24 stundir - 29.11.2007, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 24stundir
Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur
beva@24stundir.is
„Grunnskólum er ekki heimilt að
blanda saman kirkjulegu starfi og
almennu grunnskólastarfi. Þetta er
skýrt,“ segir
Bjarni Jónsson, varaformaður
Siðmenntar. Hann vísar til bréfs
ráðherra til grunnskóla um að
fermingarfræðsla eigi að fara fram
utan skólatíma og óheimilt sé að
veita nemendum í 8. bekk leyfi til
ferða á vegum kirkjunnar vegna
fermingarundirbúnings. Nokkrir
skólastjórar og íslenska þjóðkirkjan
telja tilmælin óskýr. Halldór Reyn-
isson hjá fræðslusviði Biskupsstofu
telur að ráðuneytið sé ekki að
reyna að koma í veg fyrir ferming-
arfræðslu á skólatíma, enda hafi
ráðuneytið ekki völd til að meina
skólastjórnendum að gefa leyfi liggi
gildar ástæður til. Halldór býst við
að ferðirnar verði áfram á skóla-
tíma en að foreldrar biðji um leyfin
en ekki kirkjan.
Kirkjan misskilur viljandi
Bjarni er ekki sáttur og grunar
kirkjuna um græsku. „Að mínu
mati er ekki hægt að misskilja þessa
grein, og það er frekar svo að kirkj-
an og stöku skólastjórar misskilji
viljandi til að réttlæta núverandi
ástand. Í 24 stundum í gær spurði
skólastjóri hvort skíða- og sólar-
landaferðir væru rétthærri en
fermingarfræðsla. Siðmennt bend-
ir á skólaskyldu í landinu og skóla-
tímann eigi ekki að nota í kirkju-
starf. „Ég veit ekki hvort ummæli
Halldórs eru hótun um að nú verði
foreldrar beittir þrýstingi til að við-
halda núverandi ástandi og biðja
um leyfi til kirkjustarfs. Kirkjan
þarf að sætta sig við að víkja.“
Burt með helgileiki og Biblíur
Skólastjórnendur og kennarar
velta fyrir sér framhaldinu. Frá
Grunnskóla Njarðvíkur er spurt
hvort Siðmennt vilji leggja niður
allt sem tengist kristni í skólum,
þar með jólafrí, páskafrí og allt sem
byggir á aldagamalli kristinni
menningu. Bjarni segir fríin kjara-
samningsatriði, en kirkjuferðir,
litlu jólin og útdeilingu Nýja testa-
mentisins telur hann þurfa að víkja
til að blanda ekki saman starfi
skóla og kirkju.
Litlu jólin úr
skólunum
Biblíurnar burt Kirkjan sætti sig við að víkja úr grunnskólum
Bráðum koma litlu jólin
og messuferðir hafa ver-
ið fastur liður í grunn-
skólum fyrir jólin.
➤ Kristin uppeldisviðmið víkjanú úr grunnskólum fyrir al-
mennri fræðslu um siðferði
sem mismunar ekki trúar-
brögðum.
➤ Kveðið er á um aðskilnaðskóla og kirkju í frumvörpum
að nýrri menntastefnu.
FJÖLMENNING
24stundir/Frikki
Menntaráð Reykjavíkurborgar
hefur samþykkt þá tillögu
meirihlutans að fara í saum-
ana á tilhögun og fyrir-
komulagi kennslu nemenda
með félagslegar, tilfinninga-
legar og hegðunarraskanir í
almennum grunnskólum, sér-
deild og sérskóla.
Í tilkynningu segir að leið-
arljós menntastefnu borg-
arinnar sé að ,,börnunum í
borginni líði vel, fari stöðugt
fram og öðlist uppeldi og
menntun fyrir líf og starf“. aí
Skóli án
aðgreiningar
Reykjavíkurborg
„Skólaþingið var bara mjög
skemmtilegt og núna veit ég meira
um það hvernig Alþingi virkar,“
segir Hafdís Matsdóttir, nemi í 10.
ÁP í Vogaskóla. Hún og samnem-
endur hennar tóku í gær þátt í
Skólaþinginu sem er eins konar
hlutverkaleikur þar sem þátttak-
endur fylgja reglum um starfshætti
Alþingis. Nemendur þinga um
ákveðin málefni en eiga að komast
að lýðræðislegri niðurstöðu með
því að hlusta á og meta rök og álit
annarra, tjá eigin skoðun og taka
afstöðu. Að sögn Freys Sverrisson-
ar, sem einnig er í 10. ÁP, var ung-
lingunum skipt í stjórnmálaflokka
sem svo fjölluðu um þingmálin.
„Ályktað var gegn hertu eftirliti
með kattahaldi en með auknum
hömlum á tölvuleikjanotkun barna
og herskyldu.“ fifa@24stundir.is
Hlutverkaleikur um störf Alþingis
Gaman á skólaþingi
Í sparifötunum Ungmennin mættu
snyrtileg til fara á þingfundinn
Íbúfen®
– Bólgueyðandi og verkjastillandi
Höfuð, herðar…
Notkunarsvið: Íbúfen inniheldur íbúprófen sem er bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Íbúfen er
notað við liðagigt, slitgigt, tíðaverkjum, tannpínu og höfuðverk. Einnig eftir minniháttar aðgerðir, t.d. tanndrátt.
