Morgunblaðið - 14.12.2004, Page 34

Morgunblaðið - 14.12.2004, Page 34
Álftanesi síðan 1984. Marella og Ari eiga þrjá fóstursyni; Sverri Örn Ólafsson, f. 27. desember 1979, Steinar Arason Ólafsson, f. 4. sept- ember 1984, og Unn- ar Geirdal Valsson, f. 21. september 1988. Marella lauk gagn- fræðaprófi frá versl- unardeild Hagaskóla 1963. Hún er nudd- og snyrtifræðingur frá Danmörku 1966 og lauk sjúkraliða- prófi frá Sjúkraliðaskóla Íslands 1978. Marella vann fyrst við verzl- unarstörf, nudd og snyrtingu en frá 1978 sem sjúkraliði auk þess að sjá um heimili og ala fóstursynina upp. Útför Marellu verður gerð frá Vídalínskirkju í Garðabæ í dag og hefst athöfnin klukkan 13. ✝ Marella GeirdalSverrisdóttir fæddist í Reykjavík 21. júní 1946. Hún lést á líknardeild Land- spítalans 4. desember síðastliðinn. Foreldar hennar voru Sverrir Elíasson fulltrúi í Landsbanka Íslands, f. í Reykjavík 14. sept- ember 1923, d. 31. janúar 1971, og Iðunn Steinólfsdóttir Geir- dal, f. í Grímsey 18. desember 1916, d. 22. marz 1999. Alsystir Marellu er Margrét Geirdal, f. 30. júlí 1959. Hálfbræður sammæðra eru Steinar Geirdal, f. 4. janúar 1938, og Elvar Geirdal, f. 25. des- ember 1939, d. 5. júlí 2000. Marella giftist 29. desember 1975 Ara E. Jónssyni, stýrimanni, f. 18. október 1946. Bjuggu þau fyrst í Kópavogi, en hafa búið á Þú varst mágkona mín, vinkona og systir, þú varst þrem árum yngri en ég, en alltaf fannst mér þú miklu yngri, í klæðnaði og hugsun án fordóma til nokkurs máls. Við lærðum saman snyrti- fræði í Köben en þar bjuggum við báðar um skeið og varð sú borg þér afar hugleikin. Þegar þú varst komin með vá- gestinn í kroppinn þinn vildir þú að við færum þangað, sem við og gerðum og skemmtum okkur vel, takk fyrir það. Okkur auðnaðist svo að fara aftur núna í október sl., ég hafði auðvitað áhyggjur af heilsu þinni en ekki þú, þú varst með alla pappíra á hreinu, ef eitt- hvað kæmi nú fyrir, en hvað átti að koma fyrir? Þú varst nú ekkert á förum frá okkur og talaðir um að við færum aftur næsta sumar og þá kæmi Lára með. Við nutum þessarar ferðar fram í fingurgóma með Snorra, Dagnýju og Steinari bróður þínum, þú kvartaðir ekki og gekkst um og skoðaðir gamlar slóðir, söfn og búðir. Takk fyrir það. Þú fékkst alveg sérstakan sess í hjörtum bræðrabarna þinna, Mar- ella var frænkan sem þeim þótti svo undurvænt um. Nú ertu farin á aðrar og okkur ókunnar slóðir, alltof fljótt, en ég er ekki í vafa um að þar líður þér vel, stendur í eldhúsinu og tekur á móti okkur eftir því sem við kíkj- um inn. Takk fyrir allt, elsku Marella mín, og megi góður Guð gefa Ara og strákunum þínum styrk, Vigdís. Ég man er þú komst. Ég man er þú brostir. Ég man að þú varst þú og gerðir það vel. Ég man hvernig gleðin var frá hjarta þínu. Ég man eftir tilhlökkuninni þegar þú varst að koma heim til mín. Ég veit að þú ert lent á heima- velli himins og líður vel. Laugardaginn 4. des. hvarf hún Marella á vit nýrra ævintýra okk- ur eftirlifandi til mikils söknuðar. Með augnaráðinu einu saman gat hún sagt manni svo mikið. Hún var töfrakona á svo margan hátt og leyndardómsfull með eindæm- um. Betri frænku getur enginn óskað sér. Núna er það okkar að glíma við ný verkefni eins og að venjast fráveru hennar í fjöl- skylduboðunum, ekki að fá sms eða tölvupóst frá henni, það er sárt. Köben var henni kær og því kíkti hún nokkrum sinnum þangað. Fyrstu árin til Snorra og fjöl- skyldu og núna síðast í hýbýli okk- ar systkinanna. Tími okkar í Kö- ben núna í október var ómetanlegur. Hvað hún gat rifið sig upp og gengið um alla borg eins og fílhraust kona og setið með okkur á kaffihúsum langt fram á nótt. Það sem toppaði ferðina var samt