Morgunblaðið - 01.12.2004, Síða 48

Morgunblaðið - 01.12.2004, Síða 48
heiti óvenjulegum nöfnum. Demi Moore og Bruce Willis eru foreldrar Rumer Glenn, Scout LaRue og Tallulah Belle. Gwyneth Paltrow og Chris Martin eignuðust Apple nýlega, Erykah Badu á barnið Puma, Sylvester Stallone á börnin Sage Moonblood og Sistine Rose. John Travolta og Kelly Preston gáfu drengnum sínum nafnið Jett og yngsta barn Christie Brinkley er stelpa sem heitir Sailor. Listinn er mun lengri en áður en numið er staðar verður að minnast á tvö af frægari nöfnunum; Michael heitinn Hutchence kallaði dóttur sína Heav- enly Hiraani Tiger Lily og Bob Geldof datt í hug að kalla dóttur sína Fifi Trixabelle. Farhi ræðir við sálfræðinginn Cleveland Kent Evans, sem hef- ur rannsakað nöfn og sam- félagsleg áhrif þeirra. Evans segir að nafngiftin sé oft gerð til að efla sjálfan sig fremur en barnið. „Þessi nöfn koma ekki frá fræga fólkinu al- mennt heldur skapandi dægurstjörnum, eða því frægu fólki sem vill að al- menningur telji það vera skapandi. Það eru tónlist- armenn og leikarar og stundum listamenn, sem nefna börnin sín sérstökum nöfnum. Stjórnmálamenn og íþróttafólk virðist ekki vera eins ákaft að gefa börn- um sínum nöfn af þessu tagi.“ DÁLKAHÖFUNDAR í Bandaríkjunum hafa margir velt sér upp úr nafngift Juliu Roberts á tvíburunum, Phinneaus og Hazel, sem hún ól í heiminn fyrir þremur dögum. Börnin bera millinöfnin Walter og Patricia eftir foreldrum Juliu og þykir hún hafa það sér til málsbóta þó að flestir séu forviða yfir fyrstu nöfnum barnanna. „Ef hún hefði nefnt hann Marlon skildum við það. En það er ljóst að við eigum ekkert að skilja þetta,“ segir Laura Berman hjá The Detroit News. „Hazel er nafn sem hefur vart verið gefið börn- um síðan á fimmta áratug síðustu aldar en er nafn fjölda amma og langamma. Nafnið er næstum eins mikið úr tísku og Phinneaus,“ seg- ir hún og bætir við að nafnið sé „andsnúið glamúr“ og „ókynþokkafullt“, ekki síst vegna sjónvarpspersónu með þessu nafni, sem Shirley Booth lék. Berman skrifar að nafngiftin sanni völd móðurinnar þegar hún reynir að svara spurn- ingunni af hverju þessi nöfn urðu fyrir val- inu. „Kannski er það af því þú ert svo með- vituð um eigin völd sem táknmynd glamúrs að jafnvel óskáldlegustu nöfn breytast um- svifalaust eftir að þú notar þau.“ Skapandi nöfn? Paul Farhi hjá The Washington Post skrifar að Hazel sé mjög gamaldags og líkist nöfnum á borð við Bertha, Gladys og Mildred. „Phinnaeus er ennþá meira gamaldags, eins og í Gamla testament- inu, gamaldags og jafnvel enn sjald- gæfara en önnur nöfn úr Gamla testa- mentinu á borð við Methuselah og Obadiah.“ Það er ekkert nýtt að börn fræga fólksins 48 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Richard Gere Jennifer Lopez Susan Sarandon Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Shall we Dance? SETH GREEN MATTHEW LILLARD DAX SHEPARD KRINGLAN Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i. 12 ára. Frá leikstjóra Mr Deeds kemur gamanmynd sem fær þig til að missa það algjörlega. Fór beint á toppinn í USA Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12 ára. