Morgunblaðið - 14.12.2004, Síða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
AFMÆLI
LANDSBANKI Íslands hélt sl.
sunnudag Friðriksmót í skák, í sam-
vinnu við Skáksamband Íslands. Mót-
ið var haldið til heiðurs fyrsta stór-
meistara Íslendinga, Friðriki Ólafs-
syni, í tilefni af sjötugsafmæli hans, í
lok næsta mánaðar. Það er vel við
hæfi að halda skákmót Friðriki til
heiðurs, því að hann lék aðalhlutverk-
ið í glæsilegri uppbyggingu skákar-
innar á Íslandi á síðari hluta síðustu
aldar. Framganga Friðriks á alþjóð-
legum skákmótum kom Íslandi á hið
alþjóðlega landakort skákarinnar og
flestir landsmenn biðu spenntir við
útvarpstækin, þegar von var á frétt-
um af mótum Friðriks. Svo mikill var
áhuginn, að sýningarstjóri í kvik-
myndahúsi úti á landsbyggðinni á að
hafa stöðvað sýningu kvikmyndar í
miðju kafi, kallað út í salinn „Friðrik
vann“ og sett syningarvélarnar í gang
aftur! Það voru fáir íslenskir afreks-
menn, ef nokkur, sem þjóðin fylgdist
eins vel með á þeim árum og Friðrik.
Friðriksmótið var teflt í aðalbanka
Landsbankans, við Austurstræti í
Reykjavík, og var það tvíþætt. Um
morguninn var haldið mót fyrir bestu
og efnilegustu unglinga landsins.
Dagur Arngrímsson öðlaðist þátt-
tökurétt í stórmeistaramótinu með
sigri á því. Í öðru sæti varð Guðmund-
ur Kjartansson, Björn Ívar Karlsson
í því þriðja, 4–5 Hjörvar Steinn Grét-
arsson og Atli Freyr Kristjánsson.
Árni Emilsson, útibússtjóri í
Landsbankanum, setti aðalmótið með
stuttri ræðu og kynnti að því loknu
sönghópinn, Norðurljósin, sem flutti
nokkur jólalög. Að því búnu fór Ólaf-
ur Ásgrímsson skákstjóri yfir reglur
mótsins og forseti Skáksambands Ís-
lands, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,
sagði nokkur orð og lék síðan fyrsta
leikinn á mótinu, í skák Friðriks
Ólafssonar og Lenku Ptacnikovu.
Í aðalflokki Friðriksmótsins tefldu
14 skákmeistarar, flestir af sterkustu
skákmönnum landsins, þ.á m. 8 stór-
meistarar, Margeir Pétursson og
Guðmundur Sigurjónsson tefldu
ekki, að þessu sinni. Tefldar voru
hraðskákir á gamla mátann, hvor
keppandi hafði 5 mínútur til að ljúka
skákinni, en enginn uppbótartími var
fyrir hvern leik eins og oftast er í dag.
Það var þess vegna mikill atgangur
og á ýmsu gekk, enda skipti hraðinn
ekki minna máli en staðan á borðinu.
Framkvæmd Landsbankans á
mótinu og aðstaðan í bankanum var
til fyrirmyndar og til að gera fjöl-
mörgum áhorfendum auðveldara
með að fylgjast með skákunum voru 4
skákir í hverri umferð sýndar á stóru
tjaldi.
Svo skemmtilega tókst til, að
fulltrúar eldri og yngri kynslóðar ís-
lenskra skákmeistara deildu efsta
sætinu á mótinu, eftir harða baráttu,
hlutu 9½ vinning hvor í 13 skákum.
Stigahæsti skákmeistari Íslendinga,
Jóhann Hjartarson stórmeistari hafði
sigurinn á stigum. Jóhann tefldi vel,
að vanda, og virðist lítil æfing á síð-
ustu árum ekki há honum að ráði.
Jafn Jóhanni að vinningum varð Stef-
án Kristjánsson, alþjóðlegur meist-
ari. Stefán sannaði enn einu sinni
styrk sinn í hraðskák, en muna má
stórglæsilega frammistöðu hans í
hraðskákkeppni ofurmótsins,
Reykjavík Rapid, á síðasta vetri.
Stefán tefldi mjög vel á Friðriks-
mótinu og leiddi það allan tímann,
hafði um tíma 1½ vinnings forskot á
Jóhann. Stórmeistarinn náði honum
þó í síðustu umferð og tók fyrsta sæt-
ið á stigum, því að hann vann Stefán í
innbyrðis viðureign þeirra.
