Morgunblaðið - 14.12.2004, Qupperneq 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert opinn fyrir alls kyns hughrifum,
hrútur, leyfðu hugsunum þínum að
reika. Það er nægur tími til þess að
vinna úr síðar. Skrifaðu niður góðar
hugmyndir, þú ert dálítið viðutan
núna.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ertu í stuði til þess að hlusta? Von-
andi. Einhver sem þú þekkir þarf á
þér að halda núna. Fyrstu viðbrögð
þín eru að gefa mikið af ráðum, haltu
aftur af þér, nema eftir þeim sé leitað.
Leggðu eyrun við.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú sérð heiminn í einstaklega bjart-
sýnu ljósi um þessar mundir og finnur
fyrir vellíðan. Vertu samt með báða
fætur á jörðinni og ekki missa þig út í
einhverja óskhyggju.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú býst við miklu af einhverju eða ein-
hverjum í dag og ert þess fullviss að
allt verði í lagi. Ef jákvætt viðhorf
leiðir til jákvæðrar útkomu hefur þú
ekkert að óttast. En kannski er bjart-
sýni þín of mikil.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú leggur þig fram við að hjálpa ein-
hverjum nákomnum, kannski með til-
finningalegum stuðningi eða bara því
að hlusta. Þú tekur málstað viðkom-
andi, þótt þú þekkir ekki alla mála-
vöxtu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ert viðkvæmnin uppmáluð í dag og
þér mjög meðvitandi um það sem aðrir
ganga í gegnum. Þú vilt hjálpa en
verður kannski að játa þig sigraða,
meyja.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Nú er tími góðvildar, er það ekki ann-
ars? Þú færð tækifæri til þess að sýna
það í dag með því að sýna þeim sem
verða á vegi þínum skilning, samúð og
þolinmæði.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert manneskja sátta og samúðar í
dag og ert til í að grafa stríðsöxina,
hafir þú átt í deilum nýverið. Þú þarft
kannski að taka fyrsta skrefið, en telur
það ekki eftir þér í friðarviðleitni
þinni.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Svolítil háttvísi kemur þér vel áleiðis í
dag og gerir þér fært að sigla milli
skers og báru í erfiðum aðstæðum. Til
allrar hamingju fer allt vel, þér til
óblandinnar gleði.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ímyndunarafl þitt er upp á sitt besta í
dag og þú skemmtir þér konunglega
við að láta hugann reika. Reyndu að
leyfa þér það, ýmsar frábærar hug-
myndir gætu ratað til þín.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert til í að láta gamminn geisa í dag
og sleppa fram af þér beislinu í dag-
draumunum. Þannig verða frábærar
hugmyndir til, sem og í samtölum við
aðra á sömu bylgjulengd og þú.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þetta er góður dagur til þess að átta
sig á því sem fram fer undir yfirborð-
inu. Þú verður þess áskynja sem fólk
lætur yfirleitt ósagt. Það segir eitt og
meinar annað og þú áttar þig á því
núna.
Stjörnuspá
Frances Drake
Bogamaður
Afmælisbarn dagsins:
Þú nýtur þess að velta vöngum yfir heim-
spekilegum málefnum og smíða kenn-
ingar um abstrakt fyrirbæri. Vítt sjónar-
horn og almenn sannindi vekja áhuga
þinn. Þú vilt horfa á heildarmyndina.
Fróðleiksfýsn og virðing fyrir menntun er
meðal einkenna þinn, þú ert hinn eini
sanni eilífðarstúdent.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 kringumstæður,
4 gagnlegs, 7 kona, 8
kyrrðar, 9 illdeila, 11 bók-
ar, 13 vaxa, 14 hefur í
hyggju, 15 lemur, 17 áfjáð,
20 tíndi, 22 svæfill, 23 kap-
ítuli, 24 verða súr, 25
heimilis.
Lóðrétt | 1 karldýr, 2
steinn, 3 tala, 4 erfið, 5
skjögrar, 6 púði, 10 svera,
12 haf, 13 illgjörn, 15
poka, 16 gubbaðir, 18
áleggið, 19 ærslahlátur, 20
kvista, 21 bjartur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 hjónaband, 8 sýpur, 9 leyna, 10 ull, 11 afann, 13
asann, 15 borðs, 18 ógæfa, 21 kák, 22 lasna, 23 áttin, 24
miðaftann.
