Morgunblaðið - 14.12.2004, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 11
FRÉTTIR
ÚTSALA ÚTSALA
Dæmi um verð: Áður: Nú:
40—70%
MEIRI VERÐLÆKKUN
Síðumúla 13, sími 568 2870,
108 Reykjavík.
Mohairpeysa 6.000 2.900
Riffluð peysa 6.500 2.900
Rennd peysa 5.900 2.900
Vafin peysa 4.800 1.900
Satíntoppur 5.300 1.900
Bolur m/perlum 6.600 1.900
Bolur m/áprentun 3.700 1.400
Skyrta 4.000 1.900
Hettupeysa 4.900 1.900
Satínkjóll 7.900 3.200
Sítt pils 6.300 1.900
Flauelsjakki 6.400 2.900
Renndur jakki 7.800 3.900
Íþróttagalli 8.900 3.600
Leðurbuxur 11.200 4.900
Dömubuxur 5.800 1.900
Opið frá kl. 10.00-18.00
Og margt margt fleira
fy
r
ir
h
e
im
il
ið
Nauðsynlegt t .d. á
aðventukransinn.
Haltu örugg ker tajól.
Tveir fal legir
ker taslökkvarar
Verð kr. 995.-
Kringlunni - Faxafeni
einstakt fyrir heimilið
gyl l t i r
&
s i l f raði r
w w w . t k . i s
SVEITARFÉLAGIÐ Ölfus hefur
samþykkt deiliskipulag vegna
Heilsuþorpsins Ölfuss á rúmlega
átta hektara spildu undir suð-
urhlíðum Reykjafjalls. Knútur
Bruun, lögfræðingur og forsvars-
maður heilsuþorpsins, kynnti verk-
efnið á opnum kynningarfundi á
Hótel Örk í gær. „Nú eru liðin sex
ár og 66 dagar frá því hugmyndinni
um heilsuþorpið Ölfus var hleypt af
stokkunum,“ útskýrði hann m.a. á
fundinum.
Með samþykkt deiliskipulagsins
væri ákveðnum undirbúningskafla
verkefnisins lokið en áður hafa ver-
ið gerðir samningar við ríkið um af-
not af landinu og rétt til að bora
eftir heitu og köldu vatni. Næstu
skref felist í að finna fjármagn og í
framhaldinu að hefjast handa við
uppbyggingu heilsuþorpsins. Áætl-
aður stofnkostnaður verkefnisins er
5,5 milljarðar.
Markhópurinn
erlendir ferðamenn
Samkvæmt hugmyndinni er gert
ráð fyrir því að heilsuþorpið sam-
anstandi af hverfi orlofsíbúða,
heilsuhóteli, fyrsta flokks hóteli,
veitinga- og ráðstefnurýmum, auk
fullkominnar aðstöðu fyrir heilsu-
bótarrými. Ááætlað er að rekstr-
araðilar og starfsfólk heilsuþorps-
ins búi utan þorpsins. Helgi
Hjálmarsson arkitekt hefur unnið
að því að skipuleggja svæðið, en
Aðalheiður Kristjánsdóttir arkitekt
kom einnig að því verki á síðari
stigum.
Knútur sagði á fundinum í gær
að ekki væri hægt að finna betri
stað undir starfsemina en undir
suðurhlíðum Reykjafjalls, með
Garðyrkjuskólann og Ölfusborgir
sem góða nágranna og Hveragerði
handan Varmár. „Friðsæld og nátt-
úruumhverfi þessa svæðis er ein-
stakt, nánd við höfuðborgarsvæðið
og greið umferð í allar áttir er lyk-
ilatriði, og svo verður lagning Suð-
urstrandarvegar og bein tenging
við alþjóðaflugvöll í náinni framtíð
mikill bónus fyrir rekstur heilsu-
þorpsins. Það bætir einnig mjög
heilsuímynd svæðisins að bæjaryf-
irvöld í Hveragerði hafa með full-
komnum hætti gengið frá fráveitu-
málum sveitarfélagsins.“
Knútur sagði að markhópur
heilsuþorpsins væri fyrst og fremst
erlendir ferðamenn; ekki síst ungt
athafnafólk, sem legði höfuðáherslu
á heilsu sína og vellíðan. Með bygg-
ingu þorpsins væri verið að reisa
sjálfstæða, öfluga og nýja ferða-
þjónustu. Markmiðið væri að selja
íslenskan veruleika, íslenska menn-
ingu og hvers konar heilbrigði.
Vistvæn stóriðja
Knútur lagði einnig áherslu á að
heilsuþorpið gæti, þegar það yrði
að veruleika, skapað um eitt hundr-
að til tvö hundruð ný störf. Þá yrðu
fjölmörg ný störf til á fram-
kvæmdatímanum fyrir verktaka og
ýmsa byggingaraðila. „Og ekki má
gleyma afleiddum störfum við alls
konar viðskipti og þjónustu við
sjálft heilsuþorpið,“ sagði hann.
„Þegar þessar hugmyndir verða að
veruleika verður mikil atvinnu-
uppbygging fyrir allt svæðið.“
Knútur sagði að hugmyndin um
heilsuþorpið væri langt frá því að
vera óraunhæf. „Nú er að baki
langt og strangt hugsjónastarf.
Framundan er veruleikinn; samn-
ingar við fjárfesta, byggingaraðila
og síðast en ekki síst traustan
rekstraraðila. Og eitt er víst: þegar
tekist hefur að ljúka þessum áform-
um rís upp vistvæn stóriðja á Suð-
urlandi.“
Áætlaður stofnkostnaður 5,5 milljarðar króna
Deiliskipulag vegna heilsu-
þorps í Ölfusi samþykkt
DANSPARIÐ Karen Björk Björg-
vinsdóttir og Adam Reeve unnu til
tvennra gullverðlauna í flokki at-
vinnumanna á opna ástralska
meistaramótinu í samkvæmisdöns-
um sem fram fór í Melbourne 11.
desember sl. Þetta er í fjórða skipt-
ið sem þau vinna til gullverðlauna á
þessu móti en Karen og Adam eru
handhafar bæði heims- og Evrópu-
meistaratitla í 10 dönsum og hafa
keppt fyrir Íslands hönd.
Hátt í sex þúsund áhorfendur
fylgdust með keppninni og var gull-
verðlaunahöfunum Karen og Adam
ákaft fagnað að keppni lokinni.
Samhliða opna ástralska meistara-
mótinu var haldin heimsmeistara-
keppni áhugamanna í 10 dönsum,
sl. sunnudag og opnuðu Karen og
Adam keppnina með sýningarat-
riði.
Ástralir héldu sérstaka heiður-
sathöfn 10. desember sl. fyrir dans-
pör sem unnið hafa heimsmeistara-
titla í dansi og voru Karen og Adam
þar á meðal. Ástralska sjónvarpið
tók hana upp og mun sýna frá
henni, ásamt keppninni sjálfri, á
jóladag og verður því sjónvarpað
um alla Ástralíu og víða í Asíu.
Árið hefur verið mjög annasamt
hjá dansparinu en þau hafa ferðast
til margra landa til að keppa, kenna
og sýna dans. Hafa þau haldið fjöl-
margar sýningar í Japan, það sem
af er árinu. Þau fara til Japans 15.
desember, þar sem þau verða með
nokkrar sýningar um jólahátíðina,
segir í fréttatilkynningu.
Unnu til tvennra gull-
verðlauna í Ástralíu
Fréttir
í tölvupósti