Jafnir í þriðja og fjórða sæti, með
8½ vinning hvor, voru einnig fulltrúar
eldri og yngri skákmanna landsins,
en að þessu sinni hafði sá yngri betur
á stigum. Jón Viktor Gunnarsson, al-
þjóðlegur meistari, varð þriðji, en
hinn gamalreyndi stórmeistari,
Þröstur Þórhallsson, varð fjórði.
Fimmti varð Hannes Hlífar Stef-
ánsson, stórmeistari, með átta vinn-
inga.
Heiðursþátttakandi mótsins, Frið-
rik Ólafsson, átti erfitt uppdráttar
framan af, klukkan var honum erfið.
Friðrik er ekki eins fljótur og á yngri
árum, þegar hann var í hópi albestu
hraðskákmanna í heimi. Hann sýndi
þó oft gamla takta, t.d. í skemmtilegri
skák við Hannes Hlífar. Dagur Arn-
grímsson, unglingameistari mótsins,
stóð sig frábærlega vel, hlaut 5 vinn-
inga.
Lenka Ptacnikova, eini kvenna-
stórmeistari Íslendinga, byrjaði mót-
ið glæsilega, vann Friðrik í fyrstu
umferð og Jón Viktor í þeirri næstu,
en síðan seig á ógæfuhliðina hjá
henni.
Um önnur úrslit vísast til mót-
stöflu.
Mótið fór vel fram, undir styrkri
stjórn alþjóðlegu skákdómaranna,
Ólafs Ásgrímssonar og Ríkharður
Sveinssonar.
Við verðlaunaafhendinguna færði
Friðrik Ólafsson, fyrir hönd Lands-
bankans, Lenku Ptacnikovu sérstök
hvatningarverðlaun til dáða í tafl-
mennsku fyrir Íslands hönd. Muna
má, að frammistaða Lenku í frum-
raun hennar í landsliði Íslands, var
einkar glæsileg. Hún varð í 11. sæti á
fyrsta borði af 87 af bestu skákkonum
heims á Ólympíuskákmóti í október
sl.
Að lokinni þessari glæsilegu skák-
veislu bauð bankinn til veglegrar
móttöku í bankanum fyrir skákmeist-
arana og velunnara skáklistarinnar.
Eftirfarandi staða kom upp í skák
Helga Ólafssonar og Þrastar Þór-
hallssonar. Þröstur á peði minna og
leggur lymskulega gildru fyrir Helga,
með síðasta leik sínum, 34. – e5!
35.Dxf7? –
Helga yfirsést næsti leikur Þrast-
ar. Eftir 35.Df5+ Kg8 36.Rd6 Df8
37.Re4 g6 38.Dxh3 Rxf3 39.Kxf3
Dxa3 40.Rd2 Dd6 41.Ke2 hefði hann
átt vinningsstöðu.
35...Dxf3+!! 36.Dxf3 Rxf3 37.Kxf3
–
Hvítur á líka tapað tafl, eftir 37.Kf2
Rd4 38.Rd6
( 38.Rxd4? exd4 39.a4 h2 40.Kg2 d3
41.c5 d2 42.cxb6 d1D) 38...Rxb3
39.Rf7 Kg6 40.Rxe5+ Kf5, því að
hvíti kóngurinn er bundinn við að
hafa auga með svarta frípeðinu á h3,
t.d. 41.Rd7 (41.Rf3 g5 42.Rh2 Rd2)
41.-- Rd2 42.Rxb6 Kg4 43.Rd5 Re4+
44.Kg1 Kxg3 45.Re3 h2+ 46.Kh1
Rf2+ mát.
37...e4+! 38.Kxe4 –
Engu betra er 38.Kf2 e3+! 39.Kf3
h2 40.Kg2 e2 41.Kxh2 e1D o.s.frv.
38...h2 39.Kd5 h1D+
og svartur vann.
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Arnar Gunnarsson
Hollensk vörn
1.d4 f5 2.Rf3 Rf6 3.g3 e6 4.Bg2 d5
5.0–0 Bd6 6.c4 c6 7.b3 De7 8.Bb2 0–0
9.Rbd2 Bd7 10.Re5 Be8 11.Dc2 Rbd7
12.Rdf3 Bh5 13.Rd3 Hac8 14.Rfe5
Rg4 15.Rf4 –
Þekkt er að leika 15.e3 g5 16.Hae1
Rgf6 17.c5 Bc7 18.b4 o.s.frv.
15...Bf7 16.Rxg4 Bxf4?!
Líklega er betra að leika 16...fxg4,
t.d. 17.Rd3 Bg6 18.Dd2 Be4 19.Bxe4
dxe4 20.Re5 Rxe5 21.dxe5 Bc5
22.Bd4 Hcd8 23.Bxc5 Dxc5 24.Dg5,
með jöfnu tafli.
17.Re5 Bxe5 18.dxe5 f4?!
