Morgunblaðið - 14.12.2004, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 14.12.2004, Qupperneq 46
BÚIÐ er að taka niður vaxmyndirnar af frægu fólki í hlutverkum Jósefs, Maríu, vitringanna og hirðingjanna, í Madame Tussaud-vaxmyndasafninu í Lundúnum. Þar var ekki verið að bregðast við harðri gagnrýni kirkjunnar manna við uppátækinu heldur neyddust sýningarhaldarar til að loka sýningunni eftir að unnin voru skemmdarverk á Victoriu og David Beckham klæddum sem Maríu og Jósef. Sást til manns á þrítugsaldri ganga ítrekað í „skrokk“ á þeim Beckham-hjónum, eða réttara sagt vaxmyndum þeirra, og hverfa svo út á stræti Lundúna án þess að menn hefðu hendur í hári hans. Reuters David og Victoria Beckham sem Jósef og María og engillinn Kylie Minogue vakir yfir. Umdeild Biblíutúlkun. Beckham skemmdur 46 ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ NOKKUÐ hefur borið á vakningu undanfarið hvað varðar svonefnt „lif- andi hljóð“ í tónlist, nokkurs konar þjóðlagavakningu. Kontrabassar, kassagítarar, píanó og orgel hafa gengið í endurnýjun lífdaga og þykir jafnvel orðið nokkuð flott að láta harmónikku, fiðlu eða mandólín fylgja með í flutningnum. Ekkert er nema gott um það að segja, enda hef- ur hið hlýja og lifandi hljóð „alvöru“ hljóðfæra óneitanlegan sjarma. Helgi Pétursson fær á þessari plötu til liðs við sig sannkallað lands- lið tónlistarmanna til að taka upp sína uppáhalds „standarda“, sem er annað nafn yfir sígild dægurlög, nokkurs konar dægurperlur. Þá fær hann Jónas Friðrik Guðnason ljóð- skáld til að þýða erlenda texta og hnýtir lokahnútinn á góða formúlu með því að fá til liðs við sig Jón Ólafs- son, sem er án efa einn fjölhæfasti upptökustjóri landsins. Útkoman er eftir því, dæg- urperlurnar eru listivel spilaðar og ljúfur söngur Helga nýtur sín ágætlega, þó stöku áherslur og hendingar séu dálítið „köflóttar“. En það er bara eitthvað sem vantar. Þetta verður eiginlega fullmikil formúla fyrir minn smekk. Platan er örugg og ljúf, en um leið áhættulaus, bragðdauf, fyrir utan sætuna. Dálítið eins og tónlistarlegur Volvo, örugg en skortir ögrun eða hrjúfleika. Það er þó alls ekki hægt að kvarta yfir hljóðfæraleiknum eða útsetningunum, hljómurinn er góður, en það vantar bara eitthvað. Umgjörð plötunnar er mjög vönd- uð og persónulegar athugasemdir Helga við hvert lag eru af hinu góða. Það er gaman að fá smá innsýn inn í það sem listamaðurinn er að hugsa. Helgi er líka hinn ágætasti gleðigjafi og þjónar sínum hlustendum með prýði. Þessi plata gengur áreiðanlega vel í þá sem leita í hlýjan og notaleg- an faðm dægurperlnanna. Við fjórðu hlustun vaknaði hjá mér gömul fagurfræðileg vangavelta um muninn á handverki og list. Þessi plata myndi líklega seint flokkast sem list, en hún er án nokkurs vafa hið prýðilegasta handverk og þjónar vel sínum tilgangi. Prýðilegt handverk TÓNLIST Íslenskar plötur Helgi Pétursson syngur erlend lög í ís- lenskum þýðingum Jónasar Friðriks Guðnasonar og leikur á kontrabassa. Guðmundur Pétursson: gítar, Jón Ólafs- son: píanó, Hammond orgel og bakraddir, Róbert Þórhallsson: rafbassi, Dan Cass- idy: fiðla, Sigfús Óttarsson: trommur, Haukur Gröndal: klarinett, Snorri Sigurð- arson: trompet, Ásgeir Óskarsson: slag- verk, Þuríður Sigurðardóttir: söngur í Alltaf hjá mér, Regína Ósk Óskarsdóttir: Bakraddir og söngur, Í Borgarfirði. Jón Ólafsson stýrði upptökustjórn og út- setningum. Helgi P. – Allt það góða  Svavar Knútur Kristinsson EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS * www.borgarbio.is Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 14 ára. VINCE VAUGHN BEN STILLER Sýnd kl. 6 og 8.. Ó.Ö.H / DV  Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15 PoppTíví  PoppTíví  Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára. Miðasala opnar kl. 15.30 Jólaklúður Kranks Jólamynd fjölskyldunnar Óttist endurkomuna því hann er mættur aftur vígalegri enn nokkru sinni fyrr!! i í í l i i i ❄❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ Sjáumst í bíó Sjáumst í bíó Sýnd kl. 4. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 14 ára. kl. 4, 6, 8 og 10. Hann er á toppnum... og allir á eftir honum Framleidd af Mel Gibson Pottþéttur spennutryllir... . DodgeBall  DV ÓÖH... ..stórskemmtileg og hin hressasta...  DV ÓÖH... ekki ekki  Ó.