Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 22

Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Sage fluguveiðisett Grafit 2 flugustöng með diskabremsuhjóli og uppsettri flugulínu. Aðeins kr. 29.900 Hafnarstræti 5 - sími 551 6760 • www.veidihornid.is • Síðumúla 8 - sími 568 8410 Sendum samdægursMunið gjafabréfin Fyrir veiðimanninn í fjölskyldunni þinni Mesta úrval landsins af veiðivörum Byssuskápar Viðurkenndir, smekklegir byssuskápar í 3 stærðum. Aðeins frá kr. 22.980. Mad Dog galli Vatnsheldur jakki og smekkbuxur með útöndun fyrir skotveiðimanninn. Aðeins kr. 19.900. RT Classic vöðlur 4,5 mm þykkar neoprenvöðlur ásamt vöðlutösku. Aðeins kr. 12.900. RT vöðlutöskur Sérhannaðar töskur fyrir vöðlurnar. Aðeins kr. 3.995. Norinco sjónaukar Gott úrval af sjónaukum á góðu verði. Aðeins frá kr. 3.995. Gervigæsir 12 skeljar með lausum hausum.. Festijárn fylgja með. Aðeins kr. 7.990. Picknic töskur Nestistöskur í útileguna, fellihýsið eða veiðitúrinn. Aðeins kr. 4.995. NEVER TURN YOUR MATTRESS AGAIN Technology so advanced, it´s TURN-FREE Amerískar Skipholt 35 Sími 588 1955 www.rekkjan.is Valdís Ármann frá Skorra-stað í Norðfirði hefur bak-að margar tertur um dag-ana. Hún fór fljótlega eftir nám í Húsmæðraskólanum á Lauga- landi að vinna sem ráðskona í vinnu- flokkum, fyrst hjá brúarvinnuflokki sem vann að byggingu brúarinnar yf- ir Norðfjarðará árið 1947, síðan við Alþýðuskólann á Eiðum og hjá bygg- ingar- og verktakafyrirtækinu Snæ- felli sem starfaði að verkefnum víða um Austurland. Valdís kenndi matreiðslu við barnaskólann sem seinna varð grunnskólinn á Eskifirði til fjölda ára, auk þess að vera húsmóðir nær sextíu ár fram á þennan dag oft með mann- margt og gestkvæmt heimili. Hér á eftir fara þrjár af uppáhalds tertu- og kökuuppskriftum heimilismanna og afkomenda Valdísar sem alltaf er gripið til um jólin og í annan tíma þegar fjölskylda gerir sér dagamun heima á Eskifirði. Bananaterta 4 egg 150–200 g sykur 100–150 g hveiti Bakað í tveimur formum við 150°C þar til kominn er á hana gylltur fal- legur litur. Bananakremið sett á milli botn- anna og súkkulaðibráðin sett yfir. Bananakrem: 175 g smjörlíki 150 g flórsykur 3 marðir bananar Súkkulaðibráð: 150 g flórsykur 2 msk kakó Sjóðandi heitt vatn Hafrakex 4 bollar haframjöl 2 bollar hveiti 1 bolli sykur 1 bolli mjólk 250 g smjörlíki 2 tsk lyftiduft ½ tsk hjartarsalt ½ tsk sódaduft (natron) Haframjölinu, hveitinu, sykrinum, lyftiduftinu, hjartarsaltinu og sóda- duftinu er blandað saman, smjörlík- inu hrært samanvið, vætt með mjólk- inni. Deigið hnoðað saman, gott er að hnoða hveiti upp í síðast. Deigið er flatt út, ekki mjög þunnt, búnar til ferkantaðar eða kringlóttar kökur, þær pikkaðar og settar á smurða plötu. Bakaðar ljósbrúnar við góðan hita. Þeyttur rjómi sem búið er að blanda með söxuðum rúsínum og/eða söxuðu súkkulaði er að lokum settur ofan á kökurnar. Bláberjaterta 4 eggjahvítur 1 bolli strásykur 1 bolli púðursykur 1 ½ b rice crispies 1 tsk lyftiduft Byrjað er að stífþeyta eggjahvítur og sykur. Rice crispies og lyftiduft er síðan blandað varlega útí. Deiginu er skipt í tvo botna og bakað í kringl- óttum formum, millistærð. Gott er að setja bökunarpappír undir botnana. Bakað við 150°C í um klukkustund í venjulegum ofni eða við 120°C í um klukkustund í blástursofni. Bláberjarjómi er settur á milli botnanna. Bláberjarjómi: ½ lítri rjómi, þeyttur 2 öskjur af bláberjum blandað varlega útí þeyttan rjómann Rjóminn með bláberjunum settur milli botnanna og þeyttum rjóma einnig sprautað til skreytingar í kringum kökuna. Afkomendur Valdísar segja að gott sé að frysta kökuna og borða hana hálf frosna, þá er hún ekki ósvipuð ís- tertu.  MATARKISTAN Jólalegar tertur að austan Morgunblaðið/ÞÖK Bláberjaterta að hætti Valdísar: Gott er að borða hana hálffrosna. Valdís Ármann: Terturnar vinsælar hjá fjölskyldunni. smáauglýsingar mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.