Morgunblaðið - 01.12.2004, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 43
MENNING
LJÓÐABÓKIN Á leiðinni er 3. bók
Sigurðar Skúlasonar, sem getið hef-
ur sér gott orð sem leikari. Í þessari
bók blandast per-
sónur saman,
slitna sundur,
villast og týnast
og finnast.
Helsti kostur
bókarinnar er
einlæg áhersla á
hið jákvæða í til-
verunni. Það
skýtur því
skökku við að
fyrsta ljóð bókarinnar skuli fjalla um
dreng sem „fékk ekki þá ást sem
hann þurfti“ og lýsir mannfólkinu
sem einhverslags ástlausum sál-
arlausum maskínum sem dreng-
urinn þarf að reyna að losna við.
Hann reynir að „blinda sig með hug-
arorkunni einni saman“. Út af fyrir
sig er þetta ljóð, ásamt Palli var eitt
með heiminum, það besta í bókinni, í
krafti þess að í því er dramatísk
spenna – en hins vegar lýsir það fá-
dæma mannhatri, sem mætti þó –
allavega fyrir kurteisi sakir – ætla
að höfundur hafi búið til af fullum
vilja.
Ljóðið Palli var eitt með heim-
inum er líka nokkuð lunkið, þar sem
Palli er „eitt með öllu“ og „blekk-
ingin“ er frá – og svo lýsir Palli því
yfir að það sé engin þörf á að
„dúndrast inn í nirvana“. En það að
vera „eitt með heiminum“ er alls
ekki svo slæm útskýring á hinu
búddíska ástandi nirvana – og þann-
ig minnir yfirlýsing Palla á mót-
sagnakennd kóan-ljóð Zen-búddista.
Þetta ljóð er því þannig ólíkt mörg-
um öðrum í bókinni að það hefur til
að bera myndmál sem hægt er að
setja fótinn í eða umfaðma, allt eftir
því hvort lesandinn kýs.
Ljóðin Við deyjum öll á Gaza og
Innsta ósk hryðjuverkamannsins
virðast við fyrstu sýn stórpólitískar
yfirlýsingar, eins og höfundur ætli
aldeilis að leggja orð í belg. En síðan
kemur í ljós að ljóðin setja fram svo
einfeldningslega mynd af hryðju-
verkamönnum að hvergi verður á
snert, þó þau minni kannski í ein-
feldni sinni á það hversu hæpið er að
skilja fjarlægar deilur, og þá sem
eru tilbúnir til að deyja til að drepa
aðra í nafni einhvers málstaðar. Og
hversu auðvelt er að falla í þá hættu-
legu gryfju að ofureinfalda hlutina,
sjóða þá niður í einhvers konar
„sannleika“ – hvort sem það var ætl-
un höfundar eða hans eigin einfeldni
að verki.
Satt best að segja verður þetta
allt voðalega loftkennt hjá Sigurði,
og maður saknar sterkari mynda.
Vandamálið við ljóð sem eru þetta
fínleg, sem svífa svona snerting-
arlaust um, er að höfundur fríar sig
að miklu leyti frá því að segja nokk-
uð. Ljóð sem svífa – frekar en að
fljúga – eru stefnulaus, og svo opin
fyrir túlkunum að þau gætu þýtt
næstum hvað sem er. Þetta getur
verið kostur í ljóðabókum sem born-
ar eru uppi af kraftmiklu myndmáli,
mótsögnum eða dramatískri spennu,
en því er því miður ekki til að dreifa í
þessari bók. Sigurður fer á mikið
flug, en með sjálfshjálparkenndu
málfari virka ljóðin meira eins og
karamellubréf sem fýkur yfir rusla-
haug, en tignarlegir fálkar.
BÆKUR
Ljóð
Sigurður Skúlason. Útg. Salka 2004
Á leiðinni
Sigurður Skúlason
Eiríkur Örn Norðdahl
Svif án snertingar
101 hollráð er falleg, yfirveguð bók,
prentuð á vandaðan pappír, með
mynd á forsíðu sem verkar róandi og
svo er bókin í smáu broti, tæplega A5,
sem gerir hana
þægilega í hendi.
