24 stundir - 29.11.2007, Blaðsíða 15
24stundir FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 15
Borgar Þór Einarsson lögmaður skrifar í Deiglunaum viðbrögð
Guðna Ágústs-
sonar, formanns
Framsóknarflokks-
ins, við fregnum um
að Ísland væri kom-
ið í efsta sæti lífs-
kjaralista Sameinuðu þjóðanna.
Guðni steig í pontu í umræðum á
Alþingi, þakkaði framsóknar-
mönnum árangurinn og óskaði
Samfylkingunni til hamingju með
að taka við góðu búi. Borgar Þór
rifjar upp ýmis ummæli Guðna
frá því að hann komst í stjórn-
arandstöðu, um að efnahagslífið
sé í kalda koli. „Svona maður á
auðvitað að gefa ævisögu sína út á
fimm ára fresti að lágmarki, hann
er frábær,“ skrifar Borgar.
Valgerður Sverrisdóttir,þingmaður Framsókn-arflokksins, var heima í
kjördæmi um síðustu helgi. Hún
skrifar um ljósleið-
arann sem kominn
er í Grýtubakka-
hrepp, en segir það
galla á gjöf Njarðar
að heimamenn
verði sjálfir að borga
hann „þrátt fyrir
Fjarskiptasjóð sem við framsókn-
armenn gerðum kröfu um við
sölu Símans. Málið er það að
Grýtubakkahreppur telst til
svæða þar sem fjarskiptafyr-
irtækin eiga að sjá sér hag í að
byggja upp nauðsynlega þjón-
ustu.“ Valgerður ályktar að í
Grýtubakkahreppi vanti „mark-
aðsbrest“ til að Fjarskiptasjóður
megi veita liðsinni til mannsæm-
andi háhraðatenginga.
Einu sinni hélt hópur hægri-sinnaðra hugsjónakvennaúti vefriti sem kallað var
Tíkin og barðist fyrir einstaklings-
frelsi, einkaframtaki
og jafnrétti. Á með-
al nafntogaðra
greinarhöfunda
voru Þorbjörg
Helga Vigfúsdóttir,
Vilborg G. Hansen,
Ásthildur Sturlu-
dóttir og margar fleiri. Í nýjustu
færslunni í vefritinu kemur fram
að Tíkin fari í sumarfrí 15. júní.
„Tíkarpennar hafa um tíma hug-
að að endurnýjun síðunnar og
sumarfríinu verður varið í hug-
myndavinnu. Ritstjórn mun taka
sér góðan tíma í þá vinnu í sumar
og gerir því hlé á ritstjórn-
arstörfum þar til í lok ágúst,“ segir
þar. Þetta er að verða dálítið langt
sumarfrí.
KLIPPT OG SKORIÐ
Nú stendur yfir 16 daga átak gegn
kynbundnu ofbeldi en heimilisof-
beldi og kynferðislegt ofbeldi eru án
efa algengustu mannréttindabrotin á
Íslandi í dag. Í því sambandi er fróð-
legt að rifja upp nýlegan dóm í
Kompásmálinu en þar voru þrír
menn sýknaðir af ákæru um tilraun
til kynferðisafbrots eftir að þeir
höfðu nálgast einstakling sem þeir
töldu vera 13 ára stúlku á netinu í
kynferðislegum tilgangi. Dómurinn
taldi að netsamskiptin gætu ekki tal-
ist vera sönnun um ásetning þeirra
þótt þeir hefðu mætt á umræddan
fundarstað. Dóminum hefur verið
áfrýjað til Hæstaréttar.
Hér var til umræðu hvort til-
raunaákvæði hegningarlaga hefði
dugað til að ná yfir svokallaða net-
tælingu gagnvart börnum í kynferð-
islegum tilgangi. Samkvæmt héraðs-
dómnum virðist svo ekki vera.
Sé vafi þá…
Fyrir stuttu tók ég þetta mál upp á
Alþingi og var dómsmálaráðherra
frekar jákvæður í garð hugsanlegra
lagabreytinga en hann vildi þó bíða
eftir niðurstöðu Hæstaréttar. Ég tel
hins vegar að alveg burtséð frá hugs-
anlegri niðurstöðu Hæstaréttar
þurfum við að breyta lögunum þar
sem niðurstaða dómstóls liggur fyrir
sem staðfestir að hægt sé að túlka
núgildandi lög á þann veg sem hér-
aðsdómstóllinn gerir. Það býður síð-
an hættunni á fleiri sýknudómum
fyrir svipaða verknaði heim. Við ætt-
um því að fara þá leið sem aðrar
þjóðir hafa farið að gera nettælingu
gagnvart börnum í kynferðislegum
tilgangi refsiverða í sjálfu sér. Þá
þurfum við ekki að vera háð mati
dómstólanna á tilraunaákvæði, sem
getur að sjálfsögðu alltaf verið mats-
kennt. Sé einhver vafi á að núverandi
lagaákvæði nái utan um slíkt athæfi
ber okkur að bregðast við því.
