Morgunblaðið - 14.12.2004, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.12.2004, Blaðsíða 19
Óvissa er óþægileg og það er slæmt að búa við óvissu. Engum hefur dulist óvissan sem ríkt hefur um herstöðina á Keflavík- urflugvelli og ekki alls fyrir löngu bárust okkur enn á ný óvissufréttir, nú varðandi stálpípuverksmiðju í Helguvík. Á und- anförnum tveimur árum hefur hátt í 200 starfsmönnum verið sagt upp í herstöðinni og búa margir þeirra í Reykjanesbæ. Nokkuð ljóst þykir að um enn frekari sam- drátt verði að ræða og á endanum muni jafnvel aðeins flugdeildin verða eftir. Nokk- urrar gremju gætir vegna þeirra stað- reyndar að ákvarðanirnar virðast að mestu hafa verið einhliða frá Bandaríkjamönnum. Þegar samdráttur herstöðvarinnar hefur borið á góma hafa menn oft og tíðum flagg- að fyrirhugaðri stálpípuverksmiðju í Helguvík, enda ljóst að nokkur hundruð störf muni skapast þar. Fyrir nokkru varð hins vegar ljóst að enn yrðu tafir.    Það var ekki hugmyndin að vera með neikvæðni og leiðindi, enda engin ástæða til þess þó óvissa ríki á einhverjum víg- stöðvum, aðrar hafa styrkst. Fyrir skemmstu var árlegt Bókakonfekt í Reykjanesbæ, þar sem höfundar og tónlist- arfólk kemur saman, les og flytur tónlist gestum til yndis og ánægju. Gestur á Bóka- konfekti hefur fjölgað jafnt og þétt og í ár voru þeir um 160. Engin furða að Þráinn Bertelsson skyldi hafa orð á því að jóla- stressið næði greinilega ekki til íbúa í Reykjanesbæ. Hann sagði jafnframt að þetta hlyti að vera aðsóknarmet miðað við höfðatölu. Þá fékk ég þær fréttir á konfekt- inu að 13 manns höfðu hlýtt á lestur úr bók- um á Seltjarnarnesi kvöldið áður. Einkar ánægjulegt hvað menningarlífið hefur farið uppávið í Reykjanesbæ og ég hef fulla trú á því að svo verði áfram.    Þá er ekki langt síðan kynntar voru stór- ar hugmyndir í ferðamálum á Reykjanesi, Blái demanturinn, Blue Viking, Big Blue, Blue Energy og Blue Lagoon. Bláa lónið kannast flestir við og Blue Energy er hug- mynd varðandi nýtt orkuver Hitaveitu Suð- urnesja. Blue Viking og Big Blue eru hins vegar óður til framtíðar, víkingaheimar á Fitjum og sjávarsetur við Hafnir. Enn er ónefnd íþróttaakademía í Reykjanesbæ sem áætlað er að verði tekin í notkun á næsta ári. Það er því ljóst að brett hefur verið upp á ermarnar í Reykjanesbæ og í ljósi mikillar framkvæmdagleði í bænum er ekki að furða þó meiri slagsíða hafi komið á bæjarsjóð en áætlanir voru uppi um. EFTIR SVANHILDI EIRÍKSDÓTTUR BLAÐAMANN REYKJANESBÆR Úr bæjarlífinu Höfuðborgin | Akureyri | Austurland Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Bókakynning verðurá BæjarbókasafniÖlfuss í Þorláks- höfn nk. fimmtudag kl. 20. Þá les Þráinn Bertelsson upp úr bók sinni Dauðans óvissi tími, Þóra Sigríður Ingólfsdóttir les upp úr þýðingu sinni á bókinni Munkurinn sem seldi sportbílinn sinn, eftir Rob- in S. Sharma, Sigmundur Ernir Rúnarsson les upp úr Barn að eilífu, Ragna Erlendsdóttir og Halla Kjartansdóttir lesa upp úr bókinni Vængjatök, hug- verk sunnlenskra kvenna, og Jónas Ingimundarson les upp úr ævisögu sinni, Á vængjum söngsins, sem skráð er af Gylfa Gröndal. Inn á milli mun Hlín Pétursdóttir syngja ýmis lög. Bókakynning Jólaþorpið við Hafn-arborg í Hafn-arfirði er vinsæll viðkomustaður á aðvent- unni, og um helgina leit Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í heim- sókn til að skoða hvað væri á boðstólum. Þorpið er gert að þýskri fyr- irmynd, þar eru um 20 söluhús þar sem boðið er upp á ýmsar vörur sem tilheyra jólunum. Morgunblaðið/Þorkell Forseti Íslands heimsótti jólaþorpið Dagný Jónsdóttir,þingmaðurFramsóknar, sat hjá þegar frumvarp um hækkun innritunargjalda við HÍ var samþykkt á Alþingi, en hafði áður barist gegn slíkri hækk- un sem framkvæmda- stjóri Stúdentaráðs. Hall- mundur Kristinsson yrkir: Afstöðu sína illa skildi. Eitt hún sagði en meint́ekki. Það sem stelpan styðja vildi studdi hún