Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 47
*
*
*
*
**
*
*
*
*
*
*
** ***
*
*
*
*
*
*
Nýr og betriHverfisgötu ☎ 551 9000
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i. 14 ára.
*
*
*
*
*
*
*
*
* * *
*
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15. B.i. 14 ára.
Kvikmyndir.com
PoppTíví
Kolsvört
jólagrínmynd
með Billy Bob
Thornton
... þú missir þig
af hlári
Billy Bob Thorton Bernie Mac Lauren Graham Billy Bob Thorton Bernie Mac Lauren Graham
VINCE VAUGHN BEN STILLER
Frá leikstjóra RUSH HOUR og
RED DRAGON
PIERCE BROSNAN
SALMA HAYEK
WOODY HARRELSON
DON CHEADLE
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Ein besta
spennu- og
grínmynd ársins
www.laugarasbio.is
Kr. 500
Kapteinn skögultönntei s lt
Sýnd kl. 6. Ísl. tal.
M.M.J. Kvikmyndir.com
H.J. Mbl.
LÍF OG FJÖR Á SALTKRÁKU 2 EINGÖNGU SÝND UM HELGAR
Kvikmyndir.is
Ómar í Quarashi / DV
Mbl
Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGONPIERCE BROSNAN SALMA HAYEK
WOODY HARRELSON DON CHEADLEEin besta spennu-
og grínmynd ársins
Jólaklúður Kranks
TIM ALLEN JAMIE LEE CURTIS
Sýnd kl. 5.45 og 8.
Jólaklúður Kranks
Jólamynd fjölskyldunnar
Jólaklúður Kranks
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 47
ÞAÐ varð uppi fótur og fit á skrif-
stofu Morgunblaðsins er Robertinos
varð vart á göngunum. Tvær blaða-
konur sáu sig tilneyddar að ganga
upp að manninum og tilkynna hon-
um um aðdáun þá sem þær höfðu á
honum er þær voru yngri. Auk þess
að segja honum að hann hefði verið
sá sem þær ætluðu að giftast!
Robertino var ekki brugðið. Hann
brosti ljúfmannlega við yfirlýsing-
unum og þakkaði kurteislega hólið.
Greinilega vanur þessu.
Þessi uppákoma er til marks um
hversu gríðarlega vinsæll þessi
ítalski söngvari varð í upphafi sjö-
unda áratugarins. Robertino var þá
rétt skriðinn yfir þrettán ára ald-
urinn en átti eftir að selja plötur úti
um allan heim í 56 milljónum ein-
taka. Þessi tala var fáheyrð á þess-
um tíma. Robertino ferðaðist á rétt
rúmlega einu og hálfu ári út um
gervalla heimsbyggðina og söng
linnulaust á tónleikum. Kom hann
m.a. til Íslands árið 1961 og söng á
nokkrum tónleikum í Austurbæj-
arbíói.
Segja má að frami Robertinos
hafi verið skjótur en skammvinnur
en vinsældirnar voru engu að síður
gríðarlegar. Í fyrra kom svo berlega
í ljós að rödd Robertinos var geymd
en ekki gleymd þegar Óttar Felix
Hauksson réðst í það verkefni að
láta endurhljómjafna helstu smelli
hans og gefa út á plötu. Rauk hún
beint í gull og Robertinofár reið yfir
landið á nýjan leik. Ekki nóg með
það heldur hefur Óttari tekist að
selja plötuna áfram til landa sem
voru helsta athafnasvæði Robert-
inos á sínum tíma en einnig til nýrra
svæða, meira að segja til Kína!
Í tilefni af útkomu nýrrar safn-
plötu með Robertino, sem kallast
Romantica, ákvað útgefandinn að fá
Robertino til landsins og mun hann
troða upp í Austurbæ í kvöld ásamt
hljómsveit Pino Marcucci en hann
hefur stjórnað og útsett fyrir m.a.
José Carreras og Placido Domingo
og samið yfir 2000 lög og eitthvað
um sextíu stykki fyrir Robertino.
Líkara gríni
Robertino er „Ítalalegur“ mjög
að sjá, í brúnum rykkfrakka og í
forláta slönguskinnsskóm. Og þrátt
fyrir að hafa þykknað um belti staf-
ar af honum áreynslulaus sjarmi.
Hann segir ekki mikið, Marcucci
hefur oft orð fyrir honum og túlkar
spurningarnar fyrir hann er þurfa
þykir. Óforvarandis ryður Robert-
ino stundum út úr sér ítölskunni er
hann er spurður einhvers og þá
snarar Marcucci yfir á ensku jafn-
óðum.
Robertino og Marcucci rifja upp í
sameiningu hverja hann hafi verið
að kljást við um toppsætin í gamla
daga.
„Elvis, Cliff Richard, Pat Boone,
Nana Mouskouri, Paul Anka, Neil
Sedaka …,“ heyrist m.a. í belg og
biðu.
„Ég var heppinn,“ lýsir Robertino
svo yfir. „Ég var tólf ára þegar ég
var uppgötvaður.“
Hann gerir þó lítið úr því að þessi
skyndilega heimsfrægð hafi farið
illa með hann.
„Þetta var líkara gríni fyrir mér.
Ég var svo ungur að ég áttaði mig
ekki almennilega á þessu. Mér var
bara sagt: „Farðu þangað, komdu
hingað, syngdu þarna …“.“
Hann rifjar upp að hann hafi ver-
ið farinn að syngja þrenna tónleika
á dag á tímabili.
