Morgunblaðið - 14.12.2004, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
..
Hafnarstræti 5 - sími 551 6760 • www.veidihornid.is • Síðumúla 8 - sími 568 8410
Sendum samdægursMunið gjafabréfin
Mesta úrval landsins af veiðivörum
Ron Thompson
kastveiðisett
Ron Thompson grafit kaststöng
og Okuma Aliax hjól með
8 legum og aukaspólu.
Aðeins kr. 12.500
Creek Company Belly Boat
Hvergi betra verð á belgbátum.
Sundfit og loftdæla fylgir.
Aðeins kr. 15.900
Faulk´s flautur
Mikið úrval af flautum fyrir anda-
og gæsaveiði. Frábært verð.
Aðeins kr. 2.480
Prologic skotveiðivöðlur
4,5 mm neoprenvöðlur fyrir
skotveiðimanninn.
MAX4 camomynstur.
Aðeins kr. 12.500
Sjóveiðisett
Sjóveiðistöng, hjól og
lína á frábæru verði.
Aðeins kr. 10.900
Scierra fluguveiðisett
3ja hluta stöng, diskabremsuhjól, upp-
sett flotlína og kastkennsla á DVD.
Aðeins kr. 19.900
Allen byssutöskur
Frábært úrval af byssutöskum frá
Allen, Norinco, Mad Dog o.fl.
Aðeins frá kr. 3.995
Fyrir veiðimanninn
í fjölskyldunni þinni
Ron Thompson
nestistaska
Nestistöskur í úti-
leguna, fellihýsið
eða veiðitúrinn.
Aðeins kr. 4.995
ProLogic jakki
Vatnsheldur Max4 jakki
með útöndun.
Fleece windstop jakki fylgir.
Aðeins kr. 21.900
MAHMUD Abbas, formaður Frels-
issamtaka Palestínu (PLO), virtist í
gær eiga sigur vísan í forsetakosn-
ingum Palestínumanna sem fram
fara í byrjun janúar. Helsti keppi-
nautur Abbas dró sig í hlé um liðna
helgi en manndráp og ofbeldisverk í
gær vörpuðu skugga á þá gleði sem
ríkti í röðum stuðningsmanna næsta
forseta Palestínu.
Marwan Barghuti, einn helsti leið-
togi uppreisnar Palestínumanna, inti-
fada, skýrði frá því seint á sunnudag
að hann hygðist ekki gefa kost á sér í
forsetakosningunum 9. næsta mán-
aðar. Áður hafði Barghuti boðað
framboð en hann situr í fangelsi í Ísr-
ael og mun gera það á meðan hann
lifir þar eð hann hefur hlotið fimm
lífstíðardóma fyrir að hafa borið
ábyrgð á hryðjuverkum palestínskra
vígamanna. Mjög hafði verið þrýst á
Barghuti um að draga framboð sitt til
baka og fóru þar fremstir leiðtogar
Fatah-hreyfingarinnar. Barghuti
nýtur vinsælda á meðal alþýðu
manna en leiðtogar Fatah höfðu valið
Abbas sem fulltrúa sinn. Hótuðu þeir
að reka Barghuti úr samtökunum
drægi hann ekki framboð sitt baka.
Almennt var litið svo á að Barg-
huti, sem er 45 ára gamall, væri eini
maðurinn sem keppt gæti við Abbas
um forsetaembættið. Skoðanakann-
anir höfuð gefið til kynna að fylgi
þeirra á meðal kjósenda væri svipað.
Hinn síðarnefndi þykir því eiga sigur
vísan í forsetakosningunum sem fram
fara 9. næsta mánaðar. Hann er ekki
sagður njóta mikilar alþýðuhylli en er
virtur á erlendum vettvangi sökum
andstöðu sinnar við að Palest-
ínumenn beiti vopnum í frelsisbar-
áttu þjóðarinnar. Barghuti hefur á
hinn bóginn verið einn helsti hug-
myndafræðingur hinnar vopnuðu
andstöðu við yfirráð Ísraela.
