Morgunblaðið - 14.12.2004, Side 21

Morgunblaðið - 14.12.2004, Side 21
Fuglar óhultir | Fuglum stafar hvorki hætta af virkjunarfram- kvæmdum við Kárahnjúka né Norð- lingaöldu. Þetta er niðurstaða fasta- nefndar Bernarsamningsins um vernd villtra dýra, plantna og vist- gerða í Evrópu. Nefndin hélt árleg- an fund sinn í Strasbourg um mán- aðamótin nóvember-desember. Fulltrúar Íslands á fundinum voru Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands, og Kristinn Haukur Skarphéðinsson fuglafræðingur. Á vefsvæði umhverfisráðuneyt- isins kemur fram að á fundinum hafi fastanefndin m.a. afgreitt kæru nokkurra innlendra og erlendra fuglaverndarfélaga á hendur ís- lenska ríkinu sem lögð var fram og rædd á fundi nefndarinnar fyrir ári síðan. Í kærunni var sett fram ásökun um að Ísland væri að brjóta nokkur ákvæði Bernarsamningsins með því að heimila virkjanaframkvæmdir við Kárahnjúka og Norðlingaöldu, sem stofnuðu fuglategundum í hættu sem eru verndaðar af samningnum. Á fundinum var lögð fram skýrsla frá óháðum sérfræðingi á vegum skrifstofu samningsins um Kára- hnjúkavirkjun og Norðlingaöldu- veitu og líkleg áhrif virkjananna á lífríki á áhrifasvæði þeirra, einkum á fugla. Töluverð umræða varð um málið, en að henni lokinni ályktaði fund- urinn að engin fuglategund vernduð af samningnum myndi verða fyrir al- varlegum áhrifum frá virkj- unarframkvæmdum við Kárahnjúka eða Norðlingaöldu. Fastanefndin taldi ekki ástæðu til frekari aðgerða og lokaði málinu. Jón Gunnar Ottósson, fulltrúi Ís- lands í fastanefndinni, var á fund- inum kosinn varaformaður Bern- arsamningsins og tekur með því sæti í 3 manna stjórn hans. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 21 MINNSTAÐUR AUSTURLAND Fáskrúðsfjörður | Austfirðingar eru manna duglegastir við að skreyta utan og innan dyra fyrir jólin. Hugmyndir að skreytingum ná nýjum hæðum á hverju ári og láta Fáskrúðsfirðingar ekki sitt eftir liggja í uppátækjunum hvað þetta varðar. Fréttaritari Morgunblaðs- ins á staðnum rakst á þennan himnastiga í bænum, en af honum virðast jólasveinkar og snjókarlar komast í efstu fjallsbrúnir, gott ef ekki til himna. Morgunblaðið/Albert Kemp Himnastigar Neskaupstaður | Kaupmaðurinn á horninu, Ásvaldur Sigurðsson, sem til margra ára hefur rekið mat- vöruverslunina Nesbakka í Neskaup- stað, gefur stórkaupmönnum sem nú herja á Austurland langt nef. Hann hefur nú fyrir jólavertíðina stækkað verslun sína um helming. Þar fæst nú allt milli himins og jarðar, allt frá mjólkurpottum í ísskápinn til hæg- indastóla í stofuna. Ásvaldur segir þessa stækkun einfaldlega vera hluta af því breytta verslunarumhverfi sem nú þekkist. „Að sjálfsögðu er litli dvergurinn hræddur við stóra risann. En með þessari stækkun vildi ég renna fleiri stoðum undir verslunina,“ segir Ásvaldur um það hvort hann sé ekki smeykur við samkeppnina frá stóru verslununum á svæðinu. Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Rennir stoðum undir reksturinn Ásvaldur Sigurðsson kaupmaður hefur stækkað verslun sína, Nesbakka í Neskaupstað, um helming. Gefur stórkaup- mönnum langt nef Sjóvá með lægsta tilboð | Í vik- unni voru opnuð tilboð í tryggingar Fjarðabyggðar. Þrjú tryggingar- félög buðu í tryggingarnar en um er að ræða tryggingar sveitarfélagsins alls og fyrirtækja til næstu fjögurra ára frá 1. janúar nk. að telja. Sjóvá- Almennar áttu lægsta tilboðið, tæp- ar 6,7 milljónir króna, en tilboð VÍS og Tryggingamiðstöðvarinnar voru um einni milljón króna hærri. Til- boðin verða yfirfarin á næstu dögum og lögð fyrir bæjarráð næsta mánu- dag til afgreiðslu.                                     Suðurveri • Glæsibæ • Húsgagnahöllinni • Mjódd Gómsætar kynningar alla daga fram að jólum í Mjódd • S: 557 9060 Jólavörurnar komnar Frábærir Ítalskir götuskór með dempun í hæl fyrir dömur og herra Ekta leður Skóbúðin Mjódd sími 557-1291 Mikið úrval af úrum frá FOSSIL verð frá 6.900.- í Mjódd S: 567 3550

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.