myndatakan af henni og „Nikolaj“ úr þáttunum, fyrir fram- an íslenska pulsuvagninn á Strik- inu. Þá mynd munum við ætíð varðveita og muna gleðina og styrkinn sem ávallt streymdi frá henni. Hver getur siglt, þó að blási ei byr, bát sínum róið án ára? Hver getur kvatt sinn kærasta vin, kvatt hann án sárustu tára? Ég get siglt, þó að blási ei byr, bát mínum róið án ára. En ekki kvatt minn kærasta vin, kvatt hann án sárustu tára. (Þýð. Hulda Runólfsdóttir frá Hlíð.) Með kærri þökk í hjarta segjum við systkinin takk fyrir okkur og sendum styrk til Ara og strák- anna. Snorri og Dagný, Kaupmannahöfn. Þegar einn úr fjölskyldunni fell- ur frá brotnar tíminn. Tíminn sem við treystum á að líði áfram í sam- fellu og án áfalla. Við brotið stönd- um við nú og reynum af veikum mætti að brúa bilið yfir í næstu samfellu tímans. Við brúargerðina notum við minningarbrot úr lífs- hlaupi þess gengna, úr lífshlaupi Marellu. Marella var systir Pabba og í raun eina fjölskyldan þeim megin, allavega í seinni tíð. Mar- ella var hispurslaus og laus við alla tilgerð í öllu sem hún tók sér fyrir hendur, hvort sem það var að taka að sér, og ala önn fyrir þremur strákum. Sem hlýtur að hafa reynt á þolrifin á stundum. Eða taka að sér umönnum aldraðrar móður sinnar undir það síðasta. Marella stóð keik í stafni síns skips og stjórnaði því til hafnar í gegnum boðaföll lífsins. Stýrimaðurinn hennar rétti henni ómetanlega hjálparhönd þegar á þurfti að halda og rétti kúrsinn af, nú eða klappaði á bak og hvíslaði hug- hreystandi orðum í eyra. Nú tekur stýrimaðurinn við skipinu og fær það hlutverk, og ábyrgð að koma öllum í næstu höfn. Við í áhöfninni munum mæta á vaktina og hlaupa í þau störf sem skapast og þarf að vinna. Það eiga margir um sárt að binda við fráfall Marellu og kannski fleiri en virðist við fyrstu sýn. Marella hafði meiri áhrif á þá sem í kringum hana voru heldur en nokkurn tíma var komið í orð. Hún hafði þann hæfileika að taka fólki eins og það var og vera ekk- ert að velta sér upp úr smáat- riðum. Hún var einstaklega traust og æðrulaus. Þegar henni var sýndur skilningur og hlýja þá kom það margfalt til baka aftur. Hún hafði þessa þægilegu nálægð sem lætur manni líða vel í návistinni, í heimsókninni. Hvort sem það var við tímamót eða við pakkaútburð á aðfangadag. Hún gaf svo mikið án þess að vita það, og þegar litið er til baka þá eru það bestu gjafirnar. Takk fyrir okkur, elsku besta frænka Sverrir Geirdal og fjölskylda. Nú, er hátíð ljóss og friðar nálg- ast, ber skugga á tilveru okkar. Dauft er yfir jólaljósunum þessi jól, er við kveðjum elskulega vin- konu okkar til margra áratuga í dag. Á kveðjustund koma upp í hug- ann ótal minningar. Ég sé okkur vinkonurnar saman, ungar á eyj- unni Jersey. Við, vorum nokkrar íslenskar stelpur að vinna á hóteli, vorum fengnar til að syngja fyrir gestina á íslensku einu sinni í viku, enginn skildi orð af því sem við sungum, en við nutum mikilla vin- sælda meðal gestanna. Mikið höf- um við hlegið að þessu, „Jersey klíkan“ eins og við köllum okkar, núna allar löngu orðnar ráðsettar konur. Þegar við fluttum úr Reykjavík og byggðum á Álftanesi var Mar- ella daglegur gestur hjá okkur, Ari var þá á sjónum og hún að vinna á Landakoti, fannst henni þetta nú frekar úti í sveit og skildi ekkert í vinkonu sinni að nenna að eiga heima þarna, taldi þó ekkert eftir sér að koma við á leiðinni heim þó svo hún byggi í Kópavogi. Fljót- lega skipti hún um skoðun og nokkrum árum seinna byggðu hún og Ari sér hús í svo til næstu götu, okkur til mikillar ánægju. Fjöl- skyldan stækkaði, þau tóku að sér þrjá fóstursyni, sem voru auga- steinar Marellu alla tíð. Samgangur fjölskyldnanna varð