Morgunblaðið - 14.12.2004, Síða 17

Morgunblaðið - 14.12.2004, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 17 ERLENT JOSE Luis Rodriguez Zapatero, for- sætisráðherra Spánar, sakaði í gær Jose Maria Aznar, forvera sinn í emb- ættinu, og stjórn hans um að hafa blekkt almenning þegar hún lýsti því yfir að basknesku aðskilnaðarsam- tökin ETA hefðu staðið fyrir hryðju- verkunum í Madríd 11. mars þegar 191 lét lífið. Þá gagnrýndi hann stjórnina fyrir að hafa hreinsað öll gögn út af tölvum áður en hún fór frá, m.a. gögn um hryðjuverkin. „Á skrifstofum forsætisráðuneytis- ins höfðum við ekki eitt einasta skjal eða upplýsingar af neinu tagi í tölvum því ríkisstjórnin sem við tókum við af hafði þurrkað allt út,“ sagði Zapatero þegar hann bar vitni í gær fyrir þing- nefnd sem rannsakar hryðjuverkin. „Það þýðir að við höfum engar upp- lýsingar frá stjórninni um atburðina, fundi stjórnarinnar eða ákvarðanir sem teknar voru frá 11. mars til 14. mars,“ en þá sigraði Sósíalistaflokk- urinn, undir forystu Zapateros, hægriflokk Aznars í þingkosningum. Strax eftir hryðjuverkin sagði stjórn Aznars að ETA-samtökin hefðu staðið fyrir árásunum en ekki íslamskir hryðjuverkamenn eins og síðar kom í ljós að var raunin. Telja margir að þetta hafi orðið stjórn Azn- ars að falli. „Þetta var allt saman blekking,“ sagði Zapatero. Zapatero sakar stjórn Aznars um blekkingar Reuters Jose Luis Rodriguez Zapatero, for- sætisráðherra Spánar, svarar spurningum þingnefndar í Madríd. Madríd. AFP. JACQUES Chirac, forseti Frakk- lands, vígir í dag hæstu brú heims, 331 metra hátt mannvirki sem gnæf- ir yfir Tarnárdal í sunnanverðu landinu. Brúin var lögð yfir dalinn til að binda enda á umferðaröng- þveiti sem myndast í grennd við bæ- inn Millau á sumrin þegar ferða- langar streyma frá París til strandar Miðjarðarhafsins og Spánar. Brúin er úr stáli og steinsteypu og kostaði 390 milljónir evra, eða rúma 32 milljarða króna. Franska bygg- ingarfyrirtækið Eiffage fjármagn- aði og smíðaði brúna og hefur fengið leyfi til að standa straum af kostn- aðinum með brúartolli í allt að 75 ár. Þykir mannvirkið sérlega glæsi- legt og tengja saman verkfræði og fagurfræði. „Brúin verðskuldar svo sannarlega hugtakið listaverk,“ sagði Jean Pierre Martin, yfirmaður Eiffage á staðnum. Um 60.000 manns hafa greitt fyrir skoðunarferð um brúna og hundruð þúsunda hafa virt mannvirkið fyrir sér úr fjarlægð.                      !                  ! "# $ % #&  "#$        %& ' $  ''() * ##     (     )   *++  ( ' & ',)&, )-.   /+  ,   ' & $$  )  +012&')3 ,  ).      +     +! ,--  .$%     -456 46 7 4( 7!-6668    ./00/12  " „Verðskuld- ar hugtakið listaverk“ Millau. AFP.VÍKTOR Janúkovítsj, for- sætisráðherra Úkraínu og frambjóðandi núverandi vald- hafa í forsetakosningunum síð- ar í mánuðinum, kvaðst í gær saklaus af því að hafa látið eitra fyrir helsta andstæðing sinn, Víktor Jústsjenko. Janúkovítsj lét þessi orð falla eftir að Jústsjenko hafði ítrek- að fyrri fullyrðingar þess efnis að stjórnvöld í Úkraínu hefðu reynt að ráða honum bana með eitri. Læknar sem rannsakað hafa Jústsjeno fullyrða að eitr- að hafi verið fyrir hann með díoxíni. Sjálfur segir Jústsj- enko að „stjórnin“ hafi byrlað honum eitur. Janúkovítsj sagði að hann hefði á engan veg getað vitað um