„Pabbi minn heimtaði einhverju
sinni að ég fengi nú frí, einn dag í
viku. Ég var orðinn lúinn. Þá var
bara sagt: „Jæja, þá bara setjum við
fleiri tónleika á hvern dag.“ Ég
þorði auðvitað lítið að skipta mér af
þessu. Ég hafði auðvitað ekkert
peningavit, hafði engan tíma til að
spá í það. Ég var að upplifa allan
heiminn á örskömmum tíma.“
Robertino náði hvað mestri frægð
í Rússlandi en þangað kom hann
samt aldrei ungur. Í dag er hins
vegar nóg að gera þar og rifjar Ro-
bertino upp að milljónamæringar
þaðan hafi látið senda eftir honum
með einkaþotu og hafi hann sungið
þrjú lög á einhverju hóteli fyrir
fúlgur fjár. Gestgjafinn varð meira
að segja svo glaður að hann gaf Ro-
bertino hest og gullúr í þakklæt-
isskyni en Robertino er mikill
hestamaður.
Robertino hristir hausinn og dæs-
ir yfir þessu.
Gamalt og gott
Áður en heimsfrægðin bankaði
upp á var Robertino brauðsendill í
Róm. Hann átti sjö systkini og fjöl-
skylda hans lapti dauðann úr skel
en faðir hans var óvinnufær eftir
bakmeiðsli. Frægð Robertinos átti
hins vegar eftir að snúa gæfunni
heldur betur fjölskyldunni í vil.
Robertino segist hafa verið syngj-
andi frá blautu barnsbeini en þegar
hann var níu ára komst hann í kynni
við söngkennarann Tito Schipa og
breytti það lífi hans.
„Hann var voðalega hrifinn af
mér og þegar ég hitti hann í fyrsta
skipti söng ég fyrir hann vöggu-
vísuna „Nina Nana“ (og Robertino
gefur smáforsmekk að kvöldinu og
syngur brot úr laginu fyrir blaða-
mann).“
Robertino segist hafa orðið hissa
þegar hann frétti af góðu gengi
safndisksins hér á landi og sér-
staklega að fólk hafi munað eftir
honum hér.
„Mér fannst þetta fyndið. Ég er
auðvitað mjög ánægður með þetta
og platan er flott, vel frá henni
gengið.“
Robertino er þéttbókaður fram að
áramótum. Spurður um efniskrá
kvöldsins segir hann:
„Þetta verður samsafn af slög-
urunum mínum og öðrum þekktum
ítölskum lögum. Einhver lög líka
sem Sinatra og Mario Lanza gerðu
vinsæl. Svo ætla ég að syngja
„White Christmas“. Ég ætla gefa
fólkinu það sem það vill, það verða
engin óþekkt lög þarna, bara gömul
og góð lög sem fólk þekkir.“
Tónlist | Robertino syngur í Austurbæ í kvöld
Með heiminn að fótum sér …
Morgunblaðið/Jim Smart
Robertino og Pino Marcucci eru jafnaldrar og hafa starfað saman að ýmsum verkefnum í gegnum tíðina.
Tónleikar Robertinos hefjast
klukkan 20.30. Miða er hægt að
nálgast í Bókabúð Máls og menn-
ingar á Laugavegi 18, á www.midi-
.is og í Austurbæ.
arnart@mbl.is
Ítalski söngvarinn Ro-
bertino heillaði heims-
byggðina barnungur
fyrir rúmlega fjörutíu
árum með engiltærum
söng sínum. Arnar
Eggert Thoroddsen
ræddi við Robertino
vegna endurkomu
hans til Íslands –
fjörutíu og þremur ár-
um eftir að hann söng
sig inn í hjörtu þjóð-
arinnar.
MYNDBANDSUPPTAKA, þar sem
Díana prinsessa af Wales talar hisp-
urslaust um barnæsku sína, hjóna-
band og bresku konungsfjölskyld-
una, hefur verið sýnd í bandarísku
sjónvarpi, að því er fram kemur í
frétt BBC.
Þátturinn var settur saman úr
upptökum sem gerðar voru með
óopinberum hætti af Peter Settel-
en, talþjálfara Díönu. Á þeim ræðir
Díana um óhamingjusama æsku
sína, um það hvernig hún og Karl
Bretaprins kynntust og samskipti
hennar við drottninguna.
Peter Hunt, fréttamaður BBC
sem fæst við mál konungsfjölskyld-
unnar, sagði að upptökurnar hefðu
verið gerðar eftir að hjónaband
prinsessunnar fór út um þúfur. Þær
hefðu verið gerðar í einrúmi og
Díana hefði aldrei gert ráð fyrir að
þær yrðu birtar. Hunt sagði jafn-
framt að engar nýjar upplýsingar
kæmu fram á upptökunum.
Lundúnalögreglan lagði hald á
upptökurnar árið 2001 en þá var
Paul Butler, fyrrum þjónn Díönu,
sakaður um að hafa stolið verðmæt-
um úr eigu hennar. Upptökurnar
voru hins vegar ekki notaðar við
réttarhöldin og að þeim loknum var
upptökunum skilað til Settelen.
Rifrildi foreldra
Á myndbandinu ræðir Díana
meðal annars um „óhamingjusama“
æsku sína. Hún greinir frá rifrild-
um foreldra sinna og því að hún
hafi verið nefnd „sú feita.“
Annars staðar á myndbandinu
ræðir hún fund sinn við Breta-
drottningu þar sem þær ræddu um
samband manns Díönu við Camillu
Parker Bowles. Þegar Díana spurði
hana hvað hún ætti að gera, segir
hún að drottningin hafi svarað: „Ég
veit ekki hvað þú getur gert –
Charles er vonlaus.“
Díana prinsessa.
Fólk í fréttum | Upp-
lýsandi myndbandsupp-
tökur sýndar í sjónvarpi
Díana átti
„óhamingju-
sama“ æsku