Morgunblaðið - 14.12.2004, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.12.2004, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 7 FRÉTTIR FYRSTA mótorhjólið sem fengið var til Íslands fyr- ir 100 árum er komið til landsins á ný en það var á safni í Danmörku. Eigandi þess var Þorkell Cle- menz sem var einnig þekktur sem fyrsti bílstjóri Ís- lendinga. Hjólið er af gerðinni ELG og er fjallað um það í bókinni Þá riðu hetjur um héruð, 100 ára saga mótorhjólsins á Íslandi. Njáll Gunnlaugsson, sem skrifað hefur um árabil um bíla og mótorhjól í dagblöð og tímarit, skrifaði bókina og í tengslum við það grófst hann fyrir um afdrif þessa fyrsta hjóls. Fannst það á safni í Danmörku og segir Njáll hjólið hafa fengist hingað til lands fyrir tilstilli Tækniminjasafns Danmerkur, Fraktlausna og bókaútgáfunnar Pjaxa. Hjólið verður til sýnis í verslun Pennans við Hallarmúla í Reykjavík fram að jólum. Fyrsta mótorhjól Íslendinga komið aftur til landsins Morgunblaðið/Golli OPNAÐ var fyrir umferð um nýjan veg og brú yfir Kolgrafa- fjörð á Snæfellsnesi um miðjan dag í gær. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra fór fyrir sex- tíu bíla lest sem ók yfir fjörðinn eftir nýja veginum. Með þessari framkvæmd er því takmarki náð að þéttbýlis- kjarnarnir á norðanverðu Snæ- fellsnesi eru nú í fyrsta sinn tengdir saman með vegi með varanlegu slitlagi. Leiðin milli Stykkishólms og Grundarfjarð- ar styttist við þetta um 7 kíló- metra. Þar sem enn er eftir ýmis frá- gangur við veginn er formlegri vígsluhátíð slegið á frest til vors. Nýr vegur og brú yfir Kolgrafafjörð styttir leiðina um sjö kílómetra Sextíu bíla lest fór yfir fjörðinn Grundarfirði. Morgunblaðið. UM 240 einstaklingar bíða nú hjá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands eftir heyrnartæki en vorið 2003 voru um 1.100 manns á biðlista eftir tækjum. Samkvæmt upplýs- ingum frá Guðrúnu Gísladóttur, framkvæmdastjóra stöðvarinnar, er biðtíminn nú tveir til fjórir mánuðir. Samkvæmt upplýsingum Guð- rúnar biðu um 700 manns eftir heyrnartæki í byrjun ársins og gátu þá vænst þess að þurfa að bíða í sjö til átta mánuði. Í frétt frá Heyrnar- og talmeinastöðinni segir að forgangshópar, t.d. börn og þeir sem eru mjög heyrn- arskertir, þurfi ekki að bíða svo lengi og sé leitast við að afgreiða þá eins fljótt og unnt er, oft á nokkrum dögum. Þá kemur fram að um 2% Ís- lendinga noti heyrnartæki og sé tekið mið af erlendum rann- sóknum megi gera ráð fyrir að um 15% þjóðarinnar sé heyrn- arskertur. Hlutfall Íslendinga sem nota heyrnartæki er svipað og hjá Svíum og Norðmönnum en aðeins 1% Finna notar heyrnartæki en um 3,4% Dana. Hröð þróun er sögð hafa átt sér stað í heyrn- artækjum undanfarin ár og séu þau nánast öll stafræn og mörg með ýmsum forritum sem geri notendum kleift að stilla þau eftir aðstæðum sínum hverju sinni. Bið eftir heyrnar- tækjum hefur styst verulega FYRSTU tilboðin í byggingarrétt á Norðurbakka í Hafnarfirði voru opnuð í gær, og buðu alls 20 byggingarfyrirtæki í bygging- arréttinn. Hæsta tilboðið barst frá Byggingarfélaginu Ingvari og Kristjáni ehf. sem bauð 132 millj- ónir króna í Norðurbakka 5, 39 íbúðir, eða 3,4 milljónir á íbúð. Eykt hf. var með hæstu tölu í Norðurbakka 79, alls 79 íbúðir, 261 milljón króna, sem eru um 3,3 milljónir á íbúð. Tilboð í síð- ustu fjórar lóðirnar á Norð- urbakkanum verða opnuð á næstu dögum. Tilboð í Norður- bakka opnuð ALÞINGI hefur samþykkt um- sóknir frá 17 einstaklingum um ís- lenskan ríkisborgararétt. Meðal þeirra sem fengið hafa ríkisborg- ararétt eru Jesse Lewis Byock fornleifafræðingur frá Bandaríkj- unum, en hann hefur rannsakað fornminjar á Íslandi í mörg ár og meðal annars grafið í rústum á Mosfelli. Allsherjarnefnd Alþingis bárust 26 umsóknir um ríkisborgararétt. Nefndin lagði til að 17 ein- staklingum yrði veittur íslenskur ríkisborgararéttur. 17 fá ríkis- borgararétt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.