Morgunblaðið - 14.12.2004, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MAGNÚS Eggerts-
son, fyrrverandi yfir-
lögregluþjónn í
Reykjavík, lést á
hjúkrunarheimilinu
Eir fimmtudaginn 9.
desember sl.
Magnús var 97 ára
gamall, fæddur 8. mars
1907 í Hjörsey á Mýr-
um. Foreldrar hans
voru Magnús Eggert
Magnússon bóndi og
Guðríður Guðmunds-
dóttir.
Magnús lauk námi í
Lögregluskólanum í
Reykjavík árið 1930 og hóf sama ár
störf hjá lögreglunni í Reykjavík.
Hann varð varðstjóri 1930, rann-
sóknarlögregluþjónn 1941, aðalvarð-
stjóri 1963, aðstoðaryf-
irlögregluþjónn 1969
og var loks skipaður yf-
irlögregluþjónn 1971.
Hann lét af störfum ár-
ið 1977 eftir 47 ára
starf hjá embættinu.
Magnús gegndi ýms-
um trúnaðarstörfum,
var m.a. formaður Lög-
reglufélags Reykjavík-
ur og sat um árabil í
stjórn BSRB. Hann var
gerður heiðursfélagi í
LR og hlaut gullmerki
Landssambands lög-
reglumanna númer 1
árið 1996. Kona hans var Guðrún
Lýðsdóttir, fædd 13. febrúar 1904,
dáin 11. maí 1973. Þau eignuðust
eina dóttur, Elinborgu.
Andlát
MAGNÚS
EGGERTSSON
helgina, og eitthvað hefur verið
talað um að menn velji dýrari gjaf-
ir í ár en oft áður,“ segir Emil.
Aukning í dýrari hlutum
„Maður heyrir að fólk fari til út-
landa til að versla, það hefur verið
í fréttum að fólk fari til Bandaríkj-
anna vegna lágs gengis á doll-
aranum, en það hefur greinilega
ekki haft meiri áhrif en þetta,“
segir Emil. Hann segir að salan
hafi farið að aukast á svipuðum
tíma í ár og síðustu ár, enda fari
það oft eftir því hvenær nýtt
kortatímabil byrjar í desember
hvenær fjör færist í verslunina.
JÓLAVERSLUNIN fer vel í gang
í ár, og áætla Samtök verslunar og
þjónustu (SVÞ) að veltan hjá
verslunum það sem af er jóla-
vertíðinni sé að meðaltali um 10–
15% meiri en á sama tíma í fyrra,
og virðast kaupmenn flestir
ánægðir með söluna.
„Þetta hækkar töluvert mikið og
ef maður horfir á tölurnar frá því í
fyrra sést að þetta hækkar ár frá
ári,“ segir Emil B. Karlsson hjá
SVÞ. Veltan hjá verslunum eftir
jólatörnina í fyrra hafði aukist um
að meðaltali 15% frá fyrra ári, og
því veruleg aukning á sölu síðustu
ár. „Menn eru mjög ánægðir eftir
Hann segir skiptingu á milli versl-
ana og verslunarmiðstöðva virðast
vera svipaða og í fyrra.
„Þetta er ágæt aukning frá síð-
asta ári,“ segir Finnur Árnason,
framkvæmdastjóri Hagkaupa.
„Þetta byrjar fyrr og virðist fara
betur af stað almennt, þetta er
svona jafnt og þétt. Það er mikil
aukning í dýrari hlutum, raftækj-
um, húsgögnum og þessum stærri
hlutum sem við erum að selja
þannig að það er eins og fólk hafi
meiri peninga milli handana.“
Halldór Benediktsson, versl-
unarstjóri í BT Skeifunni, segir
verslunina fara mjög vel í gang, og
vera 10–15% meiri en á sama tíma
í fyrra, en ómögulegt sé að segja
til um hvort það muni haldast
fram að jólum. Hann segir gjaf-
irnar sem fólk kaupir ekki vera
áberandi dýrari en í fyrra, en oft
séu dýrari gjafirnar keyptar undir
það síðasta.