Þetta er hugmynd Arnars með 16.
leiknum. Hann nær að skipta á slæm-
um biskupi á þennan hátt, en hvítur
miðborðspeðin verða hættuleg. Til
greina kom að leika 18...Bg6 þótt
hvítur hafi þægilegt tafl, eftir 19.Dd2
o.s.frv.
19.gxf4 Bg6 20.Dd2 Dh4 21.e3 Hf5
22.f3 Hh5 23.h3 Bf5 24.Df2! Bxh3
25.Dxh4 Hxh4 26.cxd5 exd5 27.Bxh3
Hxh3 28.Kg2 Hh5
Svartur á við ýmis vandamál að
glíma, hrókurinn hans á h-línunni er
utangátta og hvítu peðin á miðborð-
inu eru hættuleg.
29.e4! –
29...dxe4?
Besta vörn svarts virðist vera
29...Rc5 30.Kg3 Rd3 31.Bd4 c5
32.Had1 Rb4 33.a3 Ra6 34.Hc1 og
svartur á erfitt um vik.
30.fxe4 g6 31.b4 Rb6 32.Hac1 Kf7
33.Kg3 Ke7 34.Hh1 Hxh1 35.Hxh1
h5 36.f5 Rc4
Það er ekki auðvelt að finna besta
leikinn í slíkri stöðu í miklu tíma-
hraki. Svartur hefði getað veitt meira
viðnám með 36...Hg8 37.Kf3 gxf5
38.Hxh5 fxe4+ 39.Kxe4 Rd5
40.Hh7+ Ke6 41.a3 Hg2 42.Hh6+
Ke7 43.Bc1 He2+ 44.Kd4 Hg2
45.Hh7+ Ke6 46.Hxb7 Hg4+ 47.Kd3
Kxe5, þótt hann sé engan veginn
sloppinn úr vandræðunum í því til-
viki.
37.Bd4 b6 38.Kf4 –
38...Hg8 39.Hg1 h4 40.Bf2 h3
41.Bh4+ Ke8 42.e6 Rb2 43.f6 g5+
44.Bxg5 Rd3+ 45.Kf5 Hxg5+
46.Hxg5
og svartur gafst upp.
Jóhann og Stefán urðu
efstir á Friðriksmótinu
SKÁK
Friðriksmót
Landsbanka Íslands,
12. desember 2004
Bragi Kristjánsson
Valtýr Guðmundsson
trésmíðameistari í
Stykkishólmi varð 90
ára 12. október sl. Mér
bæði ljúft og skylt að
minnast afa míns á svo
merkum tímamótum.
Valtýr er fæddur í Gröf
í Laxárdal í Dalasýslu.
Hann er næstelstur sex
systkina. Faðir hans
var Guðmundur Egg-
ertsson söðlasmiður,
einnig fæddur í Gröf, og
móðir Sigríður Guð-
mundsdóttir, fædd í
Fremri-Gufudal. Þau
héldu bú á Níp á Skarðsströnd. Val-
týr er sín fyrstu æviár í foreldrahús-
um en er ungur sendur í Rauðbarða-
holt í Dalasýslu.
Valtýr kvæntist Ingunni Sveins-
dóttur frá Sveinsstöðum fyrir rúm-
lega 64 árum. Þau eiga 53 afkomend-
ur. Gífurlegar samfélagslegar
breytingar hafa átt sér stað á Íslandi
á æviskeiði Valtýs. Fyrstu æviár
hans er landið t.d. enn undir Dana-
konungi, konur eru að fá kosninga-
rétt, bæir víðast enn án rafmagns og
algert áfengisbann var í gildi. Valtýr
ólst að hluta til upp í torfbæ þar sem
helsta skemmtun fólks var að sitja í
baðstofunni á kvöldin, segja sögur og
fara með rímur. Á uppvaxtarárum
Valtýs gekk fólk á milli bæja eða not-
aðist við hesta en fyrstu bílarnir sjást
ekki í sveitinni fyrr en hann er um
tvítugt.
VALTÝR
GUÐMUNDSSON
Valtýr og Ingunn
fluttu til Reykjavíkur
1941, bjuggu þar og í
Kópavogi til 1950.
Hann sótti Iðnskólann í
Reykjavík og vann allt-
af með skólanum. Ing-
unn sá af myndarskap
um heimilið og börnin.
Sem dæmi um seiglu
Valtýs má nefna að í
nokkur misseri hjólaði
hann til vinnu úr Kópa-
vogi til Vesturbæjar
Reykjavíkur og sótti
svo Iðnskólann á kvöld-
in. Með sömu eljusemi
tókst Valtý að ljúka sveinsprófi og
meistaraprófi í trésmíðum 1943.
