24 stundir - 29.11.2007, Síða 42

24 stundir - 29.11.2007, Síða 42
Ólafur Páll Einn þeirra sem stigu sín fyrstu skref á Útvarpi Akraness Dagana 30. nóvember til 2. des- ember fer Útvarp Akranes í loftið í tuttugasta sinn. Útvarpað verður frá kl. 13:00 á föstudegi til kl. 16:00 á sunnudegi. Sundfélag Akraness starfrækir útvarpsstöðina eins og venjulega og útsendingin er fyrir löngu orðin fastur liður í jólaund- irbúningi bæjarbúa á Akranesi ásamt því að vera einhver mik- ilvægasta fjáröflun Sundfélagsins Elís Þór Sigurðsson útvarpsstjóri hefur verið hluti af Útvarpi Akra- ness síðustu árin og segir fjöl- breytnina í dagskrárgerð vera mikla þetta árið. „Meðal annars er pólsk-íslenskur þáttur sem 14 ára pólsk stúlka sér um ásamt kenn- aranum sínum. Tónlistin á föstu- dagskvöldið er svo bara spiluð af vínylplötum og þar fá gömlu slag- ararnir að hljóma. Á laugardags- kvöldið er tónlistin hins vegar öll valin af unglingum á Skaganum og dagskrágerðin alfarið í þeirra höndum.“ Dagskrárgerðamenn eru á ýms- um aldri og margir góðir útvarps- menn hafa stigið sín fyrstu fjöl- miðlaskref í Útvarpi Akraness. „Ólafur Páll er einn þeirra sem hafa ílengst í starfi dagskrárgerð- armanna, eftir að hann komst á bragðið hjá okkur,“ segir Elís Þór. „Svo hefur tónlistarmaðurinn Orri Harðarson komið að þessu af og til sem og leiklistarneminn Haraldur Ólafsson eða Halli Melló eins og hann er kallaður hér á Skaganum,“ segir útvarpsstjóri að lokum. Tuttugu ára afmæli Útvarp Akranes næstu helgi 42 FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 24stundir Eftir Ragnheiði Eiríksdóttur heida@24stundir.is Í hljómsveitinni Thundercats eru þeir Magnús Leifur og Bjarni Guð- mann sem báðir eru einnig í hljóm- sveitinni Úlpu. Ásamt söngkon- unni Jöru halda þeir útgáfutónleika á Organ í kvöld vegna nýútkom- innar plötu sinnar, New Wave. Unnin hratt og örugglega Magnús Leifur verður fyrir svör- um og er spurður út í nýju plötuna. „Já, við erum ánægðir. Eiginlega gekk allt upptökuferlið eins og við vildum. Platan er unnin skipulega, hratt og örugglega. Í upptökunum og mixinu úti í Glasgow bættist svo aðeins við plötuna en þá hittum við súdönsku söngkonuna Hindu Khogali og hinn skoska Nick Schooley, og þau eru bæði með á plötunni.“ Ekki fyrir þröngsýna Þegar Magnús er spurður út í Thundercats-nafnið segir hann að eiginlega heiti sveitin Þrumukettir þegar hún syngur á íslensku og Thundercats þegar textarnir eru enskir. „Hún heitir Þrumukettir því við erum bara svo miklir þrumu- kettir. Þetta hefur ekkert með teiknimyndirnar að gera eins og sumir halda.“ En hvernig tónlist er á nýju plöt- unni? „Þetta er góð tónlist en hún er þó ekki fyrir þröngsýna. Þetta er heilmikill bíladiskur, sem sagt tón- list sem gott er að hlusta á undir stýri. Tilvonandi hlustendur Thun- dercats vil ég þó biðja að fara var- lega í hlustuninni og hafa beltin alltaf spennt ef hlustað er í bíl, því það eru nokkur lög sem eru svolítið hressandi og fólk gæti farið að keyra of hratt,“ segir Magnús. Er tónlist Thundercats frábrugðin Úlpu? „Hún gæti alveg verið útsett fyrir Úlpu líka, en við ákváðum bara að hafa hana í þessum búningi. Platan heitir New Wave því þetta er eig- inlega nýja nýbylgjan.“ Ókeypis er á Organ í kvöld og drykkir á sérstöku þrumutilboði. Fyrir áhugasama er hægt senda Thundercats póst á netfangið thun- dercatstheband@gmail.com, gefa upp nafn og heimilisfang og platan verður send um hæl í póstkröfu. Thundercats Lofa þrumu- stuði á Organ í kvöld Útgáfutónleikar Thundercats Thundercats er nýja nýbylgjan Hljómsveitin Thunder- cats er ný hljómsveit sem er nokkurs konar hlið- arverkefni sveitarinnar Úlpu. Nafninu laust niður í huga meðlima eins og þrumu úr heiðskíru lofti. ➤ Hljómsveitin var stofnuð árið2006 og kom fram á geisla- plötunni Pældu í því sem pælandi er í undir nafninu Þrumukettir. ➤ Christian Pliefke hjá þýskafyrirtækinu Nordic Notes gef- ur út. THUNDERCATS 24 stundir/Frikki Á tímum þar sem allt virðist snúast um umhverfisvernd eru farnar að spretta fram margar býsna frumlegar hugmyndir sem eiga að geta stuðlað að verndun umhverfisins. Ein af þessum frumlegu hug- myndum er leitarvélin Blackle.com sem byggir að miklu leyti á hinni alheimsráðandi Google-leitarvél. Blackle-leitarvélin er með svört- um bakgrunni og skilar öllum nið- urstöðum með gráum stöfum en samkvæmt útreikningum vísinda- manna eyðir meðal-heimilistölva mun minni orku þegar hún birtir heimasíðu með svörtum bak- grunni heldur en með hvítum. Blackle var hönnuð af Heap Media og er leitarvélin hugsuð til að leggja sitt af mörkum til um- hverfisverndar. Hugmyndin að gerð leitarvélarinnar var blogg- færsla sem birtist á bloggsíðunni ecoiron.blogspot.com í byrjun árs- ins þar sem því var haldið fram að svört útgáfa af Google myndi spara 750 megavattstundir á ári hverju. Nú er bara spurning hvort netverj- ar yfirgefi Google til að bjarga jörðinni með Blackle. Umhverfisvænni leitarvél Blackle.com Kolsvört leitarvél 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Þetta er góð tónlist en hún er þó ekki fyrir þröngsýna. Þetta er heilmikill bíladiskur, sem sagt tónlist sem gott er að hlusta á undir stýri. JÓLAFÖTIN SEM KRAKKARNIR VILJA SMÁRALIND - KRINGLAN VIÐ HLIÐINA Á VERO MODA FULLAR VERSLANIR AF FALLEGUM JÓLAFATNAÐI KJÓLL 2690 Hljómsveitirnar Cliff Clavin, Thingtak og Artika komust áfram í fyrri undanúrslitum hljóm- sveitakeppninnar Global Battle of the Bands. Keppnin var haldin á Gauki á Stöng á þriðjudagskvöld, en sex hljómsveitir kepptu um þrjú sæti í úrslitunum sem fara fram á föstudagskvöld. Seinni undanúrslit fara fram á Gauki á Stöng í kvöld klukkan 20. Hljómsveitin sem sigrar í undan- keppninni keppir fyrir hönd Ís- lands í Global Battle of the Bands í London í desember. afb Þrjár hljómsveitir komust áfram Cliff Clavin Hljómsveitin er ein af þremur sem eru komnar í úrslit.

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.