Lóðrétt | 2 japla, 3 nýrun, 4 bulla, 5 neyða, 6 assa, 7 bann,
12 níð, 14 sæg, 15 boli, 16 rusli, 17 skata, 18 ókátt, 19 æst-
an, 20 asni.
Myndlist
Alliance Francaise | Marie-Sandrine Bej-
anninn – málverk.
Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig-
urbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíumálverk.
Gallerí Banananas | Hrafnkell Sigurðsson
– Verkamaður / Workman.
Gallerí I8 | Kristján Guðmundsson sýnir
„Arkitektúr“.
Gallerí Tukt | Fjölbreytt skúlptúrverk átta
myndlistarnema.
Gerðuberg | Guðríður B. Helgadóttir –
„Efnið og andinn“.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal sýn
ir sex ný olíumálverk.
Hrafnista Hafnarfirði | Sólveig Eggertz
Pétursdóttir sýnir í Menningarsalnum.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist:
um veruleikann, manninn og ímyndina. 20
listamenn sýna.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Ný ís-
lensk gullsmíði í austursal, Salóme eftir
Richard Strauss í vestursal og verk úr
einkasafni Þorvaldar Guðmundssonar og
Ingibjargar Guðmundsdóttur.
Listasafn Rvk., Ásmundarsafn | Maðurinn
og efnið. Yfirlitssýning á verkum Ásmund-
ar Sveinssonar.
Listasafn Rvk., Hafnarhús | Grafísk hönn-
un á Íslandi. Stendur til áramóta. Erró –
Víðáttur. Stendur til 27. feb. nk.
Listasafn Rvk., Kjarvalsstaðir | Textíllist
2004 – alþjóðleg textílsýning. Stendur til
16. jan. Myndir úr Kjarvalssafni.
Listmunahúsið | Sýning á verkum Valtýs
Péturssonar í Listmunahúsinu, Síðumúla
34.
Lóuhreiður | Sigrún Sigurðardóttir – Gróð-
ur og grjót.
Norræna húsið | Vetrarmessa fimmtán
listamanna og -kvenna.
SÍM-salurinn | Sigurborg Jóhannsdóttir
sýnir myndir unnar í ull.
Skólavörðustígur 20 | Gunnella sýnir ný
málverk á Skólavörðustíg 20. Ath. einungis
opið fram að jólum.
Suzuki-bílar | Björn E. Westergren sýnir
myndir málaðar í akrýl og raf.
Thorvaldsen | Linda Dögg Ólafsdóttir sýnir
–sKæti–. Stendur til 17. desember.
Tjarnarsalur Ráðhúss Rvk. | Ketill Larsen
– Sólstafir frá öðrum heimi.
Listasýning
Handverk og hönnun | Jólasýningin „Allir
fá þá eitthvað fallegt …“ Sölusýning þar
sem 32 aðilar sýna íslenskt handverk og
listiðnað.
Kvikmyndir
Bæjarbíó | Jólamynd Kvikmyndasafnsins í
ár er danska verðlaunamyndin Babettes
gæstebud eða Gestaboð Babette eftir
danska leikstjórann Gabriel Axel en hún er
gerð eftir samnefndri skáldsögu Karen
Blixen.
Babette vinnur í happdrætti og efnir til
veislu. Veislugestir eru tólf og hún sjálf sú
þrettánda. Hún eldar af snilld og snýst í
kringum gesti sína. Í sýningaskrá skrifar
séra Gunnar Kristjánsson: „Í kvikmyndinni
vaknar eitt sterkasta tákn í kristnum trú-
ararfi til lífsins með ógleymanlegum hætti:
Hér er ekki aðeins veisla heldur heilög
kvöldmáltíð sem minnir á aðra kvöldmáltíð
fyrir óralöngu í Jerúsalem.“
Myndin verður sýnd í Bæjarbíói þriðjudag-
inn 14.des. kl. 20 og laugardaginn 18. des.
kl. 16. Myndin er með íslenskum texta.
Bækur
Snorrastofa | Rithöfundar lesa upp úr ný-
útkomnum verkum kl. 20.30. Umræður
verða að loknum upplestri og kór Reyk-
holtskirkju og Hvanneyrar flytur nokkur
lög. Kaffiveitingar – 500 kr. Sjá dagskrá:
www.snorrastofa.is.