þá enn nánari. Ég sé okkur saman með allan krakkaskarann á Laug- arvatni, sem var fastur liður í mörg ár, þaðan eigum við, og ekki síst börnin okkar, dýrmætar minn- ingar. Fjölskyldurnar að baka laufabrauð fyrir jólin, áramótin okkar, og hinar ýmsu uppákomur í fjölskyldum okkar. Það verður tómlegt án Marellu og ekkert verður eins, en ljós hennar lýsir áfram í huga okkar og mun hjálpa okkur í gegnum sorgina, og að horfa fram á veginn. Æðruleysi og baráttuþrek vin- konu minnar í veikindum sínum var ótrúlegt, hún var staðráðin í því að gefast ekki upp, og með bjartsýnina að leiðarljósi hélt hún ótrauð áfram. Hún hélt sínu striki, lét ekki veikindin aftra sér og not- aði öll tækifæri til að njóta lífsins, uppgjöf var eitthvað sem hún þekkti ekki. Marella var einstakleg vel gerð, hún var heiðarleg og réttsýn og talaði aldrei illa um nokkurn mann. Hún var trúuð og efaðist ekki um að eitthvað gott tæki við eftir þetta líf. Ari hefur staðið við hlið Marellu sinnar í gegnum veik- indi hennar og verið hennar stoð og stytta. Elsku Ari, Sverrir, Steinar og Unnar, missir ykkar er mikill en minningin um elskulega eiginkonu og móður hjálpar ykkur að horfa fram á veginn. Elsku vinkona, þakka þér vin- áttu og tryggðina í gegnum tíðina, ég á eftir að sakna þín svo mikið, en allar þær minningar sem ég á mun ég ylja mér við. Þær tekur enginn frá mér. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Þín vinkona, Heiða og fjölskylda. Mín kæra æskuvinkona Marella hefur kvatt þetta líf eftir langa og erfiða baráttu. Baráttu þar sem hún ætlaði ekki að gefast upp. Marella, þessi tignarlega kona, glaðvær, heiðarleg, dugleg og hreinskilin. Af hverju hún, þegar svo mikið var eftir að gera? Marg- ar góðar minningar streyma fram og ylja mér um hjartarætur er við vorum litlar telpur á Melhaganum, síðan er unglingsárin taka við, að lokum fullorðinsárin. Fallega æskuheimilið hennar Marellu – með þessum marglita flotta vegg í stofunni. Afmælin, leikirnir, saumaklúbburinn, bíósýningar í þvottahúsinu þar sem seldur var aðgangur og popp. Saltgeymslan, þar sem hoppað var úr mikilli hæð ofan í saltbingina. Svæðið í kring- um „kóka kóla“, felustaðirnir þar, verðirnir höfðu ekki við að reka okkur krakkana í burtu. Á kvöldin safnast saman undir ljósastaur til að segja draugasögur. Þetta var einstaklega samheldinn hópur krakka á Melhaganum. Unglings- árin taka við og margt er brallað, svindlað sér inn í Glaumbæ og Lídó, Marella þó með meiri áhyggjur en við sem yngri vorum, hvort við kæmumst inn. Síðan höldum við út í hinn stóra heim í sitthvora áttina, bréfaskriftir, síð- an tíminn í Kaupmannahöfn. Nýir vinir bætast í hópinn. Fullorðins- árin taka við, ástin ber að dyrum. Fjölskyldur stofnaðar, sumarbú- staðaferð, ferðalag til Júgóslavíu, „Grease“ námskeiðið okkar Mar- ellu, auðvitað þurftum við að sýna öðrum hvað við værum flottir dansarar. Vinskapur okkar. Sú hlýja og umhyggjusemi sem þú gafst öllum, þá sérstaklega þeim þremur drengjum sem þið Ari tók- uð að ykkur. Eftir sitjum við hljóð og söknuðurinn er mikill. Elsku Ari, Sverrir, Steinar og Unnar, missir ykkar er mikill. Við Rúnar sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum góðan guð að varðveita ykkur og styrkja. Þín vinkona Þuríður Dan Jónsdóttir. Í dag kveðjum við elskulegu vin- konu okkar, Marellu sem er sú þriðja úr saumaklúbbnum sem fellur frá langt um aldur fram. Eftir sitjum við vinkonurnar sorg- mæddar yfir því stóra skarði sem komið er í okkar vinahóp, og sökn- um hennar sárt. Jákvæðni og bjartsýni Marellu kom henni í gengum erfiðar að- gerðir og meðferðir. Aldrei gaf hún upp vonina, heldur hélt hún fast í sérhvern vonarneista allt til