Morgunblaðið - 14.12.2004, Side 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Íbúð á Akureyri eða nágr. óskast
Þýsk hjón óska eftir að kaupa íbúð, u.þ.b. 55 fm, á Akureyri eða nágrenni.
Hafið samband með símbréfi eða síma +39 212 10 14 1, helst á þýsku.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
Þjónustusamningur | IMG á Ak-
ureyri og SÍMEY, Símennt-
unarmiðstöð Eyjafjarðar, hafa gert
með sér þjónustusamning þess efnis
að tilgreindir starfsmenn IMG, Eva
Hrund Einarsdóttir og Sigríður
Ólafsdóttir, taki að sér að þjónusta
viðskiptavini SÍMEY í Markviss
verkefnum. Markviss hugmynda-
fræðin er þjónusta sem SÍMEY hef-
ur boðið upp á um nokkurt skeið.
Markviss er heiti á aðferð sem
snýr að ráðgjöf, handleiðslu og
greiningu m.a. í fræðslu- og
starfsþróunarmálum fyrirtækja og
stofnana. Rúmlega 20 fyrirtæki hafa
nýtt sér þessa þjónustu ráðgjafa á
vegum SÍMEY.
Skákmót | Stefán Bergsson og
Sigurður Eiríksson urðu efstir og
jafnir með 7 vinninga af 9 mögu-
legum á 10 mínútna móti Skák-
félags Akureyrar en Stefán varð
hærri á stigum. Í þriðja sæti varð
Unnar Þór Bachmann með 6,5
vinninga og í fjórða sæti varð Ey-
mundur Eymundsson með 5 vinn-
inga.
Upplestur | Halldór Guðmunds-
son og Njörður P. Njarðvík lesa úr
nýútkomnum bókum sínum í Amts-
bókasafninu á fimmtudag, 16. des-
ember, kl. 17.15.
Halldór Laxness: ævisaga eftir
Halldór Guðmundsson hefur verið
tilnefnd til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna. Bók Njarðar P.
Njarðvík, Eftirmál, hefur einnig
fengið mjög góða dóma en þar seg-
ir frá langri baráttu sonar hans við
fíknina.
Dalvík | Það var mikið um að vera í
Ittoqqortoormiit, nyrsta þorpinu á
Austur-Grænlandi á dögunum. Þar
var verið að kveikja á jólatré bæj-
arins, sem Dalvík, vinabær þess á Ís-
landi, sendi þeim. Kór þorpsins söng
og jólasveinn var að sjálfsögðu líka
viðstaddur. Með trénu fylgdu jóla-
gjafir frá ýmsum félagasamtökum
og einstaklingum á Íslandi til allra
barna í þorpinu á aldrinum 0-13 ára.
Starfsstúlkur Ferðaskrifstof-
unnar Nonna pökkuðu gjöfunum inn
og merktu, en það var einmitt að
frumkvæði ferðaskrifstofunnar að
gjafirnar og jólatréð voru send til
Grænlands. Jólapokar bárust einnig
frá súkkulaðiverksmiðjunni Lindu.
Flugfélag Íslands og Air Alpha sáu
um að koma öllu á leiðarenda að
kostnaðarlausu auk þess sem Flug-
félagið gaf öllum börnunum húfur og
sælgæti. Allt fór þetta hið besta
fram og vakti ánægju hjá öllum íbú-
um þorpsins.
Starfsfólk Ferðaskrifstofunnar
Nonna þakkar öllum, sem að þessu
stóðu með því og gerðu þetta mögu-
legt og vill jafnframt koma á fram-
færi innilegum þökkum og jóla-
kveðjum frá íbúum
Ittoqqortoormiit.
Fengu gjafir Grænlensku börnunum afhentar gjafirnar frá Íslandi.
Jólastemmning
á Grænlandi
FLJÓTLEGA eftir áramótin
hyggst krulludeild Skautafélags
Akureyrar standa fyrir fyrirtækja-
og hópakeppni í krullu – eða curl-
ing eins og íþróttin heitir á ensku.
Ætlunin er að gefa nýju fólki tæki-
færi til að kynnast íþróttinni og
reyna sig í skemmtilegri keppni.
Engin takmörk eru á því hve mörg
lið hver vinnustaður, félag eða
hópur getur sent. Þátttaka er ekki
takmörkuð við vinnustaðalið, held-
ur geta til dæmis vinahópar,
saumaklúbbar eða annars konar
hópar tekið sig saman og sent lið
til keppninnar.
Keppt er í fjögurra manna liðum
sem geta verið blönduð konum og
körlum eða þá skipuð körlum eða
konum eingöngu ef því er að
skipta.
Endanleg ákvörðun um tíma-
setningu og fyrirkomulag mótsins
hefur ekki verið tekin en slíkt fer
væntanlega nokkuð eftir þátttöku.
