24 stundir - 29.11.2007, Blaðsíða 46

24 stundir - 29.11.2007, Blaðsíða 46
Glitnir gladdi starfsmenn sína í síðustu viku með þeim fréttum að bankinn ætlaði að bjóða þeim út að borða í Súlnasal Hótels Sögu. Fyrir mistök gleymdist að láta þá starfsmenn, sem sóttust eftir að komast að, vita að þeim stæði til boða glæsilegur kvöldverður í ein- um af glæsilegustu veislusölum landsins. Samkvæmt heimildum 24 stunda var fjöldapóstur sendur til starfsmanna og þeim tjáð að rúm- lega 500 manns kæmust að í kvöldverðinum og að þeir fyrstu sem svöruðu póstinum kæmust að. Þeir sem svöruðu fengu hins vegar aldrei að vita að þeir kæmust og töldu því flestir að kvöldverðurinn stæði þeim ekki til boða. Matur og drykkur fyrir 500 Heimildir 24 stunda herma að um 100 manns hafi tekið sénsinn og mætt í Súlnasal, en Glitnir hafði pantað mat og drykk fyrir rúmlega 500 manns. Ekki náðist í Völu Pálsdóttur, upplýsingafulltrúa Glitnis, við vinnslu fréttarinnar, en ljóst er að hundruð þúsunda króna hafi farið til spillis vegna mistakanna. Sam- kvæmt heimildum var búið að opna töluvert meira magn af víni en þarf í glös fyrir hundrað manns. Þá hafði matur verið pantaður og eldaður fyrir rúmlega 500 manns, en hann hefur væntanlega endað á diski starfsmanna hótelsins, sem gætu ennþá verið að kjamsa á góð- gætinu miðað við magnið sem var framreitt. atli@24stundir.is Glitnir bauð starfsfólki í mat en fáir mættu Gleymdist að svara svöngu starfsfólki 24 stundir/ÞÖK Vúps Lárus og félagar í Glitni vildu vel, en gleymdu formsatriði. 46 FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 24stundir MIKIÐ ÚRVAL AF BLÚSSUM OG SKYRTUM FRÁ Sigurboginn - Laugaveg 80 - Sími 561 1330 - www.sigurboginn.is „Nú ætlar oháeffarinn á flotta bílnum að fá 3 millur að lágmarki fyrir mínútu hlé sem á að gera á Áramótaskaupinu. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að Páll selji líka auglýsingar í aftansönginn á að- fangadagskvöld. Dómkirkju- prestur getur þá fengið sér kaffi eða skroppið á klósett á meðan.“ Jenný Anna Baldursdóttir jenfo.blog.is „…það er nokkuð augljóst, hvers vegna Næturvaktin er svona vin- sæl og ekki er það góðum brönd- urum að þakka, því þátturinn er afskaplega dapur. Ástæðan er fita. Íslendingar eru svo feitir, að þeir geta ekki stigið upp úr sófanum hjálparlaust.“ Garðar Örn Hinriksson blogg.visir.is/gardarorn „Af hverju mega ekki vera bleikir og bláir litir til að aðgreina þessi litlu sætu nýfæddu börn? Það er ekki eins og það sé verið að mis- muna þeim á neinn hátt og hvað þá að þetta eigi eftir að skemma þau! Af hverju þarf að kynleysa allt? Má ekki halda í einhverjar hefðir?“ Helga Sveinsdóttir lost.blog.is BLOGGARINN Eftir Atla Fannar Bjarkason atli@24stundir.is „Google er að mínu mati drauma- fyrirtæki að mörgu leyti,“ segir Finnur Breki Þórarinsson, en hann starfar við hugbúnaðargerð hjá tænirisanum Google í Bandaríkj- unum. Í nýlegri úttekt Fortune- tímaritsins var Google valið það fyrirtæki í Bandaríkjunum sem best er að vinna fyrir. Ýmis fríðindi eru í boði fyrir starfsmenn á vinnustaðnum, til dæmis lækna- þjónusta, líkamsrækt og þvottahús, en öll þjónustan er gjaldfrjáls. Víðfrægt mötuneyti Finnur Breki hefur búið í Bandaríkjunum í sjö ár ásamt eig- inkonu sinni og eiga þau saman tvö börn. Fjölskyldan býr í Norð- ur-Kaliforníu í miðjum Sílíkon- dalnum, sem er hjarta hátækniiðn- aðarins í Bandaríkjunum. „Google leggur sig mikið fram við að gera vel við starfsmenn sína. Mötuneytin eru víðfræg fyrir úrval og gæði og orðið mötuneyti er í raun rangnefni þar sem þau eru líkari veitingastöðum að gæðum en hefðbundnum mötuneytum fyrirtækja,“ segir Finnur Breki um mötuneytin hjá Google sem hafa vakið heimsathygli. „Eitt mötu- neytið sérhæfir sig í spænskum smáréttum, annað býr til aust- urlenska rétti og matreiðir sushi á staðnum og svona mætti lengi telja,“ segir Finnur Breki. „Veð- urfarið gerir það að verkum að maður getur setið að snæðingi úti undir sólhlíf og notið Kaliforníu- blíðunnar stóran hluta ársins.