24 stundir - 29.11.2007, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Ein par 5 braut kemst inn á listann
sem ótrúlegt má telja. Ekki þarf hins
vegar að koma á óvart að sú braut er ein af
þessum sjö illræmdu á Oakmont.
Menn eru misjafnlegamiklir töffarar ogJose Mourinho er
nálægt toppn-
um í þeirri
ágætu grein.
Hefur karl nú
boðið for-
ráðamönnum
enska knatt-
spyrnusambandsins heim í
kaffi og kleinur til að ræða
hugsanlega ráðningu sína sem
landsliðsþjálfari Englands. Ekk-
ert verið að bíða eftir kalli sem
kannski kemur aldrei en þar
greinir á milli þeirra sem ná ár-
angri í lífinu og hinna sem gera
það ekki.
Um hádegisbilið í fyrra-dag stóð Alex McLeishharður á því að hafa
ekki snefil af
áhuga fyrir
Birmingham
en fjórum tím-
um síðar veif-
aði karlinn
kampakátur
bláum trefli félagsins og lýsti yf-
ir ævarandi hollustu. Segir sitt
um skapgerð Skotans sem þó
fær fín meðmæli frá Alex
Ferguson sem trúir að McLeish
eigi eftir að láta að sér kveða.
Rómverskur riddari reiðinn í Rómaborg fyrirallnokkrum árum og nú
snúa leikmenn
Roma sömu
leið heim eftir
að hafa steikt
Dynamo Kiev
1-4 á útivelli í
Meistaradeild-
inni. Athygl-
isverðast við frábær úrslitin var
að fjóra af lykilmönnum liðs-
ins, þá Totti, Mexes, Perrotta
og Aquilani, vantaði en margir
spekingar hafa jafnan litið á lið-
ið sem tóma uppfyllingu fyrir
hinn frækna Totti.
Alveg er með ólíkindumhversu illa Javier Sav-iola gengur að festa sig
í sessi og virðist
einu gilda
hvernig hann
spilar eða hvað
hann skorar.
Rassafar hans
er farið að
myndast á bekk
Real Madrid þrátt fyrir þá stað-
reynd að hann er með 50%
markaárangur, tvö mörk í fjór-
um leikjum, og nú þykjast
ítölsk blöð hafa vissu fyrir að
Juventus vilji fá strákinn til sín
um jólin.
Þrátt fyrir milljarða krónaherferðir ManchesterUnited um gervalla Asíu
til að kynna
liðið og merki
þess virðist litli
erkifjandinn
City hafa betri
spil á hendi
hvað Kína
varðar. Vinsældir félagsins þar
eru með ólíkindum og helgast
ekki af krónu í kynningar held-
ur þeirri staðreynd að einn af
bestu leikmönnum kínverskum
í bransanum, Sun Jihai, leikur
með liðinu.
Sex leikmenn Real Madridfara á sölulista um ára-mótin. Þar á meðal Du-
dek og Drenthe sem keyptir
voru í haust.
Ekkert bólar á nýjum samn-
ingi Fernando Alonso. Eigandi
Red Bull-liðsins sem um tíma
átti í viðræðum við hann hef-
ur nú afskrifað hann end-
anlega og pirringur er kominn
í Renault-menn en tilboð frá
þeim hefur verið á borðinu
um tíma. Það tilboð er ekki
umsemjanlegt en Alonso virð-
ist hafa nóg annað að gera en
gera áætlanir um framtíð sína.
Hefur hann engin viðtöl veitt
vegna málsins um skeið.
Tímaeyðsla
Veigar Páll Gunnarsson knatt-
spyrnumaður fær frábæra
dóma fyrir handbolta í norsk-
um miðlum. Tilefnið var góð-
gerðaleikur stúlknaliðs Sta-
bæk í handbolta gegn
strákunum í fótboltaliðinu en
stúlkurnar reyndust sterkari
þegar upp var staðið og sigr-
uðu 30-26.
