Morgunblaðið - 14.12.2004, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 25
DAGLEGT LÍF
Opnunartími:
11-18:30 mán-fös
10-18 lau / 13-17 sun.
Skútuvogi 2, sími 522 9000 • www.expert.is
Í vélinni er nýi Intel Prescott
örgjörvinn ásamt Kingston
vinnsluminni með eilífðarábyrgð,
hljóðlátur harður diskur, netkort,
geislaskrifari, XP Pro
og margt fleira.
verð 89.900.-
Skrifstofuvélin sem uppfyllir
ítrustu kröfur nútímans.
Spurning: Fyrir nokkru heyrði ég að lyfið
glúkósamín, sem selt er hér undir heitinu
Liðamín eða Liðaktín, hefði verið tekið úr
sölu í Danmörku vegna gruns um óæskileg-
ar aukaverkanir. Hvað er vitað um þetta?
Svar: Glúkósamín er efni sem finnst í lík-
amanum og er til staðar í flest-
um vefjum, m.a. liðum. Þetta
efni hefur náð miklum vinsæld-
um á undanförnum árum við
óþægindum sem fylgja slitgigt.
Til marks um vinsældirnar hér
á landi má nefna að margir
tugir framleiðenda eru með
vörur sem innihalda glúkósamín á markaði
en ekki er vitað hve margir nota efnið að
staðaldri.
Slitgigt er algengur sjúkdómur og því má
telja líklegt að mjög stór hópur fólks noti
þetta efni. Í mörgum tilfellum er glúkósamín
unnið úr skeldýraskel, einkum rækjuskel, og
hingað til hefur það verið talið tiltölulega
meinlaust. Glúkósamín breytist í líkamanum
í efni sem taka þátt í myndun brjósks og
talið er að það geti stuðlað að brjóskmyndun
í liðum þar sem slitgigt hefur valdið brjósk-
eyðingu. Allmargar rannsóknir á sjúklingum
með slitgigt hafa sýnt árangur af meðferð
með glúkósamíni og nú er nokkuð almennt
viðurkennt að efnið geri gagn, a.m.k. hjá
sumum slitgigtarsjúklingum. Ekki er vitað
hvort glúkósamín hefur áhrif á gang sjúk-
dómsins eða hvort það dregur einungis úr
óþægindum og verkjum sem fylgja slitgigt.
Það hefur verið vitað lengi að efnið getur
haft aukaverkanir í för með sér og nokkuð
algengt er að fólk fái t.d. magaverki, harðlífi
eða niðurgang, ógleði, höfuðverk, þreytu,
kláða og útbrot.
Nýlega sendi danska lyfjastofnunin út að-
vörun vegna tilkynninga um hugsanlegan
þátt glúkósamíns í hækkun blóðfitu (kólest-
eróls), kransæðastíflu og lungnablóðreki
(efnið var þó ekki tekið af markaði). Hér er
um alvarlega hluti að ræða og full ástæða til
að fylgjast vel með framvindu
þessa máls. Í nokkrum tilvikum
var um að ræða talsvert mikla og
vel staðfesta hækkun á kólesteróli
í blóði hjá sjúklingum sem höfðu
tekið glúkósamín daglega í 6–12
mánuði. Glúkósamín var lengst af
á markaði sem fæðubótarefni og
þannig er því enn háttað hér á landi. Á und-
anförnum árum hafa stöðugt fleiri lönd verið
að flokka glúkósamín sem lyf og nú er svo
komið að efnið er flokkað og markaðssett
sem lyf í a.m.k. 17 löndum af þeim 27 sem
mynda Evrópska efnahagssvæðið. Staðan er
þannig núna að sterkar vísbendingar eru um
að glúkósamín geti hækkað kólesteról í blóði
en það er einn af áhættuþáttum hjarta- og
æðasjúkdóma. Verið er að kanna málið nán-
ar í Evrópu og ekki er hægt að fullyrða
neitt fyrr en þeirri rannsókn lýkur. Einnig
er verið að endurmeta hlutfall ábata og
áhættu við að taka glúkosamín og þeir sem
nota efnið daglega ættu að fylgjast með
þeirri umfjöllun sem örugglega verður í fjöl-
miðlum um þetta mál.
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR
SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Sterkar vísbend-
ingar eru um að
glúkosamín geti
hækkað kólest-
eról í blóði.
Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækn-
inn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið er á
móti spurningum á virkum dögum milli klukkan
10 og 17 í síma 5691100 og bréfum eða sím-
bréfum merkt: Heilsa. Fax 5691222. Einnig geta
lesendur sent fyrirspurnir sínar með tölvupósti
á netfang Magnúsar Jóhanssonar: elmag-
@hotmail.com.