Fögnuður í herbúðum Abbas
Kosningastjóri Abbas fagnaði
ákvörðun Barghuti í gær. „Við fögn-
um ábyrgri afstöðu bróður okkar,
Marwans,“ sagði Tayeb Abdelrahim.
„Við teljum ákvörðun hans rétta og
að hún sé til marks um að honum sé
umhugað um einingu Palest-
ínumanna og nauðsyn þess að fylgt
verði pólitískum forskriftum hins ei-
lífa leiðtoga okkar, Yassers Arafats,“
bætti hann við. Í yfirlýsingu Barghut-
is á sunnudagskvöld var lof borið á
Mahmud Abbas og sagt að hann
verðskuldaði forsetaembættið.
Fréttaskýrendur í Palestínu sögðu
í gær að ítrekuð sinnaskipti Barghuti
hefðu skaðað trúverðugleika hans.
Hann lýsti fyrst yfir því að hann
hygðist ekki gefa kost á sér í forseta-
kosningunum. Skömmu áður en
frestur til að tilkynna um þátttöku
rann út 1. þessa mánaðar skýrði hann
frá því að hann hefði skipt um skoðun
og hefði afráðið að vera í framboði. Þá
ákvörðun dró hann síðan til baka á
sunnudag líkt og áður sagði. „Margir
tóku að efast um dómgreind hans er
hann skipti sífellt um skoðun,“ sagði
fréttaskýrandinn Hani al-Masri.
„Þetta var ekki rétti tíminn fyir
Marwan. Nú er tímabært að binda
enda á uppreisnina og það er útilokað
að sjálf táknmynd uppreisnarinnar
geti tekið völdin,“ bætti hann við.
Fyrirsjáanlegur sigur Abbas í
kosningunum hefur orðið til þess að
glæða nokkuð friðarvonir í Mið-
Austurlöndum. Ariel Sharon, for-
sætisráðherra Ísraels, hefur gefið til
kynna að hann sé reiðubúinn til að
eiga samstarf við stjórn Palest-
ínumanna þegar að því kemur að
framkvæma áætlun hans um einhliða
brottflutning ísraelskra landtöku-
manna frá Gaza-svæðinu. Segja sér-
fróðir að Sharon vilji með þessu móti
treysta Abbas í sessi.
Þessi tilslökun forsætisráðherrans
virtist í gær að engu orðin eftir árás
palsestínskra vígamanna á varðstöð
Ísraelshers. Fimm hermenn voru
felldir í árásinni. Ísraelskir embætt-
ismenn lögðu á það áherslu í gær að
ekki kæmi til greina að eiga samstarf
við heimastjórn Palestínumanna tæk-
ist leiðtogum hennar ekki að hefta
starfsemi vígahópa. „Skilyrði fyrir
því að einhverjum árangri verði náð
er að hryðjuverkum linni,“ sagði Zeev
Boim, aðstoðarvarnarmálaráðherra
Ísraels. Ariel Sharon lýsti yfir því að
heimastjórn Palestínumanna hefði
ekki gert nóg til að hefta umsvif víga-
hópa. Vöktu þessi orð forsætisráð-
herrans athygli því hann hefur fram
til þessa leitast við að gagnrýna ekki
Mahmud Abbas.
Árásin á herstöðina er hin mann-
skæðasta sem palestínskir vígamenn
hafa staðið fyrir frá því að Arafat
gekk á fund feðra sinna.
Abbas á sigurinn vísan
Ramallah. AFP.
Fréttaskýring |
Marwan Barghuti hef-
ur dregið framboð sitt
til baka og þykir því
ljóst að Mahmud
Abbas fari með sigur
af hólmi í forsetakosn-
ingum Palestínu-
manna í janúar.
Reuters
Palestínumenn bera lík Ihsans Shawahne, leiðtoga hernaðararms Hamas á Vesturbakkanum. Hann féll í bardaga
við hersveit Ísraela í Nablus í gær. Daginn áður féllu fimm ísraelskir hermenn í árás Palestínumanna á varðstöð.
