Morgunblaðið - 14.12.2004, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 14.12.2004, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 45 MENNING Bragi Björnsson lögmaður og löggiltur fasteignasali Úlfar Þ. Davíðsson sölustjóri Jónas Valtýsson sölumaður Börkur Hrafnsson lögmaður og löggiltur fasteignasali HÁTÚN 6A SÍMI 5 12 12 12 FAX 5 12 12 13 Netfang: foss@foss.is FASTEIGNASALA Foss fasteignasala, Hátúni 6a sími 512 12 12, Fax 512 12 13, Netfang foss@foss.is VANTAR VEGNA MIKILLAR SÖLU UPP Á SÍÐKASTIÐ VANTAR OKKUR ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ ENDILEGA HAFIÐ SAMBAND VIÐ SÖLUMENN OKKAR Í SÍMA 512 1212 HLÍÐAR - GLÆSILEG VÖNDUÐ OG VEL SKIPULÖGÐ 129 fm 4ra herbergja íbúð á 3ju hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi í Hlíðunum. Hol, sérsmíðaður fallegur skápur. Stofa og borðstofa samliggjandi. Dökkt fallegt parket á gólfi. Stórir gluggar sem gefa mikla birtu. Útgengt á svalir frá stofu, mjög gott útsýni. Vönduð sérhönnuð innrétting í eldhúsi með vönduðum eldunartækjum. Baðherbergi glæsilegt. Tvö stór svefnherbergi, hjónaherbergi, með fataherbergi. Tvær stórar geymslur eru í kjallara, báðar með aðgengi að snyrtingu, upplagt í útleigu. Hjóla- og vagnageymsla, sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi. Sameign er snyrtileg. Verð 19,5 milljónir LÁLAND - FOSSVOGUR FOSS FASTEIGNASALA KYNNIR EINBÝLISHÚS Á FRÁBÆRUM STAÐ Í FOSSVOGI. 143,3 fm einbýlishús á einni hæð og 35,6 fm bílskúr ásamt stórri lóð. Húsið samanstendur af 3 svefn- herbergjum, 2 stofum, sjónvarpsholi, eldhúsi, búri, þvottahúsi og 2 baðherbergjum. Gengið úr svefnherbergi í upphitaðan glerskála. Góður bílskúr ásamt geymslu innaf bílskúrnum. Stór og gróinn garður. GÓÐ EIGN Á FRÁBÆRUM STAÐ. Verð 37 milljónir. SVEIGHÚS - GRAFARVOGUR UM ER AÐ RÆÐA EINBÝLISHÚS Á TVEIMUR HÆÐUM ALLS 223,7 FM. ÞAR AF ER TVÖFAL- DUR BÍLSKÚR 40 FM. EINNIG ER CA 60 FM ÓSKRÁÐ RÝMI Í KJALLARA SEM EKKI ER INNÍ FM FJÖLDA. Fjögur svefnherbergi og tvær stofur. Rúmgóðar svalir útfrá borðstofu. Flísar og parket á gólfum. Fallegar innréttingar. Eitt rúmgott baðherbergi, flísalagt hólf í gólf og gest- asnyrting á 1. hæð. Verð 38 milljónir. AUSTURSTRÖND - SELTJARNARNES FOSS FASTEIGNASALA KYNNIR 67,4 FM, 2JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á ANNARI HÆÐ ÁSAMT STÆÐI Í BÍLSKÝLI Í GÓÐU LYFTUHÚSI Á SELTJARNARNESI. Hol, flísar á gólfi, skápur. Það- an er gengið inní alrými/hol, parket á gólfi. Opið eldhús, ágætt pláss fyrir eldhúsborð, eldri viðarinnrétting flísar á milli innréttinga, parket á gólfi. Svefnherbergi er rúmgott, góðir skáp- ar. Baðherbergi, flísalagt hólf í gólf, baðkar með sturtuaðstöðu. Mjög stórar svalir í kringum íbúðina. Sameiginlegt þvottahús á hæðinni. Geymsla í kjallara. Stæði í bílskýli. Verð 12,9 milljónir. NESVEGUR - 3JA HERBERGJA GLÆSILEG 3JA HERBERGJA 73,7 FM ÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ MEÐ SÉRGARÐI í NÝLEGU HÚSI BYGGT 1995 Á GÓÐUM STAÐ Í VESTURBÆNUM. Hol, innaf því er sérgeymsla. Úr holi er síðan beint gengið í alrými sem saman stendur af borðstofu og stofu, parket á gólfum. Opið eldhús með fallegri viðarinnréttingu, rúmgott. Úr stofu er gengið útá glæsilega viðarverönd til suðurs. Tvö björt og rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni.Alllar innréttingar eru úr kirsu- berjarvið. Glæsilegt baðherbergi með fallegum flísum