Morgunblaðið - 14.12.2004, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Við eru
UMSVIF í flugi hjá dótturfélögum
Flugleiða hafa verið umtalsvert
meiri á þessu ári en í fyrra. Farþegar
í áætlunarflugi Icelandair eru tæp-
lega 18% fleiri á fyrstu tíu mánuðum
þessa árs en á sama tímabili í fyrra.
Farþegum Flugfélags Íslands hefur
fjölgað um 14,5%. Þá hafa Flugleið-
ir-Frakt flutt nærri 27% fleiri tonn á
fyrstu tíu mánuðum þessa árs í sam-
anburði við síðasta ár og fartímar
leiguflugfélagsins Loftleiða-Ice-
landic hafa aukist um liðlega 70%
milli ára. Frá þessu er greint í til-
kynningu frá Flugleiðum.
Farþegar Icelandair
1.170 þúsund
Farþegum í áætlanaflugi Ice-
landair fjölgaði um 15,1% í október,
voru rúm 110 þúsund í október í ár
en 96 þúsund í október í fyrra. Frá
áramótum eru farþegar Icelandair
tæplega 1.170 þúsund, eða 17,9%
fleiri en á fyrstu tíu mánuðum síð-
asta árs.
Farþegum Flugfélags Íslands í
innanlandsflugi fjölgaði um 10,5% í
október og hefur fjölgað um 14,5% á
fyrstu tíu mánuðum ársins ef miðað
er við sama tímabil í fyrra.
Flugleiðir-Frakt fluttu 12,7%
fleiri tonn í október í ár en í október
2003 og hafa flutt 26,9% fleiri tonn á
fyrstu tíu mánuðum ársins en á sama
tíma í fyrra.
Í október voru fartímar, þ.e. sá
tími sem flugvél er í notkun, frá því
hún fer frá brottfararhliði og þar til
hún stöðvar aftur við brottfararhlið,
hjá Loftleiðum-Icelandic 12,4% fleiri
en í sama mánuði á síðasta ári. Á
fyrstu tíu mánuðum ársins eru far-
tímar hjá Loftleiðum-Icelandic
70,3% fleiri en í fyrra.
Flugleiðir í úrvalsvísitöluna
Flugleiðir er annað tveggja nýrra
félaga í úrvalsvísitölu Kauphallar Ís-
lands, samkvæmt tilkynningu frá
Kauphöllinni. Hitt nýja félagið er
Kögun. Koma félögin inn í úrvals-
vísitöluna í stað HB Granda og Op-
inna Kerfa Group. Bréf Opinna
Kerfa eru í yfirtökuferli og því ekki
gjaldgeng í vísitöluna.
+ , -(
../&01
+ ,
%1203%
!+
%1455 "
#$!
+ - - &3.0 "
Mikil aukning í
flugi hjá dóttur-
félögum Flugleiða
MIKILL áhugi var fyrir Kauphöll
Íslands og sjö íslenskum úrvalsvísi-
tölufyrirtækjum á sérstakri kynn-
ingu í Kauphöllinni í London í gær,
en til kynningarinnar var boðið
nokkrum af stærstu fagfjárfestunum
í fjármálahverfi Lundúna. „Þetta
gekk mjög vel og það var töluvert
mikil og góð þátttaka og mikill áhugi
á þessu hér í London. Til dæmis voru
fréttastofurnar BBC, CNBC, Fin-
ancial Times og Guardian á staðn-
um,“ segir Þórður Friðjónsson for-
stjóri Kauphallar Íslands en
kynningin var gerð í samstarfi við
Kauphöllina í London.
Þórður segir að vel hafi verið tekið
á móti Íslendingunum, og meðal ann-
ars var Þórði falið að opna bresku
kauphöllina í gærmorgun. „Það er
ákveðið kúlulistaverk, sem mér var
falið að ræsa, sem markar opnun
hvers viðskiptadags,“ segir Þórður,
en Kauphöllin í London er rafræn
eins og flestallar kauphallir heimsins
í dag, þar á meðal Kauphöll Íslands.
Bakkavör hætti við
Fulltrúar sjö íslenskra úrvalsvísi-
tölufyrirtækja voru í Kauphöllinni í
London í gær til að kynna sín fyr-
irtæki, en þau voru; KB banki, Ís-
landsbanki, Landsbanki, Burðarás,
Actavis, Marel og Flugleiðir. Bakka-
vör átti upphaflega að vera með en
dró sig út úr kynningunni þar sem
félagið á nú í yfirtökuviðræðum við
matvælafyrirtækið Geest.
Þórður segir að markmið kynning-
arinnar hafi fyrst og fremst verið að
vekja áhuga fjárfesta á íslensku fé-
lögunum. „Ég er vongóður um að
þeir beini sjónum sínum í auknum
mæli til Íslands í framhaldinu. Við
viljum gjarnan að þetta sé ekki bara
á annan veginn,
þ.e. að Íslending-
ar séu að fjárfesta
í London heldur
að Bretar fjár-
festi á Íslandi á
móti. Að íslensku
innrásinni í Bret-
land verði svarað
með gagnárás,
sem við myndum
taka fagnandi,
segir Þórður.