Er glúkósamín hættulegt?
Sigríður Gunnarsdóttir:
„Allar fjölskylduhefðir.“
HVAÐ ER ÓMISSANDI Á JÓLUM?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hefðirnar
Það er yfirleitt jóla-legt um að litast íhúsakynnum Hand-verks og hönnunar
á þessum tíma árs. Enda
stendur þá yfir árleg jóla-
sýning verkefnsins sem skip-
að hefur sér fastan sess í
jólaundirbúningi margra,
jafnt lista- og handverks-
fólks sem og þorra alls al-
mennings sem nýtur þess að
skoða það fjölbreytta úrval
handgerðra jólamuna sem
þar er hægt að finna.
Páll Garðarsson er einn
þeirra rúmlega þrjátíu aðila
sem verk eiga á sýningunni,
sem er sú sjötta í röðinni og
nefnist að venju „Allir fá þá
eitthvað fallegt...“. Munir
Páls hafa vakið umtalsverða
athygli sýningargesta sem
keppst hafa við að leggja inn
pantanir fyrir glettilegum
hreindýrum og líflegum
englum sem virðast engu
minna önnum kafnir í jóla-
stússinu á skýjabreiðunum
en við á jörðu niðri.
Það var líka hjálpsemi
englanna og sú verndarhendi
sem margir vilja meina að
þeir haldi yfir okkur sem
varð kveikjan að englum
Páls. „Margir hafa þá hug-
mynd að englar verndi okk-
ur og þeir sem praktískari
eru segja þá gjarnan líka
hjálpa okkur í dagsins önn,
til dæmis á aðventunni þegar
allir eru á þönum. Og út frá
þessu kviknaði hugmyndin,“
segir Páll.
Englarnir eiga sér um
átta ára sögu og tengjast
vinnu sem Páll var þá í.
„Þeir urðu eiginlega til fyrir
tilviljun. Ekkert framhald
varð hins vegar á því verk-
efni á þeim tíma, en ég hélt
áfram að prufa mig áfram og
velti fyrir mér hvort ekki
mætti nota þessar fígúrur
eitthvað.“
Páll er ekki lærður tré-
smiður en hefur setið eitt
tálgunarnámskeið og má því
segja að þetta handverk sé
honum í blóð borið. Hann er
enda ekki hræddur við að
nýta sér mismunandi efnivið,
því að þó að tré og pappír
leiki áberandi hlutverk í
hönnun Páls þá á hann einn-
ig til að nota pallíettur og
fjaðraskraut svo dæmi séu
tekin. Verurnar eru líka all-
ar sérstakar og því liggur
töluverð vinna að baki hverri
og einni.
„Ég er frekar lengi með
hvern engil. Þetta verður
einhvern veginn frekar sein-
leg vinna þó maður ætli sér
að vera fljótur. Það tekur
líka sinn tíma að gera þá
þannig að hver fái sinn ein-
staklingssvip og það er
nokkuð sem fólk tekur eftir.
Því þó þeir séu margir, talar
fólk um að hver sé með sínu
svipmóti og svo virðist sem
margir spái ekki minna í það
en þau ólíku hlutverk sem
þeir gegna.“
HÖNNUN
Himneskir her-
skarar á jörðu niðri
Á fullri ferð: Englarnir sem geta líka notið sín vel sem glugga-
skraut eru á engu minni þönum en við í jólaundirbúningnum.
annaei@mbl.is
Morgunblaðið/Þorkell
Litlir einstaklingar: Hver og ein af verum Páls hefur sinn sérstaka svip.
HJÁ rannsókna- og þróunar-
deild Siemens í Þýskalandi
er nú í þróun búnaður í far-
síma sem gerir hann að n.k.
fartölvu. Með einum hnappi
verður hægt að búa til leysi-
geislalyklaborð við farsím-
ann. Frá þessu var greint í
vísinda- og tækniþættinum
Schrödingers Katt í norska
ríkissjónvarpinu nýlega. Inn-
rauðir geislar nema hreyf-
ingar fingranna, að sögn Sø-
rens Haubolds, verkfræðings
hjá Siemens. Næsta skref er
að búa til skjá með sama
hætti. Að mati Siemens-
manna verður farsíminn eitt
aðaltækið um ókomna fram-
tíð. Þar verður hægt að
horfa á kvikmyndir og jafn-
vel verður síminn hluti af
klæðnaði okkar og þráðlaus
hátalari í eyranu.
TÆKNI
Farsími
eða fartölva?