Hann var við byggingastörf á árun-
um 1935 til 1967, byggingameistari
fjölmargra bygginga víða um land –
fimmtán í Stykkishólmi, fimmtán í
Reykjavík og tuttugu og fimm í sveit-
um landsins.
Árið 1967 varð Valtýr verkstjóri
Stykkishólmshrepps. Sjö árum síðar
tekur hann til starfa hjá Trésmiðju
Stykkishólms þar sem hann er til
1984, er hann lætur af störfum. Eftir
starfslok hafði hann ávallt eitthvað
fyrir stafni meðan hann hafði skúr,
verkfæri og vélar á Austurgötunni.
Ingunn og Valtýr hafa búið undanfar-
in áratug í góðu yfirlæti á Dvalar-
heimili aldraðra í Stykkishólmi. Val-
týr er nokkuð heilsutæpur en vel sæll
af verkum, vinum og vandamönnum.
Björgvin Þorsteinsson.
Fjölmenni í opnu húsi hjá BSÍ
Miðvikudaginn 8. desember var
fjölmenni á Opnu húsi hjá BSÍ. Þar
mættu útskrifaðir nýliðar frá
bridsskóla Guðmundar Páls Arn-
arssonar, yngri spilarar og aðrir
nýliðar bridsíþróttarinnar. Sigur-
vegarar urðu Jón Jóhannsson og
Sturlaugur Eyjólfsson.
Forseti BSÍ, Kristján B. Snorra-
son, lýsti yfir mikilli ánægju með
mjög góða þátttöku og sagði að það
sýndi svo ekki sé um villst að mikil
gróska er í bridsíþróttinni og
væntir hann mikils af spilurum
kvöldsins í framtíðinni.
Lokastaðan:
Jón Jóhannsson-Sturlaugur Eyjólfsson 91
Anna G. Nielsen-Guðbjörg E. Baldursd. 33
Ómar Freyr Ómarss.-Auður Ágústdóttir
31
Ingibjörg Þórðardóttir-Björn Árnason 31
Matthías Björnsson-Sigurgeir Orri 31
Góð þátttaka var í opnu húsi hjá Bridssambandinu.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 10. desember var
spilað á 8 borðum.
Úrslit urðu þessi í N/S:
Friðrik Hermanns - Bjarnar Ingimars. 207
Jón Pálmason - Sverrir Jónsson 186
Hera Guðjónsd. - Ólafur Gíslason 184
A/V
Jón Ól Bjarnas. - Ásmundur Þórarinss. 193
Jón Gunnarsson - Sigurður Jóhannss. 181
Sigurður Hallgrímss - Sófus Berthelsen 176
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði,Glæsibæ, mánud. 6.12.
2004.Spilað var á 10 borðum. Árang-
ur N - S
Björn E. Pétursson - Gísli Hafliðason 259
Júlíus Guðmundss. - Rafn Kristjánss. 239
Halldór Kristinsson - Elín Jónsdóttir 235
Árangur A - V
Albert Þorsteinsson - Bragi Björnsson 299
Hilmar Valdimarss. - Magnús Jósefss. 230
Kári Sigurjónsson - Eysteinn Einarsson 229
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Glæsibæ, fimmtud. 9.12. 2004.
Spilað var á 10 borðum. Meðalskor
216 stig.
Árangur N - S
Sæmundur Björnsson Oliver Kristófss. 270
Hilmar Valdimarss. Magnús Jósefsson 247
Júlíus Guðmss. - Rafn Kristjánsson 241
Árangur A - V
Ragnar Björnsson - Magnús Oddsson 258
Einar Einarsson - Bjarni Þórarinsson 242
Elín Jónsdóttir - Soffía Theodórsd. 240
Bridsfélag Selfoss
og nágrennis
Keppni hófst í Jólaeinmenningn-
um fimmtudaginn 9. desember sl. Til
leiks mættu 24 spilarar, sem er all-
góð þátttaka. Spilaður er barómeter-
einmenningur, með 2 spilum á milli
manna. Staða efstu spilara þegar
mótið er hálfnað er:
Gísli Þórarinsson +28
Þröstur Árnason +24
Gunnar Þórðarson +17
Grímur Magnússon +15
Guðjón Einarsson +12
Gunnar Björn Helgason +10
Nánar má finna um gang mála á
heimasíðu félagsins www.bridge.is/
fel/selfoss.
Mótinu lýkur 16. desember nk. og
ser spilað að venju í Tryggvaskála,
og hefst spilamennska kl. 19.30.
Næsta mót hjá félaginu er aðal-
sveitakeppnin en hún hefst fimmtu-
daginn 13. janúar. Stjórn mun að
venju raða pörum niður í sveitir.