Vantar tálbeitur í lögin
Í Kompásmálinu reyndi einnig á
notkun tálbeitna. Talið var að ekki
hefði verið heimilt að nota tálbeitu
til að kalla fram refsiverða háttsemi
eins og var gert í þessu máli enda
samræmdist það ekki þeim reglum
sem gilda um notkun lögreglu á tál-
beitum við rannsókn mála. Jafn-
framt var talið að vafi léki á því hvort
heimilt hafi verið að byggja rann-
sóknina á gögnum Kompáss.
Þessi niðurstaða dómstólsins um
þessa tilteknu notkun fjölmiðils á
tálbeitum er hugsanlega rökrétt í
ljósi núverandi laga. Málið vekur þó
upp spurningar hvort við ættum
ekki að huga að lagabreytingum um
heimildir lögreglu til að beita tálbeit-
um. Mér finnst rökrétt að íslenska
lögreglan fái svipaðar lagaheimildir í
baráttu sinni gegn barnaníðingum
og aðrar þjóðir hafa. Ég er einnig
sannfærður um að lagaheimildir
lögreglu til að beita tálbeitum gegn
barnaníðingum myndu fæla hugs-
anlega gerendur frá þessu athæfi.
Með því einu væri mikið unnið.
Alvarlegustu brotin
Undanfarin ár höfum við tekið
mörg jákvæð skref í þessum mála-
flokki. Ég vil sérstaklega taka fram að
nú eru alvarleg kynferðisafbrot gegn
börnum ófyrnanleg en Ísland er lík-
lega eina landið í heiminum sem
hefur þessi brot ófyrnanleg.
Á hverju ári síðasta kjörtímabils
lagði ég fram frumvarp á Alþingi
þess efnis. Og loks á síðasta degi
þingsins á síðasta kjörtímabili voru
þessi brot gerð ófyrnanleg.
Aðrar jákvæðar breytingar hafa
einnig náðst undanfarin misseri og
má þar nefna að nú höfum við sett
eins árs lágmarksrefsingu fyrir alvar-
legustu kynferðisafbrotin gegn
börnum og hækkað kynferðislegan
lágmarksaldur. Þá er búið setja í lög-
in refsiþyngingarástæðu fyrir heim-
ilisofbeldi og breyta nauðgunar-
ákvæðinu þannig að nú tekur það
t.d. til rænulausra einstaklinga.
En baráttan gegn kynbundnu of-
beldi heldur áfram og margt er enn
ógert. Að mínu mati er þessi mála-
flokkur miklu mikilvægari en margt
annað sem fyrirfinnst í íslenskri
pólitík. Hagsmunirnir gerast ekki
meiri.
Höfundur er varaformaður
Samfylkingarinnar
Baráttan gegn
barnaníðingum
VIÐHORF aÁgúst Ólafur Ágústsson
Við ættum
því að fara þá
leið sem aðr-
ar þjóðir hafa
farið að gera
nettælingu
gagnvart
börnum í kynferðislegum
tilgangi refsiverða í sjálfu
sér
WWW.N1.IS
Í verslunum N1 færðu úrval af bílavörum, allt frá perum og kösturum til
barnabílstóla og slökkvitækja. Öryggi er lykilorð þegar kemur að rekstri
bílsins, og því mikilvægt að velja ávallt vandaðar og traustar vörur.
N1 - Meira í leiðinni.
U
Ung og falleg kona finnst látin, allsnakin, bundin á höndum
og fótum og ber merki um ofbeldi. Lögreglan á í dauðans
kapphlaupi við morðingjann sem stiklar á mörkunum milli
heima skynsemi og brjálæðis.
Fritz Már Jörgensson hefur gefið út tvær spennusögur sem
hafa slegið nýjan tón í íslenskri glæpasagnahefð.
www.skjaldborg.is
Nýr tónn í íslenskri
glæpasagnahefð
Skólavörðustíg 21 - Sími - 551 4050 - Reykjavík
Gullfalleg
sængurverasett
aldrei meira úrval
GEORGE FOREMAN
Heilsu- og sælkeragrill
Jólagjöfin í ár www.marco.is