Nú í desember gefst kjörið
tækifæri til æfinga þar sem ekkert
mót stendur nú yfir og því auðvelt
að komast á svellið í æfingatímum
krulludeildar.
Næstu vikurnar verður tekið
sérstaklega vel á móti nýju fólki,
þar sem sýndar verða réttu að-
ferðirnar og fólki leiðbeint og
hjálpað eins og kostur er. Byrj-
endur þurfa ekki að eiga neinn
sérstakan útbúnað annan en hent-
ugan fatnað og nokkuð stama skó.
Best er að vera í hlýjum fatnaði og
teygjanlegum, til dæmis flíspeysu
og íþróttabuxum en mismunandi
er hvað hentar hverjum og einum.
Annar nauðsynlegur búnaður er til
í Skautahöllinni, segir í fréttatil-
kynningu krulludeildar.
Fyrirtækja- og
hópakeppni í krullu
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
Á ÞESSUM degi fyrir sjötíu árum
komu nokkrir ágætir menn saman
til fundar í Reykjavík í þeim til-
gangi að stofna golfklúbb. Hann
hlaut nafnið Golfklúbbur Íslands,
enda fyrsti og þá eini golfklúbbur
landsins, en síðar var nafninu
breytt í Golfklúbbur Reykjavíkur
þegar fleiri klúbbar urðu til.
Aðdragandann að stofnun
klúbbsins má raunar rekja til
Kaupmannahafnar þar sem nokkr-
ir Íslendingar, er voru við nám og
störf, kynntust golfíþróttinni. Þar
voru í fararbroddi menn eins og
Sveinn Björnsson, síðar forseti Ís-
lands, Gunnlaugur Einarsson,
læknir og formaður klúbbsins
fyrstu árin, og Valtýr Albertsson
læknir.
Sumarið 1935 var síðan fyrsta
golfmótið haldið í Laugardalnum
og þótti það stórviðburður í borg-
arlífinu. Fullvíst má telja að marg-
ir hafa haldið að þarna væri um að
ræða eitthvert stundargaman hjá
heldra fólki borgarinnar sem fljótt
félli í gleymsku. Reyndin varð hins
vegar allt önnur.
Að sögn Gests Jónssonar, for-
manns Golfklúbbs Reykjavíkur
(GR), eru nú um 2.200 félagsmenn
í GR og komast færri að en vilja,
því um 600 manns eru á biðlista
eftir því að komast inn í klúbbinn.
„Við höfum engin svör getað veitt
þessu fólki um það hvenær það
komist inn m.a. vegna þess að við
höfum ekki fengið svör við því
hvenær við fáum að stækka golf-
völlinn á Korpúlfsstöðum í 27 hol-
ur. Nú tökum við umsækjendur
inn í klúbbinn af biðskránni sem
svarar til fjölda þeirra sem hætta í
klúbbnum. Það eru hins vegar ekki
mjög margir sem hætta á hverju
ári því þeir sem það gera vita að
erfitt kann að verða fyrir þá að
komast inn að nýju.“
Gestur segist þó bjartsýnn á að
stutt sé í að ákvörðun verði tekin
hjá borgaryfirvöldum um að
stækka Korpúlfsstaðavöllinn.
„Sjálfum finnst mér meira aðkall-
andi að byggja upp aðstöðu í borg-
inni fyrir þá sem vilja stunda
íþróttir en að byggja upp aðstöðu
fyrir áhorfendur, þótt það kunni
líka að vera mikilvægt.“ Spurður
hvernig útskýra megi vinsældir
golfsins segir Gestur það liggja í
eðli íþróttarinnar. „Golfið uppfyllir
í raun flestar þær kröfur sem fólk
gerir til heilbrigðrar tóm-
stundaiðkunar þar sem þessu
fylgir útivist, mikill og góður fé-
lagsskapur, mikil hreyfing en sá
sem spilar golfhring gengur u.þ.b.
10 km í hvert skipti sem hann spil-
ar 18 holna hring.“
Aðspurður segir Gestur golfið
höfða til allra aldurshópa. „Á und-
anförnum árum hefur golfið breyst
úr því að vera íþrótt fullorðinna
karlmanna yfir í það að vera ein-
hver vinsælasta fjölskylduíþrótt
sem til er. Þannig er rúmlega
fjórðungur félagsmanna í GR kon-
ur og fer það hlutfall vaxandi. Á
umliðnum árum höfum við einnig
gert sérstakar ráðstafanir til að
tryggja að börn geti stundað golfið
þó að þau lendi því miður inni á
biðlistanum núna vegna þess að
við getum ekki tekið við fleiri fé-
lagsmönnum eins og stendur. En
við þjónum mörg hundruð krökk-
um í okkar starfsemi þó að þeir
séu ekki allir félagsmenn,“ segir
Gestur og vísar þar m.a. til rekst-
urs golfskóla GR þar sem boðið er
upp á námskeið fyrir börn og ung-
linga.
