiningar Íslandsbanka segir að
þeim þáttum sem leitt geti til auk-
innar verðbólgu hafi fjölgað að und-
anförnu. Í fyrsta lagi hafi breytingar
á íbúðalánamarkaði leitt til aukins
verðbólguþrýstings. Í annan stað
telji deildin að í ljósi verðbólguþró-
unar og kjarasamninga opinberra
starfsmanna séu líkur á að launalið-
ur samninganna verði endurskoðað-
ur til hækkunar. Í þriðja lagi hafi
bæst við fyrirhugaðar stóriðjufram-
kvæmdir þegar tilkynnt var um frek-
ari stækkun Norðuráls. Þá sé skatta-
lækkun einnig framundan. Þessir
þættir hafi aukið við verðbólguhætt-
una sem þegar ríki vegna yfirstand-
andi stóriðjuframkvæmda.
Aukin verðbólga vegna
áfengis- og tóbaksgjalds
ÍSLENSK-kanadíska fyrirtækið OZ
Communications Inc., sem stýrt er af
Skúla Mogensen, hefur samið við
finnska farsímaframleiðandann
Nokia um notkun þess síðarnefnda á
farskilaboðalausn OZ. Áður hafði ver-
ið samið við farsímaframleiðandann
Samsung um notkun á sömu lausn.
Skúli segir að þessir samningar
skipti miklu máli fyrir OZ. Nokia og
Samsung séu tveir stærstu símafram-
leiðendur í heimi, Nokia sá stærsti og
Samsung í öðru sæti ásamt Motorola.
„Til að setja þessa samninga í sam-
hengi var um ein milljón síma með
okkar hugbúnaði seld á fyrsta fjórð-
ungi þessa árs,“ segir Skúli. „Á öðrum
ársfjórðungi voru seldar um þrjár
milljónir síma með okkar hugbúnaði,
á þriðja ársfjórðungi um fimm millj-
ónir og við gerum ráð fyrir upp undir
tíu milljónum síma á fjórða ársfjórð-
ungi. Það er mjög ánægjuleg þróun
og við sjáum áframhald á mikilli eft-
irspurn eftir hugbúnaði okkar.“
Svipaðar vinsældir og SMS
OZ sérhæfir sig í þróun hugbún-
aðar sem gerir kleift að senda skila-
boð í og úr farsímum, líkt og forritið
MSN Messenger gerir í einkatölvum.
Geta notendur búnaðarins notað til
þess þau spjallforrit sem þeim hugn-
ast best, s.s. IRC, Yahoo eða MSN, í
farsímum eða á handtölvum. Kallast
þetta vörumerkt farskilaboð.
Samningar Nokia og Samsung við
OZ gera farsímaframleiðundunum
kleift að bjóða upp á farskilaboða-
lausnina í nýjustu símum sem þeir
framleiða. Fyrr í haust var tilkynnt
um að fyrirtækið Vantage Point Vent-
ure Partners, sem er í Kaliforníu,
hefði keypt nýtt hlutafé í OZ fyrir um
tvo milljarða króna, til þess að gera
OZ kleift að nema land í Evrópu og
Asíu. Morgunblaðið hafði þá eftir
Skúla Mogensen að vörumerkt far-
skilaboð gætu náð svipuðum vinsæld-
um í N-Ameríku og SMS-skilaboð
hefðu náð í Evrópu.
Nokia og Sam-
sung semja við OZ
Morgunblaðið/Arnaldur
Símaskilaboð Áætlað er að upp
undir 10 millj. farsímar verði með
hugbúnað frá OZ í lok þessa árs.
9 &F
.GH
A
A
<.?
IJ
A
A
KK -,J
A
A
*J
9 !
A
A
LK?J IM 6"!
A
A