Morgunblaðið - 14.12.2004, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HEFÐI VÍÐTÆK ÁHRIF
Reynt verður til þrautar á næstu
dögum að ná samningum í deilu leik-
skólakennara og sveitarfélaganna.
Ef samningar nást ekki má reikna
með að leikskólakennarar undirbúi
verkfall snemma á næsta ári, sem
myndi ná til 17 þúsund leikskóla-
barna og 1.500 leikskólakennara.
Tannlausum fækkar hratt
Um tvö þúsund Íslendingar á
aldrinum 45–54 ára gætu verið tann-
lausir, og eru það 6% einstaklinga á
þessum aldri. Árið 1995 voru 14% Ís-
lendinga tannlausir í báðum gómun,
og rúm 26% árið 1990.
Aldurstengd réttindi
Stefnt er að því að taka upp ald-
urstengda réttindaávinnslu í lífeyr-
issjóðum á samningasviði Alþýðu-
sambands Íslands og Samtaka
atvinnulífsins. Flestir sjóðirnir
munu þurfa að gera breytingar á
réttindum sjóðsfélaga þrátt fyrir
mjög góða ávöxtun á þessu ári og
auknar greiðslur sem samið hefur
verið um til þeirra á næsta ári.
Vilja til Evrópu
Meira en þriðjungur Tyrkja vill
flytjast til Evrópu í atvinnuleit verði
samið við þá um aðild að Evrópu-
sambandinu. Kemur það fram í
nýrri skoðanakönnun en Tyrkir eru
71 milljón talsins. Búist er við, að á
leiðtogafundi ESB-ríkjanna á
fimmtudag og föstudag verði ákveð-
ið að hefja við þá formlegar við-
ræður þrátt fyrir mikla andstöðu við
það í mörgum ESB-ríkjum. Frakkar
ætla að krefjast þess í hugsanlegum
viðræðum, að Tyrkir játi á sig þjóð-
armorð á Armenum á árum fyrri
heimsstyrjaldar.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 28
Viðskipti 13/16 Skák 36
Erlent 17/18 Minningar 32/35
Höfuðborgin 20 Bréf 31
Akureyri 20 Dagbók 40/42
Suðurnes 21 Kvikmyndir 44
Landið 21 Fólk 46/49
Daglegt líf 25 Bíó 46/49
Listir 24 Ljósvakar 50
Forystugrein 26 Veður 51
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
ÞRIGGJA ára drengur hlaut þungt
höfuðhögg þegar hann datt í hálku
í Grundarfirði síðdegis í gær.
TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæsl-
unnar, var kölluð út um klukkan
16.30 og fór hún til móts við sjúkra-
bifreið sem ekið hafði af stað með
barnið. Þyrlan lenti á Kaldármelum
og tók þar við drengnum. Þyrlan
lenti við Landspítalann í Fossvogi
um hálftíma síðar.
Samkvæmt upplýsingum frá
slysadeild spítalans leiddu rann-
sóknir í ljós að hann var ekki mikið
slasaður og var búist við að hann
yrði útskrifaður í gærkvöldi.
Þyrla sótti þriggja ára dreng
Reynt að upp-
lýsa aðdraganda
árásar
LÖGREGLAN í Reykjavík vinnur
að því að upplýsa aðdraganda
þess að Ragnar Björnsson, 55 ára,
var sleginn á veitingastað í Mos-
fellsbæ aðfaranótt sunnudags með
þeim afleiðingum að hann lést á
gjörgæsludeild á sunnudag.
Verið er að ræða við vitni og
sjónarvotta sem voru á vettvangi.
Þá er beðið niðurstöðu krufn-
ingar á hinum látna. Karlmaður á
þrítugsaldri, Loftur Jens Magn-
ússon, situr í gæsluvarðhaldi
vegna árásarinnar, grunaður um
stórfellda líkamsárás sem leiddi
til dauða Ragnars heitins. Hefur
hinn grunaði játað að hafa lent í
átökum við hinn látna umrædda
nótt.
BETUR fór en á horfðist þegar eldur
kviknaði í Kebab-húsinu í Lækjar-
götu 2 í gærkvöldi. Elsti hluti hússins,
sem er byggt úr timbri, er yfir 150 ára
gamall og var mikil hætta talin á að
eldurinn breiddist út.
Tilkynnt var um eldinn til Neyð-
arlínunnar klukkan 20.28 og um fimm
mínútum síðar var slökkvilið komið á
staðinn. Allt tiltækt slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins var sent á staðinn og
bakvakt kölluð út. Þá lokaði lögreglan
í nærliggjandi götum. Magnús Jón
Kristófersson, stöðvarstjóri slökkvi-
liðsins, stjórnaði aðgerðum á vett-
vangi og sagði hann að það hefði að-
eins mátt muna nokkrum mínútum að
eldurinn næði sér verulega á strik. Þá
hefði verið stórhætta á ferðum enda
um gamalt timburhús að ræða og
mörg önnur slík hús í nágrenninu.