Jafnvel hægt að
stinga henni í
töskuna sína. Hún
er skrifuð til þess
að hafa áhrif á
þig, lesandi góður,
og hjálpa þér til
að losna við
óæskileg kíló með því að hefja nýtt líf.
Vilji er allt sem þarf! Og á hverju
skyldi nú þetta nýja líf byggjast? Jú,
á meiri sjálfsvirðingu, hollari fæðu,
reglulegri máltíðum, heilbrigðari
svefni, meiri hreyfingu, drekka 2 lítra
af vatni á dag … hefurðu heyrt þetta
áður? Allt hefur þetta margoft komið
fram í bókum, útvarpserindum, sjón-
varpsþáttum, kvikmyndum og hjá
fagfólki af ýmsu tagi en þrátt fyrir
það léttist fólk því miður ekki, nema
þá kannski lystarstolssjúklingarnir,
illu heilli. Almenningur á Vestur-
löndum heldur áfram að þyngjast
sem aldrei fyrr og ekki sér enn fyrir
endann á þeim ósköpum. Líkast til er
það eina sem gæti dugað einhvers
konar vitundarvakning meðal fólks,
breytt hegðun, önnur sýn.
Það gildir hið sama með þessa
sjálfshjálparbók og svo ótal margar
aðrar sem ég hef lesið, að uppskrift-
ina að því að bæta heilsuna má vel
finna í henni. Megnið af því sem tekið
er fyrir í 101 hollráði er satt og rétt
frá mínum bæjardyrum séð. Það
góða við bókina er að Victoria Moran
gengur ekki út frá því að það sé með
skyndiáhlaupi og patent lausnum
hægt fyrir þann sem er of þungur að
komast í kjörþyngd heldur gerir hún
sér grein fyrir því að líkami og sál eru
eitt. Þess vegna þarf fólk að vera sátt
við sjálft sig eins og það er og koma
fram við sig af þeirri virðingu sem
það á skilið. Sértu ekki sátt/sáttur við
þig þá lifirðu lífinu kannski ekki til
fulls og ef þú lifir ekki til fulls þá
þarftu að bæta þér það upp með ein-
hverju öðru (svo sem því að borða of
mikið). Gott og vel.
Það að vera of þung getur verið til
óþæginda, slæmt fyrir heilsuna og
verið merki um hömluleysi, kæru-
leysi, græðgi eða jafnvel andlega van-
líðan. Hver sem ástæðan er blasir við
að megrunarkúrar eru ekki svarið
heldur það að takast á við grunn-
vandamálið. Höfundur leggur mikla
áherzlu á að fólk hætti að fara í megr-
unarkúra, eða sveltikúra eins og þeir
eru líka kallaðir, með þeim rökum að
þeir séu niðurdrepandi og hafi öfug
áhrif. Við svelti fái líkaminn þau
skilaboð að hungursneyð sé yfirvof-
andi og fari því að nýta hverja dýr-
mæta hitaeiningu og við söfnum
forða (bls. 34). Betra sé að borða
þrjár máltíðir á dag og huga vel að
fæðunni því hún þarf að vera holl, fal-
leg og bragðgóð, meira að segja betra
að maður hafi ræktað eitthvað af
henni sjálfur. Sammála. Þá sé gott að
maður hreyfi sig reglulega og klæði
sig í eins falleg föt og maður getur.
Bíði með hvorugt þar til 5 kíló eða 10
eru farin því þá verður það kannski
um seinan.
Mér finnst það ágæt ábending hjá
Victoriu Moran að það sé jafnfráleitt
að við eigum allar að vera í laginu
eins og ofurfyrirsætur og að ætlast til
að við höfum greindarvísitölu Alberts
Einsteins. Ef stærðfræðireglur væru
eins hátt metnar og tízka myndum
við harma það hve heimsk við værum
í stað þess að væla yfir því hvað lærin
séu feit og slöpp.
Með greindarvísitölu
eins og Einstein?
