24 stundir - 29.11.2007, Síða 6
Eftirlit með spilakössum er nú á
vegum sýslumannsins á Hvolsvelli
og kemur sumum sjoppueigendum
í Reykjavík, þar sem kassarnir eru
flestir, það spánskt fyrir sjónir.
,,Það var dómsmálaráðherra
sem ákvað að við skyldum sjá um
eftirlit og var það ákveðið í febrúar
á þessu ári. Þetta er hluti af til-
færslu verkefna út á land,“ segir
Kjartan Þorkelsson, sýslumaður á
Hvolsvelli.
Hann segir starfsmenn embætt-
isins hafa fundað með rekstrarað-
ilum og starfsmönnum í dóms-
málaráðuneytinu um málið. ,,Við
erum að vinna að verklagsreglum
og verðum svo í samvinnu við lög-
reglu á viðkomandi stöðum um
eftirlitið.“
Kjartan segir starfsmenn sýslu-
mannsembættisins einnig verða
við eftirlit á þeim stöðum þar sem
spilað er. ingibjorg@24stundir.is
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli með ný verkefni
Spilakassaeftirlit út á land
24stundirs/Árni Sæberg
6 FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 24stundir
Héraðsdómur Suðurlands hefur
dæmt karlmann til að greiða 200
þúsund
króna sekt
fyrir að slá
annan
mann með
hnefanum í
andlitið á
dansgólfi skemmtistaðarins
Pakkhússins á Selfossi í apríl.
Höggið lenti á hægra kinnbeini
og nefi fórnarlambsins, með
þeim afleiðingum að af hlaust
glóðarauga og mar. Maðurinn var
jafnframt dæmdur til að greiða
fórnarlambi sínu 140 þúsund
krónur í skaðabætur. aí
Greiðir 200 þúsund
Kýldi mann á
dansgólfinu
„Ég er að læra íslensku“ og
„Hvernig á að fallbeygja kýr“ eru
meðal þeirra frasa sem prýða
barmmerki sem Alþjóðahús, Efl-
ing, SVÞ og VR hafa látið útbúa.
Merkin eiga að stuðla að betra
viðmóti viðskiptavina við erlenda
starfsmenn við verslun og þjón-
ustu sem tala litla eða enga ís-
lensku. Merkin voru kynnt í Al-
þjóðahúsi í gær. ejg
Átak í verslunum
Betra viðmót
Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu
verða útgjöld ríkissjóðs til al-
mannatrygg-
inga og velferð-
armála samtals
94 milljarðar á
næsta ári.
Meira en helm-
ingur er vegna
elli- og örorku-
lífeyristrygg-
inga.
Samtals er
aukningin meiri en sem nemur
fólksfjölgun eða 46 prósent mið-
að við verðlag næsta árs. Hækk-
unin nemur 22 prósentum miðað
við launavísitölu. Útgjöld hækka
á áratug úr 205 þúsund krónum á
mann í 300 þúsund. bee
100 þúsund meira á mann
Útgjöld aukast
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
Verð fyrir farsímaþjónustu hækk-
aði á sama tíma og meðalnotkun
farsíma stóð í stað hérlendis á
tímabilinu 2002 til 2006. Sé miðað
við árið 1999 þá hefur meðalnotk-
unin minnkað á Íslandi. Þessi þró-
un er þveröfug við þá sem átti sér
stað annars staðar á Norðurlönd-
um og innan Evrópusambandsins
(ESB), þar sem verðið lækkaði og
notkunin jókst. Þetta kemur fram í
samnorrænni skýrslu eftirlitsstofn-
ana á fjarskiptamarkaði sem var
birt í fyrra.
Verð náð jafnvægi hjá hinum
Samkvæmt upplýsingum frá
Póst- og fjarksiptastofnun eru ekki
til nýrri tölur um meðalnotkun
farsíma sem stendur. Í 24 stundum
á þriðjudag kom fram að verð fyrir
farsímaþjónustu hefði hækkað um
23,5 prósent á Íslandi á sama tíma
og það lækkaði um tæplega 60
prósent annars staðar á Norður-
löndum. Mest var lækkunin hér-
lendis á liðnu ári á sama tíma og
verðið hafði náð nokkru jafnvægi í
nágrannalöndum okkar og hækk-
aði meira að segja í Danmörku
milli ára.