Það hefði ráðið úrslitum hversu
slökkvilið var snöggt á staðinn. „Þetta
er gamalt þurrt timbur, einangrað
með hinu og þessu. Ég get fullyrt að
þetta var bara mínútuspursmál.“
Eldurinn kom upp í steikingarpotti
í eldhúsi Kebab-hússins og breiddist
þaðan út um loftræstikerfi. Þegar
slökkvilið kom á staðinn stóðu eld-
tungur upp úr loftræstistokk og hafði
eldurinn læst sig í þakskeggið á Café
Óperu. Greiðlega gekk að slökkva
eldinn.
„Þetta er kraftaverk“
„Maður brosir nánast hringinn.
Þetta er eitt kraftaverk og ekkert
annað,“ sagði Márus Jóhannsson, eig-
andi Café Óperu, í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Honum finnst slökkvi-
lið hafa staðið sig afskaplega vel við
að slökkva eldinn áður en hann náði
að breiðast út.
Slökkvilið bjargaði
150 ára gömlu húsi
Morgunblaðið/Júlíus
Eldtungurnar teygðu sig upp með húsveggnum og læstu sig í þakskeggið.
FARÞEGAÞOTA Iclandair dæld-
aðist þegar landgöngubrú skall á
henni í gærmorgun. Vélin var
dregin inn í viðgerðarskýli og
kemst væntanlega ekki í notkun
aftur fyrr en síðdegis í dag. Vegna
óhappsins og slæms veðurs á
Keflavíkurflugvelli urðu tafir á
áætlunarflugi. Guðjón Arn-
grímsson, upplýsingafulltrúi fé-
lagsins, sagði að ekki væri búist
við töfum í dag.
Vélin var að koma að inngangi
við nýjan hluta flugstöðvarinnar
þegar eitthvað í landgöngubrúnni
gaf sig þannig að hún skall með
talsverðu afli bakborðsmegin á
flugvélina. Í gær var ekki ljóst
hvort bilun varð í brúnni eða hvort
vindhviða hefði feykt henni til með
þessum afleiðingum.
Landgöngubrú
skall á
farþegaþotu
TVEIR ungir karlmenn, bílstjóri
og farþegi í fólksbíl, voru fluttir
meðvitundarlitlir á slysadeild eftir
árekstur við strætisvagn á mótum
Miklubrautar og Grensásvegar á
tíunda tímanum í gærkvöldi.
Strætisvagninn ók af vettvangi og
var sá þáttur málsins m.a. rann-
sakaður sérstaklega í gærkvöldi.
Að sögn læknis á slysadeild eru
mennirnir ekki taldir mjög alvar-
lega slasaðir en voru meðvitund-
arlitlir við komuna á sjúkrahúsið.
Þeir gengust undir rannsóknir í
gærkvöldi.
Samkvæmt upplýsingum rann-
sóknardeildar lögreglunnar í
Reykjavík var fólksbílnum ekið
vestur Miklubraut og er talið að
hann hafi farið yfir á rauðu ljósi á
gatnamótum Miklubrautar og
Grensásvegar. Þar ók hann í veg
fyrir strætisvagn sem ók norður
Grensásveg. Við áreksturinn sner-
ist fólksbíllinn á veginum og kast-
aðist á ljósastaur.
Lögreglan ræddi í gær við bíl-
stjóra strætisvagnsins og fulltrúa
frá Strætó bs. vegna málsins.
Fólksbíllinn er ónýtur.
Morgunblaðið/Sverrir
Slösuðust í árekstri
við strætisvagn
ÞÓRÐUR Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands, segir að það sé
nánast tímaspursmál hvenær erlent
félag verður skráð í Kauphöll Ís-
lands. Kauphöllin hefur fengið, að
sögn Þórðar, fyrirspurnir og hefur
átt viðræður við ónefnd erlend
hlutafélög um skráningu þeirra í
Kauphöllina. Þar er ekki um að
ræða færeysk hlutafélög, en þegar
hefur verið tilkynnt um komu að
minnsta kosti tveggja færeyskra fé-
laga í Kauphöllina strax á næsta ári.
„Við höfum fengið fyrirspurnir
um það og það er nokkur áhugi á því
og menn hafa litið til þess að skoða
þann möguleika. Það er nánast
tímaspursmál hvenær það gerist,“
segir Þórður.
Ef af yrði segir Þórður aðspurður
að um væri að ræða fyrirtæki af
þeirri stærðargráðu að það kæmist í
Úrvalsvísitöluna.
„Á okkar mælikvarða er það
ágætt fyrirtæki, fyrirtæki sem
kemst í Úrvalsvísitöluna, sem hugs-
anlega gæti komið til álita í þeim
efnum. En það er ekki tímabært að
segja mikið til um það fyrr en það
gerist.“/16
Erlent félag væntan-
legt í Kauphöllina