BÆKUR
Lífstíll
Höfundur: Victoria Moran
Þýðandi: Anna María Hilmarsdóttir,
258 (litlar) bls.
Útgefandi: Salka Reykjavík 2004.
101 hollráð
Katrín Fjeldsted
VINAFÉLAG Sinfóníuhljómsveitar Íslands gengst fyrir
samverustund og tónleikakynningu fyrir sinfóníu-
tónleika í Sunnusal Hótels Sögu á morgun. Þar mun Árni
Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur kynna efnisskrá
sinfóníutónleika kvöldsins, en flutt verða verk eftir vin-
ina og barokkmeistarana Johann Sebastian Bach og
Georg Philipp Telemann. Kynningin hefst kl. 18.30, en
samverustund Vinafélagsins byrjar hálftíma fyrr og þá
er framreidd súpa og brauð. Verð er kr. 1000 og eru allir
velkomnir.
Árni Heimir mun að þessu sinni kynna söng- og hljóm-
sveitarverk eftir tvö af merkustu tónskáldum átjándu
aldar, en meðal verka á efnisskrá tónleikanna er hið stór-
fenglega Magnificat Bachs og skemmtileg vatnamúsík
eftir Telemann, Hamburger Ebb und Fluht.
Árni, sem einnig er kennari við Listaháskóla Íslands,
segir fræðsluna hafa hafist fyrir nokkrum árum. „Ég hef
verið með þetta síðan í fyrrahaust. Þetta er svona sam-
verustund þar sem fólk kemur saman og fær sér brauð
og súpu á Hótel Sögu. Síðan er ég með kynningar á verk-
unum sem verða flutt, segi frá sögunni á bak við þau og
spila tóndæmi og reyni að útskýra hvað er að gerast og
hverju fólk má eiga von á á tónleikunum,“ segir Árni. „Ef
marka má viðbrögð þeirra sem hafa komið er ekki nokk-
ur vafi á því að þetta hjálpar fólki að njóta tónlistarinnar.
Ég held að fólki finnist ánægjulegt að eiga kost á því að
koma saman og hita sig upp fyrir tónleika, að skerpa
eyru og huga til að taka á móti tónlistinni.“
Samverustundin fyrir tónleika morgundagsins hefst
kl. 18 en kynning Árna Heimis hefst kl. 18.30. Árni segir
gesti Sinfóníuhljómsveitarinnar geta átt von á dálítið
óvenjulegum tónleikum. „Sinfóníuhljómsveitin hefur
ekki sérstaklega lagt sig eftir því að spila tónlist frá bar-
okktímanum,“ segir Árni. „Hún hefur meira einbeitt sér
að seinni tímabilum sögunnar og á undanförnum áratug-
um hefur orðið ákveðin hefð að flytja barokktónlist, þar
sem er reynt að nálgast þann spilamáta sem tíðkaðist á
þeim tímam. Og núna hefur hljómsveitin fengið stjórn-
anda sem er sérfræðingur í gamalli tónlist og hvernig á
að flytja hana, þannig að þetta er í fyrsta skipti svo ég
viti að hljómsveitin gerir þessa tilraun að breyta sér í
barokkhljómsveit, svo hún hljómar talsvert öðruvísi
núna heldur en hún gerir yfirleitt.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur er leið-
sögumaður vina Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Tónlist | Tónleikakynning Sinfóníuhljómsveitarinnar
Fyrsta tilraun til
barokkflutnings
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Jóga kl. 10, línudans
kl. 11, postulínsmálun kl. 13, baðþjón-
usta þriðju-, fimmtu- og föstudaga.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, al-
menn handavinna, glerlist, bridge/vist,
fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dag-
blöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin, kl. 10–11 sam-
verustund, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 14
félagsvist, kl. 14.30–15.30 kaffi.