TRAIAN Basescu, borgarstjóri Búk-
arest og fulltrúi stjórnarandstöðunn-
ar, sigraði í forsetakosningunum í
Rúmeníu um helgina.
Samkvæmt endanlegum úrslitum
sem birt voru í gær fékk Basescu
51,23% atkvæðanna en keppinautur
hans, Adrain Nastase forsætisráð-
herra, 48,77%.
„Nú er efst á forgangslista mínum
að mynda stjórn svo fljótt sem verða
má, stjórn sem fær er um að ljúka við-
ræðum um aðild Rúmeníu að Evrópu-
sambandinu,“ sagði Basescu á fundi
með blaðamönnum. Almennt er við
því búist að Rúmenía bætist í hóp að-
ildarríkjanna 25 árið 2007.
Í máli Basescu kom fram að Nas-
tase og Ilon Iliescu, fráfarandi forseti,
hefðu óskað honum til hamingju með
sigurinn. Hermt var að ósigurinn
hefði komið Nastase mjög á óvart.
Hann fór með sigur af hólmi í fyrri
umferð kosninganna 28. fyrra mán-
aðar.
Basescu er 53 ára gamall. Hann
þykir búa yfir persónutöfrum og er
sagður eiga auðvelt með að ná til al-
þýðu manna. Hann er leiðtogi Rétt-
lætis- og sannleiksbandalagsins. Í
kosningabaráttunni lagði hann einna
mesta áherslu á nauðsyn þess að
bundinn yrði endi á þá miklu spillingu
sem fylgt hefði ríkisstjórn Nastase.
Kominn væri tími til að Rúmenar los-
uðu sig við spillta ráðamenn.
Basescu hefur iðulega verið vænd-
ur um lýðskrum en hann þykir oft
djarfur í yfirlýsingum sínum og skjót-
ur til svara sem ef til vill hefðu þarfn-
ast meiri íhugunar. Athygli vakti þeg-
ar hann lýsti yfir því að hann væri
hlynntur því að samkynhneigðum
yrði leyft að ganga í hjónaband.
Kirkjunnar menn kunnu lítt að meta
þá yfirlýsingu og komu þeirri afstöðu
sinni til skila.
Nýi forsetinn er fyrrum kafteinn í
flota Rúmeníu. Lagði hann áherslu á
að hann hefði sem slíkur jafnan þurft
að taka erfiðar ákvarðanir oft í kapp-
hlaupi við tímann og hefði hann jafn-
an verið tilbúinn til að taka afleiðing-
um gjörða sinna.
Í valdatíð kommúnista tilheyrði
Basescu flokki þeirra en afskipti af
stjórnmálum hóf hann eftir að ein-
ræðisherranum illræmda, Nicolae
Ceausescu, var steypt af stóli um jólin
1989. Hann var um skeið samgöngu-
ráðherra Rúmeníu en hefur verið
borgarstjóri Búkraest frá árinu 2000.
Forseti Rúmeníu er valdalítill en
hefur þó mikil pólitísk áhrif þar eð
hann velur forsætisráðherra landsins.
Ljóst þykir að ærið verkefni bíði
nýrra valdhafa í Rúmeníu. Gera þarf
margvíslegar breytingar m.a. á
stjórnkerfinu til að búa landið undir
ESB-aðild og þá telja margir spill-
inguna slíka í landinu að algjör bylt-
ing þurfi að verða á þeim vettvangi
landsmálanna áður en Rúmenar geta
gengið til samstarfs við aðrar þjóðir
Evrópu.
Þá ríkir pattstaða á þingi. Í kosn-
ingum sem fram fóru fyrir hálfum
mánuði fékk Sósíaldemókrataflokkur
Nastase forsætisráðherra 189 menn
kjörna en bandalag Basescus 161. Á
þingi Rúmeníu sitja 469 fulltrúar.
Kemur það nú í hlut Basescu að til-
nefna nýjan forsætisráðherra.
Rúmenskir hægrimenn sigruðu
Búkarest. AFP.
AP
Traian Basescu, borgarstjóri Búk-
arest, fagnar sigri í forsetakosning-
unum í Rúmeníu á fundi í Búkarest.