„Jólaverslunin fer bara fínt í
gang,“ segir Ægir Örn Sím-
onarson, verslunarstjóri í Byggt
og búið í Kringlunni. „Ég held að
þetta sé nokkurn veginn á sama
róli og í fyrra, það er reyndar erf-
itt að bera það nákvæmlega saman
því vikudagar og annað er ekki
eins, en þetta er ekki síðra en í
fyrra, mikið selt og mikið gaman.“
Verri sala á leikföngum
„Þetta gengur ágætlega, en sal-
an er minni en í fyrra. Mér finnst
þetta líka byrja miklu seinna,“
segir Sigurður Þorbergsson, versl-
unarstjóri í Dótabúðinni í Smára-
lind og Kringlunni. Hann áætlar
að salan í ár sé um 12% minni en á
sama tíma í fyrra og segir það
eiga við bæði í Smáralind og
Kringlunni. Hann segir skýr-
inguna í verri sölu á leikföngum
hugsanlega þá að fólk kaupi leik-
föngin erlendis eða í gegnum Net-
ið, auk þess sem verslanir eins og
Bónus, Europris, BYKO og fleiri
séu farnar að selja meira af leik-
föngum.
Verslunin í Skarthúsinu á
Laugavegi fer vel í gang, og er í
það minnsta ekki verri en í fyrra,
segir Eygló Dóra Garðarsdóttir
verslunarstjóri. Hún segir veðrið
alltaf hafa einhver áhrif á verslun
við Laugarveginn, en veðrið und-
anfarið hafi verið í lagi, eða í það
minnsta ekki sett strik í reikning-
inn.
Morgunblaðið/Jim Smart
Jólaverslunin fer víðast hvar vel af stað og má áætla að hún sé ívið betri en á sama tíma í fyrra. Opið verður til klukkan 22 í verslunum öll kvöld til jóla.
Jólasalan í verslunum fer almennt vel í gang að mati starfsfólks verslana
Salan í ár 10–15% meiri en í fyrra
ELDAVÉLIN er algengasta
orsök rafmagnsbruna á heim-
ilum. Árið 2002 voru skráðir
100 rafmagnsbrunar hjá Lög-
gildingarstofu, en áætlað er að
það séu tæp 11% allra raf-
magnsbruna á landinu. Eldavél
er það rafmagnstæki sem oft-
ast kemur við sögu, eða í 25%
tilvika og á heimilum eru 38%
rafmagnsbruna vegna þeirra.
Allir rafmagnsbrunar í eldavél-
um urðu vegna rangrar notk-
unar. Síðastliðnar vikur og
mánuði hafa orðið að minnsta
kosti fjórir brunar af völdum
eldavéla.
„Brunar út frá eldavélum eru
alltaf vegna mannlegra mis-
taka,“ segir Jóhann Ólafsson
hjá Löggildingarstofu. Hann
segir eldavélarnar að því leyti
frábrugðnar sjónvarpstækjum,
en brunar vegna þeirra eru iðu-
lega vegna tæknilegra orsaka.
„Oftast gleymir fólk að
slökkva á eldavélinni eða
gleymir potti eða pönnu á
hellu,“ segir Jóhann um tilefni
eldavélabruna. Þá nefnir hann
einnig að börn geti stundum
kveikt á eldavélum.
Fólk sé vel á verði
Jóhann segir að nú fari í
hönd sá tími sem mest er staðið
við eldavélarnar og því nauð-
synlegt að brýna fyrir fólki að
vera vel á verði. Hann bendir á
að brunar út frá eldavél geti
verið mjög alvarlegir og þó að
pottur nái aðeins að standa á
heitri hellu í skamman tíma
getur sót og reykur af hans
völdum valdið gífurlegu tjóni.
Hægt er að kaupa eldavéla-
vörn, sem nota má á hvaða
eldavél sem er.
Frekari upplýsingar um raf-
magnsbruna má finna á heima-
síðunni www.ls.is.
Eldavélar
orsök
flestra
rafmagns-
bruna