24 stundir - 26.02.2008, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2008 24stundir
24stundir
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árvakur hf.
Ólafur Þ. Stephensen
Björg Eva Erlendsdóttir
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: 24stundir@24stundir.is, frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is
Prentun: Landsprent ehf.
Þjóðin hefur ekki þörf fyrir stjórnmálamenn sem ýta vandanum á und-
an sér. Það er einmitt það sem borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins
er sekur um. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson situr áfram sem oddviti flokksins
og þeim möguleika er haldið opnum að hann taki við borgarstjóra-
stólnum á næsta ári. Fæstir eiga þó von á því að svo verði.
Í borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna berst oddvitinn Vilhjálmur fyr-
ir pólitísku lífi sínu. Aðrir þrír borgarfulltrúar, Hanna Birna, Gísli Mar-
teinn og Júlíus Vífill, berjast fyrir pólitískum frama sínum. Varla verður
þetta kallaður samhentur hópur.
Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna hafði möguleika á að leysa
vandann. Álitlegasti kosturinn að margra mati var að útnefna Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur sem foringjaefni hópsins, enda stendur hún for-
ystuhlutverkinu næst. Því miður bar þessi hópur ekki gæfu til þess.
Sjálfstæðisflokkurinn er í meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Flokk-
urinn ber mikla ábyrgð og á að sinna velferð borgarbúa. Í innanbúðarslag,
þar sem hver reynir að ota sínum tota, er varla mikil orka eftir til að sinna
því sem sinna ber. Getur verið að borgin sé stjórnlaus?
Í starfi sínu standa stjórnmálamenn iðulega frammi fyrir vandamálum.
Þeir eru dæmdir af verkum sínum og því hvernig þeir bregðast við vanda-
málum. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn neita að horfast í augu við vand-
ann. Þeim þykir hann óþægilegur og svo eru þeir of uppteknir í græðg-
isfullri valdabaráttu til að leggja það á sig að bregðast við. Þeir ættu að
hugsa lengra fram í tímann. Borgarstjórnarflokkur í upplausn vinnur
varla sigra í næstu kosningum.
Staða Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar er afleit. Eflaust finnst honum að
hann hafi orðið fyrir ósanngjarnri og alltof harðri
gagnrýni. Vafalaust er nokkuð til í því að of hart hafi
verið gengið fram gegn honum. Það breytir þó ekki
því að staða hans er orðin vonlaus. Vilhjálmur hefur
langa reynslu í pólitík og ætti að skynja viðhorf um-
hverfisins. En þar sem það hentar ekki hagsmunum
hans virðist það vera honum um megn. Hann kýs að
sitja áfram og félagar hans í borgarstjórn, sem allir
vita að styðja hann ekki, munu nota næstu mánuði til
að vinna að eigin hag. Það virðist ekki lengur tími til
að hugsa um hag borgarbúa. Hið ágæta fólk í borg-
arstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins er á alvarlegum
villigötum og er hvorki að vinna flokki sínum né
þjóðinni gagn.
Stjórnlaus borg?
SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST
Þegar Davíð Oddsson samdi við
Halldór Ásgrímsson um, að
Halldór tæki við embætti for-
sætisráðherra af
sér, var sam-
komulagið bund-
ið við Halldór -
Geir H. Haarde
varð forsætisráð-
herra en ekki
framsókn-
armaður, þegar
Halldór hætti.
Nú verður sjálfstæðismaður
borgarstjóri, þegar Ólafur F.
hættir, þótt það verði annar en
Vilhjálmur Þ.
Á ruv.is mátti einnig lesa, að
Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins sæktist eftir því að verða
borgarstjóri á næsta ári.
Björn Bjarnason
bjorn.is
BLOGGARINN
Hver tekur við?
„Ég er ekki skúrkur,“ segir Vil-
hjálmur Þ. í viðtali við DV í dag.
Þessu er slegið upp á forsíðu
blaðsins. Menn
átta sig kannski
ekki á því en
þessi ummæli
enduróma fræg
orð úr stjórn-
málasögunni.