á gólfi, baðkar með sturtuklefa, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, FRÁBÆR EIGN Á VINSÆLUM STAÐ. VERÐ 14,9 MILLJÓNIR. SKIPASUND - GLÆSILEG 3JA HERB. MJÖG GÓÐ 3JA HERBERGJA 75,7 FM MEÐ MIKILLI LOFTHÆÐ (ÞAR AF 4,1 FM GEYMSLA) ÍBÚÐ Í FALLEGU HÚSI Á FRÁBÆRUM STAÐ Í SKIPASUNDI Í REYKJAVÍK. Komið er inní for- stofu/hol, bjart og rúmgott. Listar og rósettur í lofti. Innaf forstofu er gengið inní aðrar vistar- verur í íbúðinni. Bjartar og samliggjandi skiptanlegar stofur, möguleiki á að breyta borðstofu í svefnherbergi. Einkar fallegur og stór gluggi í annarri stofunni sem setur mikinn svip á íbúð- ina. Rósettur eru í lofti í báðum stofum. Eldhús er rúmgott, gott pláss fyrir eldhúsborð. Svefn- herbergi, er rúmgott og bjart, rósettur og listar í lofti, stórir og góðir skápar. Vel skipulagt baðherbergið er með mósaíkflísum. Sameign er snyrtileg. Þvottahús í sameigninni, geymsla í kjallara. FALLEG ÍBÚÐ Á RÓLEGUM STAÐ MIÐSVÆÐIS Í REYKJAVÍK. LOFTHÆÐ Í ÍBÚÐ ER 3,15 M SEM GEFUR MJÖG FALLEGAN BLÆ. Verð 14,9 millj. VESTURGATA - 5 HERBERGJA FOSS FASTEIGNASALA KYNNIR GLÆSILEGA 111 FM - 5 HERBERGA ÍBÚÐ MEÐ SVÖLUM Á GÓÐUM STAÐ Í GAMLA VESTURBÆNU. LOFTHÆÐ Í ÍBÚÐ ER UM 3 METRAR. Komið inná hol/forstofu, lakkað, bæsað steingólf. Rúmgott sérþvottahús. Fjögur rúmgóð svefnherbergi með stórum gluggum. Bogadregin gluggi í einu þeirra. Rúmgott hol sem notað er undir rými fyrir tölvu. Stofa og borðstofa í alrými, stórir gluggar, gerir rýmið bjart, steyptar fallegar róssettur í lofti. Tvær snyrtingar eru í íbúðinni. Stórt eldhús, með hvítri innréttingu, ný elda- vél og ofn. Sérlega skemmtileg og sjarmerandi íbúð í gamla vesturbænum. Verð 19,8 millj. AÐVENTUTÓNLEIKAR voru haldnir í Grensáskirkju á sunnu- daginn. Auglýst hafði verið að Oddur Björns- son básúnuleik- ari kæmi þar fram en það breyttist; í stað- inn flutti Árni Arinbjarnarson, organisti með meiru, prelúdíu og fúgu eftir Buxtehude og gerði það ágæt- lega; túlkunin var fjörleg og tæknileg atriði voru yfirleitt eins og þau áttu að vera. Ekki eins góður var Kirkjukór Grensáskirkju, sem samanstóð af sautján manns. Söngurinn var ekki alltaf hreinn og á tímabili voru kórinn og kammersveitin sem lék með honum hvort í sinni tóntegundinni. Hljómburðurinn í kirkjunni er reyndar ekkert sér- staklega kóravænn; endurómunin er tiltölulega lítil og er það kannski ástæðan fyrir því hve sópranraddir kórsins virkuðu hvassar, en það var óþægilegt á að hlýða. Einstakar karlaraddir voru líka of sterkar miðað við hina og skemmdi það töluvert heildar- hljóminn. Eins og áður sagði kom kamm- ersveit fram á tónleikunum og samanstóð hún af Pálínu Árna- dóttur, Dóru Björgvinsdóttur, Ás- dísi Þorsteinsdóttur, Þórhildi Jónsdóttur, Kristjönu Helgadóttur og Örnu Kristínu Einarsdóttur, en Sigrún Magna Þórsteinsdóttir spilaði á orgelið. Hljómsveitin stóð sig prýðilega; samhljómurinn var tær og allar hendingar fagurlega mótaðar. Óþarfi er að telja upp einstök atriði efnisskrárinnar, en í það heila var túlkunin sem slík sann- færandi burtséð frá fyrrgreindum tæknilegum vanköntum söngsins. Helst mátti finna að þættinum úr kantötu nr. 208 eftir Bach, Hjörð í sumarsælum dölum, en hann virk- aði órólegur og var því sennilega of hraður fyrir þá sæluvímu sem tónlistin fjallar um. Að lokum verður að nefna lýs- inguna í kirkjunni, sem var full- mikil fyrir aðventutónleika. Mun