Bleikt og blátt
Scottie Pippen körfubolta-
stjarna komin til Svíþjóðar og
spilar fyrir Sundsvall Dragons
og danska íshokkídeildin er
farin að heilla leikmenn úr
NHL-deildinni en AaB-
hokkíliðið hefur ráðið til sín
Chris Dingman sem lék lengi
með Tampa Bay. Jákvætt fyrir
norðurhjarann en grafarbakki
fyrir hnígandi stjörnur
Norrænn
grafarbakki
Þrír íslenskir keppendur taka
þátt í Evrópumótinu í taek-
wondo sem fram fer í janúar í
Tyrklandi. Þau Björn Þorleifs-
son, Haukur Guðmundsson
og Auður Jónsdóttir borga
ferðir og uppihald úr eigin
vasa.
Borga eigin
brúsa
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
Það fer ekkert á milli mála. Töl-
fræðileg úttekt sýnir svo ekki verð-
ur um villst að Oakmont-golfvöll-
urinn er sá erfiðasti sem bestu
kylfingar heims reyna sig við en af
20 brautum sem erfiðastar reynd-
ust atvinnumönnunum þetta árið
voru sjö þeirra á Oakmont.
Tölfræðingar AP-fréttastofunnar
tóku saman meðalskor kylfinga á
PGA-mótaröðinni þetta árið og
reiknuðu þannig út hvaða brautir
reyndust þeim flóknastar. Miðað
við að þarna eiga óumdeilanlega í
hlut bestu kylfingar heims er ljóst
að umræddar brautir eru þá einnig
formlega þær erfiðustu í heiminum
þó sitt sýnist eflaust hverjum um
það. Stórmót voru haldin á þeim
öllum en aðeins ein þeirra er utan
Bandaríkjanna, 18. brautin á
Carnoustie í Skotlandi. Fjórar til-
heyra Augusta í Georgíu þar sem
Masters-mótið fer fram. Á Doral
eru tvær brautir hvað grimmileg-
astar og sama gildir um suðurvöll
Firestone-klúbbsins.
Átján þær erfiðustu eru par 4,
ein er par 3 og ein par 5 braut
kemst inn á listann sem ótrúlegt
má telja. Ekki kemur á óvart að sú
braut er ein af þessum illræmdu sjö
brautum á Oakmont.
Virðist svo auðvelt… Bestu kylfingar
heims telja sig afar góða að ná parinu á
18. brautinni á Doral-vellinum í Flórída.
Erfiðustu
brautir heims!
Atvinnukylfingar eiga í megnum erfiðleikum með margar braut-
ir á Oakmont Carnoustie veldur líka vonskuköstum
➤ 10. braut á Oakmont. Par 4. Meðalskor 4,529
➤ 1. braut á Oakmont. Par 4. Meðalskor 4,515
➤ 11. braut á Augusta. Par 4. Meðalskor 4,510
➤ 9. braut á Oakmont. Par 4. Meðalskor 4,494
➤ 1. braut á Augusta. Par 4. Meðalskor 4,474
➤ 8. braut á Oakmont. Par 3. Meðalskor 3,455
➤ 18.braut á Quail Hollow. Par 4. Meðalskor 4,474
➤ 9. braut á Firestone. Par 4. Meðalskor 4,447
➤ 9. braut á Pebble Beach. Par 4. Meðalskor 4,439
➤ 4. braut á Firestone. Par 4. Meðalskor 4,432
➤ 7. braut á Oakmont. Par 4. Meðalskor 4,430
➤ 18. braut á Southern Hills. Par 4. Meðalskor 4,429
➤ 18.braut á Augusta. Par 4. Meðalskor 4,423
➤ 4. braut á Augusta. Par 3. Meðalskor 3,417
➤ 12. braut á Oakmont. Par 5. Meðalskor 5,412
BRAUTIR 5 - 20
SKEYTIN INN
Ekki fyrir viðkvæma Stál-
taugar þarf á þá 18. á Carnous-
tie og jafnvel það dugir ekki til.
Doral Þar eru tvær af fimm erfiðustu
brautum á PGA mótaröðinni.
Oakmont Sú átjanda á Oakmont er
ekki ýkja mikið auðveldari.
Spygrass Hill Sú sjötta þar þykir
flóknari en andskotinn.