hinstu stundar. Margt skemmti- legt höfum við gert saman gegnum tíðina og margar minningar koma upp í hugann á stundu sem þess- ari. Frá þeim tíma er hún veiktist höfum við í saumaklúbbnum farið í nokkrar utanlandsferðir, m.a. til Prag og Spánar. Ferðin síðastliðið vor er okkur mjög minnistæð og kær en þá áttum við yndislega viku saman við Gardavatn. Þar fórum við meðal annars í skoð- unarferðir, siglingar, kíktum í búð- ir, sleiktum sólina og margt fleira skemmilegt, og mikið var hlegið. Þó Marella væri orðin mjög veik, var hún ákveðin í að njóta vik- unnar og var þetta henni mjög dýrmætur tími sem og okkur. Glaðværð, ósérhlífni, dugnaður og æðruleysi einkenndi Marellu alla tíð og þá sérstaklega hin síðustu ár er hún barðist við hinn illvíga sjúkdóm. Hún var trúuð kona og efaðist ekki um að eitthvað gott tæki við eftir þetta líf. Ari reyndist Marellu frábærlega vel í gegnum öll hennar veikindi, svo og strákarnir hennar þrír. Þeir eiga nú um sárt að binda að horfa á eftir elskulegri eiginkonu og frá- bærri mömmu. Elsku Ari, Sverrir, Steinar og Unnar, megi góður Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum, og hjálpa okkur öllum að sætta okkur við hið óumflýjanlega. Við kveðjum þig með tregans þunga tár, sem tryggð og kærleik veittir liðin ár. Þín fórnarlund var fagurt ævistarf og frá þér eigum við hinn dýra arf. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Blessuð sé minning elsku Mar- ellu. Saumaklúbburinn. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Það er svo sárt að nú sé kallið komið og leiðir skilji að sinni. Ég kveð elsku mágkonu mína og vin- konu með tárum sorgar og gleði í senn, sorgar að hafa hana ekki lengur hjá mér en gleði yfir að nú líður henni vel í Guðs faðmi. Elsku hetjan mín! Margan storminn fékkst þú í fangið síðast- liðin ár en alltaf stóðstu hann af þér hvað eftir annað. Þú stóðst á meðan stætt var og nýttir þann tíma vel. Við áttum margar gleði- stundir saman í yfir tuttugu ár sem gleður mitt hjarta í dag og ég er þakklát fyrir. Lát ekki öldur hafsins skilja okkur að, og árin, sem þú varst hjá okkur, verða að minningu. Þú hefur gengið um meðal okkar, og skuggi anda þíns hefur verið ljós okkar. Heitt höfum við unnað þér. En ást okkar var hljóð og dulin mörgum blæjum. En nú hrópar hún á þig og býst til að standa nakin fyrir augliti þínu. Og þannig hefur það alltaf verið, að ástin þekkir ekki dýpi sitt fyrr en á skilnaðarstundinni. (Kahlil Gibran.) Elsku Marella mín, ég bið góðan Guð að vernda þig og hinn líknandi engil að bera þig að landi þar sem birtan skín og ástvinir sem á und- an eru gengnir taka á móti þér eins og þú varst viss um að myndi verða. Ástvinir eftir standa en eiga nú dýran sjóð í minning sem mildar vanda og muna hvað hún var góð. Far í friði og Guðs blessun fylgi þér. Minning þín er ljós í lífi okk- ar. Jóhanna Jónsdóttir (Nanna). Ég kveð þig kæra skólasystir og minnist þín sem hetju. Þó líkaminn væri veikur var andi þinn og vilji sterkur. Ég mun minnast þín geislandi af gleði þegar við hitt- umst á hverju ári á útskriftardag- inn okkar úr Sjúkraliðaskóla Ís- lands. MARELLA GEIRDAL SVERRISDÓTTIR 34 ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Hjartans þakkir til ykkar allra, sem sýndu okkur samúð og hlýju vegna andláts okkar elskulega sambýlismanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, MATTHÍASAR BJARNASONAR, Ehnen, Lúxemborg, áður til heimilis í Búlandi 29, Reykjavík. Marianne Wolf, Jenný Matthíasdóttir, Ásgeir Torfason, Bjarni Matthíasson, Erna Matthíasdóttir, Gunnar Ingi Gunnarsson, Jónas Matthíasson, Inge Elisabeth Nielsen Matthíasson, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.