huggulegra hefði verið að hafa hálfrökkur í kirkjunni og fleiri logandi kerti. TÓNLIST Grensáskirkja Kirkjukór Grensáskirkju söng ásamt kammersveit undir stjórn Árna Arinbjarn- arsonar tónlist eftir Buxtehude, Bach og fleiri. Sunnudagur 12. desember. Aðventutónleikar Jónas Sen Árni Arinbjarnarson FJÖLMIÐLAMAÐURINN Eggert Skúlason og Tindra ehf hafa sent frá sér DVD-diskinn Veiðiperlur. Á hon- um eru tvær hliðar, önnur á íslensku og hin á ensku. Á 72 mínútum er efn- inu skipt upp í nokkra flokka, Straumfjarðará á Snæfellsnesi er heimsótt ásamt Rögnvaldi Guð- mundssyni, „Í skugga laxins“ kynnir Theodór leiðsögumaður við Víðidalsá sjóbleikjustofn sem byggir ána en er í skugganum af frænda sínum lax- inum hvað varðar hylli veiðimanna, „Eyðifjörður“ fjallar um heimsókn Einars Guðmanns og Ólafs Henrik- sens í Héðinsfjörð þar sem sjóbleikja er viðfangsefni veiðimanna, „Þessi fallegi dagur“ er óður Bubba Mort- hens til stangaveiða og uppgjör hans við tvær heimsþekktar laxveiðiár, Hofsá í Vopnafirði og Laxá á Ásum, og loks er „Ósaveiði“ þar sem Ásgeir Halldórsson og frú í Sportvörugerð- inni halda í sjóbirting vestur í Stað- arsveit. Eins og fyrir liggur er hér róið á mið stangaveiðimanna og er Eggert Skúlason öllum hnútum kunnugur á þeim vettvangi eftir að hafa stýrt gerð fjölda svokallaðra Sporðakasta- þátta sem Stöð 2 sýndi á árum áður. Eggert hefur einnig framleitt önnur myndbönd og DVD um stangaveiði. Með honum ævinlega er Friðrik Guðmundsson kvikmyndagerð- armaður og eftir að hafa skoðað Veiðiperlur verður ekki annað sagt en að þeir Eggert og Friðrik séu bara nokkuð góðir saman. Undirrituðum finnst nánast óþarfi að geta frábærrar myndatöku Frið- riks, sem skilar náttúru landsins svo hundrað prósent heim í stofu að menn eru farnir að róta í flugubox- unum og rifja upp liðnar vertíðir óðar og sýningunni er lokið, þó að úti sé nú svartasta skammdegið. Sér- staklega er undirritaður hrifinn af myndskeiðinu frá eyðifirðinum. Frá- bærar einnig tökur þar sem sjó- bleikjur eru að svífa á fluguna og taka hana. Inn í þennan óð til landsins fléttar Eggert fræðslu, m.a. er varðar and- streymisveiði, þurrfluguveiði, gáru- fluguveiði, mismunandi viðhorf manna til þess hvernig bregðast eigi við fiski og þannig mætti áfram telja. Skemmtilegt er einnig að sjá öll, eða að minnsta kosti flest, viðhorf í há- vegum höfð. Menn bæði sleppa fiski og hirða í soðið, menn nota bæði flugu og spón. Hér eru engir for- dómar, aðeins að menn fari út í ís- lenska náttúru, skemmti sér og veiði eftir sínu nefi. Þó að myndskeiðið um eyðifjörð- inn sé að mati undirritaðs hápunktur Veiðiperla, þá er ekki hægt annað en að nefna myndskeiðið um Bubba. Bubbi er í besta falli bráðskemmti- legur náungi og hress með eindæm- um og það veður á honum í Veiðiperl- um. Margt skemmtilegt hrekkur uppúr honum á milli þess sem hann dregur laxa á færibandi. Merkileg þó og eftirminnileg er afgreiðsla hans á Laxá á Ásum, sem fyrir fáum árum þótti hugsanlega besta laxveiðiá í heimi og þrátt fyrir að hafa dalað verulega, er samt ein besta laxveiðiá landsins sé miðað við veidda laxa á hverja dagstöng. Samkvæmt Bubba þá er áin bara „spræna“ sem hann ætlar aldrei aftur að veiða í! Draumadagar við Veiðiperlur DVD DISKUR Veiði Eggert Skúlason og Tindra ehf. 72 mín. Veiðiperlur Guðmundur Guðjónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.