Þjóðarbókhlaðan | Starfsmannafélag
Þjóðarbókhlöðu býður til bókmennta-
stundar í fyrirlestrarsalnum kl. 12. Lesarar:
Bragi Ólafsson, Hallgerður Gísladóttir,
Kristín Steinsdóttir, Óskar Guðmundsson,
Ögmundur Helgason og Örn Hrafnkelsson.
Söfn
www.skjaladagur.is | Þjóðskjalasafn Ís-
lands, Borgarskjalasafn Reykjavíkur og
héraðsskjalasöfn um land allt hafa samein-
ast um vefinn www.skjaladagur.is þar sem
er að finna fróðleik og sýningu um árið
1974 í skjölum.
Þjóðminjasafn Íslands | Stúfur kemur í
heimsókn kl. 13. Þá eru íslensku jólasvein-
arnir komnir á jólasveinadagatal sem fæst
í safninu. Jólasveinakvæði Jóhannesar úr
Kötlum er einnig í dagatalinu. Veitinga-
stofa safnsins býður fjölþjóðlegar jóla-
kræsingar. Einnig eru kynntir japanskir
og pólskir jóla- og nýárssiðir auk
íslenskra.
Mannfagnaður
Reykjavíkurdeild SÍBS | Reykjavíkurdeild
SÍBS verður með sína árlegu aðventuhátíð
fimmtudaginn 16. desember kl. 17 í SÍBS-
húsinu í Síðumúla 6.
Fréttir
Bókatíðindi 2004 | Númer þriðjudagsins
14. desember er 63731
Mæðrastyrksnefnd Kópavogs | Opið alla
þriðjudaga kl. 16–18. Fatamóttaka og út-
hlutun á sama tíma.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Jólaút-
hlutun verður dagana 14., 15., 16., 20. og 21.
des. kl. 14–17 á Sólvallagötu 48. Svarað er í
síma 551-4349 sömu daga kl. 11–16 og tek-
ið á móti varningi og gjöfum. Netfang:
mnefnd@mi.is.
Málstofur
Kennaraháskóli Íslands | Opin málstofa í
KHÍ miðvikud. 15. des. kl. 16.15. Umfjöllun
um áhugaverðar bækur sem koma út fyrir
þessi jól ásamt kynningu á vefjunum Bóka-
ormar (bokaormar.khi.is) og BarnUng
(barnung.khi.is) sem Kennaraháskóli Ís-
lands heldur úti til þjónustu við kennara.
Fundir
Sunnusalur Hótels Sögu | Jólafundur
Sinawik í Reykjavík er í kvöld og hefst með
borðhaldi kl. 20.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Áramótaferðin í
Bása er 30. des. Fararstjórar Bergþóra
Bergsdóttir og Reynir Þór Sigurðsson.
1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. g3 Bg7 4. Bg2 d5
5. O-O O-O 6. c4 dxc4 7. Rc3 Rfd7 8.
Be3 Rb6 9. a4 a5 10. Dc1 Rc6 11. Hd1
Bg4 12. Rb5 Rb4 13. h3 Bxf3 14. Bxf3
c6 15. Rc3 Dc8 16. Bg2 Hd8 17. Re4
R4d5 18. Bh6 Rf6 19. Bxg7 Kxg7 20.
Rxf6 exf6 21. e3 Dc7 22. Dc2 De7 23.
Bf1 Db4 24. Hdc1 c5 25. dxc5 Dxc5 26.
b3 Hac8 27. bxc4 Rd7 28. Hab1 b6 29.
Hb5 Dc7 30. Db2 Hb8 31. Hb1 He8 32.
h4 h5 33. Dd4 Rc5 34. Dd1 Hed8 35.
Dc2 Hd6 36. Bg2 Rd7 37. Bd5 Re5 38.
De4 He8 39. f4 Dd7 40. fxe5 Hxe5 41.
Df3 De7 42. H1b3 f5 43. Kf2 Df6 44.
Df4 Kh7 45. Dg5 Dg7 46. Hxb6 Hxb6
47. Hxb6 f4 48. Df6 fxg3+ 49. Kxg3
Hxe3+ 50. Kf2 Hh3 51. Dxg7+ Kxg7
52. Hb7 Hxh4 53. Hxf7+ Kh6 54. Ha7
Hh2+ 55. Kg3 Hc2 56. Hxa5 Hc3+ 57.