FEBÁ, Álftanesi | Bingó. Helga Ólafs-
dóttir (Veturliðasonar) syngur einsöng
við undirleik Sigrúnar organista. Kaffi-
veitingar.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Sam-
félagið í nærmynd kl. 11 þáttur um mál-
efni eldri borgara á RUV. Síðdegisdans
í dag kl. 14–16, húsið opnað kl. 13.30,
Guðmundur Haukur leikur. Kaffi og
terta. Síðasti dansinn fyrir jól. Söng-
félag FEB, kóræfing kl. 17.
Félag kennara á eftirlaunum | Tölvu-
starfið hefst kl. 16.20 í stofu V23 í Ár-
múlaskóla. Öll tölvuvandræði tekin til
athugunar.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10.05 og 11,
glerskurður kl. 13, postulínsmálun kl.
16, bridge og handavinnuhorn í Garða-
bergi kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Ártúnsskóli býður í
heimsókn á Þjóðernisdagskrá, lagt af
stað frá Gerðubergi kl. 9.45, allir vel-
komnir, akstur og veitingar í boði. Frá
hádegi spilasalur opinn. Kl. 14.30 kór-
æfing. S. 575 7720.
Furugerði 1 | Kl. 9, aðstoð við böðun
og bókband, kl. 13 leikfimi, í kvöld kl.
19.30 kemur Álafosskórinn í heimsókn
og syngur jólalög.
Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa-
vinna, bútasaumur, útskurður, hár-
greiðsla, kl. 10 fótaaðgerð, kl. 11 banki,
kl. 12 hádegismatur, kl. 13 brids, kl. 15
kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–15, jóga kl.9–12, samverustund kl.
10.30, jólabingó kl. 14, góðir vinningar,
kaffi og meðlæti, námskeið í myndlist
kl. 15–18, böðun virka daga fyrir há-
degi. Fótaaðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Listasmiðja, postu-
línsmálun, frjálst. Betri stofan opnuð
kl. 10 árdegis. Myndlistarsýning Gerð-
ar Sigfúsdóttur. Brynhildur Björns-
dóttir syngur við píanóundirleik.
Kveikt á og dansað í kringum jólatré í
Listigarði Hæðargarðs með börnum af
Leikskólanum Jörfa. Jóladrykkir og
piparkökur.
Norðurbrún 1, | Kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, kl. 9 smiði, kl. 13 banka-
þjónusta fyrsta miðvikudag í mánuði
kl. 14 félagsvist, kaffi, verðlaun.
Sjálfsbjörg | Félagsvist í kvöld kl.
19.30.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–16 myndmennt,
kl. 10–12 sund (Hrafnistulaug), kl.
10.15–11.45 spænska, kl. 11.45–12.45
hádegisverður, kl. 12.15–14 versl-
unarferð í Bónus Holtagörðum, kl. 13–
14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurð-
ur, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Jóla-
bingó kl. 13, súkkulaði með rjóma og
rjómaterta í kaffitímanum.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, bókband og hárgreiðsla, kl. 9
fótaaðgerðir, kl. 9.30, morgunstund
með séra Sigurði Pálssyni, kl. 10,
handmennt almenn, kl. 9 til 16 kóræf-
ing kl. 13. Bónusferð kl. 12.30.
Íbúar í Mosfellsbæ | 60 ára og eldri!
Jólaskemmtun verður í Hlégarði 2.
des. kl. 19. Jólahlaðborð, söngur, dans,
tískusýning og færeyskir dansar. Miða-
verð kr. 3.700. Velkomið er að taka
með sér gesti.
Sala aðgöngumiða er hjá Svanhildi í
Dvalarh. Hlaðhömrum kl. 13–15.
Sími 586 8014 e.h. og GSM 692 0814.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn
kl. 10–12. Opið hús, kaffi og spjall. –
Kirkjuprakkarar kl. 15.30–16.30.
Árbæjarkirkja | Kyrrðarstund í hádeg-
inu. Íhugun, fyrirbænir og alt-
arisganga. Súpa og brauð í safn-
aðarheimilinu gegn vægu gjaldi.
Foreldramorgnar kl. 10–12. Samvera,
spjall, fræðsla, helgistund og söngur.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstundir alla
miðvikudaga kl. 12. Tónlist – fyr-
irbænastund. Léttur málsverður eftir
stundina. Kirkjuprakkarar kl. 16.30,
TTT kl. 17.30. Æskulýðsfélag KFUM&K
og kirkjunnar kl. 20.
