Morgunblaðið - 14.12.2004, Qupperneq 40
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
VEISTU HVAÐ ÞENNAN
DAG VANTAR?
GOTT
SPARK!
KLÍP! EITT KLÍP SEGIR MEIRA
EN ÞÚSUND ORÐ
ÉG ÆTLA
ALDREI AÐ
TAKA LÁN...
ÉG ÆTLA AÐ VERA
EINN AF ÞEIM SEM VERÐUR
RÍKUR Á EINNI NÓTTU...
ÉG VIL FÁ
LÍFIÐ AFHENT Á
SILFURFATI
GANGI
ÞÉR
VEL!
ÞÚ HLÝTUR AÐ SJÁ
AÐ ÉG Á ÞAÐ SKILIÐ!!
Risaeðlugrín
© DARGAUD
Dagbók
Í dag er þriðjudagur 14. desember, 349. dagur ársins 2004
Víkverji hefur ekkimikla unun af því
að aka í Reykjavík.
Honum þykir það
stressandi og leiðin-
legt og gengur frekar
það sem þarf að fara
ef mögulegt er. Vík-
verja finnst allt of
mikið gert úr einka-
bílnum í borginni.
Hann heimsótti í sum-
ar borgina Lund í Sví-
þjóð, þar sem bílum er
beinlínis gert erfitt
fyrir að fara um mið-
bæinn og bílaumferð
er beint frá honum.
Hjólum og gangandi vegfarendum
er fagnað og er taktur borgarinnar í
samræmi við það, í senn lifandi, fjör-
ugur og afslappaður.
Kunningi Víkverja er lögreglu-
maður og hefur lent í ýmsum áhuga-
verðum aðstæðum í starfi sínu.
Hann deildi nokkrum reynslusögum
með Víkverja í barnaafmæli á dög-
unum. Þar á meðal sagði hann frá
því að ökumenn sem stöðvaðir væru
fyrir að aka of hratt eða yfir á rauðu
ljósi brygðust oft ókvæða við og yrðu
bandbrjálaðir yfir því að lögreglan
skyldi skipta sér af aksturslagi
þeirra. „Ykkur væri nær að einbeita
ykkur að dópsölum og handrukk-
urum!“ hvæsa þeir að
kunningjanum. Vík-
verji spurði þá kunn-
ingjann hvort hand-
rukkarar og dópsalar
væru ábyrgir fyrir því
að 26 mannslíf glatast
á ári og tugir, ef ekki
hundruð manna, í við-
bót örkumlast, lamast
og missa mátt og
starfsorku. „Nei,“
svaraði kunninginn.
Þeir eru nú aðeins
færri sem slasast og
deyja á þeim slóðum.
Bílar eru hættuleg
verkfæri og fleiri
deyja og örkumlast í bílslysum á ári
hverju heldur en í öllum ofbeldis-
glæpum landsins samanlagt.
Svo má auðvitað benda á það að
dópsalar og handrukkarar eru
sjaldnast inni á gatnakerfinu nær
einvörðungu.
Víkverji er viss um að virkar
myndavélar á hverjum einustu stóru
gatnamótum og hraðakstursmynda-
vélar dreifðar um bæinn myndu vera
ein arðbærasta fjárfesting sem ríkið
gæti lagst í. A.m.k. myndi hún skila
meiru en þessir blessuðu hundrað
millljarðar sem streyma nú út úr
landinu til erlendra verktaka á
Kárahnjúkasvæðinu.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Loftkastalinn | Það var farið hljóðlega af stað og svo æstust væntanlega leik-
ar þegar hinn eini sanni KK og íslenska reggísveitin Hjálmar hófu æfingar í
gær fyrir tónleika sem þeir munu halda saman í Loftkastalanum næsta
fimmtudag. KK þarf vart að kynna fyrir þjóðinni en Hjálmar eru ung og efni-
leg sveit sem hlotið hefur einróma lof fyrir fyrstu plötu sína Hljóðlega af stað,
en hún er einmitt tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Á tónleikunum
munu KK og Hjálmar syngja og leika saman og verður afar fróðlegt að heyra
hver útkoman verður, hvernig röddin hans KK hljómar við reggíundirleikinn
og hvernig Hjálmum ferst blúsinn úr hendi. Tónleikarnir hefjast kl. 21.
Morgunblaðið/Sverrir
Hljóðlega af stað beina leið
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
En séuð þér án aga, sem allir hafa fyrir orðið, þá eruð þér þrælbornir og
ekki synir. (Hebr. 12, 8.)