Ö.H. DV EIN ÓHUGNALEGASTA MYND SEINNI ÁRA Alls ekki fyrir viðkvæma Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára. BRUCE-LEE á allar erlendar myndir í dag, ef greitt er með Námukorti Landsbankans á allar erlendar myndir í dag, ef greitt er með Námukorti Landsbankans TVEIR ókunnugir menn, (Gordon læknir Elwes) og ljósmyndarinn (Adam Whannell), ranka við sér í sóðalegri kjallaraboru, hlekkjaðir við pípulögnina. Á miðju gólfi ligg- ur lík í blóðpolli. Smám saman átta þeir sig á því að þeir eru nýjustu fórnarlömb raðmorðingja sem kall- aður er Jigsaw og leikur lausum hala í borginni. Hann hefur þann háttinn á að etja fórnarlömbum sín- um saman eða leggja fyrir þau þrautir sem leysa þau úr prísund- inni ef þeim tekst að leysa þær inn- an ákveðinna tímamarka. Sumar myndir eru ætlaðar á fastandi maga. Saw er ein þeirra, yfirmáta subbuleg og full af óhugn- anlegum smáatriðum, en lengst af heldur hún áhorfandanum yst á stólbrúninni, spennandi og hug- vitssöm í miskunnarlausum kvala- losta. Atburðarásin er mikið til njörvuð við rýmið í kjallaranum og persón- urnar tvær. Wan, sem er að fást við sitt fyrsta leikstjórnarverkefni, heldur manni við leiksviðslegt efnið en hann er einnig handritshöfundur ásamt Whannell, sem leikur sann- færandi annað fórnarlambanna. Elwes gerir einnig það sem af hon- um er krafist allt að lokakaflanum, þá verður hann ámóta trúverðugur og á sokkabuxunum í Skírisskógi. Lokakaflinn er öllum erfiður, fram- vindan fer gjörsamlega úr bönd- unum í slöppum aukafléttum þar sem Glover fær svo vondar línur sem lögreglumaður á spori rað- morðingjans, að honum er hrein- lega vorkunn. Um svipað leyti fara síendurtekin afturhvörf að gerast þreytandi og ruglandi en engu að síður búa bestu kaflar Saw yfir óvenjulegum mögnuðum frum- krafti, ferskleika og svo sjúklega spilltu andrúmslofti að myndin er sannarlega ekki fyrir viðkvæmar sálir. Kvalalosti í kjallaranum KVIKMYNDIR Laugarásbíó, Regnboginn, Borgarbíó Akureyri. Leikstjóri: James Wan. Aðalleikendur: Cary Elwes (Dr. Lawrence Gordon), Danny Glover (David Tapp), Monica Pott- er (Alison Gordon), Leigh Whannell (Adam). 100 mín. Bandaríkin. 2004. Sög (Saw)  Sæbjörn Valdimarsson GEORGE Clooney, Brad Pitt og allir hinir krimmarnir skutust á toppinn í Bandaríkjunum með framhaldið af Ocean’s Eleven, sem heitir Ocean’s Twelve. Í myndinni leika, auk þeirra Clooneys og Pitts, Matt Damon og Julia Roberts, líkt og í fyrri myndinni, sem og heill her af margfrægum Hollywood-stjörnum. Við- tökurnar voru líka eftir því. Myndin tók tæplega 41 milljón dala í kassann (2,5 milljarða króna), sem eru að- eins betri viðtökur en forverinn frá 2001 fékk sína fyrstu helgi þegar hún halaði inn rúmlega 38 milljónir dala. Hér er auk þess á ferð fjórða stærsta frumsýning í desembermánuði frá upphafi og hefur einungis Hringadróttins-þríleikurinn gert betur. Í framhaldinu, sem fengið hefur ansi hreint misjafna dóma, fylgjumst við með genginu svala fremja þrjú meiriháttar rán í Evrópu. Myndin felldi toppmynd síð- ustu vikna, hasarmyndina National Treasure, úr sessi og niður í þriðja sætið. Þriðja Blade-myndin, Blade: Trinity, með Wesley Snipes komst upp á milli þeirra. Þá njóta þær enn vinsælda jólamyndirnar The Polar Express og Christmas with the Kranks. Allar verða þessar fimm toppmyndir meðal jóla- mynda hér á landi í ár. Sýningar eru þegar hafnar á síðastnefndu myndunum tveimur, Ocean’s Twelve og Blade: Trinity verða frumsýndar um næstu helgi og National Treasure verður nýársmynd. Bíóaðsókn | Ocean’s Twelve á toppinn vestra Clooney og krimmarnir Svalur og gengið. Damon, Pitt og Clooney leggja á ráðin í Ocean’s Twelve. STÓRI salurinn í Laugarásbíói var tekinn formlega í notkun á laug- ardaginn eftir að hafa fengið lag- lega andlitslyftingu, hallinn verið aukinn og búið að skipta um sæti og hljóðkerfi. Eigendur Myndforms, sem rekur Laugarásbíó, Magnús og Gunnar Gunnarssynir og Snorri Hall- grímsson, tóku á móti góðum gest- um af þessu góða tilefni, starfsfólki sínu og velunnurum, auk aðstand- enda Sjómannadagsráðs sem er eigandi húsnæðisins sem Laug- arásbíó starfar í. Morgunblaðið/Árni Torfason Eigendur Myndforms sem rekur Laugarásbíó: Snorri Hallgrímsson og Gunnar og Magnús Gunnarssynir fögnuðu nýja salnum á laugardag ásamt Guðmundi Hallvarðssyni, formanni Sjómannadagsráðs. Nýtt og betra Laugarásbíó

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.