þetta meinta samsæri. Hann væri forsætisráðherra og hefði ekki eftirlit með þeim sér- eða öryggissveitum sem gætu hafa skipulagt tilræðið við keppinaut hans. Janúkovítsj segist saklaus Kíev. AFP. GHAZI al-Yawar, forseti bráða- birgðastjórnarinnar í Írak, sagði í gær að Bandaríkjamönnum hefðu orðið á mistök þegar herafli landsins og helstu ráðuneyti voru leyst upp í kjölfar þess að Saddam Hússein var steypt af stóli. „Það voru mikil mistök að leysa upp ráðuneyti landvarna og innanrík- ismála á þeim tíma,“ sagði forsetinn í viðtali við breska ríkisútvarpið, BBC. Sagði hann að kanna hefði mátt feril starfsfólks og halda þeim hluta þess sem ekki hefði gerst sekur um glæpa- verk í stað þess að leysa þessar stofn- anir upp og dæma þá sem þar unnu til atvinnuleysis. Með því móti hefði ver- ið unnt að koma í veg fyrir margvís- legan vanda. Paul Bremer, sem var borgaraleg- ur yfirmaður hernámsliðsins eftir að Saddam hafði verið steypt af stóli, leysti herafla landsins upp 23. maí 2003. Yawar forseti segir að þessi ákvörðun hafi reynst fallin til að fjölga ofbeldisverkum og grafa undan lög- um og reglu í landinu. Kvaðst Yawar hvetja til þess að þeir yfirmenn hers og lögreglu sem hefðu hreinan skjöld og ekki hefðu gerst sekir um óhæfu- verk í valdatíð Saddams fengju aftur störf sín. Írökum væri öldungis nauð- synlegt að ráða yfir liðsafla sem væri eingöngu skipaður heimamönnum. Annars mætti ólíklegt teljast að staða öryggismála batnaði í landinu. Kvaðst forsetinn hafa komið þessum sjónar- miðum sínum á framfæri við ráða- menn í Bandaríkjunum í liðinni viku. Hinn nýi herafli Íraka sem settur var á stofn í ágúst í fyrra hefur orðið fyrir þungum árásum af hálfu skæru- liða og hið sama er að segja um lög- reglusveitir þær sem einnig hefur verið komið á fót. Hundruð manna hafa týnt lífi í árásum skæruliða sem beinst hafa gegn sveitum þessum sem einungis fá þrifist með mikilli aðstoð bandaríska hernámsliðsins í landinu. „Mikil mistök að leysa her Saddams upp“ Lundúnum. AFP. ÞRETTÁN manns lágu í valnum í Bagdad í gær eftir sprengjutilræði sem hreyfing jórdanska hryðju- verkamannsins Abus Musabs al- Zarqawis lýsti á hendur sér. Bandaríkjaher hóf loftárásir að nýju á borgina Fallujah, eftir að sjö bandarískir hermenn féllu í átökum í Anbar-héraði, þótt herinn hefði áður lýst því yfir að hann hefði sigrað uppreisnarmenn í borginni. Sprengjutilræðið í Bagdad og átökin í Anbar-héraði, sem Fallujah tilheyrir, eru til marks um erfið- leika bandarísku hersveitanna í Írak nú þegar ár er liðið frá því að Saddam Hussein var tekinn til fanga. Yfirmenn hersins viður- kenna að þeir hafi vanmetið styrk uppreisnarmannanna í Írak og að nýju írösku öryggissveitirnar séu ekki enn tilbúnar að tryggja frið í landinu. Óþekktur tilræðismaður í Bagd- ad sprengdi bíl hlaðinn sprengiefni í loft upp nálægt eftirlitsstöð við Græna svæðið svokallaða, en þar eru byggingar írösku bráðabirgða- stjórnarinnar og sendiráð Banda- ríkjanna. Læknar sögðu að þrettán manns hefðu beðið bana og að minnsta kosti fimmtán særst. Þrettán falla í tilræði í Bagdad Bagdad. AP, AFP. um komin í jólaskap... ...og bjóðum upp á ilmandi kaffi og piparkökur. Verið velkomin í jólastemninguna. Dagatalið 2005 er komið!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.