Aðspurður segir Þórður að það sé
greinilegt að áhugi Breta á íslensku
athafnalífi hafi stóraukist á 2–3 ár-
um. „Það kannast allir orðið við þessi
stóru íslensku fyrirtækja. Þetta hef-
ur allt breyst hér okkur í hag.“
Þórður segir að breskir fjárfestar
hafi ekki mikið haft sig í frammi
hingað til á íslenskum hlutabréfa-
markaði. „Það mætti vera meira um
það að erlendir fjárfestingarsjóðir
fjárfestu í íslenskum fyrirtækjum.
Við höfum náð gríðarlegum árangri
hvað varðar sölu á íslenskum skulda-
bréfum og næsta skref er að kynna
og örva sölu á hlutabréfunum.“
Þórður segir ástæðu lítils áhuga
erlendra fjárfesta á íslenskum hluta-
bréfum hingað til vera þá að mark-
aðurinn hafi verið mjög lítill, en hann
hafi hinsvegar stækkað mikið á örfá-
um árum. „Það tekur tíma að vekja
áhuga útlendinga á honum.“
Spurður hvort um frekari kynn-
ingar af þessum toga verði að ræða á
erlendri grundu segir Þórður að
kynningin núna hafi verið ákveðin
tilraunastarfsemi og engar ákvarð-
anir hafi verið teknar um frekari
kynningar. „Við metum í kjölfar
þessa fundar, sem og með hliðsjón af
áhuga íslenskra fyrirtækja, hvenær
og hvort við gerum eitthvað svipað
og sambærilegt aftur.“
Þórður segir að það hafi verið mat
allra sem að kynningunni stóðu að
hún hafi verið vel heppnuð og starfs-
menn Kauphallarinnar í London hafi
látið vel af kynningunni og talið hana
gagnlega og fyrirtækjunum til fram-
dráttar.
Erlend félög á Íslandi?
Eins og kunnugt er undirbýr
Actavis nú skráningu í Kauphöllinni í
London. Þórður segir aðspurður að
fleiri íslensk fyrirtæki gætu í fram-
tíðinni átt eftir að skrá sig á þann
markað. „Það kann líka að koma til
þess að erlend fyrirtæki skrái sig í
Kauphöll Íslands. Við höfum fengið
fyrirspurnir um það og það er nokk-
ur áhugi á því og menn hafa litið til
þess að skoða þann möguleika. Það
er nánast tímaspursmál hvenær það
gerist,“ segir Þórður, og bætir því
við að þar eigi hann ekki við færeysk
félög, en þegar hefur verið tilkynnt
um komu að minnsta kosti tveggja
færeyskra hlutafélaga inn á íslensk-
an markað strax á næsta ári.
Ef af komu erlends félags verður á
næstu misserum segir Þórður að-
spurður að um væri að ræða fyrir-
tæki af þeirri stærðargráðu að það
kæmist í Úrvalsvísitöluna.
„Á okkar mælikvarða er það ágætt
fyrirtæki, fyrirtæki sem kemst í Úr-
valsvísitöluna, sem hugsanlega gæti
komið til álita í þeim efnum. En það
er ekki tímabært að segja mikið til
um það fyrr en það gerist.“
Mikill áhugi í London á
íslenskum fyrirtækjum
Þórður
Friðjónsson
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● TALIÐ er að Baugur muni gera eig-
endum hlutafjár í Big Food Group nýtt
yfirtökutilboð í þessari viku. Þetta
kom fram á vefsíðu Financial Times í
gær. Samkvæmt fréttinni má vænta
þess að tilboðið verði gert opinbert í
síðasta lagi á föstudag. Líklegt er að
tilboðið verði 95 pens á hvern hlut en
stjórn BFG hefur mælt með þess hátt-
ar tilboði við eigendur félagsins.
Kaupverðið yrði þá 326 milljónir
punda sem samsvarar ríflega 39 millj-
örðum króna. Þetta kaupverð er mun
lægra en þau 110 pens sem Baugur
bauð í september síðastliðnum.
Baugur gerir líklega
opinbert tilboð
í þessari viku
'( (
)* !+
! 412 7"5
!2K" 7"5
!"-"D
/@D")" 4"
! 7"
0
6! 0
8 0
E"
E 1" / )
;) @"5
;5 " .*"@
."" /@D")0
A"
,
%
*- /"-"
/ ) -"
5-@
0"@9-" !%-"0
"-"+ L9"*"
&"-0""
6K)
8'@9-"
(M*"@
. /
. D"N ) .-"
.K -K- *"-"+*
) "+)))-K-
B K-
L"9-" "=.0")
. %
/(0(
4"0
/ H+@@"-"
8 ' "
BD"+)))N ) .'-
2-2"-
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
!"+) "D
+"" 2-2"-
=
= =
= =
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
O P
O P
O P
=
O =P
O = P
O P
O P
O =P
O P
O P
=
O =P
O P
O
P
=
O P
=
=
=
=
O =P
=
=
O P
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
"2-5
)
0- ' )
65 .
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
B-5 ' Q% "
4
R 4*)" /@K
2-5
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=