“ Mikil fríðindi Sólin er ekki það eina sem starfsmenn Google fá að njóta á hverjum degi. Ýmis fyrirtæki bjóða upp á þjónustu innan höfuðstöðva Google, svo sem nudd, klippingu, þvott á bílum og olíuskipti. „Tvær líkamsræktarstöðvar eru á svæðinu - gjaldfrjálsar - og sér Google um að útvega hrein hand- klæði fyrir starfsmenn,“ segir Finnur Breki. „Tvö þvottahús eru einnig til staðar þar sem Google útvegar þvottaefni og rukkar hvorki fyrir notkun á þvottavélum né þurrkurum. Heilsugæsla er á staðnum sem og tannlæknir. Þá kemur starfsmaður efnalaugar reglulega og sækir þvott starfs- manna til að setja í hreinsun. Þvottinum er svo skilað hreinum og straujuðum beint að skrifborði viðkomandi starfsmanns.“ Finnur Breki Þórarinsson vinnur hjá Google í Bandaríkjunum Klipptur og nudd- aður í vinnunni Finnur Breki Þórarinsson á kost á nuddi, bílaþvotti og sushi í vinnunni. Hann getur líka farið til tann- læknis, í líkamsrækt og klippingu áður en vinnu- deginum lýkur. Sáttur Finnur Breki vinnur á besta vinnustað Bandaríkjanna. ➤ Google var stofnað sem leit-arvél á netinu árið 1998. ➤ Tæplega 16.000 manns starfahjá Google í dag. ➤ Ásamt því að bjóða upp áeina öflugustu netleit í heimi býður Google upp á tölvu- póst, Youtube, jarðskoð- unarforritið Google Earth og fjölmörg önnur forrit. GOOGLE HEYRST HEFUR … Jolene, bar þeirra Dóru Takefusa og Dóru Dúnu í Kaupmannahöfn, hefur heldur betur slegið í gegn. Barinn flytur sig um set á næstunni, en nýja stað- setningin ku vera mjög spennandi. Vinsælustu plötusnúðar borgarinnar sækja í að fá að spila á Jo- lene, en hinn gríðarlega vinsæli Trentemöller, sem fyllir heilu íþróttahallirnar í Danmörku, kemur þar gjarnan fram sér til yndisauka á miðvikudögum. afb Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri Mannlífs, fer ný- stárlega leið í bókagagnrýni í nýjasta hefti Mannlífs. Undir fyrirsögninni „Bækur sem ég má ekki dæma“ skrifar Þórarinn um fjórar bækur eftir fjóra vini sína og hrósar þeim öllum í hástert. Hreinskilni Þórarins er aðdáunarverð þar sem íslenskir gagn- rýnendur hafa hingað til ekki látið lesendur vita hvort sá gagnrýndi er vinur eða óvinur. afb Formleg gangsetning Kárahnjúkavirkjunar verður á föstudag. Ástæða þótti þó til að endurmála veggi vélasals Fljótsdalsstöðvar sem málaðir voru grænir af Valgerði Sverrisdóttur, fyrrv. iðnaðarráðherra, og forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, en veggirnir nú eru bláir. Hvort um pólitíska ákvörðun er að ræða eða hvort verkið hefur ekki verið nógu vel leyst af hendi í byrjun er ekki vitað. tsk Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Su doku 4 5 7 6 3 8 9 2 1 6 9 2 1 4 5 8 3 7 3 8 1 7 2 9 4 5 6 9 7 3 5 8 1 6 4 2 5 2 4 9 6 3 7 1 8 8 1 6 2 7 4 3 9 5 7 4 8 3 1 2 5 6 9 1 3 9 8 5 6 2 7 4 2 6 5 4 9 7 1 8 3 Réttur dagsins er hakk og spagettí. 24FÓLK folk@24stundir.is a Ho ho ho ho ho ... Ætti að senda þjófana á Hraunið? Svavar Knútur Kristinsson er söngvari hljómsveit- arinnar Hraun. Gítarleikari sveitarinnar lenti í því á Airwaves-hátíðinni í október að rándýrum Gibson- gítar hans var stolið.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.