24 stundir - 29.11.2007, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 24stundir
Samtök atvinnulífsins hvetja stjórnvöld til þess að
endurskoða samkomulag sitt við Seðlabankann um
verðbólguviðmið þannig að verðbreytingar á eigin hús-
næði falli brott. Þá hvetja samtökin stjórnvöld til þess
að endurskoða lögin um Seðlabankann þannig að horf-
ið verði frá ósveigjanlegu verðbólgumarkmiði og unnt
verði að taka tillit til annarra aðstæðna í þjóðarbú-
skapnum en verðbólgu við ákvörðun stýrivaxta. Þetta
kemur fram í ályktun fulltrúaráðs Samtaka atvinnulífs-
ins sem var samþykkt á fundi fulltrúaráðsins í gær.
Segir í ályktuninni að óvissa og óróleiki á erlendum
og innlendum fjármálamörkuðum muni marka efna-
hagsframvinduna á næstu mánuðum og jafnvel miss-
erum.
„Fjármálageirinn sem verið hefur ein helsta upp-
spretta vaxtar í íslenskum þjóðarbúskap undanfarin ár
mætir nú hækkandi fjármögnunarkostnaði sem leiðir
til aukinnar varfærni og minni umsvifa.“ mbl.is
Samtök atvinnulífsins vilja sjá breytingar
Nýtt verðbólgumarkmið
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Starfsmönnum Svæðisskrifstofu
málefna fatlaðra í Reykjavík er nú
gert að tilkynna veikindi til heil-
brigðisþjónustufyrirtækisins
InPro. Þórarinn Eyfjörð, fram-
kvæmdastjóri SFR - stéttarfélags í
almannaþjónustu, segir starfs-
menn ekki skylduga til að tilkynna
veikindi til þriðja aðila, heldur beri
þeim samkvæmt kjarasamningi að
tilkynna þau til vinnuveitenda.
,,Þessu verður ekki breytt nema
með kjarasamningum. Öllum
stofnunum ríkisins ber að virða
það,“ leggur Þórarinn áherslu á.
Hann kveðst hafa heimildir fyrir
því að í upphafi hafi starfsmönn-
um verið tilkynnt að samþykktu
þeir ekki að tilkynna InPro um
fjarvistir yrðu þeir að skila lækn-
isvottorði daglega og greiða allan
kostnað sjálfir. ,,Þeim var einnig
tilkynnt að greiðsla veikindalauna
félli niður. En nú er verið að draga
þetta til baka og reyna að klóra yfir
alla vitleysuna.“
Guðný Anna Arnþórsdóttir,
starfsmannastjóri svæðiskrifstof-
unnar, segir það ekki rétt að starfs-
menn eigi að greiða fyrir læknis-
vottorð sjálfir. Hún vill ekki tjá sig
frekar um málið á þessu stigi, eins
og hún orðar það.
Þórarinn segir það einnig alvar-
legt ef InPro eigi að safna gögnum
um veikindi starfsmanna og hefur
sent málið til Persónuverndar til
umsagnar.
Á heimasíðu InPro segir að fyr-
irtækið sé í samstarfi við Persónu-
vernd varðandi innra öryggi per-
sónuupplýsinga og prófun staðla
þeim tengdra.
Bragi Axelsson, lögfræðingur hjá
Persónuvernd, segir stofnunina
ekki í samstarfi við InPro, heldur
veiti Persónuvernd leiðbeiningar
varðandi vinnslu persónuupplýs-
inga. ,,Það hefur engin úttekt farið
fram af hálfu Persónuverndar á
vinnslu persónuupplýsinga hjá
InPro og Persónuvernd mun óska
þess að umræddur texti á heima-
síðu fyrirtækisins verði leiðréttur.“
Reynt að klóra
yfir vitleysuna
Framkvæmdastjóri SFR segir félagsmenn ekki skylduga til að til-
kynna veikindi sín til InPro Málið sent til Persónuverndar
Fatlaðir Starfsmenn Svæðisskrifstofu
málefna fatlaðra í Reykjavík undrast það
fyrirkomulag að þurfa að tilkynna veik-
indi til InPro.
➤ Heilbrigðisþjónustufyr-irtækið InPro býður upp á
fjarvistaskráningu og ráðgjöf
fyrir alla fjölskylduna.
➤ Svæðisskrifstofa málefna fatl-aðra í Reykjavík hefur gert
samning við InPro fyrir fjórar
starfsstöðvar til reynslu í einn
mánuð.
FJARVISTASKRÁNINGAR
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Víða er hægt að kaupa íslenskt konfekt í kílóa pakkn-
ingum, eru þá molarnir ekki í sérstökum hólfum eða í
fallegum umbúðum og sjálfsagt eru það hagstæðustu
kaupin. Neytendasamtökin könnuðu verð á slíkum
kössum af blönduðum molum frá Nóa Síríus. Vínber-
ið við Laugaveg er með langlægsta verðið. Þó verður
að taka fram að magnið er takmarkað í Vínberinu
enda er verslunin ekki mjög stór.
Lang ódýrast hjá Vínberinu
Ingibjörg
Magnúsdóttir
NEYTENDAVAKTIN
Konfekt frá Nóa Sírús 1 Kg.
Verslun Verð Verðmunur
Vínberið 1.499
Bónus 1.875 25,0 %
Krónan 1.876 25,0 %
Melabúðin 1.898 27,0 %
Fjarðarkaup 2.190 46,0 %
Nóatún 2.199 47,0 %
„Það verður að taka tillit til
þess að það eru mjög sérstakar
aðstæður á danska markaðum
og verðið þar mun lægra en í
löndunum í kring,“ segir
Hjördís Árnadóttir, fjölmiðla-
fulltrúi Actavis, spurð um
þann tífalda verðmun sem er á
lyfjum Actavis á Íslandi og í
Danmörku. 24 stundir sögðu
frá því í gær. Hjördís segir
þetta ekkert nýtt og fyrirtækið
hafi svarað þessum at-
hugasemdum áður. ejg
Actavis um verðmun
Aðstæður aðrar
Frá og með 1. des. er opið til 22:00 fram að jólum
Bjartara skammdegi
GLÄNSA aðventuljós 7 armar
L59xB94, H45 cm
3.990,-
GLÄNSA aðventuljós
7 armar L33xH14 cm
695,-
!
" #$%&%'(
)*+, -.
, -. +
+
)* #/
!)*
)--
0 *0
.
1 -
- /-/
-. 2* */ 2
*/
//
3
4
5 / /6! /