Kf4 h4 58. Ha8 Kg7 59. a5 h3 60. He8
Ha3 61. He3 g5+ 62. Ke4 h2 63. He1
Hxa5 64. Hh1 Ha2 65. Kf5 Kh6 66. Kg4
Kg6 67. Kg3 Kf5 68. Hxh2 Ha3+ 69.
Kg2 Kf4 70. Hh8 Ha2+ 71. Kf1 g4 72.
Hf8+ Kg3 73. Hg8 Hc2 74. Ke1 Kf4 75.
Kd1 Hh2 76. c5 Hh5 77. Hd8 g3 78. c6
Staðan kom upp í Íslandsmótinu í
netskák sem lauk fyrir skömmu á
skákþjóninum ICC. Íslandsmeistarinn,
Stefán Kristjánsson (2822 ICC stig),
hafði átt í vök að verjast gegn Davíð
Kjartanssyni (2645 ICC stig) alla skák-
ina og verið biskupi undir í 40 leiki þeg-
ar hann bjargaði sér á ótrúlegan máta.
78... Hxd5+! 79. Hxd5 g2 staðan er nú
bara jafntefli þar eð hvítur getur ekki
varnað því að svartur komi g-peði sínu
upp í borð og verður því að þráskáka.
80. Hd4+ Kf5 81. Hd5+ Kf4 82. Hd4+
Kf5 83. Hd5+ Kf4 og jafntefli samið.
Stefán kallar sig á ICC Champbuster
og hefur komst mest í 3245 ICC stig
sem er með því hæsta sem Íslendingur
hefur náð. Davíð teflir einnig mikið á
ICC og kallar sig BoYzOne en hann
hefur fengið hæst 2911 ICC stig.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
KVENNAKÓRINN Léttsveit Reykjavíkur heldur jólatónleika í Bústaðakirkju í kvöld kl.
20:30.
Stjórnandi er Jóhanna V. Þórhallsdóttir; Aðalheiður Þorsteinsdóttir leikur á píanó,
Tómas R. Einarsson á bassa og Wilma Young á fiðlu. Á dagskránni eru jólalög, íslensk og
erlend, gömul og ný, hátíðleg og fjörug.
Miðasala er hjá Léttsveitarkonum, sími 897-1885, og kostar miðinn kr. 1.200.
Kórinn á 10 ára afmæli á þessu ári. Í tilefni af því er verið að gera heimildamynd í fullri
lengd um kórinn og verður hún sýnd undir vorið.
Fyrir utan tónleikahald tvisvar til þrisvar á ári treður kórinn upp á alls konar skemmt-
unum, svona eftir pöntun. Einnig er fastur liður í starfi hans að syngja á Þorláksmessu
við útimessu í Austurstræti sem miðborgarprestur, sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, sér um.
Léttsveit Reykjavíkur í Bústaðakirkju
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Trompíferðin.
Norður
♠1072
♥ÁKD83 S/Allir
♦D5
♣965
Suður
♠ÁKG863
♥52
♦Á87
♣D7
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 spaði
2 lauf 2 hjörtu Pass 2 spaðar
Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar
Allir pass
Suður spilar fjóra spaða eftir sagn-
irnar að ofan. Vestur tekur tvo fyrstu
slagina á ÁK laufi og spilar svo gos-
anum, sem suður trompar. Austur
fylgir tvisvar lit í laufinu, en hendir tígli
í það þriðja. Hvernig er best að spila?
Staðan er ekki slæm, en þó er sú
hætta fyrir hendi að gefa slag á tromp
og annan á tígul. Suður leggur niður
trompás og báðir fylgja. Þá er best að
spila hjarta á blindan og trompi á gos-
ann. Ef svíningin misheppnast, verður
spaðatían innkoma í blindan til að nýta
hjartalitinn ef hann brotnar 4-2.
Norður
♠1072
♥ÁKD83
♦D5
♣965
Vestur Austur
♠5 ♠D94
♥74 ♥G1096
♦KG42 ♦10963
♣ÁKG832 ♣104
Suður
♠ÁKG863
♥52
♦Á87
♣D7
En í þessu tilfelli heppnast svíningin
og þá er í lagi að gefa slag á tígul.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is