bara hreint ekki. Hjálmar Freysteinsson bætir við: Sumir þannig sannfæringu sína tjá þeir segja nei og síðan já og sitja loks hjá. Davíð Hjálmar Haralds- son yrkir: Glepur prjálið þá á þingi, þar er stiginn hrunadans. Skólagjöld í skrautbúningi skáka fötum keisarans. Innritunargjöld pebl@mbl.is Mývatnssveit | Á nokkrum heimilum í Mývatnssveit hafa menn það fyrir sið að sækja sér stóra birkihríslu út í hraun og hafa fyrir jólatré. Þvílík jólatré eru ekki síðri í stofu heldur en barrviðir. Aðr- ir taka smærri greinar og láta í vatn þannig að þær laufgist um jólin. Hér er Guðrún Þór- arinsdóttir í Helluhrauni, Reykjahlíð, að sækja sér birkigreinar í Hlíðarkamb. Hún ætlar að setja þær í vatn fram til jóla. Birkitrén eru fínustu jólatré Skraut Skagafjörður | Byggðaráð Sveitarfé- lagsins Skagafjarðar telur eðlilegt að verða við óskum Vegagerðarinnar um að Þverárfjallsveg- ur tengist Sauð- árkróki með brú á ósa Göngu- skarðaár. Sú leið er talin 40 milljónum kr. ódýrari en efri leiðin sem ligg- ur á svipuðum stað og núver- andi vegur yfir Gönguskarðaá. Fyrri sveitar- stjórn Skagafjarðar valdi neðri leiðina sem liggur norður úr bænum og á brú yf- ir ósa Gönguskarðaár og þaðan í boga upp Gönguskörð. Eftir að fyrirtæki á þessu svæði, sem flest eru tengd Kaup- félagi Skagfirðinga, óskuðu eftir því að gamla leiðin yrði frekar valin var það samþykkt í sveitarstjórn. Gísli Gunnars- son, forseti sveitarstjórnar, segir að at- huganir hafi síðan leitt það í ljós að efri neðri leiðin væri betri til framkvæmda og ódýrari. Tillaga samgöngunefndar bæj- arins um að aftur yrði snúið til neðri leið- ar var felld í sveitarstjórn fyrr á þessu ári. Tillaga byggðaráðs sama efnis fer í dag fyrir sveitarstjórn og Gísli kvaðst ekki geta sagt til um niðurstöðu málsins. Í rökstuðningi byggðaráðs fyrir neðri leiðinni kemur fram að sú leið myndi flýta fyrir gerð Þverárfjallsvegar til hagsbóta fyrir íbúa og fyrirtæki í sveitar- félaginu. Eftir er að lagfæra veginn frá vegamótum Skagavegar og niður á Sauð- árkrók. Vegagerðin hefur uppi áform um að ráðast í tenginguna við Sauðárkrók og fyrstu kílómetrana þeim megin og hefur liðlega 100 milljóna króna fjárveitingu til þess. Fulltrúi Framsóknarflokksins sat hjá við afgreiðslu málsins í byggðaráði. Tillaga um nýja tengingu Þverár- fjallsvegar             Útsvar hækkar í Hveragerði | Gert er ráð fyrir að hækkað álagningarhlutfall út- svars skili bæjarsjóði Hveragerðis 1,5 milljónum kr. á næsta ári, samkvæmt fjár- hagsáætlun bæjarins sem lögð hefur verið fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Út- svarið verður 13,03% og álagningarheim- ildir því að fullu nýttar. Jafnframt verður álagningarhlutfall fasteignagjalda til fyr- irtækja hækkað úr 1,41 í 1,6%. Þrátt fyrir hækkun tekna er útlit fyrir halla á rekstri bæjarsjóðs. ♦♦♦ Sandgerði | Fimmtán til sextán bátar voru bundnir við flotbryggjur sem slitnuðu frá landi og ráku út á höfnina í gærmorgun. Hafnarstarfs- mönnum og sjómönnum tókst að losa bátana frá og festa bryggjurnar til bráðabirgða. Í gær var unnið við að koma bryggjunum á sinn stað. Í gærmorgun fór það saman að hvöss suðvestanátt stóð inn í smá- bátahöfnina og stórstreymi. Skapaði það mikið öldurót í höfninni. Svo- kölluð Brúsabryggja slitnaði frá landi og rak aðeins út á höfnina með bátum á. Þá losnaði fremsti hluti steinsteyptrar flotbryggju frá og fór sömu leið. Á myndinni sést Brúsa- bryggjan en framhluti steinbryggj- unnar er yfirgefinn úti á höfninni. Innri hluti steinsteyptu flotbryggj- unnar sleit af sér festingar og lagð- ist upp að grjótgarðinum. Við hana voru margir bátar. Fljótlega var hægt að komast út í báta og draga bryggjuna frá grjótinu. Sveinn Ein- arsson hafnarvörður sagði að 15 til 20 manns hefðu verið við björg- unarstörf. Flotbryggjur rak með báta út á höfnina Morgunblaðið/Reynir Sveinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.