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. B.i. 12 ára. Engar tæknibrellur og raunverulegir hákarlar gera OPEN WATER að mögnuðustu spennumynd síðari ára! Engar tæknibrellur og raunverulegir hákarlar gera OPEN WATER að mögnuðustu spennumynd síðari ára! "Snilldarþriller! Skuggalega hrollvekjandi!" - Variety "Nístir inn að beini!" - Elle "Upplifun! Meiriháttar!" - Leonard Maltin ill ill ! l ll j i! - ri ty í i i i i! - ll lif ! i i ! - r lti "Snilldarþriller! Skuggalega hrollvekjandi!" - Variety "Nístir inn að beini!" - Elle "Upplifun! Meiriháttar!" - Leonard Maltin i ll lti BLANCHARD RYAN DANIEL TRAVIS BLANCHARD RYAN DANIEL TRAVIS Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15. Sýnd kl. 9.10. L´affaire Marcorelle (Marcorelle málið) sýnd kl. 6. Inspecteur Lavardin sýnd kl. 8 Scénes de Crimes (Glæpavettvangur) sýnd kl. 10. Miðaverð 700 krónur. Keyptu þér passa sem gildir á allar 8 myndirnar á 2200 krónur. Allar myndir m. enskum texta. S.V. Mbl.  Forsýning í kvöld kl. 19 með ensku tali SÍÐAN í sumar hafa verið haldin Spunakvöld reglulega í salarkynnum Klink og Bank. Fara þau fram fyrsta miðvikudaginn í mánuði hverjum. Skipuleggjendur kvöldanna eru þeir Magnús Jensson (Maggi I.N.R.I.) og Gunnar Grímsson en þeir skipulögðu áþekkar uppákomur fyrir rúmum tíu árum síðan. Markmið kvöldanna er einfalt, að kynna og stuðla að almennum spuna. Öllum er frjálst að taka þátt í þeim og er aðgangur ókeypis. Magnús segir að nýju kvöldin byggist á sömu hugmyndafræði og gömlu spunakvöldin og hann leggur áherslu á að allar listgreinar rúmist á kvöldunum. „Fólk hefur algerlega frjálsar hendur með hvað það gerir,“ útskýrir Gunnar. „Við erum með undirbún- ingsfundi samdægurs. Þar förum við yfir tímarammann og svoleiðis. Fólk tilkynnir þar hvað það ætlar að vera lengi, ef það þarf klukkustund þá fær það klukkustund.“ Óvissan stýrir kvöldunum og aldr- ei er tilkynnt fyrirfram hverjir taka þátt í þeim en bæði þekktir og óþekktir tónlistarmenn, innlendir sem erlendir, hafa tekið þátt í kvöld- unum. Kvöldið snýst um spunann – augnablikið eins og Gunnar orðar það. Þeir félagar halda þétt á spöð- unum hvað Spunakvöldin varðar, upplýsingar er t.d. hægt að nálgast á vefsíðunni where.is/spuni/ og á kvöldunum er allt tekið upp og mögu- lega verður eitthvað gefið út á næst- unni. Þeir félagar eru auk þess búnir að setja á stofn Stoðtækjasafn Spuna og bjóða öllum sem áhuga hafa að láta tæki af hendi rakna í safnið, í hvaða ásigkomulagi sem þau kunna að vera. Næsta Spunakvöld er í kvöld og hefst klukkan 21 en undirbúnings- fundurinn er klukkan 18. Tónlist | Spuni í Klink og Bank Þegar það gerist Morgunblaðið/Golli Menn augnabliksins: Gunnar Grímsson og Magnús Jensson eru skipuleggjendur Spunakvöldanna. Fólk | Roberts þykir hafa valið hallærisleg nöfn á tvíburana Reuters Af hverju Phinn- eaus og Hazel? Óskarsverðlaunaleikkonan Julia Roberts valdi allt annað en glamúrleg nöfn á börnin sín tvö, sem hún eignaðist með kvikmyndatökumann- inum Daniel Moder. where.is/spuni/

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.