Bústaðakirkja | Starf aldraðra í Bú-
staðakirkju. Samverur okkar eru á
miðvikudögum frá kl. 13. Við spilum,
föndrum og erum með handavinnu.
Um klukkan 15 er kaffi og þá kemur
alltaf einhver gestur með fróðleik eða
skemmtiefni. Efni: Óvæntur gestur.
Digraneskirkja | Barnastarf 6–9 ára kl
17.15–18 á neðri hæð.www. digra-
neskirkja.is
Fríkirkjan Kefas | Bænastund kl.
20.30. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Garðasókn | Foreldramorgnar hvern
miðvikudag kl. 10 til 12. Fyrirlestur
mánaðarlega. Gott tækifæri fyrir
mömmur og börn að hittast og kynn-
ast Allir velkomnir, pabbar og
mömmur, afar og ömmur. Alltaf heitt á
könnuni.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir.
Boðið er upp á léttan hádegisverð á
vægu verði að lokinni stundinni. Prest-
ar safnaðarins þjóna fyrir altari, org-
elleikari Hörður Bragason
Grensáskirkja | Samverur eldri borg-
ara í Grensáskirkju eru hvern miðviku-
dag kl. 14–15.30. Kvenfélag Grens-
ássóknar annast kaffið.
Hallgrímskirkja | Starf með öldruðum
alla þriðjudaga og föstudaga kl. 11–15.
Súpa, leikfimi, kaffi og spjall.
Háteigskirkja | Foreldrar, gamlir og
nýir, sem hafa stundað foreldra-
morgna í Háteigskirkju, ætla að hittast
í Setrinu 2. des. kl. 20. Ætlunin er að
hittast fyrsta fimmtudag hvers mán-
aðar í framtíðinni. Sjáumst.
Hjallakirkja | Fjölskyldumorgnar eru í
Hjallakirkju á miðvikudögum kl. 10–12.
Tíu til tólf ára starf á miðvikudögum
kl. 16.30–17.30.
Kristniboðssalurinn | Samkoma kl.
20. „Þorsti eftir Guði“. Sálmur 42,
ræðumaður: Birna G. Jónsdóttir. Ein-
söngur: Árni Gunnarsson. Kaffiveit-
ingar eftir fundinn, allir velkomnir.
Laugarneskirkja | Kl. 10 Mömmu-
morgunn. Kl. 10.30 Gönguhópurinn
Sólarmegin leggur af stað frá kirkju-
dyrum alla miðvikudagsmorgna. Kl.
14.10–15.30 Kirkjuprakkarar. (1.– 4.
bekkur) Kl. 16.15 T.T.T. (5. – 7. bekkur)
Kl. 19 Fermingar-Alfa. 20.30 Unglinga-
kvöld Laugarneskirkju.
Neskirkja | Foreldramorgnar kl. 10.
Börn og bænir. Dr. Sigurður Árni Þórð-
arson. Fyrirbænamessa kl. 12.15.
Prestur dr. Sigurður Árni Þórðarson.
Opið hús kl. 13. Íslendingar og víkingar
í nútíð. Gestir Þórarinn Eldjárn rithöf-
undur, sem segir frá m.a. sinni nýju
bók um baróninn á Hvítárvöllum og
Guðmundur K. Magnússon prófessor,
sem ræðir um hinar nýju víkingaferðir
Íslendinga erlendis. Umsjón sr. Sig-
urður Árni Þórðarson. Hátíðarkaffi. 7
ára starf kl. 14.30.
Njarðvíkurprestakall | Spilakvöld
aldraðra og öryrkja í Ytri-Njarðvík-
urkirkju á fimmtudagskvöldum kl. 20.
Umsjón hafa Lionsklúbbur Njarðvíkur,
starfsfólk kirkjunnar og sóknar-
prestur.
Staður og stund
http://www.mbl.is/sos
DAGBÓK