Morgunblaðið - 14.12.2004, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 14.12.2004, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 31 UMRÆÐAN Strandgata 32 • S. 555 2615 opið Laugardag 10 - 16 & Sunnudag 13 - 17 JÓLATILBOÐ Tilboð 1: kr. 20.000,- Göngu-, tölvu-, sjónvarps- eða lesgleraugu. Fjölskipt gleraugu, þ.e. fjær- + lesgleraugu. Tilboð 2: kr. 40.000,- púlsmælar í alla hreyfingu! Úrsmíðaverkst. Halldórs Ólafssonar Glerártorgi Akureyri Guðmundur V. Hannah Keflavík • Útilíf • Markið • Hreysti hlaup.is • Guðmundur B.Hannah Akranes • Töff Sími: 565 1533 • www.polafsson.is BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is FRÉTTIRNAR frá Írak verða skelfilegri með hverjum deginum. Þar er verið að fremja stríðsglæpi og ráðamenn okkar hafa gert okkur samseka um þá. Í okkar nafni hefur ástandið í landinu og líðan óbreyttra borgara orðið verri en nokkru sinni fyrr þrátt fyrir ógnarstjórn Sadd- ams Hussein, stríð, loftárásir og 12 ára viðskiptabann. Þegar ég var þar sumarið 2003 ríkti lögleysa í landinu og margir voru uggandi um hag íbú- anna en helmingur þeirra er undir 16 ára aldri. Meðal þeirra var Marg- aret Hassan sem nú hefur líklega verið líflátin af íslömskum hryðju- verkahópi. Ég heyrði bæði hana og fleiri konur lýsa þeirri framtíðarsýn sem þær sáu fyrir sér ef Bandaríkja- menn og Bretar létu ekki af hernám- inu og þær lýsingar eru því miður samhljóma ástandinu sem þarna rík- ir í dag. Þær höfðu áhyggjur af stöðu kvenna í Írak og vaxandi hryðju- verkum gegn þeim af hendi ísl- amskra öfgahópa, m.a. hópi sem kallar sig Mujahideen Shura og hef- ur lýst því yfir að þeir muni drepa hverja þá konu sem ekki gengur með blæju (hijab). Þessi hryðjuverk hafa fréttastofur hérlendis þó ekki talað mikið um. Í norðurhluta Írak í borginni Mos- ul eru kristnar konur fórnarlömb mannrána, morða og nauðgana. Sums staðar hafa karlar nauðgað ungum stúlkum „til að verða á undan Bandaríkjamönnum“. Fjöldamargar konur í háskólum hafa verið beittar ofbeldi fyrir það eitt að ganga í gallabuxum eða vera ekki með blæju. Konur sem heimsækja hár- greiðslustofur verða fyrir árásum og eru klipptar opinberlega þeim til minnkunnar. Þúsundum bréfa hefur verið dreift þar sem konur eru var- aðar við óíslömsku hátterni, svo sem að ganga berhöfðaðar, mála sig, heilsa karlmönnum með handabandi eða umgangast þá. Meira en 1.000 konur hafa hætt háskólanámi til að sleppa undan þessum ofsóknum. Í nafni andspyrnu ræna þeir útlend- um konum, jafnvel konum eins og Margaretu Hassan sem vann öt- ullega að mannúðarstörfum í þágu íraskra borgara og var talsmaður þess að Bush og Blair dragi sig út úr landinu með sitt hersetulið. Það sem innrás og herseta hefur fært írösku þjóðinni er einna helst lögleysan og uppgangur fasískra ísl- amskra hryðjuverkahópa sem með hræðslu og hryllingi vilja koma á miðaldalögum sem bitna verst á konum og börnum. Samtök kvenfrelsis í Írak (Org- anization of Women’s Freedom in Iraq) hafa sent ákall til kvenna hvar sem er í heiminum að sameinast þeim til að verjast þessum hryðju- verkum og berjast gegn íslömskum öfgahópum (sjá vefsíðuna www.equalityiniraq.com). Viðhorf þeirra gegn hersetunni endurspegl- ast í ákallinu og þær segja: „Meðan hersetan varir munu íslömsk hryðju- verk vaxa og dafna.“ Örlög Margaretar Hassan réðust af afvegaleiddri pólitískri stefnu karla sem í krafti stríðstóla og vegna menningarlegs ólæsis hafa varðað leiðina fyrir ofbeldi og stjórnleysi. Ekki í mínu nafni! GUÐBJÖRG SVEINSDÓTTIR, Trönuhjalla 13, 200 Kópavogur. Ákall frá konum í Írak Frá Guðbjörgu Sveinsdóttur, geðhjúkrunarfræðingi: Eftirfarandi greinar eru á mbl.is: Guðrún Lilja Hólmfríðardótt- ir: „Ég vil hér með votta okkur mína dýpstu samúð vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í íslensku þjóðfélagi með skipan Jóns Steinars Gunnlaugssonar í stöðu hæstaréttardómara. Ég segi okkur af því að ég er þol- andinn í „Prófessorsmálinu“.“ Sveinn Aðalsteinsson: „Nýj- asta útspil Landsvirkjunar og Alcoa, er að lýsa því yfir að Kárahnjúkavirkjun, álbræðsl- an í Reyðarfirði og línulagnir þar á milli flokkist undir að verða „sjálfbærar“!“ Hafsteinn Hjaltason: „Landa- kröfumenn hafa engar heimild- ir fyrir því, að Kjölur sé þeirra eignarland, eða eignarland Biskupstungna- og Svínavatns- hreppa.“ María Th. Jónsdóttir: „Á land- inu okkar eru starfandi mjög góðar hjúkrunardeildir fyrir heilabilaða en þær eru bara allt of fáar og fjölgar hægt.“ Guðmundur Hafsteinsson: „Því eru gráður LHÍ að inntaki engu fremur háskólagráður en þær sem TR útskrifaði nem- endur með, nema síður sé.“ Á mbl.is Aðsendar greinar Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali Smáralind • sími 553 6622 • www.hjortur.is Blómavasar • Karöflur • Gjafir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.