24 stundir - 29.11.2007, Qupperneq 40
40 FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 24stundir
SMÁRALIND
ÞÉR ER BOÐIÐ !
NÝJAR VÖRUR
VIKULEGA
LAUGAVEGI 95
GOTT ÚRVAL AF SÓFUM
TIL AFHENDINGAR FYRIR JÓL
a
Ég gerði skipið að mestu einn en fékk þó nokkrar
hendur til þess að halda við á meðan ég var að líma allt
saman. Í verðlaun fékk ég 16 manna rjómatertu, sem ég fór
með í skólann daginn eftir og bauð félögunum, ásamt öðru.
24ÚTI Á LÍFINU
24@24stundir.is
Í Fjöltækniskóla Íslands var haldin
piparkökuhúsakeppni á dögunum,
þó sigurverkið hafi átt lítið skylt
við piparkökuhús. „Þetta var eina
skipið í keppninni,“ segir Sigurður
Helgi Hallgrímsson, höfundur
piparkökuskipsins og nemi til
stýrimanns í Fjöltækniskólanum.
Hann neitar því ekki að sigurinn
hafi verið dísætur. „Ég gerði skipið
að mestu einn en fékk þó nokkrar
hendur til þess að halda við á með-
an ég var að líma allt saman. Í
verðlaun fékk ég 16 manna rjóma-
tertu, sem ég fór með í skólann
daginn eftir og bauð félögunum,
ásamt öðru.“ En hvað ætli Sig-
urður geri við þetta sérstaka skip
sitt? „Ég tími nú varla að borða
það. Kannski ég stilli því upp í
Smáralindinni.“
Piparkökuskipið hreppti 1. verðlaun Sigurður Helgi Hallgrímsson fyrir miðju var höf-
undur skipsins og sigurvegari keppninnar.
Pipar-
kökuskip
Dómnefndin íhugar möguleikana Guð-
björg, Francois og Björgvin
Keppnishús Eitt af krúttlegri húsum
keppninnar í Fjöltækniskólanum.
24stundir/Sverrir
Það var mikil gleði og húllumhæ á
Gauki á Stöng og Organ þegar tón-
listarhátíðin Nokia on Ice-
tónlistarhátíðin var haldin þar.
Motion Boys var ein af sex sann-
kölluðum gleðisveitum sem stigu á
stokk og skemmtu gestum fram á
rauða nótt. „Fólk virðist þurfa að
hreyfa sig við músíkina okkar,“
segir Birgir Ísleifur, söngvari Mo-
tion Boys. „Laglínurnar virðast
heilla fólk, þetta er svona melódíu-
drifið ryþma-popp.“ Birgir Ísleifur
er þekktur fyrir mikinn sviðs-
sjarma en man þó ekki hvað er það
brjálaðasta sem hann hefur fram-
kvæmt á sviðinu. „Mig langar hins
vegar rosalega að taka eitt kvöld
þar sem ég er í miðjum áhorf-
endaskaranum, geng á milli
manna og syng til þeirra,“ segir
hæfileikapilturinn.
Fólk þarf að hreyfa
sig við þessa músík
Strípalingur Siggi í Ultramegatechnobandinu Stefán er alltaf með hressari mönnum.
Stimamjúkur Biggi í Motion Boys
Ein stór fjölskylda Meðlimir Hjaltalín eru jafn margir og íbúar Eyrarbakka.
Fríða og fuglinn Alda Mjöll Sveinsdóttir og Þröstur Sigurðsson. Fyrir
neðan má sjá meðlimi Sprengjuhallarinnar ásamt heitum grúppíum.