2,8 milljónir bolta hafa
verið slegnir í Básum
Í tilefni afmælisárs Golfkúbbs
Reykjavíkur var nýtt æfingasvæði,
Básar í Grafarholtinu, tekið í notk-
un fyrr í sumar. „Það má segja að
við höfum tekið forskot á afmælið
og haldið upp á það 19. júní sl.
með vígslu Bása og sérstöku af-
mælisgolfmóti, enda ekki hlaupið
að því að halda upp á afmæli golf-
klúbbs í svartasta skammdeginu í
miðjum desember.“
Aðspurður segir Gestur for-
svarsmenn GR hafa átt von á mik-
illi notkun Bása. „En sú notkun
sem orðið hefur í reynd er langt
umfram það sem nokkur maður
þorði að vona. Opið hefur verið í
Básum alla daga síðan þeir voru
opnaðir 19. júní sl., sama hvernig
viðrað hefur, og nú þegar er búið
að slá 2,8 milljónir bolta í Básum.“
Aðspurður segir Gestur rúmlega
sjötíu manns geta slegið í Básum á
góðviðrisdegi að sumri, en á vet-
urna er efstu hæðinni af þremur
lokað, þannig að milli 40 og 50
manns komast að í einu á þessum
árstíma. En til þess að fólk geti
stundað golfið yfir veturinn er
bæði flóðlýsing á svæðinu og hita-
lampar sem hlýja kylfingum í
frostinu.
Gestur segir aðstöðuna í Básum
lengja æfingatíma kylfinga til
muna, enda geti þeir nú æft við
góðar aðstæður allt árið. „Við trú-
um því að það muni bæði veita
mönnum ánægju og ekki síst gera
menn að betri kylfingum,“ segir
Gestur Jónsson að lokum.
Sjötíu ár í dag frá stofnun Golfklúbbs Reykjavíkur
Færri komast að en vilja
Sveinn Snorrason þakkar golfinu
góða heilsu, en hann hefur spilað
golf í rúmlega hálfa öld.
Morgunblaðið/Jim Smart
Stöðugt vinsælla „Golfið uppfyllir í raun flestar þær kröfur sem fólk gerir
til heilbrigðrar tómstundaiðkunar þar sem þessu fylgir útivist, mikill og
góður félagsskapur auk mikillar hreyfingar,“ segir Gestur Jónsson.
Markús Sveinn Markússon hefur
nýtt sér Bása mest allra kylfinga
frá því aðstaðan var opnuð í sumar.
„ÞAÐ hefði nú þótt mikill lúxus að
hafa svona góða aðstöðu þegar ég
var að byrja í golfinu fyrir rúmum
fimmtíu árum,“ sagði Sveinn
Snorrason þegar blaðamaður kom
við í Básum síðdegis í gær. Sveinn,
sem er fyrrverandi stjórnarmaður í
Golfklúbbi Reykjavíkur (GR) og
fyrrverandi forseti Golfsambands
Íslands (GSÍ), hóf að spila golf árið
1952 og þakkar golfinu góða heilsu
og hraustleika sinn. „Enda er ég
sannfærður um að ég væri löngu
dauður ef ég hefði ekki spilað golf
öll þessi ár,“ segir Sveinn kíminn.
Spurður hvað það sé helst við
sportið sem heillar segir Sveinn það
vera samspilið af útiveru, fé-
lagsskap og hreyfingu. Hann segir
geysilega mikla breytingu með til-
komu Básanna þar sem nú geti
hann æft allan veturinn. „Ég reyni
að fara út á völl á hverjum degi og
leika heilan hring, en þegar veður
er vont er gott að geta komið hing-
að og leikið í skjólinu.“
Samkvæmt skrám Bása um mæt-
ingu kylfinga er Markús Sveinn
Markússon sá kylfingur sem mest
hefur nýtt sér æfingaaðstöðuna í
Básum síðan hún var opnuð. Hann
segir mjög mikinn mun á að slá úti
við eins og í Básum eða inni eins og
á Korpúlfsstöðum. „Hér er fyr-
irmyndaraðstaða, gott skjól og flóð-
lýsing á kvöldin, sem gerir það að
verkum að maður sér boltann jafn-
vel betur í þeirri lýsingu en í venju-
legri dagsbirtu.“ Aðspurður segir
Markús sig verulega farið að þyrsta
í að spila á velli, enda búinn að æfa
sig afar vel síðustu mánuði.
Væri löngu dauður án golfsins