Það var þegar
Richard Nixon
sagði á blaða-
mannafundi 17. nóvember 1973:
„I am not a crook.“ Nixon ætlaði
að reyna að snúa taflinu sér í hag
með þessari ræðu en hann átti þá
mjög í vök að verjast vegna Wa-
tergate málsins. Það fór á annan
veg – orð hans höfðu þveröfug
áhrif – Nixon lét af embætti í
ágúst 1974.
Egill Helgason
eyjan.is/silfuregils
Ekki skúrkur
Sjómenn, skipstjórar og útvegs-
menn heimta að fá að veiða
loðnu. Hún er æti þorskins. Því
meira, sem veitt
er af loðnu, þeim
mun minna
veiðist af mun
verðmætari afla.
Þetta neita sjó-
menn, skipstjórar
og útvegsmenn
að sjá. Eins og
venjulega vilja
þeir bara moka upp hverju því
kvikindi, sem sést hverju sinni.
Þeir hafa spillt fiskimiðum með
botnvörpu. Þeir hafa ofveitt
hvern stofninn á fætur öðrum.
Þeir rífast linnulaust við Hafró
og rægja hana fyrir pólitíkusum.
Sjómenn, skipstjórar og útvegs-
menn eru alveg ófærir um ...
Jónas Kristjánsson
jonas.is
Vilja bara moka
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@24stundir.is
Hvort sem kvikasilfursmengunin í urr-
iðanum í Þingvallavatni verður rakin til
náttúrulegra ferla eða jarðvarmavinnslu Orkuveitu
Reykjavíkur á Nesjavöllum þá vekur ugg að hún
skuli hafa mælst um og yfir heilsuverndarmörkum.
Niðurstöður efnagreininga munu hafa legið fyrir
síðan síðla árs 2003 en einhverra hluta vegna hafa
þær ekki ratað úr höndum Umhverfisstofnunar til
almennings fyrr en nú nýlega. Hér þarf að huga að
nýju verklagi.
Undanfarin ár hefur OR lagt ríka áherslu á að afla
eins mikillar orku og hægt er á eins skömmum
tíma og hægt er til þess að anna eftirspurn álvera.
Það var því áægjulegt þegar forstjóri OR sagði að
Orkuveitan hefði nú hug á að skoða aðra kosti en
álver enda væri ekki heppilegt að hafa öll eggin í
einni körfu. Flest orkufrek starfsemi sem hefur ver-
ið í umræðunni notar einungis lítinn hluta af
þeirri orku sem eitt álver þarf. Því felur stefnu-
breyting OR í sér tækifæri til þess að ganga hægar
fram, þyrma óröskuðum svæðum og leggja aukna
áherslu á að leysa mengunarmál sem upp hafa
komið, s.s. brennisteinsvetnismengun og nú e.t.v.
kvikasilfursmengun.
Kvikasilfur er rokgjarnt efni af málmi að vera. Sé
það svo að mengunina megi rekja til affalls Nesja-
vallavirkjunar er ástæða til að ætla að í útblæstri
hennar sé einnig að finna kvikasilfur. Æskilegt er
að fram fari mælingar á kvikasilfri bæði frárennsli
og útblæstri virkjana á Hengilssvæðinu og í fram-
haldi af því verði starfsleyfi þeirra endurskoðuð
eftir því sem niðurstöður mælinga gefa tilefni til. Í
gildandi starfsleyfi fyrir Nesjavalla-
virkjun er ekki að finna nein
ákvæði um efnamælingar, hvorki í
útblæstri né heldur í frárennsli.
Losun kvikasilfurs er alvarlegt mál,
ekki síst hér á norðurslóðum þar
sem þetta rokgjarna eiturefni hefur
tilhneigingu til þess að ferðast frá
heitum svæðum miðbaugs í átt að
kaldari svæðum pólanna þar sem
það safnast upp í lífríkinu.
Höfundur er framkvæmdastjóri Landverndar.
Urriðinn og umhverfið
ÁLIT
Bergur
Sigurðsson
bergur@landvernd.is
VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna
VM – Félag vélstjóra og
málmtæknimanna heldur
kynningarfund á kjarasamningi við
SA á morgun, miðvikudag kl. 20:00
í Stássinu, Greifanum á Akureyri.
Kynning á kjarasamningi
VM á Akureyri