Varúðarreglur: Fólk sem hefur ofnæmi fyrir íbúprófeni eða öðrum skyldum lyfjum (NSAID), með skerta
lifrarstarfsemi eða alvarlegan hjarta- og nýrnasjúkdóm ætti ekki að nota lyfið. Fólk sem hefur fengið astma,
nefslímubólgu eða ofsakláða eftir töku acetýlsalicýlsýru eða annarra bólgueyðandi lyfja ætti ekki að nota lyfið.
Nota skal lyfið með varúð hjá fólki með tilhneigingu til magasárs eða sögu um slík sár. Lyfið er ekki ætlað
barnshafandi konum. Aukaverkanir: Íbúfen getur valdið aukaverkunum eins og t.d. meltingaróþægindum,
niðurgangi, ógleði, útbrotum, þreytu og höfuðverk. Skammtastærðir: Fullorðnir: Venjulegir skammtar eru
600-2000 mg á dag í 3-4 jöfnum skömmtum. Ekki mælt með stærri skammti en 2400 mg. Börn: Venjulegir
skammtar eru 20 mg/kg líkamsþunga á dag í 3-4 jöfnum skömmtum. Börnum <30 kg skal eigi gefa meira en
500 mg á dag. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Júlí 2004.
Ánægja viðskiptavina íslenskra
tryggingafélaga hefur aldrei mælst
minni en nú samkvæmt niðurstöð-
um Íslensku ánægjuvogarinnar.
Þetta er þriðja árið í röð sem dreg-
ur úr ánægju viðskiptavinanna
með tryggingafélögin og er hún nú
fimm prósentum minni en hún var
árið 2004.
Óánægðastir á Norðurlöndum
Íslendingar eru einnig óánægð-
ari en aðrir Norðurlandabúar með
sín tryggingafélög. Ánægðastir eru
Danir sem líkar 14,4 prósentum
betur við ástandið á trygginga-
markaði en Íslendingum. Raunar
eykst ánægjan með tryggingamark-
aðinn á Norðurlöndunum nema á
Íslandi.
Mest ánægja með TM
Af íslensku tryggingafélögunum
er mest ánægja með þjónustu
Tryggingamiðstöðvarinnar (TM)
en minnst með þjónustu Sjóvár.
Samkvæmt niðurstöðunum
dregst ánægja viðskiptavina allra
íslenskra tryggingarfélaga saman
milli ára. thordur@24stundir.is
Ánægja með íslenska tryggingamarkaðinn
Aldrei mælst minni
Það er misskilningur að sérfræð-
ingsstarf hjá Matís flytjist suður
frá Ísafirði. Þetta segir Sjöfn Sig-
urgísladóttir, forstjóri Matís, að
því er greint er frá á fréttavefnum
bb.is. Sjöfn segir Jón Atla Magn-
ússon einungis hafa verið ráðinn
í stöðu verkefnisstjóra til ára-
móta og því vanti einhvern í hans
stað frá þeim tíma.
Staða Matís
auglýst aftur
Skiptar skoðanir
komu fram á Al-
þingi í gær um
samning um
framleiðslu dag-
skrárefnis fyrir
sjónvarp, sem
Ríkisútvarpið
ohf. og Björg-
ólfur Guðmundsson hafa gert.
Lýst var efasemdum um að samn-
ingurinn samræmdist lögum um
tekjustofna Ríkisútvarpsins en
menntamálaráðherra sagði að
samningurinn hefði ekkert með
þá tekjustofna að gera.
Margir þingmenn fögnuðu einnig
samningnum. mbl.is
Dagskrárgerð
á dagskrá þings
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hafði í fyrrinótt afskipti af þrem-
ur piltum sem höfðu brotið
flöskur í Hlíðunum. Fátt var um
svör þegar leitað var eftir skýr-
ingum á athæfi þeirra en á þeim
mátti helst skilja að þetta hefði
verið gert í gamni.
Lögreglan skammaði piltana og
þeir voru síðan látnir fjarlægja öll
glerbrotin eftir sig. Þegar allt var
orðið hreint á ný var þeim leyft
að halda ferð sinni áfram.
Unglingspiltur var staðinn að
veggjakroti í strætisvagni í Háa-
leitishverfi um hádegisbil í fyrra-
dag. Hald var lagt á tvo úðabrúsa
og tússpenna sem hann var með í
fórum sínum. Pilturinn var líka
með myndavél meðferðis og hafði
hann tekið myndir af öðru
veggjakroti.
Lögreglan hafði einnig afskipti af
nokkrum krökkum í Kópavogi í
fyrradag sem köstuðu snjóbolt-
um í bíla. Litlu mátti muna að
einn ökumannanna, sem fyrir
þessu varð, missti stjórn á bíln-
um sínum en framrúðan í bíl
hans brotnaði og því er um nokk-
urt tjón að ræða. Haft var sam-
band við foreldra krakkanna og
farið yfir málið sem lögregla seg-
ist líta alvarlegum augum.
mbl.is
Látnir fjarlægja glerbrotin