Verðið hindrar meiri notkun
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri
Póst- og fjarskiptastofnunar, segir
þessa þróun eina af meginniður-
stöðum skýrslunnar. „Svo virðist
vera samkvæmt þessum tölum að
neytendur setji fyrir sig í meira
mæli verðlagningu í farsímaþjón-
ustu á Íslandi en annars staðar á
Norðurlöndum. Í Finnlandi er til
dæmis um helmingur símnotenda
ekki með heimilissíma vegna þess
að verðþröskuldurinn milli fastl-
ínu og farsíma er orðinn svo lítill
að menn eru tilbúnir að borga að-
eins meira fyrir þægindin. Á Ís-
landi hafa menn ekki náð þessu
stigi.“ Hjá íslensku símafyrirtækj-
unum tveimur, Símanum og
Vodafone, kostar símtal úr farsíma
í heimasíma á bilinu 15 til 16,8
krónur á mínútu og símtal úr
heimasíma í farsíma á bilinu 17 til
21,1 krónu. Að hringja úr heima-
síma í heimasíma kostar hins vegar
á bilinu 1,7 til 1,85 krónur á mín-
útu á Íslandi.
Verðið hindrar
farsímanotkun
Á meðan verð fyrir farsímaþjónustu hækkaði á Íslandi stóð notk-
unin í stað Þveröfug þróun annars staðar á Norðurlöndum
➤ Markaðshlutdeild á íslensk-um farsímamarkaði er þannig
að Síminn er með 61 prósents
hlut og Vodafone/Sko með 39
prósent.
➤ Frá árinu 2002 hefur farsíma-fyrirtækjum fækkað á Íslandi
en fjölgað verulega annars
staðar á Norðurlöndum.
FARSÍMAMARKAÐUR
FARSÍMANOTKUN
Notkun farsíma mæld í fjölda mínútna á viðskiptavin á ári.
2.000
1.500
1.000
1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005
NOREGUR
ÍSLAND
DANMÖRK
FINNLAND
SVÍÞJÓÐ
Jeppadekk
Alorka • Vagnhöfða 6 • Sími 577 3080
Heilsársdekk
31" kr. 12.900
(31x10.50R15)
33" kr. 15.900
(33x12.50R15)
Úrval annarra stærða upp í 38".
Felgustærð 15", 16" 17" og 18".
Sendum frítt um land allt!
Við mælum með míkróskurði
P
IPA
R
• S
ÍA
• 70
622
Nánar á jeppadekk.is
Fundarstjóri: Einar Skúlason Alþjóðahúsi
13.00 – 14.20 Ávarp hr. Ólafs Ragnars Grímssonar
forseta Íslands
Dagur B. Eggertsson flytur opnunarávarp
og setur ráðstefnuna
Anh-Dao Tran verkefnisstjóri:
Hugmyndafræði og starfsaðferðir FÍNL
Reynslan af þátttöku og samstarfi ólíkra aðila:
Fjölnir Ásbjörnsson,
sviðsstjóri Iðnskóla Reykjavíkur
Páll Daníel Sigurðsson,
sviðsstjóri framkvæmdasviðs hjá Eykt hf
Hải Anh thị Nguyễn,
þátttakandi í FÍNL
Chung thị Nguyễn,
foreldri þátttakanda í FÍNL
Guðmundur Erlingsson,
mentor við FÍNL
14.20 Kaffihlé / video frá málþingi
14.40 – 15.00 Hildur Jónsdóttir:
Árangur FÍNL og tillögur verkefnisstjórnar
Fyrirspurnir
15.10 – 16.00 Hvernig munu niðurstöður verkefnisins nýtast okkur?
Helga Halldórsdóttir
sviðsstjóri RKÍ
Sigurður Bessason,
formaður Eflingar
Jóhanna Sigurðardóttir,
félagsmálaráðherra
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
menntamálaráðherra
Einar Skúlason
framkvæmdastjóri Alþjóðahúss: Samantekt og slit.
Leggjum framtíðinni lið
Lokaráðstefna tilraunverkefnisins
Framtíð í nýju landi
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
föstudaginn 30. nóvember kl. 13 – 16
Á ráðstefnunni er fjallað um hugmyndafræði, starfsaðferðir og árangur
verkefnisins sem miðar að því að efla ungmenni af erlendum uppruna í
námi og starfi. Þá verður fjallað um hvernig niðurstöður þess geta nýst til
framtíðar, sem og öðrum minnihlutahópum, og gerð grein fyrir tillögum og
ábendingum verkefnisstjórnar til stjórnvalda, skólayfirvalda, sveitarfélaga
og annarra sem hafa hlutverki að gegna við aðlögun ungra innflytjenda.
Aðgangur er ókeypis, en væntanlegir ráðstefnugestir eru beðnir um að skrá sig
með tölvupósti á netfangið anhdao.tran@reykjavík.is fyrir 29. nóvember nk.
GLAÐLEG BARNAFÖT
HÖRHANDKLÆÐI
HANNYRÐIR
HANDGERÐIR BURSTAR
ÚRVAL FALLEGRA JÓLAGJAFA
Laugavegi 8 sími 551-8640